Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 24
MINNINGAR 24 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Dóra GuðrúnMagdalena Ásta Guðbjartsdóttir fæddist að Lauga- vegi 30b í Reykja- vík 4. ágúst 1915. Hún lést föstudag- inn 3. september síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðbjartur Ólafsson frá Kefla- vík í Rauðasands- hreppi, f. 21. mars 1889, d. 15. maí 1961 og Ástbjörg Jónsdóttir af Akra- nesi, f. 25. ágúst 1888, d. 1. nóv. 1963. Börn þeirra hjóna eru: a) Jón, f. 23. okt. 1913, d. 16. apríl 1979, sem kvæntur var Unni 3. júní 1926. Þau eiga fjögur börn. Hann er nú einn á lífi af börnum Guðbjarts og Ástu. Dóra giftist 21. júní 1941 Ólafi Jóhannessyni lögfræðingi, síðar prófessor, alþingismanni og ráð- herra. Börn þeirra eru: a) Krist- rún, f. 6. mars 1942, fyrrum kennari við Vesturbæjarskólann í Reykjavík, gift Einari G. Pét- urssyni, handritafræðingi við Árnastofnun. Synir þeirra eru Ólafur Jóhannes, lögfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel, sambýliskona hans er Laurence Van Wymeersch og Guðbjartur Jón húsasmiður og nú nemi við Tækniháskóla Ís- lands. bc) 15. mars 1944 tvær telpur, sem dóu skömmu eftir fæðingu. d) Guðbjartur, f. 6. nóv. 1947, d. 2. febr. 1967. e) Dóra, f. 22. mars 1951, ritari hjá lög- reglustjóranum í Reykjavík. Útför Dóru fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þórðardóttur, f. 14. júlí 1924. Þau áttu tvö börn. b) Dóra. c) Ólafur Hafsteinn, f. 23. mars 1917, d. 5. maí 1996. Ólafur var kvæntur Sólrúnu Önnu Jónsdóttur f. 22. ágúst 1915, d. 11. okt. 1992. Þau eign- uðust átta börn. d) Jóhanna Júlíana, f. 26. sept. 1918, d. 11. febr. 1982. Jóhanna var gift Jean Emil Claessen, f. 11. nóv. 1911, d. 6. ágúst 1970. Þau eignuðust fjögur börn. e) Benedikt Ársæll, f. 1. jan. 1924, stýrimaður. Benedikt er kvæntur Maríu Pétursdóttur, f. Látin er í Reykjavík í hárri elli tengdamóðir mín Dóra Guðbjarts- dóttir, sem verður minnst hér með fá- einum orðum. Hún var dóttir hjónanna Guðbjarts Ólafssonar og konu hans Ástbjargar Jónsdóttur. Guðbjartur lauk prófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1911 og var lengi skipstjóri á skútum og tog- urum. Frá 1940 var hann 19 ár forseti Slysavarnafélags Íslands. Guðbjart- ur var einstakur gæfumaður og er sagt um hann að hann hafi verið sá maður sem flestum mönnum hefur bjargað úr sjó hér við land. Mesta og minnisstæða afrekið var þegar Guð- bjartur var skipstjóri á kútter „Esth- er“ frá Reykjavík og tókst 24. mars 1916 að bjarga 4 skipshöfnum, sam- tals 38 mönnum, af Grindavíkurbát- um úr bráðum lífsháska í norðan áhlaupsveðri þennan dag. Þegar þetta gerðist var móðir mín ung stúlka í Grindavík og gat þess oft hve veðrið hefði komið snögglega. Dóra ólst upp í Reykjavík og var ekki heilsuhraust sem barn, fékk barnaveiki og var svo langt leidd að læknir sem sá hana að kvöldi spurði morguninn eftir: „Hvenær dó hún?