Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						10 ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ

FRÉTTIR

DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra

sagði í umræðum um stefnuræðu

forsætisráðherra á Alþingi í gær,

að hann teldi að íslenska ríkis-

stjórnin hefði tekið skynsamlega

ákvörðun, miðað við þá þætti sem

þá lágu fyrir hendi, ?þegar hún

ákvað að taka þátt í því með yfir

þrjátíu öðrum ríkjum að bægja

þessum harðstjóra [Saddam Huss-

ein] á brott?. 

Forystumenn stjórnarandstöð-

unnar gerðu Íraksstríðið m.a. að

umtalsefni í ræðum sínum á Al-

þingi í gær og átöldu þar stuðning

ríkisstjórnarinnar við innrásina í

Írak.

Davíð sagði m.a. að af 800

byggðarlögum í Írak væri friður í

795 byggðarlögum. ?Það er óró-

leiki mikill í fjórum til fimm

byggðarlögum,? sagði hann. ?Ótt-

anum hefur verið bægt burtu úr

þessum 795 byggðarlögum.? Í

þeim byggðarlögum, sagði hann,

ætti fólk von, vegna þess að einum

versta harðstjóra aldarinnar,

Saddam Hussein, hefði nú verið

bægt í burtu. ?Þess vegna er þar

áfram von. Þess vegna hljótum við

að vera stolt yfir því að hafa haft

atbeina að því að þessi þróun yrði.? 

Baðst ekki afsökunar

Össur Skarphéðinsson, formaður

Samfylkingarinnar, gagnrýndi

Halldór Ásgrímsson forsætisráð-

herra m.a. fyrir það að hafa ekki

minnst á málefni Íraks í ræðu

sinni. ?Hún [ræðan] rifjar það upp

að fyrir nokkru flutti annar for-

sætisráðherra, aðra ræðu. Það var

Tony Blair, forsætisráðherra Bret-

lands. Og hann upplýsti í sinni

ræðu, að hann bæri ábyrgð á röng-

um og villandi upplýsingum sem

hefðu að hluta til leitt til innrás-

arinnar í Írak. Og forsætisráð-

herra Bretlands baðst afsökunar á

því. Halldóri Ásgrímssyni urðu líka

á þau skelfilegu mistök að hann

átti þátt í því að Ísland var sett á

lista yfir þær þjóðir sem studdu

innrásina í Írak. Og Halldór Ás-

grímsson upplýsti rétt eftir að

hann varð forsætisráðherra að það

hefði m.a. verið gert vegna þess að

hann hefði fengið villandi upplýs-

ingar. En Halldór baðst ekki af-

sökunar í ræðu sinni hér í kvöld. Í

ræðunni nefndi hann Írak ekki

einu orði.? Kvaðst Össur draga þá

ályktun að skömm ríkisstjórnar-

innar í þessu máli væri slík að

sjálfur forsætisráðherra skýldi sér

í þögninni.

Guðjón A. Kristjánsson, formað-

ur Frjálslynda flokksins, sagði að

Íraksstríðið væri óskapnaður sem

bæri að stöðva. ?Öll aðkoma okkar

var á röngum forsendum. Stjórn-

arandstaðan vill aðra ákvörðun: Út

af lista þeirra staðföstu og vilj-

ugu,? sagði hann. Þá sagði Stein-

grímur J. Sigfússon, formaður

Vinstrihreyfingarinnar ? græns

framboðs, að einhliða ákvörðun

Halldórs og Davíðs varðandi

stuðning við árásina í Írak væri

mesta utanríkismálahneyksli síðari

ára.

Traust samstarf 

við Bandaríkin

Davíð Oddsson fjallaði einnig um

varnarmál í ræðu sinni. Sagði hann

m.a. í því sambandi að ríkisstjórnin

vildi hafa traust og öflugt samstarf

við Bandaríki Norður-Ameríku

m.a. í tengslum við þau vébönd

sem Atlantshafsbandalagið setti.

