Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MINNINGAR

32 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ

?

Páll fæddist á

Litlu Hellu á

Hellissandi 23. maí

1912. Hann andaðist

á Hrafnistu í Hafnar-

firði 6. ágúst síðast-

liðinn. Foreldrar

Páls voru Jón Guð-

mundsson barna-

kennari frá Bjarna-

stöðum í Dalasýslu, f.

1881, d. 1918 og Sig-

ríður Andrésdóttir

húsmóðir og sauma-

kona, f. 1880, d. 1969.

Seinni maður Sigríð-

ar var Jóhann Magn-

ússon, d. 1938. Systkini Páls eru

Herdís Anna, f. 1910, d. 1996, Val-

gerður, f. 1913, d. 1994, Haraldur,

f. 1914, d. 1914, Kornelía, f. 1915,

d. 1919, og Guðmundur, f. 1917, d.

1997. Hálfsystkini Páls sam-

mæðra eru Andrés, f. 1919, d.

1919, Helga, f. 1921, d. 1991,

Magnús, f. 1922, Ásgeir Jón, f.

1925, og Ingibjörg, f. 1928.

Páll kvæntist 1936 Hrefnu

Guðnadóttur, f. 20.6. 1916, d. 8.5.

1997. Foreldrar hennar voru

Guðni Jónsson, sjómaður og

bóndi, og Margrét Brynjólfsdótt-

ir, ferjukona á Ölfusá, búsett á

Óseyrarnesi og í Selvogi.

Páll og Hrefna eignuðust fjögur

börn: Gretar Vídalín útgerðar-

maður í Sandgerði, f. 1936, maki

Fanney Haraldsdótt-

ir, f. 1940, d. 1992.

Þau eiga þrjú börn,

níu barnabörn og

barnabarnabarn er á

leiðinni. Kolbrún

Angela, f. 1938, d.

1940, Sigurjón Aron,

f. 1948, búsettur í

Svíþjóð, og Guðni

Rúnar, f. 1950, maki

Herdís Hallgríms-

dóttir, f. 1953. Þau

eiga tvær dætur.

Þau búa í Dan-

mörku.

Páll ólst upp í

Beruvík, á Gufuskálum, Spör í

Eyjafjallasveit og á Fossi, á milli

Sands og Ólafsvíkur. Hann fór

fyrst til sjós 10 ára gamall á mót-

orbát frá Sandi og á fermingar-

daginn flutti hann alfarið að heim-

an, en hann fór þá á skonnortuna

Fortuna frá Þingeyri. Páll var oft-

ast á sjó upp frá því að undan-

skildum 10 árum eftir stríð er

hann var vélamaður hjá Vega-

gerðinni. Páll og Hrefna keyptu

Þórustaði á Vatnsleysuströnd

1957 og bjuggu þar til 1986. Þau

fluttu þá til Hafnarfjarðar. Á

Þórustöðum stundaði Páll lítils

háttar útgerð og búskap.

Páll verður jarðsunginn frá rík-

issal Votta Jehóva í dag og hefst

athöfnin klukkan 11.

Elskulegur tengdapabbi minn hef-

ur kvatt okkur eftir langa ævi. Síð-

ustu mánuðirnir hafa reynst honum

erfiðir.

Ég kynntist Palla og Hrefnu fyrir

33 árum. Þau ár eru í minningunni

bæði góð og ljúf að hugsa til. Ég man

hvað það var alltaf gaman að koma á

ströndina til þeirra. Móttökurnar

alltaf jafn góðar. Yfirleitt var sest

niður og tekið í spil ef tími var til og

eftir á voru borðaðar bestu pönnu-

kökur í heimi.

Páll var góður maður á margan

hátt. Hann var ákveðinn og vilja-

sterkur svo eftir var tekið. Hann

mátti ekkert aumt sjá. Hann var

harður við sjálfan sig. Hann var mik-

ill sagnamaður. Ég var á Íslandi fyr-

ir rúmu einu ári og fór þá meðal ann-

ars til hans, hann hafði dottið illa á

sunnudeginum og brotið nokkur rif-

bein en það aftraði honum ekki að

bjóða okkur mæðgum út að borða

daginn eftir og fara svo í heimsókn

til Nonna bróður síns. Svona var

Palli minn, aldrei hugsað um hvernig

heilsan væri. Það var bara haldið

áfram.

