Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 35
MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 35 Þ að eru varla nema tíu til fimmtán ár síðan margir töldu daga rímnakveðskapar senn talda. Kvæðamannafélög voru þó starf- andi á nokkrum stöðum á land- inu; en ímynd þeirra var kannski sú að í þeim störfuðu einkum gamlir sérvitringar sem héldu dauðahaldi í deyjandi menningar- arf. Auðvitað var sú ímynd ekki alls kostar rétt, og í dag má segja í orðsins fyllstu merkingu að kveði við nýjan tón, þegar rímnakveðskapur er annars vegar. Í dag nýtur hann bæði virðingar og talsverðra vin- sælda – áhugi almennings hefur vaknað, og kveðskapurinn hefur gengið í endurnýjun lífdaga með ungu fólki sem sumt hvert reyn- ir nýjar leiðir í túlkun hans; þótt enn sem fyrr sé byggt á hefðinni. Kvæðamannafélagið Iðunn fagnar 75 ára afmæli á morgun. Formaður félagsins er Steindór Andersen, sem hefur verið öðrum ötulli við að endurvekja og glæða áhuga fólks á rímunum. Í tilefni af afmælinu verð- ur efnt til fagnaðar í Borgarleikhúsinu ann- að kvöld kl. 20, en stærri í sniðum er þó vegleg útgáfa Smekkleysu á rímnakveðskap frá fyrri tíð, á fjórum geisladiskum, og bók með kvæðalögunum – eða stemmunum – eins og lögin kallast á íslensku máli og text- um þeirra, ásamt greinum eftir fræðimenn á þessu sviði. Viðlíka safn heimilda um rímna- kveðskap hefur ekki komið út áður, og því hlýtur þetta að teljast tímamótaútgáfa, sam- bærileg við það þegar Þjóðlagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar kom út á sínum tíma fyrir hartnær öld. „Ég held að almennur áhugi á allri jaðar- tónlist sé að aukast – það á ekki bara við um Ísland – hefur verið að gerast í útlöndum, en er kannski fyrst nú síðustu árin að taka á sig mynd hér á landi,“ segir Steindór And- ersen, spurður um vakninguna í rímnakveð- skapnum á síðustu árum. „Fólk hefur bara almennt ekkert vitað af þessu. Kvæðamannafélagið hefur verið hálf- gert leynifélag, og enn er ég að hitta fólk sem þekkir ekki muninn á því að kveða og yrkja. Það er ekkert skrýtið að svona hafi farið, þegar kveðskapnum var ekkert haldið að fólki. Þetta er að breytast, en hvort það er rétta aðferðin að blanda rímnakveð- skapnum við hvað sem er – eins og ég hef gert nokkrar tilraunir með – það er önnur saga – en kannski það sem til þarf til að vekja at- hygli á kveð- skapnum.“ Hér vísar Steindór til þess að á síð- ustu árum hefur hann unnið með tónlistar- mönnum að ýmsum verkum, sem byggjast á kveðskap, en í nútíma hljóðheimi hljóðfæra og hljómsveita. Kunnasta dæmið er sam- starf hans við Sigur Rós, sem hefur þótt heppnast með afbrigðum vel, og hefur vafa- lítið aukið hróður rímnakveðskaparins til muna, og sýnt svo ekki verður um villst, að hann á erindi við samtímann. Erfitt að skrá stemmurnar Á geisladiskunum fjórum er að finna 200 fyrstu lagboða, eða stemmur, Iðunnar, sem kvæðamannafélagið lét hljóðrita á árunum 1935–1936 á silfurplötur sem hafa verið í vörslu Þjóðminjasafnsins um árabil. Í bók- inni eru allar stemmurnar uppskrifaðar með nútíma nótnaskrift, sem Steindór segir meira til leiðbeiningar, en að nákvæmlega sé hægt að fara eftir, því tónmál rímnanna sé flóknara en svo að hefðbundin nótnaskrift nái að fanga það. „Þórður Magnússon tónskáld skrifaði allt safnið upp, en það voru margir fleiri sem lásu yfir og gerðu tillögur að lagfæringum. Gunnsteinn Ólafsson var ritstjóri verksins, en það þurfti að ákveða ákveðna ritstjórnar- stefnu um það hvernig bæri að skrifa stemmurnar upp. Það eru bæði kvarttónar og rytmi sem rúmast ekki í hefðbundna kerfinu, og kvæðamennirnir eru líka breyti- legir milli vísna, þótt sama lagið sé. Hefði átt að fara út í vísindalega uppskrift á þessu, værum við með allt aðra og umfangs- meiri vinnu í höndunum, og það var ekki meiningin að fara út í slíkt, heldur gefa fólki kost á aðgangi að stemmunum. Það er hægt að skoða nóturnar og textana um leið og er hlustað.