Morgunblaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.09.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2004 39 MINNINGAR Látinn er Jóhannes Ólafsson, fv. forstjóri Dósagerðarinnar. Kynni okkar hófust 1973 í stjórn Félags landeigenda í Vaðnesi, en Jóhannes var „prímus motor“ í því félagi árum saman. Ég átti því láni að fagna að starfa með honum í stjórn félagsins þann tíma er hann var formaður þess ásamt heiðursmanninum Sigurði Ingasyni. Jóhannes var einn af frumbyggj- um á bökkum Hvítár í Vaðneslandi og veit ég að honum þótti vænt um landið og naut þess að dvelja þar. Á hans stjórnarárum, er frum- kvöðla var þörf, náðust stórir áfang- JÓHANNES INGI- BJÖRN ÓLAFSSON ✝ Jóhannes Ingi-björn Ólafsson fæddist á Hellissandi 22. febrúar 1919. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 11. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Neskirkju 21. september. ar til hagsbóta fyrir okkur sumarbústaða- eigendur, eins og er rafmagn var lagt um svæðið og hitaveita lögð. Voru þetta hvor- tveggja miklar fram- kvæmdir og umdeildar þá, en allt þetta og margt annað leiddi Jó- hannes til lykta á sinn hátt í sátt við alla og okkur, er þarna eigum okkar annað heimili í dag, til farsældar. Því á þessum árum tíðkað- ist ekki eins og er í dag að búið væri að leggja vegi, rafmagn og heitt og kalt vatn að lóðamörk- um. Ég vil með þessum fáu orðum þakka Jóhannesi og hans ágætu eft- irlifandi eiginkonu Ingveldi fyrir ánægjuleg kynni og gott samstarf. Fyrir hönd okkar er eiga sum- arbústaði í Vaðneslandi þakka ég Jóhannesi allan hans dugnað og alúð er hann vann og sýndi félagi okkar. Aðstandendum sendi ég innlegar samúðarkveðjur Guðjón Oddsson. Mig langar að minn- ast tengdaföður míns með nokkrum orðum. Ég kynntist Árna Ragnari eða Ragnari eins og hann var kallaður heima, fyr- ir um fimm árum þegar ég og Björn sonur hans tókum saman. Hann tók mér opnum örmum og birtist mér sem góður og bjartur maður. Þrátt fyrir endurtekin veikindi í lífi hans leið mér aldrei eins og hann væri veikur heldur var hann frekar sá sem vildi ráðleggja öðrum eins og hinn sterki. Ragnar var mjög félagslyndur maður að eðlisfari. Hann mætti á all- ar samkomur og mannamót sem hann hafði tíma til að mæta á og skipti þá engu máli hvernig honum leið eða í hvaða meðferðum hann var; Ragnar var mættur á svæðið! Mér ÁRNI RAGNAR ÁRNASON ✝ Árni RagnarÁrnason alþing- ismaður fæddist á Ísafirði 4. ágúst 1941. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 16. ágúst síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Keflavíkur- kirkju 25. ágúst. fannst það dálítið krúttlegt ef ég get orð- að það svo, því ég heill- aðist af hugrekki hans og andlegum krafti. Hann hafði skoðun á öllu og vildi setja sig inn í öll mál og var fylginn sér. Helstu persónuein- kenni Ragnars voru að mínu mati: fróðleiks- fýsn, þrjóska, stolt, lífs- gleði og síðast en ekki síst hugrekki. Hann sýndi stolt, þrjósku og hugrekki í veikindum sínum, áhugasemi gagnvart náung- anum og hugrekki í starfi sínu og leik. Hann var fallegur maður, jafnt innan sem utan og hafði sína köllun í lífinu sem var pólitík. Hann hafði gaman af að rökræða og gat þá orðið ansi heitt í hamsi eins og sérhverjum þeim sem hefur mikla ástríðu fyrir málefnum. Hann var leitandi maður og fróður og tel ég að hann hafi leitað af áhuga fyrir því