Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

SÓLEY María Hauksdóttir, sex

ára, virðir fyrir sér mannabein,

að öllum líkindum frá miðöldum,

sem fundust í jörðu við bæinn

Sigluvík í Svalbarðsstrand-

arhreppi, skammt frá Akureyri.

Sóley María á heima á bænum

ásamt móður sinni og fóstur-

föður.

Vitað er að hálfkirkja, sem svo

var kölluð, var á staðnum í kaþ-

ólskum sið og bænhús síðar, en

engar heimildir hafa verið til

fram að þessu um að fólk hafi

verið grafið þarna. Sigurður

Bergsteinsson, minjavörður

Norðurlands eystra, sem skóf

jarðveg ofan af beinunum í gær

og setti þau síðan í poka, telur að

fundinn sé gamall kirkjugarður.

Beinagrindin, sem er mjög heil-

leg, verður aldursgreind seinna

með geislakolsmælingu og þá

kemur í ljós hvenær viðkomandi

hefur látist.

Með beinagrind við bæjardyrnar

Akureyri. Morgunblaðið.

L52159 Mannabein/17

MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,

ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1

FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.

Lágmúla og Smáratorgi

opið kl. 8-24

alla daga

VATNSBORÐ Jöklu við Kárahnjúkavirkjun

hefur að undanförnu hækkað jafnt og þétt þeg-

ar kvölda tekur. Í gærkvöldi fór vatnsborðið

hæst í um 478,5 metra yfir sjó, um hálfum metra

hærra en í fyrrakvöld, og brúin á vinnusvæðinu

fór enn og aftur á kaf. Vatnsrennslið var talið

hafa náð um 860 rúmmetrum á sekúndu. Reikn-

að er með hækkandi vatnsborði í kvöld og að

það nái jafnvel hámarki annað kvöld.

Sigurður St. Arnalds, talsmaður Landsvirkj-

unar, segir ánægjulegt hve reiknilíkan og

rennslisspár verkfræðistofunnar Vatnaskila

hafi virkað vel. Miðað við spárnar séu ekki líkur

á mikið stærra flóði en fyrir viku. Ljóst sé að

Landsvirkjun muni áfram styðjast við spárnar í

sínum virkjunarframkvæmdum.

Varnarstíflan er nú í 496 metrum yfir sjó og

efst er hún aðeins um tíu metrar á breidd. Hvort

til standi að breikka hana segir Sigurður svo

ekki vera að svo stöddu. Það sé líka bæði tækni-

lega erfitt og kostnaðarsamt.

Steypuvinna hélt áfram 

innan við varnarstífluna

Starfsmönnum Impregilo tókst á þriðjudag

að dæla mestöllu vatninu upp af vinnusvæðinu

við fremsta hluta aðalstíflunnar. Hafa dælur nú

undan því vatni sem seytlar niður varnarstífl-

una. Steypuvinna á táveggnum svonefnda

komst á fullt að nýju en eftir flóðin í síðustu viku

hafði hún legið niðri. Að sögn Ómars R. Valdi-

marssonar, upplýsingafulltrúa Impregilo, tókst

á fyrstu 20 tímunum að steypa um 1.100 rúm-

metra í vegginn, sem á endanum verður hæstur

í um 40 metrum. Sjálf aðalstíflan, sem hlaðin er

úr grjóti og grófum jarðvegi, er komin í um 500

metra yfir sjávarmál. Ómar segir að vinnu við

távegginn verði haldið áfram eins lengi og

vatnavextir og öryggisráðstafanir leyfa.

Vatnsborð Jöklu við Kárahnjúka hækkaði um hálfan metra í gær

Hámarksrennsli spáð í

kvöld eða annað kvöld

Á NÆSTUNNI mun nýtt rannsóknar- og

þróunarhús rísa við höfuðstöðvar Actavis á

Reykjavíkurvegi auk þess sem verksmiðja

fyrirtækisins verður stækkuð til að hýsa

nýja þróunarverksmiðju Actavis og vöru-

hús auk nýrrar pökkunarlínu. Áætlað er að

húsin verði tekin í notkun um og eftir mitt

næsta ár.

Þróunar- og rannsóknarstarfsemi 

Actavis við Reykjavíkurveg, Borgartún,

Skútuvog og Kársnesbraut, verður sam-

einuð í nýja rannsóknar- og þróunarhúsinu

en þróunarverksmiðjan verður notuð í til-

raunaframleiðslu á lyfjum sem eru í þróun,

að sögn Harðar Þórhallssonar, fram-

kvæmdastjóra Actavis á Íslandi. Hann seg-

ir fjárfestinguna undirstrika mikilvægi

þróunareiningarinnar á Íslandi fyrir 

Actavis. 

