Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MINNSTAÐUR

18 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ

Grindavík | Um 40 cm langur

snákur af óþekktum uppruna

fannst á gangstétt á Víkurbraut í

Grindavík í fyrrakvöld. Lögreglan

var kölluð á staðinn og fjarlægði

hún snákinn og afhenti Heilbrigð-

iseftirliti Suðurnesja, að því er

fram kemur á vef Víkurfrétta. 

Ekki er vitað hver eigandi snáks-

ins er eða hvernig hann komst til

landsins en snákahald er strang-

lega bannað hér á landi. 

Hjá Heilbrigðiseftirlitinu á Suð-

urnesjum fengust þær upplýsingar

að hugsanlegt sé að snákurinn hafi

borist með vörusendingu til lands-

ins eða þá að honum hafi verið

smyglað. Talsvert er um að það sé

reynt og hafa nokkur tilfelli komið

upp hjá Heilbrigðiseftirlitinu síð-

ustu árin. Yfirleitt eru dýrin þó

smávaxin enda auðveldara að

smygla þeim heldur en stærri dýr-

um. 

Ekki er vitað af hvaða tegund

snákurinn var né hvort hann hafi

verið eitraður, en slíkt er ekki

rannsakað sérstaklega, nema snák-

arnir hafi bitið fólk. ?Hann er far-

inn til feðra sinna núna,? sagði

starfsmaður Heilbrigðiseftirlitsins í

samtali við blaðið í gær. 

Snákur fannst í Grindavík

Ljósmynd/Atli Már

JÓN Rúnar Jóhannsson, íbúi í Grindavík, tilkynnti

lögreglunni um snákinn í fyrrakvöld en sonur Jóns,

Ingi Freyr, 14 ára, ásamt vini sínum, Ragnari Má

Heimissyni, fundu snákinn á hellulagðri gangstétt á

Víkurbraut í Grindavík. 

Strákunum brá nokkuð þegar þeir sáu snákinn

sem reyndi að höggva til þeirra þegar þeir nálg-

uðust hann. Piltarnir létu Jón Rúnar vita og hringdi

hann í lögregluna. ?Snákurinn reyndi líka að

höggva til mín, þannig að við þorðum ekki að færa

hann til sjálfir,? sagði Jón í samtalið við blaðið í

gær. 

Lögreglan í Grindavík kom fljótlega á staðinn og

fjarlægði snákinn með skóflu og setti í plastpoka. 

Þótt strákunum hafi brugðið talsvert við að sjá

snákinn höfðu þeir gaman af atburðinum og fannst

fundurinn forvitnilegur. 

?Það fannst mér í raun líka,? sagði Jón. 

Ingi Freyr og Ragnar Már fundu snákinn á gangstétt

Snákurinn reyndi að höggva til þeirra

Reykjanes | Umhverfisviðurkenn-

ingar í Sandgerði og Vogum voru

veittar á dögunum. Á báðum stöðum

fóru viðurkenningarnar til garðeig-

enda sem hafa haldið görðum sínum

vel við þannig að þeir eru umhverfinu

til sóma. 

Umhverfisráð Sandgerðisbæjar

veitti þrennum hjónum viðurkenn-

ingu fyrir garða sína. 

Óskar Gunnarsson og Sólrún Vest

fengu viðurkenningu fyrir áhuga og

eljusemi í garðrækt og sagði um-

hverfisráð m.a. að sama væri hve oft

garðurinn væri skoðaður, alltaf væri

hann jafnfallegur. 

Marta Eiríksdóttir og Friðrik Þór

Friðriksson fengu viðurkenningu fyr-

ir endurbætur á húsinu Púlsinum í

Sandgerði og hrósaði dómnefnd þeim

hjónum fyrir þrautseigju og dugnað

við að endurbyggja húsnæði sem

margir töldu að ekki ætti eftir marga

lífdaga. 

Verðlaunagarðinn áttu svo hjónin

Guðmundur Sigurbergsson og Gunn-

hildur Gunnarsdóttir en í umsögn

dómnefndar sagði m.a: ?Stórkostlegt

umhverfi sem grípur mann strax. [?]

Greinilegt er að eigendur hafa lagt

mjög mikla vinnu í umhverfi sitt sem í

raun má líkja við sögusafn.?

Bergný Jóna Sævarsdóttir, for-

maður umhverfisráðs, afhenti verð-

launin og í ræðu sinni hvatti hún íbúa

Sandgerðis til að vera meðvitaða um

umhverfi sitt. 

Í Vogum voru þrjár viðurkenning-

ar veittar. Helgi Davíðsson var verð-

launaður fyrir að halda húsi sínu og

garði í góðu standi til fjölda ára og

stuðla þannig að bættu umhverfi,

Sveindís Pétursdóttir og Erlendur

Guðmundsson fengu viðurkenningu

fyrir fullfrágengna og fallega lóð við

nýlegt húsnæði sitt og að lokum fóru

fyrstu verðlaun til Maríu Óskarsdótt-

ur og Kristjáns Leifssonar fyrir ein-

staklega fallegan og gróðursælan

garð, en María og Kristján fengu

þessi sömu verðlaun einnig árin 1996

og 1999. 

Verðlaunin voru afhent á Fjöl-

skyldudeginum í Vogum.

Umhverfisviðurkenningar í Sandgerði og Vogum 

Sex viðurkenn-

ingar veittar 

Morgunblaðið/Reynir Sveinsson

Þau sem fengu viðurkenninguna voru ánægð með heiðurinn.

Hornafjörður | Bormenn í Al-

mannaskarðsgöngum settu Íslands-

met í gangaborun á dögunum þegar

þeir boruðu 106 metra á einni viku,

að sögn Ingjalds Ragnarssonar,

verkstjóra hjá Héraðsverki. 