að finna svör við sannfær- ingu sinni. Hann leitaði með stolti og virðingu fyrir lífinu að leiðarljósi. Elsku Árni Ragnar, hvíl í friði. Þín tengdadóttir Kristbjörg Kari Sólmundsdóttir. Hann var lítið fyrir lyftur, meira fyrir stiga. Lítið fyrir bjór, meira fyrir „blakkara“. Lítið fyrir grænmeti, meira fyrir grillsteik. Og ekkert fyrir leiðindi. Í 17 ár naut ég þess að þekkja Pét- ur. Fyrst í gegnum vinnuna, síðan betur þegar hann og Stebbi hófu samstarf og vinátta myndaðist. Óteljandi minningar spretta fram, flestar tengdar tónlist og ferðalög- um. Þjóðhátíð; þau Linda léku á als oddi og brekkusöngur fékk nýja merkingu sem Pétur deildi með okk- ur hinum við dillandi hlátur Lindu. Utanlandsferðir þar sem Pétur var ávallt miðpunkturinn. Tívolí; hann sat og passaði töskur okkar hinna á meðan við snerumst í rússíbönum. Honum nægði að horfa á. Aldrei gleymist Júróvisjón-ferðin til Rómar 1991, en þar keypti Pétur 18 grýlna jakkann og glímdi við „innilokarann“; flug-, loft- og lyftu- hræðslu. Við vorkenndum honum, en hlógum, því sjálfur gerði hann stól- pagrín að sér. Hnyttnar athuga- semdir voru gerðar við alla keppend- urna, auðvitað á okkar ástkæra ylhýra og „pétrísku“ að auki, svo enginn skildi nema við. Ferðin í Vat- íkanið; Pétri var meinuð innganga í Iron Maiden-bolnum og gert að fara í skyrtu utan yfir. Þegar inn var komið tóku við þröngir gangar og brattir stigar, sem voru Pétri lítt að skapi, þannig að við vorum send áfram með upptökuvél – hann ætlaði að skoða þetta heima með Lindu. Ég sé hann fyrir mér sveittan og rjóðan á Mallorca, við í sólbaði á meðan hann fór í búðina, hugsaði um börnin, blandaði drykki og sá um skemmtiatriðin. Ég var langt gengin með eldri son minn, þrútin og þreytt í hitanum en hann sló mér sífellt gullhamra, vissi fátt fegurra en blómstrandi konur. Við vinkonurnar öfunduðum Lindu af Pétri, hann snerist í kringum hana, því hún var drottningin hans. Linda og börnin voru Pétri allt. Fyrir ári áttum við Stebbi dásam- lega kvöldstund í Köben með Pétri og Jonna vini hans, daginn eftir Stones-tónleika. Það var „hittingur“ á steikhúsi, þar sem Pétur fór mik- inn. Við héldum að við hefðum heyrt allar sögurnar en það var öðru nær. Hlátur okkar ómaði um alla borg og maturinn fór illa tugginn ofan í maga. Skömmu síðar héldum við hjónin partý í tilefni brúðkaupsaf- mælis okkar og auðvitað steig Pétur á stokk við mikinn fögnuð. Hann var oft búinn að ræða um að ég talaði með honum inn á mynd- band sem hann ætlaði að gefa út, fræðslumyndband um hlutverk „Guðsteins“ og „Svanfríðar“ fyrir þá sem á þurftu að halda. Það bíður betri tíma en við skemmtum okkur allavega við tilhugsunina um það hvernig við ætluðum að haga lestr- inum. Það eru forréttindi að hafa þekkt Pétur, smitast af gleði hans, óbilandi bjartsýni og almennum skemmtileg- heitum. Við ótímabært fráfall hans lofar maður sjálfum sér því að nota tímann vel, því er á meðan er. Elsku Linda mín. Ég bið Guð að styrkja þig og börnin, foreldra og fjölskylduna alla á þessum erfiðu tímum. Minning Péturs lifir með okkur. Anna Björk Birgisdóttir. Pétur Wigelund Kristjánsson var drengur góður og hefði ég ekki fyrir nokkra muni viljað missa af því að PÉTUR WIGELUND KRISTJÁNSSON ✝ Pétur WigelundKristjánsson, hljómlistarmaður og framkvæmdastjóri, fæddist í Reykjavík 7. janúar 1952. Hann lést á