Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 52
MENNING 52 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ TILVISTARPÆLINGAR og tím- inn, hvenær er eitthvað að gerast og mannlegt eðli eru allt hlutir sem Finnur Arnar Arnarsson myndlist- armaður veltir upp á sýningu sinni í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur, sem var opnuð í gærkvöldi. Það fyrsta sem við blasir er myndbands- verk sem sýnir sex stykki hvíta Arne Jacobsen Sjöu-stóla – auða. En við nánari eftirgrennslan kemur þó í ljós að stólarnir hafa ekki alltaf verið auðir, enda eru stólar af þessu tagi notaðir daglega í Hafnarhúsinu. Þegar inn í salinn sjálfan er komið blasa við tuttugu stykki af þessum sama stól í miðju salarins. Á veggj- um eru fleiri myndbandsverk, en þau eru ekki af stólum, heldur sjáv- arþorpum úti á landi. Sjórinn gárast í forgrunninum á tvískiptum mynd- fletinum og þó að ekkert virðist ann- að vera að gerast þar, er ef til vill ekki allt sem sýnist. „Vinstra megin eru fyrri tíu mínúturnar af tuttugu mínútna upptökum, hægra megin eru þær síðari. Þarna sjáum við or- sök og afleiðingu, eða fortíð og fram- tíð, sem í raun er allt orðið að ein- hvers konar fortíð, enda þessar tuttugu mínútur löngu liðnar,“ segir Finnur Arnar og heldur áfram: „Þessi sýning fjallar dálítið um það þegar okkur finnst ekkert vera að gerast. Þá er ég ekki að halda því fram að ekkert gerist í þessum þorp- um, því það er auðvitað fyrst og fremst skilgreiningaratriði hvenær eitthvað er að gerast. Þegar maður er á Patreksfirði finnst manni kannski ekkert að gerast og þá lang- ar mann helst til Reykjavíkur, því þar er svo margt að gerast. Þegar maður kemur svo til Reykjavíkur langar mann mest til New York, því þar er allt að gerast. Svona getur maður haldið áfram endalaust, í leit að einhverju sem er að gerast. En við þekkjum líka öll fólk sem hefur fundið lausnina á þessu – að vera hamingjusamt gerandi það sem það er að gera og vera ekkert að leita að neinu öðru.“ Finnur segir sömu pælinguna á ferðinni í stólamyndbandsverkinu og þorpamyndbandsverkinu. „Þó að við sjáum það ekki er fullt að gerast, fullt af sögu á báðum stöðum. Og við vitum að allt sem gerist í mannlegu eðli, ástir, sorgir, upplifanir, gerist í ríkum mæli á Þingeyri, rétt eins og í París. Hvenær eitthvað er að gerast er bara spurning um hugarfar.“ Þetta er fyrsta einkasýning Finns Arnars í Listasafni Reykjavíkur, en skemmst er að minnast sýningar hans í Safni við Laugaveg fyrr á árinu. Á undanförnum árum hefur drjúgur hluti af tíma hans farið í leikmyndagerð, einkum hjá Hafn- arfjarðarleikhúsinu. „Það kemur al- veg á hárréttum tíma fyrir mig að fá tækifæri til að sýna hér. Þetta er ekki auðvelt rými – maður fyllir þennan stað ekkert með fermetrum, það er miklu frekar að maður reyni að fylla hann af andrúmslofti. Ég finn að reynslan úr leikhúsinu hefur nýst mér vel við uppsetninguna á þessar sýningu, enda er þetta alltaf spurning um að fá hugmynd og koma henni frá sér, sem er nokkuð sem maður lærir vel í leikhúsinu.“ Til stendur að Finnur Arnar sýni í i8 snemma á næsta ári og segist hann fagna því mjög að vera kominn aftur inn í hringiðu myndlistarinnar. „Leikhúsið fær að sitja á hakanum í bili. Ég hef verið að vinna á launum sem atvinnumaður í myndlist að undanförnu og það er bara rosalega skemmtilegt. Enda ætlaði ég alltaf að verða myndlistarmaður þegar ég yrði stór.