“ Dóra hjarnaði við og eins og oft vill verða með fólk sem á unga aldri réttir við eftir alvarleg veikindi að það verð- ur mjög hraust og nær oft mjög háum aldri. Til að reyna að bæta heilsufar telpunnar var hún send í sveit til föð- urfrænda sinna vestur í Kollsvík þar sem hún undi vel. Dóra lauk prófi úr Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1932 og varð stúdent úr Menntaskólanum í Reykjavík 1935. Það ár voru stúdentar úr Mennta- skólanum í Reykjavík 40 talsins, en úr þeim hópi voru 6 stúlkur og tvær þeirra úr stærðfræðideild sem var mjög óvenjulegt. Þá var ekki annar stúdentaskóli á Íslandi en Mennta- skólinn á Akureyri og úr honum út- skrifuðust sama ár 22 stúdentar og þar ein stúlka, ekki mikið um stúlkur færu í menntaskóla. Eftir stúdents- próf var Dóra einn vetur heimilis- kennari á Skúmsstöðum í Landeyjum og fannst henni þar margt vera frum- stæðara en fyrir vestan sem okkur finnst öfugt nú. Ástæðan fyrir því var að Vestfirðir voru í þjóðbraut meðan samgöngur voru á sjó en erfitt að komast um Suðurlandsundirlendið. Veturinn eftir stundaði hún nám í for- spjallsvísindum og sótti tíma í efna- fræði við læknadeildina, m.a. í von um vinnu á Rannsóknarstofu atvinnu- deildar Háskólans, þar sem hún starfaði til 1941 og minntist starfsins með ánægju, þar hefði unnið skemmtilegt fólk og mikil gamansemi ríkt. Guðbjarti föður hennar þótti algjör óþarfi að hún færi að nema læknis- fræði eins og hún hafði hug á. Fáar konur höfðu á þessum árum lokið há- skólanámi, nokkrar læknisfræði en aðeins ein lokið lögfræði, svo að lang- skólanám, og einkum kvenna, var ekki vanaleg leið. Oft er nú talað um að konur fyllist beiskju og harmi yfir því að hafa aldrei lokið neinu námi en aldrei var neitt hægt að greina hjá Dóru og ef til vill hefur það ekki orðið algengt fyrr en síðar. Sannfærður er ég um að hún hefði orðið góður lækn- ir. Hún vann ekki utan heimilis eftir að hún giftist og undi því hlutskipti vel, en þá var lenskan, að eiginmað- urinn átti að skaffa heimilinu og kon- an að styrkja hann í starfi sem gert var svikalaust. Dóra giftist 21. júní 1941 Ólafi Jó- hannessyni sem þá starfaði sem lög- fræðingur hjá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og rak einnig lög- fræðistofu. Að loknu stríði fóru þau til Svíþjóðar, þar sem Dóra fór á hús- mæðraskóla, en Ólafur stundaði framhaldsnám í lögfræði. Síðar varð hann prófessor, alþingismaður og forsætisráðherra, en annars er ferill hans svo alkunnur að óþarfi er að fjöl- yrða um hann. Dóra og Ólafur eignuðust þrjú börn er upp komust: Kristrúnu, sem gift er undirrituðum, Guðbjart, sem lést rúmlega 19 ára, og Dóru, sem síð- ustu ár hefur verið móður sinni stoð og stytta. Ekki þarf að fara um það mörgum orðum hvílíkur harmur það var þegar sonurinn dó úr hvítblæði og ekkert hægt að gera. Greinilegt er að eftir það eltist Ólafur fremur hratt og bar það ör meðan hann lifði, en Dóru tókst að vinna betur úr sorginni. Ég kynntist Dóru og manni hennar eftir að kynni okkur Kristrúnar hóf- ust og tók ég þá strax eftir þeim góða og trausta anda, sem ríkti á heim- ilinu. Er glöggt að hann hefur reynst börnum hennar gott veganesti og sonum okkar, einu barnabörnunum. Þeir hafa alltaf átt athvarf á heimili afa og ömmu og hefur það orðið þeim til mikils og góðs þroska. Dóra var ákveðin í skoðunum og stíf á sinni meiningu til hinstu stund- ar. Hreinskiptin var hún í orðum og gerði sér engan mannamun. Ég man að þegar við fórum saman til Eng- lands sumarið 1988, sá hún í Keflavík Þorstein Pálsson, sem þá var í forsæti ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks. Varð henni þá að orði við hann: „Það er enginn dans á rósum að vera for- sætisráðherra í þriggja flokka stjórn.