Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MINNINGAR

MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 31

og afskaplega indæll. Þessi orð eiga

alveg ágætlega við þig.

Það er sárt að sakna, en það er líka

vissulega gott að elska, en ást og

hlýja var eitthvað sem alltaf var hægt

að finna hjá þér og ömmu.

Þó að það sé sannarlega erfitt að

vita til þess að þú sért farinn, er ekki

annað hægt en að gleðjast yfir því að

þú og amma skuluð vera saman á nýj-

an leik og það veitir manni mikla

huggun og gleði.

Þið tvö veittuð mér alltaf alveg

ótrúlega mikla ást og umhyggju og

fyrir það er ég afar þakklátur.

Þið tvö munuð alltaf eiga stórt

pláss í hjarta mínu.

Ég vil bara nýta tækifærið og

þakka ykkur báðum fyrir þær stund-

ir sem ég átti með ykkur.

Þær eru mér alveg ótrúlega mikils

virði.

Ykkar að eilífu, 

Bragi Freyr Kristbjörnsson.

Fyrir stuttu sagði afi við mig: Þú

skalt aldrei reykja og drekka brenni-

vín og hann kenndi mér margt sem

ég gleymi aldrei. Ég og mamma

keyptum ís fyrir afa þegar hann var

að slá úti í sumarbústað. Hann gaf

mér alltaf flottar afmælisgjafir. Hann

valdi happatöluna mína sem er 6 og

ég heiti nú Pálmi Bjarni. Hann fór

alltaf svo snemma í sund en þá var ég

aldrei vaknaður. Takk fyrir allt sam-

an, kveðja 

Pálmi Bjarni Óttarsson.

Nú hefur Bjarni afi kvatt, hann er

kominn til ömmu. Það er alltaf sárt að

kveðja, en afi var ekki maður sem

hefði getað staðið í veikindum í lang-

an tíma. Við systkinin vorum venju-

lega í pössun hjá ömmu og afa þegar

foreldrar okkar voru fjarverandi. Ég

man eftir því að hafa vaknað einn

morguninn, afi var líklega 73 ára og

ég 10 ára. Þá var hann búinn að moka

stéttina, fara í sund og fara á göngu-

skíðum suður í sumarbústað. Mér

fannst ótrúlegt hvernig hægt væri að

afreka svona mikið á köldum vetrar-

degi og það fyrir klukkan tíu á

morgnana.

Það er ekki nema mánuður síðan

við afi áttum áhugavert samtal. Þá

fussaði hann yfir því að hann væri

móður ef hann hjólaði í 20 mínútur á

þrekhjólinu og færi svo beint í sund

og synti sínar daglegu ferðir. Ég gat

nú ekki annað en brosað. Efast um að

það séu margir 83 ára gamlir menn

sem leggja í leikfimina hans afa.

Ég á eftir að sakna þess að fá ekki

rembingskoss á kinnina og hlýtt

faðmlag frá elsku Bjarna afa mínum.

Megi hann hvíla í friði. 

Oddný Þóra Kristjánsdóttir.

Ein fyrsta minning okkar frá yngri

árum er af afa í brúna stólnum um-

kringdan barnabörnum syngjandi og

trallandi með okkur. Okkur fannst

alltaf skemmtilegast þegar hann

söng ró ró og rumma og ruggaði okk-

ur og hossaði í allar áttir.

Afi var þeim skemmtilega hæfi-

leika gæddur að geta framkvæmt

marga hluti í einu. Þegar maður kom

í heimsókn þá sat hann oft í stólnum

sínum með útvarpið á eyrunum, bók í

hendinni, sjónvarpið á fullu og að

spjalla við mann. Það skrítna við

þetta er að hann virtist alltaf ná að

fylgjast með alstaðar.

Afi var óendanlega duglegur, það

er skemmtilegt frá því að segja að

þegar við vorum að koma dauð-

þreyttar í sumarbústaðinn eftir langa

vinnuviku, þá heyrði maður alltaf í

honum spyrja hvort stelpurnar ætl-

uðu ekki að fara að gera eitthvað.

Hann hafði alltaf nóg af verkefnum

fyrir mann í Visnesi, hann vildi alltaf

að garðurinn liti vel út því honum

leiddist ekki þegar garðurinn fékk

hrós.

Afi fór með okkur í ófáar sundferð-

ir þó svo að við ungar og sprækar

systurnar hefðum ekkert í hann að

gera. Þegar við komum heim laum-

aðist hann til að gefa okkur uppáhald-

ið okkar brauð með smjöri og sykri.

Þetta fékk maður bara hjá afa

Bjarna.

Afi heilsaði fólki alltaf á mjög

skemmtilegan hátt, hann smellti á

mann kossi og klappaði manni svo

fast á bakið, sama hvort um konur

eða karla var að ræða.

Meiri sælkera en afa var varla

hægt að finna og aldrei þurfti að kalla

á hann oftar en einu sinni í kaffi, sér-

staklega ef sætabrauð var á boðstól-

um. Einu sinni þegar við bjuggum á

Skagfirðingabrautinni komu afi og

amma í heimsókn, mamma hafði

útbúið veisluborð með ostum og

fleiru, en þá voru afi og amma ekki

mikið með svona osta. Afi sker sér

væna sneið af einhverju sem hann

hélt að væri einhverskonar smákaka

og stingur uppí sig. Eftir smá stund

stendur hann á öndinni því kakan var

í raun og veru piparostur.