Kristján til Danmerkur

Þá hafa höfuðstöðvar sölu- og markaðs-

sviðs Actavis-samsteypunnar verið fluttar

til Danmerkur og mun Kristján Sverris-

son, framkvæmdastjóri markaðssetningar

Actavis á eigin vörumerkjum, flytjast

þangað á næstu dögum. Kristján mun í

framhaldinu draga sig út úr daglegum

rekstri Balkanpharma í Búlgaríu þar sem

hann hefur verið búsettur. Verið er að

ganga frá ráðningu eftirmanns hans í

Búlgaríu.

Fimm starfsmenn munu starfa hjá 

Actavis í Danmörku til að byrja með, en

markmiðið með breytingunum er að efla

sölu- og markaðsstarf deilda fyrirtækisins

á hverjum stað.

Actavis

stækkar 

við sig í 

Hafnarfirði

L52159 Sölu- og markaðssvið/C2

LÍTILL plastbátur, Eyrarröst

KE-25, sökk vestur af Garð-

skaga í gær eftir að eldur varð

laus um borð. Einn skipverji var

á Eyrarröstinni og var honum

bjargað um borð í nærstaddan

bát. 

Samkvæmt upplýsingum frá

Landhelgisgæslunni heyrði

varðstjóri gæslunnar klukkan

12.30 að svartur reykur sæist

um sjö sjómílur vestur af Garð-

skaga. Þyrluáhöfn Landhelgis-

gæslunnar var þegar kölluð út.

Þá var þyrla frá Varnarliðinu að

hefja sig á loft í sama mund og

var henni rakleiðis flogið á stað-

inn að beiðni Landhelgisgæsl-

unnar. Skömmu síðar barst til-

kynning frá neta- og

handfærabátnum Fúsa SH-162

um að hann sæi til báts sem

kviknað hefði í og að einn maður

væri í sjónum í flotgalla. Þegar

varnarliðsþyrlan kom á staðinn

hafði manninum verið bjargað

um borð í Fúsa.

Að sögn lögreglunnar í Kefla-

vík var maðurinn meiddur á öxl

og kinn þegar komið var með

hann á sjúkrahús í Keflavík. 

Bátur

brann

og sökk

INGI Freyr Jónsson og Ragnar Heim-

isson, 14 ára Grindvíkingar, vissu ekki

hvaðan á þá stóð veðrið þegar þeir

mættu snáki á leiðinni heim í fyrrakvöld.

?Við vorum bara að labba heim og þá

rak ég augun í snákinn. Hann var mjór

en mjög langur. Hann reyndi að ráðast á

mig, skaust að mér allavega einu sinni.

Ég náði í pabba og svo hringdum við

bara í lögguna. Löggan notaði bara

skóflu og poka og fór með hann,? sagði

Ingi Freyr í samtali við Morgunblaðið í

gær. 

Snákurinn sem þeir félagar rákust á á

Víkurbrautinni í Grindavík á ellefta tím-

anum á þriðjudagskvöld var um fjörutíu

sentímetra langur. Ekki er vitað hvaðan

snákurinn kom. 

Víkurfréttir/Þorgils Jónsson

Ragnari Má Heimissyni og Inga Frey

Jónssyni brá töluvert við að mæta snáki á

götu í Grindavík á þriðjudagskvöld. 

Fundu snák í Grindavík 

?Reyndi að

ráðast á mig?

L52159 Snákur/18

REYKJAVÍK er áttunda dýrasta

borg í heimi samkvæmt nýrri könnun

sem rannsóknarfyrirtækið Econom-

ist Intelligence Unit, EIU, hefur gert

fyrir tímaritið The Economist. Á síð-

asta ári var Reykjavík níunda dýrasta

borg í heimi, samkvæmt sambæri-

legri könnun EIU. Hefur borgin þar

með hækkað um eitt sæti á listanum

yfir dýrustu borgir í heimi.

Efst á listanum í ár, eins og und-

anfarinn áratug, eru japönsku borg-

irnar Tókýó og Osaka Kobe. París og

Ósló verma þriðja sætið. Kaup-

mannahöfn kemur þar á eftir, síðan

Zürich, London, Reykjavík, Genf og

Vínarborg. 

Könnunin nær til 133 borga og er

byggt á verði á vöru og þjónustu. 

Reykjavík

áttunda dýr-

asta borgin

Dýrast að búa í Tókýó

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48