“ Eins og kunnugt er sprakk ríkisstjórnin fáum vikum síðar. Fyrir 20 árum missti Dóra Ólaf mann sinn mjög snögglega og þurfti hún þá að sinna ýmsu, sem hún hafði ekki sinnt áður og stóð sig þar með prýði. Sumarið 1993 fékk hún smá- vegis blæðingu á heilann og hrakaði þá nokkuð, og héldum við um jólin 1993, að hún myndi brátt þurfa að fara á dvalarheimili og ekki eiga fleiri jól með fjölskyldunni. Svo reyndist þó ekki, því seigt reyndist í gömlu kon- unni. Hún fór að fara í dagvist í Múla- bæ, naut þar góðrar umönnunar og hafði gaman af dvölinni, fór seinast daginn áður en hún dó. Blessuð sé minning hennar. Einar G. Pétursson. Föðursystir mín Dóra Guðbjarts- dóttir er látin, áttatíu og níu ára að aldri. Dóra var næstelst fimm barna hjónanna Guðbjartar Ólafssonar, hafnsögumanns og forseta Slysa- varnarfélags Íslands, og konu hans Ástbjargar Jónsdóttur, en faðir minn var elstur. Guðbjartur var ættaður frá Kollsvík í Rauðasandshreppi en Ástbjörg frá Akranesi. Frá því að ég man eftir mér hefur ætíð verið mikil vinátta milli fjölskyldna okkar. Dóra og Jón voru sérstaklega náin systkini og um langt árabil ræddu þau saman daglega. Í þeim samtölum bar vafa- laust margt á góma en sérstaklega hafði faðir minn gaman af að ræða við systur sína um pólitík og hygg ég að það hafi verið gagnkvæmt þó að oft hafi þau ekki verið á einu máli. Þau voru bæði jafn hreinskiptin og mátu hvort annað mikils. Þau höfðu bæði dvalið á barnsaldri vestur í víkunum við Látrabjarg og kynnst þeim sérstöku lífsháttum sem þar voru á þeim tíma. Í þessum af- skekktu víkum lifði fólkið ágætu lífi við búskap, útræði og fuglatekju í ná- munda við bjargið og hin óblíðu nátt- úruöfl. Minningarnar sem tengdust þessum stað voru sérlega sterkar og hugur þeirra til átthaganna mikill. Þekktu og frændgarðinn mjög vel og gerðu sér far um að rækta þau tengsl. Þar mátti vart á milli sjá en ég hafði þó alltaf á tilfinningunni að Dóra hefði ættfræðina meira á hraðbergi. Á þessum árum hittist fjölskyldan oft öll á stórhátíðum og afmælum en af yngri systkinunum bjuggu þau Jó- hanna og Benedikt í Reykjavík en Ólafur lengst af í Kollsvík og síðar á Patreksfirði. Það var gott að koma í heimsókn á Aragötu 13 til Dóru og Ólafs Jóhannessonar. Ólafur var þá einn helsti forystumaður í íslenskum stjórnmálum og Dóra hans trausti bakhjarl hvað sem á dundi. Heimilis- bragurinn var glaðlegur og látlaus í anda Dóru. Sjálfur kynntist ég Dóru best þeg- ar ég var kominn á fullorðinsár. Hún hafði ein systkinanna farið í Mennta- skólann í Reykjavík og varð stúdent 1935. Við áttum því sameiginlegar til- finningar til skólans og sams konar minningar um þessi einstöku menntaskólaár. Hún hafði byrjað í læknisfræði og leist vel á það fag fyrir mína hönd. Dóra var ákaflega greind og heilsteypt kona, skýr í hugsun, stálminnug og fljót að átta sig á mönnum og málefnum. Hún hafði mjög sígild viðhorf til þeirra verð- mæta sem mestu máli skipta í lífinu um trygglyndi, dugnað og heiðarleika en fyrirleit tilgerð og sýndar- mennsku. Hún hvatti okkur yngra fólkið til dáða og lagði ríka áherslu á gildi menntunar fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið. Mér er sérlega minn- isstætt þegar ég hitti hana skömmu áður en ég fluttist til útlanda í fram- haldsnám og hún lagði á það áherslu við mig að Ísland þyrfti á vel mennt- uðu fólki að halda. Þessi orð gleymd- ust ekki og eru jafnsönn í dag. Á seinni árum eftir að faðir minn og Ólafur féllu frá hélst ómetanleg vinátta milli móður minnar og Dóru og hennar fjölskyldu. Þótt ellin lædd- ist að henni var hún alltaf skýr og skemmtileg, tilbúin að slá á létta strengi, gefa okkur yngri kynslóðinni góð ráð og minna okkur á kjarna málsins með tilvitnun eða málshætti. Við kveðjum hana með þakklæti, söknuði og virðingu. Steinn Jónsson. Fallin er frá í hárri elli föðursystir mín, frú Dóra Guðbjartsdóttir. Dóra er fædd og uppalin í Reykjavík, næst- elst fimm barna hjónanna Ástbjargar Jónsdóttur húsmóður og Guðbjartar Ólafssonar hafnsögumanns. DÓRA GUÐBJARTSDÓTTIR V elferðarkerfið er ekki forsenda þess að kapítalisminn fá- ist þrifist. Kapítal- ismi er forsenda þess að við höfum efni á velferð- arkerfinu. Þess vegna var ég ekki sammála Jóni Sigurðssyni, bankastjóra Norræna fjárfest- ingarbankans, þegar hann sagði á málþingi um atvinnubyltingu Íslendinga í Háskóla Íslands í síðustu viku að velferðarþjóð- félagið hefði búið markaðs- hagkerfinu forsendur til að dafna. Stærsti hluti velferðarkerf- isins hefur verið fjármagnaður með skattpeningum ríkissjóðs en ekki iðgjöldum. Þegar vel- ferðarlöggjöfin var sett á á Ís- landi af Nýsköpunarstjórninni strax eftir stríð var landsfram- leiðsla Íslendinga 38% meiri en fyrir síðari heimsstyrj- öldina. Það þýðir að Ís- lendingar framleiddu 38% meira af allri vöru og þjónustu á einu ári eftir stríð en fyrir. Árlegur meðalhagvöxtur frá árinu 1939 til 1945 var 5,6%. Til sam- anburðar var hagvöxtur á Ís- landi árið 2003 4,3%. Með öðrum orðum höfðu Ís- lendingar efni á að setja hér lög m.a. um almannatryggingar og opinbera heilbrigðisþjónustu. Auðvitað væri of mikil einföldun að gera lítið úr þróun í þessa átt í nágrannalöndum okkar m.a. fyrir tilstuðlan verkalýðshreyf- ingarinnar og sósíalista, en ef fjárhagslegar forsendur hefðu ekki verið til staðar hefði þróun- in orðið öðruvísi. Það má líka segja að uppbygging velferð- arkerfisins hafi síðan verið háð afkomu þjóðarbúsins. Við getum borið saman ríkisrekin velferð- arkerfi í austri undir stjórn kommúnista og í vestri þar sem markaðsskipulagið var grund- völlur efnahagslífsins eftir seinna stríð. Enginn efast um „góðan“ ásetning sósíalista en hugmyndafræðin beið skipbrot svo skein í örbirgð milljóna manna. Það er engin velferð fal- in í því að gera alla jafnfátæka! Frjálst atvinnulíf Vesturlanda virkjaði drifkraft einstakling- anna til að sjá sér farborða og um leið vinna að hagsmunum heildarinnar, eins og alkunna er. Margir segja með vanþókn- un að velferð verði ekki mæld í hagtölum. Staðreyndin er samt sú að ríkið á enga peninga til að halda uppi velferð. Stjórnvöld verða að skattleggja atvinnufyr- irtækin og borgarana til að fjár- magna slíka starfsemi, sé hún bundin í lög. Kapítalisminn hef- ur skapað hagkvæma umgjörð um efnahagslíf þjóða og gert löggjafanum kleift að byggja upp umfangsmikið velferð- arkerfi. Hvar værum við án kapítalistanna og öflugra