“ Í Hafnarhúsinu stendur einnig yf- ir sýning Katrínar Sigurðardóttur og Kenjarnar eftir Francisco de Goya. Allar sýningarnar verða opnar í dag milli kl. 10 og 23 og verður ókeypis inn í tilefni Menning- arnætur. Morgunblaðið/ÞÖK „Þessi sýning fjallar um það þegar okkur finnst ekkert vera að gerast,“ segir Finnur Arnar Arnarsson um nýopnaða sýningu sína í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Er eitthvað að gerast? ingamaria@mbl.is Á AKUREYRARVÖKU í dag verð- ur opnuð yfirlitssýning á verkum Boyle-fjölskyldunnar sem býr í London en þessir stórmerkilegu listamenn hafa aldrei áður sýnt á Ís- landi. Boyle-fjölskyldan samanstendur af fjórum listamönnum, þeim Mark Boyle (f. í Glasgow 1934), Joan Hill (f. í Edinborg 1931) og börnum þeirra, Sebastian (f. 1962) og Georgiu (f. 1965). Þau vinna saman sem ein heild, einn listamaður, að öllum verkefnum sínum. Hjónin Mark og Joan gerðu fyrstu „jarðsneiðina“ (nákvæma eftirmynd af jarðsvæði) árið 1964. Fjórum ár- um seinna hófu þau verkefni sem nefnist Ferð að yfirborði jarðar. Takmark þeirra var að gera ná- kvæma eftirmynd af 1.000 hlutum yfirborðs jarðar, sem væru valdir af handahófi. Ævintýrið byrjaði með því að bundið var fyrir augu fólks og það beðið um að kasta pílum í risa- stórt heimskort til að velja staðina; 70% af pílunum lentu í sjó, en sú fyrsta stakkst í Ísland. Í framhald- inu ferðuðust þau til margra landa, borga og afskekktra staða, hentu ramma á loft og af svæðinu, sem ramminn afmarkaði við lendingu, gerðu þau ofurraunsæja lágmynd sem allajafna var nokkrir fermetrar að stærð. Aðferðin sem þau nota við nákvæma endursköpun jarðsvæð- anna – sem eru oft úr óstöðugum efnum eins og sandi, mold og ís – er vel varðveitt leyndarmál fjölskyld- unnar. En hún hefur aldrei komið til Íslands, áfangastaðar fyrstu píl- unnar, eða haldið þar sýningu fyrr en nú. Jarðsvæðin sem við göngum yfir á hverjum degi, en leiðum yf- irleitt hjá okkur, eru færð upp í augnhæð og gerð sýnileg frá al- gjörlega nýju sjónarhorni. Við horf- um hugfangin á það sem við tökum yfirleitt ekkert eftir; þvílík dýrð, því- lík tilviljun. Eða hvað? Hvert strá, sandkorn, múrsteinn eða sígar- ettustubbur endurbirtist ljóslifandi með þessari afsteypuaðferð. Á meðan verkin í Ferð að yf- irborði jarðar kanna hinn stóra heim sýnir myndaröðin Líkamsverk, ljós- myndir frá seinni hluta sjöunda ára- tugarins, örheiminn. Þessar stóru ljósmyndir, teknar í gegnum raf- ræna smásjá, eru gríðarlega stækk- aðar myndir af örsmáum hlutum húðar og líkama föðurins, Marks Boyle. Ferðinni er heitið í gagn- stæðar áttir, til Putalands og Risa- lands. Vefur hins stóra byggist á því smáa. Í þessum verkum sjáum við hversdagslegt umhverfi okkar frá andstæðum pólum, veröldina og lík- ama okkar sem eina heild. Eins og Mark Boyle sagði árið 1966, þá eru í verkunum fjarlægðar allar vísbend- ingar um frumleika, stíl, hönnun, hnyttni, fágun og mikilvægi. Tak- markið er að búa til eins hlutlæg verk og mögulegt er. Endursköpun án meiningar eða réttlætingar. Nákvæm lýsing á raunveruleika Sebastian Boyle segir að þau systkinin hafi vart verið nema um 5–6 ára þegar þau fóru að vinna með foreldrum sínum að myndlistinni. „Hvar sem við áttum heima var stúdíóið ævinlega á heimili okkar, og við ekki há í loftinu þegar við vorum