Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						42 FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ

EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS

Miðasala opnar kl. 15.30

kl.   6, 8.30 og 11.

?Öðruvísiog spennandi

skemmtun?

starstarstar

SV MBL

?Öðruvísiog spennandi

skemmtun?

starstarstar

SV MBL

40 þúsund

gestir

Sýnd kl. 5, 8og10.40. B.i. 12 ára.

Sýnd kl. 5.30, 8og10.30. B.i. 12 ára.

Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 4, 6, 8og10. Enskt tal.

Sýndkl.8og10.15. B.i. 16 ára.

Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.

?Hasarinn er góður.?

starstarstar

ÓÖH DV

?Hasarinn er

góður.?

starstarstar

ÓÖH DV

Kr.500

Mjáumst 

í bíó! 

Mjáumst 

í bíó! 

Uppáhalds köttur 

allrar fjölskyldunnar 

er kominn í bíó!

Sýnd kl. 6 og 8. ísl tal.

Sjáið frábæra

gamanmynd

umfrægasta,

latasta og

feitasta kött í

heimi!

Magnaður spennutryllir fráLucBesson

T

o p

p

myndin

á íslandi

T

o p

p

myndin

á íslandi

Uppáhalds köttur 

allrar fjölskyldunnar 

er kominn í bíó!

Sjáið frábæra gamanmynd

umfrægasta, latasta og feitasta kött í heimi!

Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.

Sýnd kl. 6. ísl tal.

ÞAÐ VAR greinilegt á öllu að tón-

leikagestir í Laugardalshöllinni voru

staðráðnir í að skemmta sér hið besta

og stuttu eftir opnun hússins hafði

myndast röð í blíðviðrinu fyrir utan

Höllina. Í svörtum fötum sá um upp-

hitun. Hljómsveitin er kraftmikil á

sviði og hafa einstaklega líflega sviðs-

framkomu. Jónsi ber þar af félögum

sínum með hoppum, stökkum og

kraftmikilli rödd. Sveitin hefur alla

burði til að verða ein besta ballhljóm-

sveit landsins, að einu undanskildu.

Lagasmíðar hjómsveitarinnar eru að

mínu mati heldur bágbornar og flat-

neskjuleg lögin henta illa hinni kröft-

ugu og skemmtilegu sviðsframkomu.

Um klukkan 21 steig stjarna kvölds-

ins svo á svið. Biðin var á enda!

Hljómsveitin stillti sér upp og hóf að

leika ?Don?t Let Me Get Me? og Pink

söng hástöfum en var þó engum sýni-

leg. Skyndilega steig þó smávaxin

töffaraleg Pink upp frá trommusett-

inu og tók sitt pláss, fremst á sviðinu.

Pink var töffaraímyndin uppmál-

uð, klædd eins og skvísulegur

trukkabílstjóri og með munninn fyrir

neðan nefið. Hið miður kurteisa F-

orð fylgdi með í hverri setningu og

ruddaleg fingramerki voru send í

gríð og erg. Alvöru rokk og ról!

Mannasiði hefur stúlkan þó lært því

hún þakkaði pent fyrir sig að loknu

hverju lagi. Pink sagði Íslendinga

mjög kynþokkafulla og sagðist hafa

séð ótrúlegan fjölda f*** fallegra Ís-

lendinga. Hún lýsti jafnframt yfir að-

dáun sinni á fatamerkinu Dead sem

kemur úr smiðju Jóns Sæmundar

Auðarsonar. Pink er með ofsalega

sterka söngrödd sem naut sín vel í

Höllinni. Með góðum stuðningi bak-

raddanna náði hún að halda uppi eins

og hálfs tíma kröftugum rokktónleik-

um, það er meira en að segja það og

fær Pink hrós fyrir að leysa það verk-

efni með sómabrag. Gleði undirrit-

aðrar varð enn meiri þar sem hún

sótti á dögunum tónleika með Brit-

ney Spears sem söng ekki eitt einasta

lag sjálf á tónleikunum sínum heldur

dansaði bara og hreyfði varirnar.