fyr- irtækja? Eyjólfur Konráð Jóns- son, fyrrverandi ritstjóri Morg- unblaðsins og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í bók sinni Alþýða og athafnalíf árið 1968 að auðjöfnun væri meiri á Íslandi en annars staðar og þess vegna gætu ekki fáir menn komið á fót öflugustu atvinnu- fyrirtækjunum, en hins vegar væri fjármagn til í höndum fjöldans. Fannst honum að einkaframtakið hefði farið hall- oka um langt skeið og var hann talsmaður þess að hér yrðu stofnuð almenningshlutafélög til að efla og styrkja atvinnulífið. Þetta var einnig leið, að mati Eykons, til að koma í veg fyrir að örfáir auðmenn myndu ráða yfir öllum atvinnurekstri þjóð- arinnar, eins og hann orðaði það. Stór fyrirtæki eru ekki endi- lega ávísun á það að örfáir menn ráði yfir öllum atvinnu- rekstri þjóðarinnar. Árið 1968 var umgjörð atvinnulífsins með allt öðrum hætti en nú þekkist og stjórnaðist að miklu leyti af handaflsaðgerðum ríkisstjórnar. Stór fyrirtæki störfuðu oftast í skjóli laga og reglugerða sem stjórnmálamenn settu og fólk hafði litla von um að komast áleiðis nema með pólitískri íhlutun. Fjársterkir einstaklingar og öflug fyrirtæki eru nú fleiri á Íslandi en nokkru sinni áður. Meira frelsi í milliríkja- viðskiptum tryggir að hér getur hver sem er stofnað fyrirtæki eygi hann arðbært tækifæri. Fólk er ekki eins íhaldssamt að versla við sama fyrirtækið held- ur skiptir um banka, símafyr- irtæki eða bílaumboð bjóðist því betri kjör annars staðar. Hugs- unin er önnur; fólkið er ekki til fyrir bankana heldur bankarnir fyrir fólkið. En nú vilja þeir sem telja sig helstu talsmenn samkeppninnar hverfa nokkur skref aftur í tímann og auka íhlutun hins opinbera í atvinnu- lífinu. Nálgunin er önnur en nið- urstaðan hin sama. Ný skýrsla hringamyndunarnefndar við- skiptaráðherra er dæmi um það, en forsætisráðherra sagði í Morgunblaðinu sl. sunnudag að tillögur nefndarinnar gengju skemur en æskilegt væri! Eft- irlitsstofnanir hins opinbera eiga samkvæmt tillögum nefnd- arinnar að geta ráðist inn á heimili starfsfólks fyrirtækja, í bíla þeirra og aðrar eignir. Þær eiga að hafa víðtækara umboð til að fyrirskipa fyrirtækjum hvernig þau eigi að stunda við- skipti. Ef þau fara ekki eftir þeim skipunum er hægt að fara fram á að þeim verði skipt upp í tvö eða fleiri fyrirtæki. Það væri athyglisvert að fá að heyra æskilegar tillögur for- sætisráðherra í þessum efnum. Er það krafan um að ríkisvaldið eigi að fyrirskipa hverjir mega eiga í hverju? Hvar hinir og þessir mega fjárfesta, sitja í stjórnum eða koma að rekstri fyrirtækja með öðrum hætti? Vill hann auka enn frekar íhlut- un hins opinbera af atvinnulíf- inu? Vill forsætisráðherra tak- marka eignarréttinn, sem er samofinn frelsi einstaklingsins, með þeim hætti? Það væri gam- an fá svör við þeim spurningum. „Besti vinur samkeppninnar er frjáls verslun, og á það ekki síst við í smáum ríkjum,“ sagði dr. William Bishop á alþjóðlegri ráðstefnu Lögfræðistofu Reykjavíkur og Euphoria í Brussel nýlega. Þetta er enginn nýr sannleikur en virðist vera torskilið í hugum margra. Stór- fyrirtæki „En nú vilja þeir sem telja sig helstu talsmenn samkeppninnar auka íhlutun hins opinbera í atvinnulífinu.“ VIÐHORF Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.