?Ég tel að þær viðræður sem hafa

átt sér stað fyrr á þessu ári muni

auðvelda okkur að tryggja þá

samninga sem framundan eru við

Bandaríkin um varnarmálin, þó að

varlegt sé að tímasetja þá þætti að

þessu sinni.?

Ríkisstjórnin hefði tekið

skynsamlega ákvörðun

Morgunblaðið/Kristinn

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði að íslensk

stjórnvöld ættu að biðjast afsökunar vegna stuðnings við stríðið í Írak.

Forysta stjórnar-

andstöðunnar

gagnrýnir stuðn-

ing við innrásina

Davíð Oddsson ræddi um stríðið í Írak í umræðum um stefnuræðuna í gær

HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra ætlar

að óska eftir viðræðum við forseta Alþingis í tilefni

af því að DV birti í gær frétt um innihald stefnu-

ræðu forsætisráðherra, sem flutt var á Alþingi í

gærkvöldi. 

Fyrir ári birti Stöð 2 fréttir úr efni stefnuræðu

Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra,

áður en hann flutti hana á Alþingi.

Trúnaður brotinn annað árið í röð

Í yfirlýsingu frá forsætisráðuneytinu í gær seg-

ir að ljóst sé að með fréttaflutningi af efni stefnu-

ræðunnar hafi trúnaðarskylda, sem kveðið sé á um

í lögum, verið brotin.

?Forsætisráðuneytið harmar það að annað árið í

röð skuli brotinn trúnaður á efni stefnuræðu for-

sætisráðherra og um hana fjallað í fjölmiðlum fyr-

ir flutning og umræður um hana á Alþingi,? segir í

tilkynningu ráðuneytisins.

?Stefnuræða forsætisráðherra var afhent al-

þingismönnum síðdegis á föstudag. Var hún merkt

sem trúnaðarmál. Í bréfi frá ráðuneytisstjóra for-

sætisráðuneytisins sem fylgdi afriti ræðunnar,

sagði:

?Hér með afhendist alþingismönnum eftirrit af

stefnuræðu forsætisráðherra, sem flutt verður

mánudaginn 4. október nk., sbr. 73. gr. laga nr. 55/

1991 um þingsköp Alþingis þar sem segir: ?Innan

fimm daga frá setningu Alþingis skal forsætisráð-

herra flytja stefnuræðu fyrir hönd ríkisstjórnar-

innar, en eftirrit af ræðunni skal afhent þing-

mönnum sem trúnaðarmál eigi síðar en þremur

dögum áður en hún er flutt.??

Ljóst er að með fréttaflutningi af efni stefnu-

ræðunnar hefur trúnaðarskylda sem kveðið er á

um í lögum verið brotin.

Forsætisráðherra mun óska eftir viðræðum um

málið við forseta Alþingis,? segir í tilkynningu

ráðuneytisins.

Alvarleg framganga 

?ónafngreinda þingmannsins?

Í framhaldi af frétt Stöðvar 2 í fyrra um innihald

stefnuræðu forsætisráðherra sendi Davíð Odds-

son, þáverandi forsætisráðherra, forseta Alþingis

bréf þar sem Davíð sagði nauðsynlegt að gera

breytingar á þingsköpum Alþingis. 

Í bréfinu sagði Davíð að fréttastofa Stöðvar 2

hafi hegðað sér ósæmilega í málinu en framganga

?ónafngreinda þingmannsins? sé alvarlegri.

Í bréfi Davíðs til þingforseta í fyrra sagði m.a.

að fréttastofan hefði birt marga kafla úr ræðunni.

Ekki væri um að ræða að fréttastofan hefði fengið

upplýsingar um eitthvað misjafnt sem yfirvöld

vildu fela og því hefði almenningur ríka hagsmuni

af því að trúnaðurinn væri rofinn. ?Þótt fréttastof-

an hafi þannig hegðað sér með ósæmilegum hætti

er framganga ónafngreinds þingmanns alvarlegri.