Landspítalan- um 3. september síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Graf- arvogskirkju 16. september. starfa með honum í hljómsveit. Pétur var með eindæmum skemmtilegur félagi og útilokað að láta sér leiðast í návist hans, orðaleikirnir óborgan- legir þar sem m.a. sval- ir, undirvagn og and- styggilegheit fengu nýja og broslega merk- ingu. Jafnframt var Pétur ábyrgur og atorkusamur í því sem hann tók sér fyrir hendur. Hljómsveitinni Poker stýrði Pétur af einstakri fagmennsku, sá um bókan- ir og uppgjör, var tengiliður við fjöl- miðla, skipulagði stífar æfingar og átti stærstan þátt í lagavalinu. Hann birtist á æfingum með allskyns fá- gæt tæki og tól úr reglubundnum ferðum sínum til London og New York, svo bandið mætti troða upp með sem mestum stæl. Sjálfur var Pétur sem skapaður fyrir rokksviðið. Í hinum mögnuðu margra grýlna jökkum hélt hann alltaf góðri teng- ingu við salinn og var með lagalist- ann á hreinu. Pétur var með flotta „erlendis“ rödd sem steinlá í ákveð- inni tegund tónlistar. Það er höggvið óvænt og ótíma- bært skarð í raðir okkar tónlistar- manna og ljóst að ein af skærustu stjörnum íslenskrar poppsögu hefur yfirgefið jarðsviðið að þessu sinni, en minningin lifir litrík og sterk. Við Guðrún þökkum Pétri samfylgdina og vottum Lindu og börnum, Krist- jáni, Erlu og fjölskyldu, okkar dýpstu samúð. Jóhann Helgason. Ég kynntist Pétri Kristjánssyni árið 1972 þegar ég var að reyna að átta mig á nýju og framandi sam- félagi. Þetta var ekki fyrsta skipti sem ég var í þeim sporum en í þá daga var nánast sama við hvaða út- lending maður ræddi, annaðhvort vissu þeir ekki neitt um Ísland eða sögðu sögur af kuldanum og myrkr- inu sem átti að ríkja þar árið um kring. Þetta átti ekki síst við um þá bandarísku hermenn sem ég ræddi við. Veðráttan gat vissulega verið rysjótt í þá daga en þessar sögur reyndust fjarri hinu sanna. Það sama gilti um þá miklu hlýju og vinsemd sem ég skynjaði hjá öllum þeim sem ég kynntist á Íslandi en sumir höfðu haldið hinu gagnstæða fram. Það eina sem maður þurfti að gera var að leita eftir slíkum kynnum. Í þá daga var ég dagskrárstjóri út- varpsstöðvar bandaríska hersins í NATO-stöðinni. Ég var geysilega áhugasamur um tónlist og ég hafði jafnan mikinn áhuga á því að fylgjast með því sem íslenskar hljómsveitir voru að gera, stíl þeirra og hvernig þær stóðu að sköpun sinni og flutn- ingi ef svo má að orði komast. Og ég gerði mikið af því að bera íslensku hljómsveitirnar saman við þær sem ég þekkti frá Bandaríkjunum. Það sem einkum vakti athygli mína var að þótt íslensku hljómsveitirnar spiluðu „amerísk lög“ þá voru þær einnig jafnan tilbúnar til að gera til- raunir og kanna ný svið. Þetta átti við um hljómsveitina Svanfríði og Pétur Kristjánsson. Pétur var aðeins tvítugur, ég var tæplega 28 ára. Ég man að hljóm- sveitin hans var „öðruvísi“ og eftir mikil fundahöld leyfðu yfirmenn mínir mér að að kynna hljómsveit Péturs og nokkrar aðrar lítillega fyr- ir hermönnunum sem hlustuðu á út- varpsstöðina. Þetta gat af sér „hljómsveitastríðið“ sem varð heil- mikið mál í bandarísku tónlistarlífi en er lítt þekkt á Íslandi. „Stríðið“ var á milli Svanfríðar og hljómsveit- ar úr Keflavík sem hét Trúbrot og G. Rúnar Júlíusson fór vitanlega fyrir. Baráttan var hörð og mjótt á mun- unum en Pétur fór með sigur af hólmi og munaði tveimur