Mig langar til að skrifa tvö vers úr

ljóði um Palla sem bróðir hans Nonni

orti til hans þegar hann varð níræður

fyrir tveim árum, þetta ljóð segir svo

mikið.

Kvikar ekki kempan hrausta 

kræf þó ellin þusi fúl. 

Í æsku kynntist heimi hörðum, 

herti manninn strit og púl.

Æði marga þraut hann þreytti, 

þolgóður til sjós og lands. 

Þegar lífsins braut á boðum 

bilaði aldrei kraftur hans.

Ef að honum illir sóttu 

allsósmeykur kappinn var,

kunni síst að hopa af hólmi, 

harður löngum sigur bar. 

Aldrei virti valdsmanns hroka, 

veginn frjáls og stoltur gekk, 

öll sín störf of orku leysti, 

af því lof og heiður fékk.

(Á.J.J.)

Það verður erfitt að sætta sig við

að þú sért farinn, en við vitum að

núna líður þér vel og við vitum að

Kolla þín og Hrefna hafa tekið vel á

móti þér. Hafðu þökk fyrir allt og

allt.

Þín tengdadóttir, 

Herdís Hallgrímsdóttir.

Elsku besti afi. Það er erfitt að

hugsa til þess að þú sért ekki hérna

meira. Það gerir svo sárt inni í hjart-

anu. Þú varst alltaf svo góður við

okkur systurnar.

Þegar við vorum í pössun hjá ykk-

ur ömmu fórum við alltaf með fulla

poka af dóti eða fötum með okkur

heim, þó að mamma hafi verið búin

að banna þér að kaupa eitthvað. En

þú hlustaðir aldrei á hana.

Ég man eftir öllum snjókornunum

sem breyttust í litla fugla og sögunni

sem fylgdi. Þú varst duglegur að

segja okkur sögur, fara með okkur

út að gefa öndunum og til að fóðra

hestana. Og pelinn sem lenti hjá

karlinum í fossinum. Það var alltaf

svo gaman hjá ykkur ömmu.

Við systurnar búum með mömmu

og pabba í Danmörku, þess vegna

hefur ekki verið svo mikill samgang-

ur síðastliðin ár, en oft töluðum við

saman í síma og þú komst líka tvisv-

ar í heimsókn til okkar í Danmörku.

Við vorum á Íslandi fyrir einu ári,

það var gaman að hitta þig þá. Núna

komum við heim til að fylgja þér til

grafar. Það er undarlegt að hugsa til

þess að fá ekki að sjá þig meira. En

við vitum að núna líður þér vel og að

það verður vel tekið á móti þér.

Elsku besti afi, hjartans þakkir

fyrir að hafa verið okkur svona góð-

ur afi. Við eigum eftir að sakna þín

mikið. Hafðu þökk fyrir allt og allt. 

Hrefna Kolbrún og Þóra Tinna.

PÁLL VÍDALÍN

JÓNSSON 

Elsku hjartans pabbi

minn, 12. ágúst er í dag,

dagurinn sem þú hefðir

átt að verða 57 ára og

fagna með okkur öllum,

umvafinn stóra barna-

barnahópnum sem þú

elskaðir svo heitt.