Ljóst er að fréttamaður Stöðvar 2 hefur leitað eft-

ir upplýsingum úr ræðunni hjá nokkrum þing-

mönnum og að einn þeirra hefur boðist til að láta

hann hafa ræðuna. Þeir þingmenn sem fréttamað-

urinn leitaði til um trúnaðarbrot hljóta hver um

sig að vera hugsandi yfir, hvers vegna fréttamað-

urinn teldi þá líklegri en aðra til að brjóta trúnað.

Sá þingmaður sem trúnaðinn braut, lætur slíkan

grun hins vegar liggja yfir starfssystkinum sínum.

Það er alvarlegt. Það er einnig umhugsunarefni,

að eftir framgöngu viðkomandi þingmanns, hefur

viðkomandi fréttastofa sérstakt tak á þingmann-

inum um langa framtíð. Því miður er nauðsynlegt

að gera breytingu á þingsköpum vegna þessa at-

viks, t.d. í þá veru að forsætisráðherra flytji

stefnuræðu sína án þess að gefa þingmönnum færi

á að sjá hana áður. Sú regla mun algengust annars

staðar. Ellegar að þeim þingmönnum, sem

ákveðnir hafa verið sem ræðumenn annarra

flokka, verði send ræðan innan hins lögboðna fyr-

irvara,? sagði í bréfi Davíðs.

Haft var eftir Halldóri Ásgrímssyni, þáverandi

utanríkisráðherra og starfsaldursforseta þingsins,

í Morgunblaðinu af þessu tilefni 2. október í fyrra

að það væri sennilega auðvelt fyrir fjölmiðlafólk

að verða sér úti um ræður sem þessar, en hingað

til hefði ríkt sú venja að fjalla ekki um ræður fyrr

en þær hefðu verið fluttar. Hann sagði því um al-

gjört trúnaðarbrot að ræða.

Forsætisráðuneytið harmar trúnaðarbrest vegna birtingar frétta úr stefnuræðu 

Lögbundin trúnaðar-

skylda þingmanna brotin

HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing-

is, segir það mjög alvarlegt mál að

stefnuræðu forsætisráðherra hefur í

tvígang verið lek-

ið til fjölmiðla.

Halldór segist

telja koma sterk-

lega til greina að

þrengja ákvæði

þingskapa um

stefnuræðu for-

sætisráðherra á

þann veg að hún

verði einungis

send þingflokksformönnum.

?Það er alveg skýrt samkvæmt

þingsköpum að stefnuræða forsætis-

ráðherra skuli afhent þingmönnum

sem trúnaðarmál og það hefur lengst

af verið svo að það hefur verið hald-

ið,? segir Halldór.

?Þegar það á hinn bóginn endur-

tekur sig ár eftir ár að slíkur trún-

aður er ekki haldinn, þá hlýtur það að

draga dilk á eftir sér,? segir Halldór.

Tók málið upp á fundi með 

formönnum þingflokka í gær

Halldór tók þetta mál upp á fundi

með formönnum þingflokka í gær-

morgun. ?Við ákváðum að ræða málið

frekar í samráði við forsætisráð-

herra, vegna þess að þetta getur ekki

gengið,? segir Halldór. 

?Mér finnst þetta mál bæði snúa að

einstökum þingmönnum, sem eiga að

halda trúnað, og mér finnst líka dap-

urlegt að fjölmiðlar skuli láta það eft-

ir þingmönnum, sem brjóta trúnað-

inn, að láta lekann berast út. Mér

finnst málið hvorki gott sem gamall

blaðamaður, vegna trúnaðar blaða

við Alþingi né sem forseta þingsins,?

segir Halldór.

Þegar Stöð 2 birti fyrir ári fréttir

úr stefnuræðu Davíðs Oddssonar, þá-

verandi forsætisráðherra, áður en

hún var flutt á þinginu, sendi Davíð

forseta þingsins bréf og sagði nauð-

synlegt að breyta þingsköpum. Til

greina kæmi að þrengja ákvæði um

dreifingu ræðunnar til þingmanna.