Er sárasta sorg okkur mætir 

og söknuður huga vorn grætir 

þá líður sem leiftur úr skýjum 

ljósgeisli af minningum hlýjum.

(H.J.H.)

Elsku afi takk fyrir allt, þú ert allt-

af langflottastur í okkar huga. Elsku

Pabbi, Siggi, Halli, Stjáni, Krist-

björn, Auður og fjölskyldur, guð

styrki ykkur í sorginni. Afa verður

sárt saknað.

Þínar afastelpur 

Rebekka, Þuríður og 

Eygló Þóra Óttarsdætur.

Elsku afi minn.

Það er margt sem maður þarf að

takast á við í lífinu en það að missa

ástvin er alltaf það erfiðasta. Alveg

sama hversu langan tíma maður fær

til að búa sig undir það þá er maður

aldrei tilbúinn. Á svona stundum

verður maður bara að vera sterkur

og hugsa til þess að þér líður betur

núna. Ég veit að það hefur ekki verið

auðvelt fyrir þig að vera rúmliggjandi

því duglegri mann hefur Ísland ekki

alið af sér. Í mínum augum ertu

sterkasti, fallegasti og besti maður

sem ég hef þekkt. Þegar ég var yngri

fannst mér alltaf jafn skemmtilegt og

ekki síður flott að segja að afi minn

hefði verið lögga. Ég man meira að

segja eftir einu skipti þar sem ég dró

fram fjölskyldumyndaalbúmið til að

sýna vinkonum mínum mynd af þér í

búningnum. Það geta fáir státað af

flottari afa. Þegar ég hugsa til baka

man ég ekki eftir þér öðruvísi en með

gráa hárið greitt aftur, í skyrtu og

alltaf svo góð lykt af þér. Svo varstu

alltaf jafn flottur þegar þú settir upp

hattinn.

Ef ég ætti að gera lista með öllum

kostunum sem þú hafðir að bera yrði

hann óendanlegur. En eitt verð ég að

minnast á. Þú ert eini maðurinn sem

ég þekki sem getur horft á sjónvarp-

ið, hlustað á útvarpið og lesið bók ?

allt í einu. Og þú vissir alltaf ná-

kvæmlega hvað var að gerast á hverj-

um stað. Þetta þykir mér ávallt jafn

merkilegt.

Það er í rauninni ótrúlegt að hugsa

til þess að það eru engin amma og afi

næst þegar ég kem til Sigló. Enginn

afi sem tekur á móti mér með út-

breiddan faðm og Rás 2 í bakgrunn.

Ég á aldrei aftur eftir að kyssa mjúku

kinnina þína og finna skeggbroddana

þína. Ég á aldrei aftur eftir að setjast

með þér við eldhúsborðið og borða

nýbakað brauð og karamellusúr-

mjólk. Og ég á aldrei eftir að geta

sagt þér hversu vænt mér þykir um

þig. En í staðinn á ég fullt af ynd-

islegum minningum um þig sem ég á

alltaf eftir að varðveita.

Þín sonardóttir, 

Dagný Rut Haraldsdóttir.

Þegar hið mikla ævintýri hófst sem

bjargaði þjóðinni og gerði hana sjálf-

stæða, fluttist fólk alls staðar að af

landinu til bæjarins því mikið verk

var að vinna. Það var fyrir allar þær

vinnufúsu hendur sem að verkinu

komu, svo og dugnað og atorkusemi

þeirra sem mættu til leiks að grunn-

urinn var lagður að því samfélagi sem

varð til á Siglufirði á öldinni sem hef-

ur nú kvatt okkur. Bjarni Sigurðsson

var einn þeirra fjölmörgu sem seint

verður fullþakkað fyrir að hafa átt

þar hlut að máli.

Ég man fyrst eftir Bjarna þegar ég

var á röltinu niður í bæ með afa.

?Sæll Lói frændi,? sagði hann og

heilsaði okkur innilega, ?og þú líka

Lói frændi,? sagði hann aftur og leit

til mín. Þeir spjölluðu saman um

stund og síðan hélt Bjarni áfram för

sinni eftir að hafa klappað mér á koll-

inn. ?Við erum Vestfirðingar,? sagði

afi en ég sagði ekki neitt því ég hélt

nú reyndar að við værum Siglfirðing-

ar.

Eitt sinn fyrir margt löngu hitti ég

Bjarna á förnum vegi og hann heils-

aði að venju. ?Sæll Lói frændi!? Við

tókum tal saman og hann sagði mér

að þegar strákarnir hefðu verið orðn-

ir fimm eftir að Stubbi litli fæddist

hefði hann haft í fyrstu svolitlar

áhyggjur af að ekki yrði nóg til að

borða fyrir alla drengina en til allrar

hamingju væri næga vinnu að hafa.