komin með hamar, meitil eða önnur verkfæri í hönd og byrjuð að vinna. Við systkinin fórum aldrei í mynd- listarskóla; ég lærði heimspeki í há- skóla, en hef þó ekki starfað við ann- að en myndlistina. Við höfum alltaf unnið saman í þessu. Við erum þekktust fyrir jarðarmyndir okkar, sem eru eins konar landslagsmyndir unnar með trefjagleri. Við höfum verið gagnrýnd fyrir list okkar bæði af þeim sem aðhyllast gömlu hefðina í myndlist, þeim sem finnst ekkert vera landslag nema olía á striga, en líka af þeim sem telja sig avant garde, sem segja að við gerum ekk- ert annað en að búa til eitthvað sem lítur út eins og raunveruleikinn. En þetta finnst okkur góður staður að vera á – einhvers staðar á milli þess- ara tveggja póla. Sebastian Boyle segir jarð- armyndirnar verða meðal þeirra verka fjölskyldunnar sem sýnd verða á Akureyri. „Þessar myndir líta út fyrir að vera stykki úr jörð- inni, sem við höfum grafið upp og fryst, og í rauninni eru þetta raun- verulegir staðir. Verkin okkar tengj- ast mörgu öðru því sem hefur verið að gerast í myndlist síðustu 30–40 árin, til dæmis jarðarlist. Markmið okkar með þessum myndum er að gera eins góða nákvæma lýsingu á jörðinni og okkur er unnt.“ Jörðin fyrir augum okkar Boyle-fjölskyldan AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson á Kringlukránni í kvöld MIÐASALAN er opin á fame.is, á þjónustuborði Smáralindar og í síma 528 8008 JÓNSI SVEPPI Fös. 03, sept. kl. 19.30 Fim. 09, sept. kl. 19.30 Lau. 04, sept. kl. 18.00 SÍÐUSTU SÝNINGAR:Í I : Hefðbundin starfsemi Vetrargarðs Smáralindar fer nú brátt að hefjast og því kveður SUMARSMELLURINN FAME í September. Síðustu sýningar á söngleikinn “sem hefur skemmt þúsundum Íslendinga konunglega í allt sumar” Eru eftirfarandi: Fös. 10, sept. kl. 19.30 Sun. 05, sept. kl. 19:30 Lau. 11, sept. kl. 19.30 MIÐASALA 552 3000 Miðasalan er opin frá kl. 10-18 SELJAVEGI 2 • 101 REYKJAVÍK BEINT FRÁ SVÖRTU NEW YORK SÖNGSKEMMTUNIN HARLEM SOPHISTICATE Aukasýning Fimmtud. 26. ágúst kl. 20.00 ALLRA SÍÐASTA SÝNING Munið miðasöluna á netinu RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Su 22/8 kl 20 - UPPSELT Mi 25/8 kl 20 - AUKASÝNING F 26/8 kl 20 - UPPSELT Fö 27/8 kl 20, Lau 28/8 kl 20, Su 29/8 kl 20, Mi 1/9 kl 20, Fi 2/9 kl 20, Fö 3/9 kl 20 - UPPSELT Takmarkaður sýningafjöldi DÝRÐLEGT FJÖLDASJÁLFSMORÐ e. Arto Paasilina í samstarfi við LANDSLEIK Su 22/8 kl 20 Síðasta sýning - Miðaverð kr. 1.000 Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin frá kl 10-18, og framað sýningu sýningardaga. www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is Stóra svið Nýja svið og Litla svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 5/9 kl 14 Su 12/9 kl 14 Su 19/9 kl 14 Su 26/9 kl 14 CHICAGO e. Kender, Ebb og Foss Lau 18/9 kl 20 Lau 25/9 kl 20 Lau 2/10 kl 20 Lau 9/10 kl 20 ATH ! ATRIÐ I Í SÝNINGUNNI ERU EKKI FYRIR V IÐKVÆMA ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Fös . 27 .08 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 28.08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Lau . 04.09 20 .00 LAUS SÆTI M iðnætursýning á menningarnótt Lau . 21.08 24.00 NOKKUR SÆTI 5. sýning: sun. 22. ágúst kl. 20.00 6. sýning: fim. 26. ágúst kl. 20.00 Allra síðasta sýn. lau. 28. ágúst kl. 20.00 Athugið! Aðeins þessar sýningar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.