Halldór segir að þetta mál hafi ver-

ið rætt í fyrra af þessu tilefni. ?Mér

finnst koma sterklega til greina að

ræðan sé einungis send formönnum

þingflokka, til þess að þrengja hóp-

inn,? segir Halldór.

Forseti Alþingis 

segir málið alvarlegt 

Skoða að

þingflokks-

formenn fái

ræðuna

Halldór Blöndal 

MJÖG hvasst var á höfuðborg-

arsvæðinu í gær. Samkvæmt

upplýsingum lögreglunnar

hafði í gærkvöldi verið leitað

aðstoðar hennar vegna veðurs-

ins um tuttugu sinnum frá því

kl. 15.00. Starfsmenn borgar-

innar voru kallaðir til hjálpar

og eins voru björgunarsveitir

Slysavarnafélagsins Lands-

bjargar á höfuðborgarsvæðinu

kallaðar út. Var það til að sinna

beiðnum höfuðborgarbúa um

aðstoð, en þakplötur voru farn-

ar að fjúka og aðrir lausamunir

sem gátu valdið hættu.

Samkvæmt upplýsingum frá

Slysavarnafélaginu Lands-

björgu bárust fyrst útköll úr

vesturhluta borgarinnar en síð-

an færðust beiðnir um aðstoð

austur eftir borginni, yfir í

Kópavog og Hafnarfjörð. Síð-

ast voru björgunarsveitir að

störfum í Grafarholti og Árbæ.

Þegar mest var að gera voru 8

hópar björgunarsveitarmanna

að störfum. Veðrið gekk niður

þegar leið á kvöldið en björg-

unarsveitir ætluðu að vera að

störfum meðan þörf væri á.

Að sögn varðstjóra lögregl-

unnar var ekki um mikið tjón

að ræða.

Hvassviðri í

höfuðborginni

?ÉG GET svo sannarlega sagt að

þetta sé einhver aumasta stefnu-

ræða sem ég hef lengi heyrt,? sagði

Steingrímur J. Sigfússon, formaður

Vinstrihreyfingarinnar ? græns

framboðs, í upphafi máls síns í um-

ræðum um stefnuræðu forsætisráð-

herra, Halldórs Ásgrímssonar, á Al-

þingi í gær. ?Það má því segja að

það leggist lítið fyrir þá, sem hafa

brotið trúnað og lekið út efni ræð-

unnar í tvennum skilningi; þeir hafa

gert sig litla og af litlu tilefni.?

Steingrímur bætti því við, að að

þessu gamni slepptu, færði hann nýj-

um ráðherrum árnaðaróskir.

Í ræðu sinni gagnrýndi Stein-

grímur m.a. áform ríkisstjórn-

arinnar um skattalækkanir. Sagði

hann þær efnahagslegt óráð, við

þær aðstæður sem við stæðum nú

frammi fyrir, þar sem m.a. velferð-

armálin væru svelt. Þá fjallaði hann

um skuldastöðu þjóðarbúsins og

sagði m.a. í því sambandi að skuldir

heimilanna stefndu óðum í það að

verða 200% af ráðstöfunartekjum.

Össur Skarphéðinsson, formaður

Samfylkingarinnar, sagði m.a. að

lýðræðið á Íslandi hefði í tíð núver-

andi ríkisstjórnar vikið fyrir nýju

valdformi ?sem við köllum sum hver

ráðherraræði?, útskýrði hann. Rík-

inu væri stjórnað með tilskipunum

valdherranna, lögum væri þröngvað

í gegnum þingið, í trássi, stundum,

við raunverulegan meirihluta.

Guðjón A. Kristjánsson, formaður

Frjálslynda flokksins, gerði atvinnu-

leysið að umtalsefni. Vitnaði hann í

því sambandi í Vinnuna, vefrit ASÍ,

þar sem kemur m.a. fram að fjöldi

atvinnulausra hefði aukist frá sama

tíma í fyrra. ?Telur ráðherra að ASÍ

fari með rangt mál?? spurði Guðjón

og vísaði til orða forsætisráðherra í

ræðu sinni.

Ráðherra-

ræði í stað

lýðræðis

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52