Morgunblaðið - 04.10.2004, Page 1
Yfirvegað og
temprað stuð
Tónleikar Van Morrisons fá fimm stjörnur
hjá Árna Matthíassyni | Menning 36
Fasteignir | Eitt stærsta bjálkahús landsins Nýjar útsýn-
isíbúðir í Mosfellsbæ Íþróttir | Henry brosti að Hermanni
Viggó eða Geir með handboltalandsliðið
LITLU munar á fylgi þeirra Johns Kerrys, for-
setaframbjóðanda demókrata, og George W.
sBush, forseta og frambjóð-
anda repúblikana. Kemur það
fram í tveimur skoðanakönn-
unum en samkvæmt þeim telur
mikill meirihluti bandarískra
kjósenda, að Kerry hafi farið
með sigur af hólmi í fyrstu
kappræðum frambjóðendanna.
Í könnun tímaritsins News-
week eftir kappræðurnar í síð-
ustu viku fær Kerry 47% og
Bush 45%. 2% ætluðu að kjósa
Ralph Nader. Í þessari könnun
sagði 61%, að Kerry hefði sigr-
að í kappræðunum en 19%
sögðu Bush hafa gert það.
Í könnun dagblaðsins Los
Angeles Times sögðu 54%, að
Kerry hefði unnið kappræð-
urnar en aðeins 15% sögðu það
um Bush. Fyrir kappræðurnar
hafði Kerry raunar eitt pró-
sentustig umfram Bush samkvæmt könnun blaðs-
ins, öfugt við aðrar kannanir, og hefur nú
tveggja prósentustiga forskot.
Vegna þessa er kosningabarátta Bush komin í
nokkra vörn og í gær bættist það við, að í frétt í
New York Times var því haldið fram, að Bush-
stjórnin hefði vitað fyrir innrásina í Írak, að full-
yrðingar hennar um að álrör, sem fundust í Írak,
hefði átt að nota við smíði kjarnorkusprengju
hefðu verið óáreiðanlegar. Condoleezza Rice, ör-
yggisráðgjafi Bush, kvaðst í gær hafa vitað um
ágreining um álrörin en aðeins fengið það stað-
fest síðar, að þau hefðu verið til annarra nota./14
Baráttan aftur
orðin tvísýn
Washington. AP, AFP.
Kerry
Bush
SIGURJÓN Jónasson, bóndi á Lok-
inhömrum í Arnarfirði, er síðasti ábúand-
inn í Lokinhamradal. Öllu sauðfénu var
smalað saman um helgina og það leitt til
slátrunar, um 60 kindur. Hann ætlar að
halda eftir nokkrum kindum og geyma þær
hjá vinum sínum á Hrafnseyri. „Fyrir mér
var þetta allt lífið. Mér þótti vænt um kind-
urnar og ég kvíði vorinu að fá ekki að taka
á móti nýjum lömbum,“ segir Sigurjón, en
þegar mest lét var hann með 270 kindur á
bænum,
Heimildir eru fyrir sauðfjárbúskap í
Lokinhamradal allt frá landnámi. Þóttu
Lokinhamrar með betri bújörðum á þeim
tímum þegar vegasamgöngur voru ekki til
staðar og nálægðin við sjó skipti öllu máli.
Sigurjón býr nú á Tjörn, dvalarheimili
aldraðra á Þingeyri, á 79. aldursári. Síðustu
tvö árin hefur hann búið á Lokinhömrum
að sumri til en flyst nú endanlega þaðan.
Dalurinn er afskekktur og ábúendur gátu
einangrast mánuðum saman sökum fann-
fergis. Frá 1981 voru þau einu ábúendurnir
í dalnum; Sigurjón og Sigríður Ragn-
arsdóttir á Hrafnabjörgum. Sigríður lést
árið 1998, en hún var með álíka stórt sauð-
fjárbú og Sigurjón. Vegur í Lokinhamradal
kom ekki fyrr en árið 1974 og sveitasíminn
var í notkun þar allt til 1989. Sjálfvirki sím-
inn leysti þá af hringinguna „ein löng og
tvær stuttar“ á Lokinhömrum.
Á myndinni horfir Sigurjón á eftir kind-
unum á fjárbílnum, á sinni hinstu leið úr
dalnum. Við hlið hans er Kristján Gunn-
arsson frá Miðbæ og fyrir aftan hann er
ungur smali, Hjörleifur Högnason. Tóku
þeir þátt í smöluninni ásamt fleiri góðum
vinum og ættingjum Sigurjóns./4
Morgunblaðið/RAX
Síðasta smölun á Lokinhömrum
„Fyrir mér var þetta allt lífið,“ segir síðasti ábúandinn í dalnum
REYKINGAR, bæði beinar og óbeinar,
auka líkurnar á að fólk hrjóti meira og fái
einkenni kæfisvefns. Ný alþjóðleg rann-
sókn hefur leitt þetta í ljós, en henni var
m.a. stjórnað hér á landi, í samráði við
sænska lækna. Um 24% reykingamanna í
rannsókninni sögðust hrjóta að staðaldri,
eða hið minnsta þrjár nætur í viku, 20%
þeirra sem höfðu hætt að reykja hrutu og
13,7% þeirra sem aldrei höfðu reykt.
Þórarinn Gíslason prófessor, sérfræð-
ingur í lungnasjúkdómum, var einn þeirra
er stjórnuðu þessari faraldsfræðilegu
rannsókn og hann segir þennan mun milli
hópa vera tölfræðilega marktækan og
ekki hafi áður tekist að sýna fram á þessi
tengsl með óyggjandi hætti. Tengslin hafi
að auki verið hvað sterkust á Íslandi.