“ Allt hljóðritað á silfurplötur Það var að líkindum Atli Ólafsson sem sá um upptökurnar á sínum tíma, en hann var sonur Önnu Friðriksson í Hljóðfærahúsinu, sem flutti silfurplöturnar inn. „Þetta voru ýmist álþynnur eða hertur pappi sem sellakkblanda – náttúruefni – var borin á, og svo var skorið í það. Fólk gat farið í Bankastræti 7, þar sem Hljóðfæra- húsið var þá, og látið hljóðrita raddir sínar. Í auglýsingum frá þeim tíma er bent á að það sé heppilegt fyrir fólk að láta hljóðrita raddir barna sinna, og eiga þær með ljós- myndum til að hafa gaman af þegar þau vaxi úr grasi. Þetta eru kannski fyrstu hug- myndir að margmiðlun. Fólki var líka bent á að þetta væri sniðugra en sendibréf – það væri hægt að koma í Hljóðfærahúsið og lesa langt sendibréf inn á plötu, og senda hana í sveitina, frekar en bréfið. Þetta var ódýr tækni, og Kvæðamanna- félagið sá sér því leik á borði að láta hljóð- rita kveðskapinn og vernda hann þannig. Þá höfðu verið uppi hugmyndir um að skrifa allt upp á nótur, en ég held að það hafi verið Jón Leifs, sem sagði mönnum að það væri ekkert vit í því, þetta yrði að fara á hljóðrit. Nú var það hægt, því ein plata kostaði ekki meira en miði í leikhús, eða í stúku í Gamla bíói.“ Það var ekki beðið boðanna, og fimmtíu silfurplötur af rímnakveðskap hljóðritaðar hjá Atla sem þá rak Atlabúð, sem var í nánu samstafi við Hljóðfærahúsið. Steindór segir að plöturnar hafi eitthvað verið notaðar, og plötur með vinsælustu og erfiðustu stemm- unum hafi verið farnar að slitna. „Það eru plöturnar sem þurfti að spila oftast til að fólk lærði stemmurnar. Það voru gerð afrit af plötunum, og eitt slíkt er til, en það átti Björn Friðriksson frá Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi, en hann var einn af stofnendum Iðunnar. Á tíu ára afmæli Iðunnar, 1939, var upprunalega safnið afhent Þjóðminja- safninu til varðveislu, en þar var það tekið tvisvar til afritunar á segulband. Að öðru leyti hefur það legið óhreyft, og það er mikil blessun að því. Það var svo Hreinn Valdi- marsson, tæknimaður í Útvarpinu, sem sá um að yfirfæra silfurplöturnar í stafrænt form og hreinsa upptökurnar.“ Steindór segir að í rauninni hafi aldrei skapast almennileg skilyrði til að vinna þá vinnu að koma stemmunum á aðgengilegt form til almennings, fyrr en nú, og ástæðu- laust sé að skammast yfir því að verkið hafi ekki verið unnið fyrr en nú. Hann samsinnir því að þetta sé gríðarlegur fjársjóður. „Þarna er afskaplega góð heild af íslenskum kvæðalögum, og grunnurinn að söfnunar- starfi Iðunnar, og þess vegna fagnaðarefni að fólk geti nú notið þessa heima í stofu.“ Sjö til átta hundruð stemmur til Ómögulegt er að segja til um hve margar stemmur eru til og hafa varðveist, að mati Steindórs, en hann slær þó á fjöldann. „Í safninu hjá okkur í Iðunni eru taldar um 500 stemmur, en ég held að það megi skera þá tölu niður, því þar eru endurtekningar. Þar hafa líka laumast inn frumsamdar stemmur sem mér finnst ekki eiga að vera í slíku safni, heldur öðru safni til hliðar við það. Í Árnastofnun er líka til mikið safn, og ég ímynda mér að þetta gætu verið 7–800 stemmur ef allt væri tekið saman. Það er kannski varlega áætlað, því ég veit til þess að Árnastofnun geymir um 5.000 dæmi af rímnakveð- skap.“ Stemmurnar 200, sem koma út núna, eru því drjúgur hluti þessa hluta menningararfs- ins. Og vonir standa til að framhald verði á útgáfunni. „Við stofnuðum útgáfusjóð, sem við höfum feng- ið styrki í. Meiningin er að hann verði und- irstaða útgáf- unnar, og verði tekjur af útgáf- unni renni þær beint í sjóðinn, svo hægt verði að halda áfram. Það er hægt að bæta við, og það yrði mikið unnið með því að halda þessu áfram, og reyna að koma öllu stemmusafni þjóðarinnar út.“ Steindór er vongóður um að með útgáf- unni nú, eigi áhugi á rímnakveðskap enn eftir að aukast. „Það er aldrei að vita nema það verði farið að kveða í hverri stofu. Ég vil leyfa mér að líkja þessu við Íslendinga- sögurnar. Þær verða að vera til á hverju heimili, og eins er með rímurnar, þegar þær eru orðnar svona aðgengilegar almenningi.