Á mánudag höfðu alls verið bor-

aðir 463 metrar inn í fjallið sem jafn-

gildir um 41% af lengd ganganna.

Ingjaldur segist búast við að í viku-

lok verði bormennirnir nálægt því

hálfnaðir inn í fjallið og segir hann

að gangagerðin sé langt á undan

áætlun en gert var fyrir að boraðir

yrðu 36 metrar á viku að meðaltali. 

?Fyrstu vikuna eftir að verkið var

komið í fullan gang settu bormenn-

irnir Íslandsmet og boruðu 84 metra

á einni viku. Næsta úthald fór í 93

metra en þessi flokkur sem núna er

við vinnu setti enn nýtt met og bor-

aði 106 metra á einni viku,? segir

Ingjaldur. Hann segir þetta þó ekki

flýta framkvæmdinni en hjálpa til

við að skila verkinu á réttum tíma. 

Bormennirnir eru frá norska

verktakafyrirtækinu Leonhard

Nielsen og sönner. Fjórtán eru í

hverjum vinnuflokki og vinna þeir á

tíu tíma vöktum tvær vikur í senn en

flogið er með þá í beinu flugi frá

Noregi til Hornafjarðar. 

Á meðan norsku bormennirnir

þokast í gegnum fjallið vinna menn

frá G. Þorsteinsyni á Höfn að bygg-

ingu vegskála að norðanverðu. Búið

er að steypa þrifalag undir skálann

og verið er að binda járnagrindina. 

Þegar borunum í gegnum fjallið

lýkur verður hafist handa við veg-

skálagerð að sunnan. Um leið verða

göngin fóðruð og vatnsvarin og

byrjað á vegagerð og lagnavinnu í

göngunum. Efnið sem kemur úr

göngunum verður nýtt í fyllingar

undir veginn að sunnanverðu. Jarð-

göngin verða 1.146 m löng, stein-

steyptir vegskálar 162 metrar.

Verkinu á að vera að fullu lokið 15.

júní 2005. 

Íslandsmet í

gangaborun 

Bormenn við Almannaskarðsgöng settu Íslandsmet í borun á einum degi.

Ljósmynd/Sigurður Mar Halldórsson

Hveragerði | Orkuveita Reykjavíkur

og Hveragerðisbær undirrituðu í gær

samning um kaup OR á Hitaveitu

Hveragerðis. Það voru þeir Þorsteinn

Hjartarson, forseti bæjarstjórnar

Hveragerðisbæjar, og Alfreð Þor-

steinsson, formaður stjórnar OR,

sem undirrituðu samninginn í glamp-

andi sól og hita við hverasvæðið í

Hveragerði. 

Orkuveita Reykjavíkur kaupir

Hitaveitu Hveragerðis með öllum

borholum, götuæðum og öðrum bún-

aði og verður hitaveitan hluti af starf-

semi OR framvegis. Í haust verður

opnuð sérstök þjónustuskrifstofa OR

í Hveragerði.

Kaupverð er tvö hundruð og sextíu

milljónir króna og er kaupverðið m.a.

miðað við áætlanir um endurnýjun og

uppbyggingu á hitaveitukerfum á

þann hátt, sem gert hefur verið á síð-

ustu árum. Við yfirtöku á rekstrinum

mun OR færa gjaldskrá á veitusvæð-

inu til samræmis við gjaldskrá OR í

Reykjavík, að því er fram kemur í

fréttatilkynningu frá samningsaðil-

um.

Fyrir utan uppbyggingu veitukerf-

anna og endurnýjun þeirra, kemur

fram í ákvæðum samningsins að

Orkuveita Reykjavíkur muni beina

verkefnum tengdum Heilsuborgar-

verkefninu að Hveragerði að svo

miklu leyti sem það er talið henta og í

samráði við stjórnendur Heilsuborg-

arverkefnisins og Hveragerðisbæjar.

Aðgerðir í þágu ferðafólks

Í fréttatilkynningunni segir að

Orkuveita Reykjavíkur muni í kjölfar

undirritunar samningsins halda

áfram að sinna umbótum og aðgerð-

um í þágu ferðafólks á Hellisheiði og

Hengilssvæðinu. Verkefni sem fallið

geta undir þetta eru t.d lagfæring og

merking göngu- og reiðleiða í sam-

starfi við aðra hagsmunaaðila, upp-

græðsla og gerð upplýsingaskilta fyr-

ir ferðamenn. 

Þá mun Orkuveitan, skv. nánara

samráði við Hveragerðisbæ, aðstoða

við nauðsynlegar endurbætur á

hverasvæðinu í Hveragerði.

Ennfremur kemur fram að OR

muni leggja ljósleiðara (háhraðanet)

um Hveragerðisbæ samkvæmt nán-

ara samkomulagi og í samráði við

bæjaryfirvöld. Ljósleiðarinn verður

eign og alfarið rekinn á ábyrgð OR.

Íbúar Hveragerðis munu þá njóta

sömu tækni í gagnaflutningum og

Reykvíkingar. Lagning ljósleiðara til

heimila verður unnin í samræmi við

slíka uppbyggingu Orkuveitunnar í

Reykjavík.

Orkuveita Reykjavíkur kaup-

ir Hitaveitu Hveragerðis

Kaupverðið um

260 milljónir

Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir

Samningsaðilar skrifuðu undir í blíðviðri við hverasvæðið í Hveragerði í

gær. Á myndinni eru frá vinstri Herdís Þórðardóttir, Þorsteinn Hjart-

arson, Alfreð Þorsteinsson og Guðmundur Þóroddsson. Fyrir aftan standa

Ásgeir Margeirsson og Orri Hlöðversson. 

SUÐURNES

LANDIÐAUSTURLAND

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48