Morgunblaðið - 19.08.2004, Blaðsíða 1
Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir
STOFNAÐ 1913 224. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Opnum stærri og betri
verslun í dag á 1. hæð
Kringlunnar
Frábær opnunartilboð
Aukin
ásókn
Sífellt fleiri eru að uppgötva
Hvalfjörðinn 11
Viðskipti | Og halda einbeitingunni Stjórnun er eins og leikstjórn Úr
verinu | Fiskeldið eflt með rannsóknum Ótvíræð hagræðing af sjálfvirkn-
inni Íþróttir | Þungu fargi af okkur létt Guðmundur með í 400 leikjum
GYLFI Þ. Gíslason,
fyrrverandi prófessor,
alþingismaður og ráð-
herra, er látinn á áttug-
asta og áttunda aldurs-
ári. Með honum er
genginn einn fremsti og
áhrifamesti forystu-
maður íslenzkra jafnað-
armanna á seinni helm-
ingi 20. aldarinnar.
Gylfi var fæddur í
Reykjavík 7. febrúar
1917, sonur hjónanna
Þorsteins Gíslasonar,
ritstjóra, og konu hans
Þórunnar Kristínar Pálsdóttur.
Gylfi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1936, kandídatsprófi í rekstrarhag-
fræði frá Háskólanum í Frankfurt am
Main árið 1939 og doktorsprófi frá
sama skóla 1954.
Gylfi var hagfræð-
ingur við Landsbanka
Íslands og stundakenn-
ari við Viðskiptaháskóla
Íslands 1939–40 og dós-
ent þar 1940–41. Hann
var dósent við Háskóla
Íslands 1941–46 og pró-
fessor við sama skóla
frá 1946–56 og frá
1973–87.
Gylfi var þingmaður
Alþýðuflokksins í rúma
þrjá áratugi frá 1946 til
1978. Hann var
mennta- og iðnaðar-
málaráðherra frá 1956–58 og mennta-
og viðskiptamálaráðherra frá 1958 til
1971.
Gylfi gegndi fjölmörgum trúnaðar-
störfum fyrir Alþýðuflokkinn og var
formaður hans frá 1968–1974. Hann
var formaður Hagfræðingafélags Ís-
lands frá 1951–59 og sat í Þjóðleik-
húsráði frá 1954–1987. Þá var hann
fulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins 1956–65 og í stjórn Al-
þjóðabankans frá 1965–71. Hann sat í
Norðurlandaráði 1971–78, var for-
maður Norræna félagsins 1984–91 og
í stjórn Norræna hússins 1984–93.
Gylfi skrifaði mikið um hagfræðileg
efni og stjórnmál og eftir hann hafa
birst margar bækur um þau efni, þar
á meðal kennslubækur. Hann skrifaði
einnig fjölda ritgerða, greina og bóka-
kafla, sem birst hafa í bókum og tíma-
ritum hérlendis, á Norðurlöndunum
og víðar, auk þess sem hann fékk
fjölda viðurkenninga fyrir störf sín.
Þá var Gylfi einnig höfundur margra
sönglaga sem komið hafa út á hljóm-
plötum í flutningi ýmissa listamanna.
Kona Gylfa er Guðrún Vilmundar-
dóttir. Þau eignuðust þrjá syni og lifa
tveir þeirra föður sinn.
Andlát
GYLFI Þ. GÍSLASON RÁÐHERRA
Stóreflis
björg á
land upp
London. AFP.
MJÖG stórviðrasamt hefur verið við
Írland og Bretland á síðustu árum og
oft er öldurótið svo ofsafengið, að
það kastar inn á land stóreflis björg-
um, sem það rífur úr ströndinni.
Í verstu veðrum er ölduhæðin
meira en 20 metrar og dæmi eru um,
að brimið hafi kastað allt að 50 tonna
björgum 50 metra upp á land. Töldu
vísindamenn, að það gæti ekki gerst
nema í miklum flóðbylgjum.
Fjallað var um þetta mál á ráð-
stefnu í London í fyrradag og þar
kom fram, að landeyðing væri víða
mikil og ætti líklega eftir að aukast
vegna hækkandi sjávarborðs. Fram
kom, að meðalölduhæð að vetri við
Hjaltland hefði aukist um 15% frá
1985 til 1995 og sjávarborð hækkað
um millimetra á ári alla síðustu öld.