Auk Íslands fór rannsóknin fram í Dan-
mörku, Eistlandi, Noregi og Svíþjóð, og
var hluti af evrópskri könnun er nefndist
lungu og heilsa. Spurningalistar voru
lagðir fyrir um 22 þúsund manns á aldr-
inum 25–54 ára árin 2000 og 2001. Svör
bárust frá um 15.500 manns, eða um 70%
svörun, þar af frá tvö þúsund Íslending-
um. Aðalmarkmið rannsóknarinnar var
að kanna langvinna öndunarfærasjúk-
dóma eins og astma, berkjubólgu og of-
næmi og þá þætti sem þeim tengjast, m.a.
reykingar. Var svarendum skipt í þrjá
hópa; þá sem reyktu, höfðu reykt og höfðu
aldrei reykt.
Greinar um rannsóknina hafa verið að
birtast í erlendum læknatímaritum, nú
síðast í American Journal of Respiratory
and Critical Care Medicine, bandarísku
fagtímariti lungnalækna um öndunar-
færasjúkdóma. Með Þórarni í rannsókn-
inni unnu einnig íslensku læknarnir Ey-
þór Björnsson, Davíð Gíslason, Þorsteinn
Blöndal, Unnur Steina Björnsdóttir og
María Gunnbjörnsdóttir, sem starfar í
Svíþjóð.
Ný alþjóðleg rannsókn sem tvö þúsund Íslendingar tóku þátt í
Reykingar auka líkur á
hrotum og kæfisvefni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykingar auka líkur á háværum
hrotum og kæfisvefni.
ÞÓRARINN segir hrotur að staðaldri vera merki um
þrengsli í loftveginum og viðkomandi eigi erfitt um
svefn. Hrotur séu einnig eitt aðaleinkenni kæfisvefns,
sem til viðbótar einkennist af öndunarstoppi og dag-
syfju. Hann segir rannsóknir síðari ára hafa leitt til þess
að sjúklingum með kæfisvefn sé mun
hættara við háþrýstingi, sykursýki
og hjarta- og æðasjúkdómum.
Niðurstöðurnar hafi verið skoð-
aðar með tilliti til þess að algengt sé
að fólk í yfirþyngd hrjóti, karlar
hrjóti frekar en konur og miðaldra
fólk frekar en það yngra.
„Þegar þessir áhættuþættir höfðu
verið skoðaðir stóðu reykingarnar
áfram eftir sem sjálfstæður áhættu-
þáttur. Hið sérstaka við rannsóknina
var svo að þegar hópur þeirra sem aldrei höfðu reykt
var skoðaður nánar kom greinilega fram að hrotur voru
algengari hjá þeim sem voru útsettir fyrir óbeinum
reykingum,“ segir Þórarinn en 20% þeirra sem aldrei
höfðu reykt, en lifðu við reykingar annarra á heimilinu,
lýstu háværum hrotum að staðaldri, samanborið við 13%
þeirra sem hvorki reyktu né umgengust reykingamenn.
Einsýnt sé því að sterkar líkur séu á sambandi reyk-
inga og kæfisvefns sem ekki hafi verið sýnt fram á áður.
Hættara við háþrýstingi
og hjartasjúkdómum
Þórarinn Gíslason
LEIÐTOGI ETA, basknesku hryðjuverkasamtak-
anna, var handtekinn í gær ásamt 18 eða 19 fé-
lögum sínum í sameiginlegum aðgerðum frönsku
og spænsku lögreglunnar. Fögnuðu spænsk
stjórnvöld tíðindunum og sögðu þau mesta áfall,
sem samtökin hefðu orðið fyrir í langan tíma.
Auk leiðtogans, Mikels Albizu, sem kallaður er
Antza, var unnusta hans, Maria Soledad Iparrag-
irre, einnig handtekin en hún hefur lengi verið í
forystusveit ETA. Hafa þau farið huldu höfði í 10
ár en voru tekin í franska bænum Pau, skammt frá
spænsku landamærunum. Við húsleit fannst mikið
af vopnum, skjölum og fé.
ETA hefur haft hægt um sig eftir hryðjuverka-
árás al-Qaeda í Madrid í mars en í september lýstu
samtökin yfir, að baráttunni yrði haldið áfram þar
til Baskar á Spáni fengju sjálfstæði.
ETA greitt
þungt högg
Bordeaux. AFP.
BRETAR hafa verið beðnir að auka lítillega við
bænagjörðina, að biðja ekki aðeins fyrir fjöl-
skyldu sinni og öðrum ástvinum, heldur einnig
fyrir sunnudagssteikinni. Þá er átt við sálu þeirr-
ar skepnu, sem leggur hana til.
Öllum prestum ensku biskupakirkjunnar hefur
verið sent erindi um þetta og kemur það frá Kon-
unglega félaginu gegn illri meðferð á skepnum.
Er höfundur þess séra Andrew Linzey við Ox-
ford-háskóla en hann er fyrsti maðurinn til að
gegna einu embætti um guðfræði og velferð dýra.
Í bæninni eiga menn að biðja guð um að gefa þeim
samkennd með dýrum, sem höfð eru til átu eða
notuð í þágu vísinda eða til skemmtunar. „Það er
eðlilegt, að menn biðji um fyrirgefningu á synd-
um sínum gagnvart dýrunum,“ segir séra Linzey.
Beðið fyrir sunnu-
dagssteikinni
London. AFP.
Fasteignir og Íþróttir í dag
STOFNAÐ 1913 270. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is