Þeir sem til þekkja vita að það var

aldrei vandamál hjá Bjarna Sigurðs-

syni að vinna.

Í síðasta sinn sem fundum okkar

bar saman hafði mér dottið í hug að fá

mér bíltúr yfir á gamla flugvöllinn til

að líta yfir bæinn frá ströndinni hin-

um megin við fjörðinn. Þá sá ég ein-

hverja hreyfingu við bústaðinn hans

Óttars og staldraði örlítið við. Þarna

var Bjarni að ganga frá garðáhöldum

og ég rölti upp að húsinu og heilsaði

honum. Hann heilsaði kurteislega á

móti en það var ekki fyrr en ég var

kominn alveg til hans og hann sá hver

var á ferð að ég fékk að heyra hina

gamalkunnu kveðju. ?Nei blessaður

Lói frændi! Þú verður að koma hérna

og sjá þetta.? Við gengum um nýsleg-

inn völlinn og Bjarni var greinilega

stoltur af staðnum og umhverfi hans.

?Það var annars ágætt að þú komst

því nú þarf ég ekki að láta hann

Stjána sækja mig.? Nú verður sama

hversu oft ég legg leið mína um göt-

una handan fjarðarins. Bjarni Sig-

urðsson tekur ekki á móti mér lengur

með kveðjunni: ?Sæll Lói frændi??

Leó R. Ólason.

L50098 Fleiri minningargreinar

um Bjarna Sigurðsson bíða birting-

ar og munu birtast í blaðinu næstu

daga. Höfundar eru: Róbert, Selma

og Linda Þórdís, Hrafnhildur Krist-

björnsdóttir, Ólafur Jóhannsson.

Kársnesbraut 98  Kópavogi

5644566  www.solsteinar.is

Símar 581 3300 -896 8242

Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla

Suðurhlíð 35?Fossvogi ? www.utforin.is

Sverrir

Olsen,

útfararstjóri.

Sverrir

Einarsson,

útfararstjóri.

Bryndís

Valbjarnardóttir,

útfararstjóri.

Baldur

Frederiksen,

útfararstjóri.

Guðmundur Þór

Gíslason,

útfararstjóri.

ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS

Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,

afi og langafi,

STEFÁN STEFÁNSSON

í Brennigerði,

verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju

föstudaginn 13. ágúst kl. 14.00.

Herdís Ólafsdóttir,

Margrét Stefánsdóttir, Álfur Ketilsson

og fjölskylda.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma

og langamma,

SIGURJÓNA FRIÐJÓNSDÓTTIR,

Þrastarási 71,

Hafnarfirði,

verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu-

daginn 13. ágúst kl. 13.30.

Friðjón Pálsson, Hrafnhildur Karlsdóttir,

Halldór Pálsson, Helga G. Ólafsdóttir,

Gísli Pálsson, Hrafnhildur G. Sigurðardóttir,

Sigríður G. Pálsdóttir, Helgi Magnússon,

barnabörn og barnabarnabörn.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og

langamma,

MARÍA HAUKDAL,

verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstu-

daginn 13. ágúst kl. 13.00.

Rut Ríkey Tryggvadóttir,

Árni H. Kristjánsson, Lilja B. Jónsdóttir, 

Ólafur Kristjánsson, Sesselja Björnsdóttir,

Theodóra Kristjánsdóttir, Teitur Björgvinsson,

Elín Lóa Kristjánsdóttir,

barnabörn og langömmubarn.

Eiginmaður minn, bróðir, faðir, tengdafaðir og

afi,

MAGNÚS HJÖRLEIFUR GUÐMUNDSSON,

Heggsstöðum,

verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugar-

daginn 14. ágúst kl. 14. 

Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en

þeim, sem vilja minnast hans, er bent á reikn-

ing í Sparisjóði Mýrasýslu nr. 1103-05-416161,

til styrktar Lárusi Torfa og Ingu Bjarkar, Borgarnesi.

Guðrún Jónmundsdóttir,

Kristín Guðmundsdóttir,

Ragnheiður Steinunn Hjörleifsdóttir, Klemenz Halldórsson,

Jónmundur Geir Hjörleifsson, Margrét Friðjónsdóttir,

Ragnar Hjörleifsson, Gunnhildur Knútsdóttir,

Guðmundur Rúnar Hjörleifsson, Þórdís Árný Örnólfsdóttir

og barnabörn.

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,

tengdafaðir, afi og langafi,

EIRÍKUR ÁSMUNDSSON

frá Stóru-Reykjum,

Hamraborg,

Svalbarðseyri,

verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju laugar-

daginn 14. ágúst kl. 14.00.

Hulda Magnúsdóttir,

Steinunn A. Eiríksdóttir,

Ásmundur Eiríksson, Unnur Þorsteinsdóttir,

Magnús Eiríksson, Guðrún Ólöf Pálsdóttir,

Steinar Ingi Eiríksson, Ólína Sigríður Jóhannsdóttir,

Ingþór Eiríksson,

Hrafnhildur Eiríksdóttir, Sigurður Bergþórsson,

Haukur Eiríksson, Bára Sævaldsdóttir,

barnabörn og barnabarnabörn.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48