“ Meðal kvæðamanna sem kveða á disk- unum fjórum er fólk sem var vel þekkt um sína daga. „Þarna eru Kjartan Ólafsson múrarameistari, sem var þekktur í bæjar- málapólitíkinni í þá daga, og Þuríður Frið- riksdóttir, formaður Þvottakvennafélagsins Freyju. Þau voru þekkt úr verkalýðsbarátt- unni. Þarna kveður líka Jóhann Garðar Jóhannsson frá Öxney, en hann þekktu margir. Hann var merkilegur og skemmti- legur kvæðamaður. Þetta eru þrettán kvæðamenn, og einn þeirra er meir að segja enn á lífi. Það er Jón Eiríksson, sonur Eiríks Jónssonar frá Keldunúpi, járnsmiðs. Hann kvað þetta þegar hann var níu ára gamall. Hann kvað undir handleiðslu Björns Friðrikssonar sem hélt mikið upp á strákinn og vildi kenna honum að kveða.“ Á afmælisdagskránni í Borgarleikhúsinu annað kvöld flytja Bára Grímsdóttir og Chris Foster þjóðlög, hagyrðingar bera saman bækur sínar; kórinn Sunnan heiða, skipaður Svarfdælingum á höfuðborgar- svæðinu, syngur útsetningar Gunnsteins Ólafssonar á rímnalögum, en kvæðamaður með kórnum er Pétur Björnsson og ein- söngvari Ólafur Kjartan Sigurðarson. Þá kveða Hilmar Örn Hilmarsson allsherjar- goði og Kristín Heiða Kristinsdóttir Breið- firðingavísur og kvæðamenn og kvæðakonur kveða undir forystu Báru Grímsdóttur og Njáls Sigurðssonar. Í lokin stíga Steindór og Sigur Rós á stokk og flytja rímnaútsetn- ingar Sigur Rósar. Dagskráin hefst sem fyrr segir á Stóra sviðinu kl. 20 og kynnir verður Eva María Jónsdóttir, en það var Eva María sem fyrst leiddi saman Sigur Rós og Steindór, í sjónvarpsþætti sínum Stutt í spunann. Tónlist | Upptökur af rímnalögum gefnar út á fjórum geisladiskum og bók á 75 ára afmæli Iðunnar Gríðarlegur fjár- sjóður nú aðgengi- legur almenningi begga@mbl.is Steindór Andersen Morgunblaðið/SverrirÁsmundur Jónsson „ÉG HELD að fólk hafi haldið að rímnakveðskapurinn væri leiðinlegur – það er allavega mín tilfinning,“ segir Ásmundur Jónsson í Smekkleysu um þá daga þegar lítið líf virtist í rímnakveðskap í landinu. „Með útgáfunni á Röddum fyrir nokkrum árum – með hljóðrit- unum úr Árnastofnun, kom annað í ljós. Þetta er menning okkar, ómótstæðileg og mjög skemmtileg og mjög tengd bókmenntaarfi okkar. Neistinn kviknaði. Þá hefur Steindór Andersen verið mjög virkur innan Kvæðamannafélagsins, og samstarf hans við Sigur Rós sýnir að þarna er falleg tónlist, sem hægt er að gera ýmislegt með. Kannski hefur mönn- um áður þótt þetta of heilagt til að mega snerta það, eða þeir of miklir púrítanar til að sjá nýja möguleika.“ En hvað vakir fyrir Smekkleysu og Ásmundi Jónssyni með því að ráðast í slík stórræði sem þessi útgáfa hlýtur að teljast? „Þetta er hluti af því sem okkur hefur langað að gera – að skrásetja íslenska tónlist. Þessi útgáfa hefði aldrei orðið að veruleika nema vegna þess að margir hafa komið að henni og margir hafa styrkt hana. Kvæðamannafélagið hefur dregið vagninn hvað varð- ar fjármögnun útgáfunnar, og upptökurnar eru eftir sem áður eign þess þótt við gefum þetta út. Auðvitað rennir maður blint í sjóinn með viðtökurnar – þetta er stór pakki, og kannski höfðar hann fyrst og fremst til fólks sem hefur áhuga á því að kynna sér kveð- skap. En þetta er líka upplýsandi sem söguleg heimild og bókmenntalegt verk og þannig sé ég fyrir mér að þetta eigi heima jafnt í bókabúðum sem hljómplötuverslunum. Radd- irnar fóru talsvert í skóla og söfn, og ég vona að þessi útgáfa geri það líka. Ég hef sjálfur mikinn áhuga á að byggja upp kennsluefni í tónlist, og sé fyrir mér að þessi útgáfa sé góð heimild til kennslu. Ég held að það væri krökkum ekki slæmur lærdómur í íslenskri sögu, að kunna skil á nokkrum stemmum og alþýðumenningu þjóðarinnar, jafnt og þeirri lærðu.“ Krakkar kunni skil á nokkrum stemmum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.