atkvæðum. Ég býst við að það hafi einkum verið af þessum sökum sem ég varð góður vinur margra íslenskra rokktónlist- armanna. Oftast notuðum við skírn- arnöfn í samskiptum okkar. Það var auðvitað í samræmi við íslenskar hefðir en það gerði „útlendingnum“ lífið léttara. Á þessum 32 árum hittumst við Pétur oft, stundum á „vellinum“, stundum á kaffihúsum eða í plötu- búðunum hans. Þá var oft glatt á hjalla. Hvort sem var í viðtölum á Aðalstöðinni FM 90,9 á tíunda ára- tugnum eða í útvarpi hersins á Keflavíkurvelli á áttunda áratugnum var Pétur jafnan með mörg járn í eldinum að kynna tónlist og hljóm- sveitir. En hann virtist alltaf hafa tíma til að spjalla jafnvel þótt fyr- irvarinn væri stundum skammur. Síðast hitti ég Pétur um páskana í Perlunni þar sem hann seldi mikið úrval hljóm- og mynddiska. Og eins og venjulega var stutt í brosið og hlýjuna. Spurt var hvað væri að frétta og hvernig ég hefði það. Þegar Pétur spurði vissi maður alltaf að áhuginn var ósvikinn. Það er mikið áfall að hann skuli hafa verið hrifinn svo skyndilega frá okkur á besta aldri. En eftir stendur minningin um góðan vin til 32 ára og mikinn listamann. Hans verður sárt saknað en minning hans lifir. Megi hann hvíla í friði. Bob Murray. Kveðja frá Tónlistarskóla Stykkishólms Það er einkennilegt, þetta líf. Nú, á dögum ótrúlegustu framfara í tækni og vís- indum, stöndum við ráðþrota frammi fyrir skapadómi ungrar konu í blóma lífsins. Við skiljum ekki og viljum ekki trúa, en fáum engu breytt. Fólki er þungt um hjartaræturnar í Stykkishólmi í dag. Við kveðjum Sig- rúnu Jónsdóttur, sem hingað kom fyrir átta árum ásamt manni sínum og ungri dóttur, sem seinna átti eftir að eignast tvö yngri systkini. Þau komu norðan úr landi, þaðan sem gott orð- spor fylgdi þeim. Þegar þau hjónin hófu störf kom strax í ljós að þar voru komnir öflugir liðsmenn í tónlistarlíf bæjarins, Hólmgeir sem píanókenn- ari í tónlistarskólanum og Sigrún sem organisti og kórstjóri við kirkjuna, stofnandi og stjórnandi barnakóra við grunnskólann ásamt kennslu við tón- listarskólann. SIGRÚN JÓNSDÓTTIR ✝ Sigrún Jónsdótt-ir fæddist á Ak- ureyri 21. desember 1968. Hún lést á Landspítalanum 5. september síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Stykkishólmskirkju 11. september. Miklar vonir voru bundnar við ráðningu Sigrúnar Jónsdóttur í stöðu skólastjóra við Tónlistarskóla Stykkis- hólms vorið 2002 og mikið áfall þegar hún það sumar greindist með krabbamein. Þessi tvö ár hafa verið ein- kennileg blanda af von- um og vonbrigðum í bland við aðdáun á bjartsýni hennar, dugn- aði, ákveðni og trú í bar- áttunni við veikindin. Á stuttum ferli sem skólastjóri komu fram hennar góðu kostir og hæfileikar. Hún var metn- aðarfull í verkum sínum, vann af fag- mennsku og vandvirkni. Hún hafði ljúfa framkomu og frá henni stafaði lífsgleði og kátína. Hún hafði lag á að laða það besta fram í fólki, var elskuð og dáð bæði af nemendum og sam- starfsfólki. Þótt hennar hafi ekki notið lengi sem skólastjóra við tónlistarskólann þá náði hún að marka þar sín spor og hennar verður minnst með söknuði, þakklæti og virðingu. Við vottum Hólmgeiri, börnunum, fjölskyldu og vinum Sigrúnar okkar innilegustu samúð. Guð blessi minn- ingu Sigrúnar Jónsdóttur. Kennarar Tónlistarskóla Stykkishólms. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.