Pink lék lög af öllum

þremur plötum sínum

og þar á meðal flestöll

sín þekktustu lög. Hún

tók jafnframt gamla 4

None Blondes slagar-

ann ?What?s Going On?

við góðar undirtektir

viðstaddra. Pink sagð-

ist einu sinni hafa verið

handtekin fyrir óspekt-

ir á almannafæri þegar

hún kyrjaði lagið. Hún bað því áhorf-

endur að hjálpa sér við að endurtaka

leikinn. Pink hefur ósjaldan lýst því

yfir að hennar helsti áhrifavaldur í

tónlistinni sé Janis heitin Joplin. Hún

vottaði henni virðingu með því að

taka syrpu þriggja laga sem voru vin-

sæl með Joplin á sínum tíma og gerði

það með glæsibrag. Kraftmikil rödd-

in naut sín vel við undirleik kassagít-

ars.

Það er gaman að sjá tónlistarfólk

blómstra á sviði. Lög og tónlistar-

myndbönd geta oftar en ekki gefið

skakka mynd af því hvaða hæfileik-

um söngvarar eru búnir. Það var

mjög ánægjulegt að sjá og heyra að

Pink stendur vel undir því að vera á

þeim stjörnustalli sem hún er komin

á.

Viðstaddir áttu sinn þátt í þeirri

góðu stemningu sem myndaðist í

höllinni. Meirihluti gesta var undir

tvítugu og voru afar þakklátir tón-

leikagestir, alls óhræddir við að láta í

ljós ánægju sína.

Lítið fór þó fyrir auglýstum skjám

sem áttu að auðvelda gestum að

fylgjast með gangi mála. Ekki varð

maður heldur var við þá laser-sýn-

ingu sem áætluð var. Þó söknuðurinn

hafi ekki verið mikill eftir þessum

hlutum er alltaf frekar ódýrt að aug-

lýsa eitthvað sem ekki er svo boðið

uppá.

Tónleikar Pink í Laugardalshöll-

inni voru á heildina litið mjög góðir

og var um að þakka kröftugri spila-

mennsku sveitarinnar, magnaðri

rödd og hressilegri sviðsframkomu

Pink og tónleikagestum, sem voru vel

með á nótunum.

Tónlist

Kjaftfor og kraftmikil

TÓNLEIKAR

Laugardalshöll

PINK

Tónleikar Pink í Laugardalshöllinni 10.

ágúst. Í svörtum fötum hitaði upp.

Birta Björnsdóttir

?Það var mjög

ánægjulegt að sjá og

heyra að Pink stend-

ur vel undir því að

vera á þeim stjörnu-

stalli sem hún er

komin á.?

Morgunblaðið/ÞÖK

?ERTU stressuð,? spyr Young Buck. ?Nei, ég

er ekki stressuð,? segi ég. ?Þú ættir að vera

það,? heldur hann áfram þar sem ég sest niður

til að spjalla við hann og Lloyd Banks á Hótel

Sögu síðdegis í gær. Þeir félagar eru hluti af

hinni vinsælu hipp hopp sveit G-Unit ásamt

goðinu 50 Cent og spiluðu á tónleikum í Höll-

inni í gær.

Þeir eru áreiðanlega einu mennirnir sem eru

ekki sáttir við hitabylgjuna sem gengur nú yfir

Reykjavík. ?Það er engin loftræsting hérna.

Þið virðist ekki trúa á loftræstingu,? segir

Banks. ?Þið þurfið ekkert að nota hana venju-

lega er það nokkuð? Við hefðum allavega þurft

eina á hótelið í dag því það var steikjandi hiti í

herberginu mínu,? segir Young Buck og þeir

hlæja báðir.

Eminem Íslands

?Við sáum myndband með hljómsveit sem er

ábyggilega Eminem Íslands, umfjöllunarefnið

var umdeilanlegt og myndbandið flott,? segir

Banks aðspurður að því hvort þeir þekki ein-

hverjar íslenskar rapphljómsveitir. Við nánari

samræður kemur í ljós að hann á við hljóm-

sveitina Quarashi og myndbandið ?Stun Gun?.

Ég upplýsi þá um að Quarashi hiti upp fyrir

tónleikana í kvöld og eru þeir ánægðir með það.

?Við erum ánægðir með öll tækfæri sem gef-

ast til að fá að fara til aðdáenda okkar,? segir

Young Buck um Íslandsförina en þeir lýsa báð-

ir yfir eftirvæntingu vegna tónleikanna.