Hlýnun/12
NÝTT aðsóknarmet var sett á Laugardalsvelli í
gærkvöldi þegar íslenska landsliðið mætti
stjörnum prýddu liði Ítala. 20.204 áhorfendur,
sem troðfylltu völlinn, urðu vitni að óvæntum
en sanngjörnum sigri Íslendinga, 2:0. Mörk Ís-
lands skoruðu Eiður Guðjohnsen og Gylfi Ein-
arsson. Þetta var fyrsti leikur ítalska landsliðs-
ins undir stjórn Marcello Lippi. Hann tjáði
fréttamönnum eftir leikinn að Íslendingarnir
hefðu komið ítalska liðinu í opna skjöldu með
getu sinni. Fyrr um daginn mætti fjöldi manns
á uppákomur í Húsdýragarðinum og rokk-
tónleika á Laugardalsvelli og allir þessir við-
burðir fóru fram í fádæma veðurblíðu./Þjóð-
hátíð/28, Íþróttir/4–5
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Metfjöldi varð vitni að sætum sigri
Bill og
Hillary
Clinton til
Íslands
BILL og Hillary Clinton, fyrrver-
andi forsetahjón Bandaríkjanna, eru
væntanleg til Íslands 24. ágúst næst-
komandi þegar sendinefnd Banda-
ríkjaþings, sem Hillary á sæti í, á hér
stutt stopp, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Munu bandarísku þingmennirnir
ræða við Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra í Svartsengi, m.a. um
samskipti ríkjanna. Einnig hafa
nefndarmenn, undir stjórn John
McCain öldungadeildarþingmanns,
áhuga á að kynna sér vetnismál og
ræða loftslagsbreytingar. Koma þeir
eftir klukkan tíu um morguninn og
fara af landi brott síðdegis.
Clintonhjónin dvelja lengur
Heimildir Morgunblaðsins herma
að Clinton-hjónin komi fyrr um
morguninn og dvelji hér á landi eitt-
hvað fram á kvöld áður en þau halda
för sinni áfram. Gerðar eru miklar
varúðarráðstafanir til að tryggja ör-
yggi fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna og ekki gefið upp hvernig hann
hagar ferðum sínum. Nefndina
skipa John McCain, Hillary Rodham
Clinton, Lindsey Graham og Susan
Collins. McCain sóttist eftir útnefn-
ingu Repúblikanaflokksins sem for-
setaefni fyrir fjórum árum.
Reuters
Sharon varð undir í eigin flokki
Mikið áfall fyrir áætlanir hans
um brottflutning frá Gaza
Tel Aviv. AFP.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, beið í gær lægri hlut á
flokksþingi Likudflokksins er
meirihluti fundarmanna greiddi at-
kvæði gegn því að ganga til stjórn-
arsamstarfs við Verkamannaflokk-
inn. Eru úrslitin mikið áfall fyrir
þá stefnu Sharons að leggja niður
gyðingabyggðirnar á Gaza.
Tillaga frá Uzi Landau, harð-
línumanni og ráðherra án ráðu-
neytis, um að hafna samstarfi við
Verkamannaflokkinn, sem er
miklu hófsamari en Likudflokkur-
inn, var samþykkt með 843 at-
kvæðum gegn 612 og tillaga, sem
stuðningsmenn Sharons fluttu og
heimilaði honum að semja við
„hvaða síonistaflokk sem er“ var
felld en aðeins með 19 atkvæðum.
Stjórn Sharons missti meirihluta
sinn á þingi í júní þegar harð-
línuflokkar sögðu skilið við hana til
að mótmæla brottflutningnum frá
Gaza og því þarf Sharon á stuðn-
ingi Verkamannaflokksins að
halda til að gera hann að veru-
leika.
Sharon hafði lýst því yfir fyrir
þingið, að hann teldi sig ekki
bundinn af ákvörðun þess en
fréttaskýrendur segja, að niður-
staðan sé óhjákvæmilega alvarlegt
áfall fyrir hann og stefnu hans.
Haft var eftir heimildum innan
Likudflokksins í gær, að líklega
myndi Sharon boða til nýrra kosn-
inga á næstu mánuðum en kjör-
tímabilinu á ekki að ljúka fyrr en
2006.
♦♦♦