Þú hvarfst svo hræði-

lega fljótt úr þessu lífi, hvernig gat

þetta gerst? Þú, kletturinn okkar,

sem alltaf hugsaðir fyrst og fremst

um aðra, svo einstaklega hjálpfús,

óeigingjarn, duglegur og kærleiks-

ríkur. Þú varst höfuð fjölskyldunnar

stóru og samhentu öll ógleymanlegu

árin okkar heima í fallega firðinum

okkar, Önundarfirði, sem þér var svo

kær. Þú varst stórkostlegur faðir,

eiginmaður og vinur, svo þegar þú

varðst afi öðluðust mannkostir þínir

enn meiri dýpt, því samband þitt við

börnin okkar systkinanna var ein-

stakt. Þú kenndir þeim svo margt um

náttúruna, lífið og tilveruna, leyfðir

þeim að skoppast með þér í flestu því

sem þú tókst þér fyrir hendur sama

hvort það var við vinnu þína í Sól-

heimunum, smíðar í kjallaranum,

kajakferðunum eða ævintýrunum í

varpinu okkar kæra heima á Innri

Veðrará en þar naust þú þín best inn-

an um fuglana í faðmi fjölskyldunnar.

Við sem vorum svo heppin að fá að

lifa með þér munum halda minningu

þinni á lofti fyrir yngstu barnabörnin,

þá Hinrik Loga, Viktor Darra og litlu

ófæddu tvíburana. Við söknum þín öll

meira en orð fá lýst en við yljum okk-

ur við allar fallegu minningarnar sem

þú gafst okkur og við vitum að nú ert

þú í faðmi foreldra þinna, elsku vinur.

Ég gæti skrifað um þig endalaust,

svo mikill maður varst þú sem áork-

aðir svo miklu og snertir líf svo

margra á þinni alltof stuttu ævi.

Það er oft sagt um fólk að hand-

artak manns segi mikið um manns

innri mann og í þínu tilfelli sögðu

HINRIK JÓN 

MAGNÚSSON 

?

Hinrik Jón

Magnússon

fæddist á Innri-Veðr-

ará 12. ágúst 1947.

Hann lést 9. apríl síð-

astliðinn og fór útför

hans fram í kyrrþey.

hendurnar þínar í raun

allt sem segja þarf svo

ótrúlega stórar, hlýjar

og traustar.

Nú verðum við að

vera sterk og segja eins

og þú sagðir alltaf

?þetta reddast?. Hinrik

Jón, þú varst stærri en

lífið sjálft.

Ástar- og saknaðar-

kveðjur. Þín 

Matthildur, börn,

tengdabörn og

barnabörn.

Nú ertu mér horfinn minn kærasti vinur,

farinn burt úr lífinu hér.

Nú kvelur mig sorgin sem á okkur dynur,

hve ljúft það var að lifa með þér.

Þú fegraðir heiminn á svo marga vegu,

Með stóru höndunum leiddir þín börn.

Þau ljúf voru árin sem við núna tregum,

hve stolt við erum að vera þín börn.

Þú eftir þig skildir svo ótal margt,

fallegt handbragð, hjartað glatt

þinn lífsförunaut sem syrgir þig nú, 

sveitina fögru, börn þín og bú.

Andi þinn lifir, það er okkar trú.

Af alhug öll við viljum þér þakka

ástina, gleðina, tryggð þína og trú.

Við biðjum þess að vel þér líði,

á þeim helga stað sem dvelur þú nú. 

Öll við viljum þér einnig þakka,

fyrir gömlu góðu árin,

þín við minnumst með gleði í huga 

og brosum í gegn um tárin.

Þín dóttir, 

Sigríður.

Þú varst sá sem gafst okkur líf.

Þú varst sá sem varst okkar hlíf.

Þú varst sá sem hélst um hönd.

Þú leiddir okkur um lífsins strönd.

Saknaðarkveðjur frá öllum barna-

börnunum þínum, þú lifir í þeim,

elsku pabbi.

Þín 

Sólrún Eva Árnadóttir.

Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug

við andlát og útför föður okkar, tengdaföður,

afa og langafa,

ELÍASAR SVAVARS JÓNSSONAR

fyrrv. stöðvarstjóra

Pósts og síma, Drangsnesi.

Sigrún Elíasdóttir, Bjarni Skarphéðinsson,

Þráinn Elíasson, Guðbjörg Gestsdóttir,

Jón Hörður Elíasson, Jenný Jensdóttir,

Hugrún Elíasdóttir, Johnny Símonarson,

Ragnhildur Elíasdóttir, Tryggvi Ólafsson

     og fjölskyldur.

Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför

móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-

ömmu og langalangömmu,

INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR

húsfreyju,

Seljahlíð,

áður til heimilis

á Laugavegi 96, Reykjavík.

Margrét Hróbjartsdóttir, Benedikt Jasonarson,

Helga Steinunn Hróbjartsdóttir, Karl Sævar Benediktsson,

Helgi Hróbjartsson,

Árni Hróbjartsson, Kristrún Ólafsdóttir,

Friðrik Hróbjartsson, Bára Böðvarsdóttir,

Jón Dalbú Hróbjartsson, Inga Þóra Geirlaugsdóttir

og aðrir ástvinir.

Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-

hug við andlát og útför

VERU INGIBERGSDÓTTUR HRAUNDAL,

Dalbraut 26,

Reykjavík.

Þorsteinn Hraundal, Edda J. Sigurðsson,

Hrólfur Hraundal, Helga Ingvarsdóttir,

Ægir Ómar Hraundal,

Kristófer Máni Hraundal, Ingibjörg Ingimundardóttir,

barnabörn og barnabarnabörn.

Kæra frænka.

Allt frá því að ég man

eftir mér fylgdist ég

með lífshlaupi þínu,

skynjaði persónuleika

þinn og dugnað í gegn-

um frásagnir mömmu enda var það

svo að þegar ég loks hitti þig var eins

MARGRÉT KRISTÍN

GUÐMUNDSDÓTTIR 

?

Margrét Kristín

Guðmundsdóttir

fæddist í Selárdal í

Hörðudal í Dalasýslu

22. maí 1933. Hún

lést á heimili sínu 24.

júní síðastliðinn og

fór útför hennar

fram í kyrrþey 6.

júlí.

og ég hefði þekkt þig

alla tíð. Hvers vegna

samverustundir okkar

urðu svo fáar sem raun-

in varð, er ein þessara

mörgu staðreynda í líf-

inu sem er erfitt að

skilja.

Ég átti ennfremur

erfitt með að trúa

hversu veik þú varst

orðin svo stuttu eftir

fráfall mömmu. Ég

fylgdist með þér og var

staðföst í trú minni um

að þú ættir lengra eftir

og að ég gæti efnt lof-

orð mitt um að heimsækja þig. En

því miður varð mér það ekki unnt og

óska ég þess, kæra frænka, að þú

takir viljann fyrir verkið.

Það er undarlegt til þess að hugsa

að svo stutt skuli vera á milli ykkar

systranna, en ég hef þá trú að þið

hafið nú sameinast á ný og gleðjist

saman yfir því sem ykkur varð áork-

að í lifanda lífi og haldið saman á vit

þeirra drauma og ævintýra sem þið

báðar þráðuð en fenguð ekki að

njóta.

Kæra frænka, í mínum huga er

efst sú hugsun að sameina afkomend-

ur ykkar systra svo að komandi kyn-

slóðir fái að njóta frekari samvista.

Elsku Þórunn, Arndís, Ragnheið-

ur, Æsa og Sandra, í minni sorg fletti

ég upp í lítilli bók um mömmur sem

dætur mínar gáfu mér eitt sinn og

fann þessi fallegu orð sem hafa orðið

mér hjartfólgin síðan og langar mig

að senda ykkur þau vegna fráfalls

mömmu ykkar.

?Mér hefur lærst að heyra í alvöru

skilaboðin sem móðir mín hefur sent

mér alla tíð: ?Ég verð ætíð hjá þér.?

Ætíð þýðir alltaf, allt inn í eilífðina,

hvað sem á dynur.? 

Guð gefi ykkur öllum styrk í sorg

ykkar.

Laufey Jensdóttir.

Morgunblaðið birtir minningar-

greinar alla útgáfudagana.

Myndir Ef mynd hefur birst í til-

kynningu er hún sjálfkrafa notuð

með minningargrein nema beðið

sé um annað. Ef nota á nýja mynd

er ráðlegt að senda hana á

myndamóttöku: pix@mbl.is og

láta umsjónarmenn minningar-

greina vita.

Minningar-

greinar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48