Ég vitna í lagið ?Ain?t No Click? með Banks,

upphafslag frumraunar hans Hunger for More,

sem hefur hlotið góða dóma og viðtökur og

spyr um gildi þess að tilheyra sterkum hópi í

rappheiminum. Young Buck segir að þeir séu

allir bræður og Banks ítrekar að það sé enn

meira á leiðinni. ?Ain?t no click like the one I?m

with /If the drama gets thick it?s the guns I

get,? byrjar Young Buck að rappa og Banks

tekur undir.

Það hefur lést á þeim brúnin þó þeir haldi að

sjálfsögðu kúlinu. Þeir klæðast að hefð-

bundnum hætti þeirra sem hafa náð langt í

hipp hoppinu, hvítagull, demantar og víð föt.

Þeir svara öllum spurningum skýrt og skil-

merkilega og eru greinilega mjög ástríðufullir

fyrir tónlistinni.

Þarft ekki að vera úr gettóinu

?Það er gaman að sjá að tónlistin brýtur

tungumálamúra,? segir Young Buck. ?Ég held

að fólk geti tengst tónlistinni og því sem við er-

um gera, sama hvaðan það er. Þú þarft ekki að

vera úr gettóinu til að skilja manneskju sem er

úr gettóinu. Það er eitthvað í textunum okkar

sem fólk getur tengt við. Þrátt fyrir að við

séum allir frá stöðum þar sem rán, morð og

vændi eru daglegt brauð er eitthvað í tónlist-

inni sem allir geta tengt við.? 

Banks bætir við: ?Fólk skilur hvað við erum

að segja þó það deili ekki lífsstílnum. Við lesum

öll sömu blöðin. Fólk skilur textana þó það geti

ekki alltaf samsamað sig þeim.? 

Þeir neita því að þetta snúist allt um pen-

ingana. ?Þú verður að hafa ást á tónlistinni. Ef

þú gerir eitthvað bara fyrir peningana, þá sést

það. Til þess að vera góður í því sem þú gerir

þarftu að hafa ást á tónlistinni. Ég myndi samt

gera þetta þó ég fengi enga peninga fyrir og sjá

fyrir mér með öðrum leiðum,? segir Young.

?Mikið af tónlistarfólki hefur ekki enn komið

hingað af ýmsum mismunandi ástæðum. En ég

vona að einhverjir feti í fótspor okkar og komi

hingað, viti að það er hægt að koma til Íslands,?

segir Banks og aldrei að vita hvort það kemur

bylgja af rappsveitum til landsins í kjölfar tón-

leikanna.

Dr. Dre studdi við bakið á Eminem og sömu-

leiðis kom Eminem G-Unit á framfæri. Þeir

segja að þetta skjólstæðingakerfi sé mjög mik-

ilvægt. ?Það er mikilvægt til þess að byggja

upp framtíðina. Það er sjaldgæft að það komi

upp svona margir á sama tíma úr sama hópi.

En ef þú vilt halda ferli þínum gangandi þá get-

urðu ekki rappað sjálfur endalaust heldur verð-

ur að kynna heiminum einhvern annan. Við er-

um mjög heppnir hvað þetta hefur gengið vel,?

segir Young Buck um allt G-Unit ævintýrið en

platan Straight outta Ca$hville er væntanleg

frá honum í enda þessa mánaðar. Titillinn er

orðaleikur en Buck ólst upp í Nashville, 

Tennessee.

Rapp hefur verið söluhæsta tónlistin í

Bandaríkjunum undanfarin ár, ekki síst fyrir

tilstilli Eminem og nú G-Unit. Plata 50 Cent,

Get Rich Or Die Tryin?, sem út kom í fyrra

seldist í 800.000 eintökum fyrstu fjóra dagana

sem hún var í sölu sem er met. 

?50 Cent kom með hipp hoppið-aftur til

fólksins, á götuna. Um tíma var þróunin frá

fólkinu, frá götunni, og það er slæmt fyrir hipp

hoppið og tónlistin var að útvatnast,? segir 

Young Buck. ?Það er ekkert að því að hafa

froðukenndari tónlist inn á milli en hipp hoppið

þarf líka að hafa harðari hlið. Hipp hoppið þarf

að standa föstum fótum í raunveruleikanum.?

Tónlist | Lloyd Banks og Young Buck eru liðsmenn G-Unit

Einn fyrir alla ?

? og allir fyrir einn. Lloyd Banks, 50 Cent og Young Buck eru traustir vinir.

ingarun@mbl.is

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48