Morgunblaðið - 06.11.2004, Blaðsíða 1
2004 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
LÍF OG FJÖR Á HANDBOLTALEIK ÞÓRS OG KA Á AKUREYRI / B4
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golf-
klúbbi Kópavogs og Garðabæjar, lenti í slæmu
veðri í þriðja hring annars stigs úrtökumóts-
ins fyrir evrópsku mótaröðina í golfi á Spáni í
gær. Birgir Leifur var framarlega eftir tvo
fyrstu hringina og því ræstur út með þeim
síðustu í gær. Helmingur keppenda, 42 alls,
náðu að ljúka leik áður en dómarar stöðvuðu
leik vegna veðurs og verður þriðja hring því
fram haldið í dag, áður en kylfingarnir halda
áfram og taka fjórða hringinn, en þessu stigi
lýkur í dag.
Birgir Leifur var ekki meðal þeirra sem
náðu að ljúka leik í gær en samkvæmt heim-
ildum blaðsins hafði hann lokið við fjórtán
holur og var á þremur yfir pari. Ekki náðist í
Birgi Leif í gær og engar upplýsingar var að
hafa hjá mótshöldurum.
Birgir Leifur á
þremur yfir pari
HANS Fróði Hansen, landsliðs-
maður frá Færeyjum, er genginn til
liðs við 1. deildarlið Breiðabliks í
knattspyrnu. Hans Fróði, sem er 29
ára varnarmaður og hefur spilað 26
landsleiki fyrir Færeyjar, kom til
Fram frá B68 í Tóftum fyrir síðasta
tímabil og samdi til þriggja ára, en
Framarar sögðu upp samningnum
við hann að Íslandsmótinu loknu.
Hann lék 12 leiki með Safamýr-
arliðinu í úrvalsdeildinni í sumar.
Hans Fróði lék um skeið með
Sogndal í Noregi og áður með HB
frá Þórshöfn.
Þá er markvörðurinn Hjörvar
Hafliðason genginn til liðs við
Breiðablik. Hann var varamark-
vörður KR á síðasta tímabili en lék
áður með Val og HK og hefur spilað
18 leiki með Hlíðarendaliðinu í
efstu deild.
Hans Fróði
og Hjörvar í
Breiðablik
MARÍA B. Ágústsdóttir, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, sem lék
með KR í sumar, gaf ekki kost á sér
í leikina gegn Noregi í næstu viku
vegna anna í námi sínu við Har-
vard-háskóla í New York. Hún er
ennfremur hætt að æfa og spila
með knattspyrnuliði háskólans
vegna ósamkomulags við þjálf-
arann.
María sagði að það væri ekki víst
að hún léki með KR næsta sumar.
„Ég hef enn ekki tekið ákvörðun
því það er möguleiki á að ég verði í
sumarstarfi í Bandaríkjunum.
Framhaldið með landsliðinu mun
þá einnig velta nokkuð á þeirri
ákvörðun minni. Ef það færi svo að
landsliðið tryggði sér sæti í úrslit-
um Evrópukeppninnar næsta sum-
ar þá væri það mikil gulrót fyrir
mig að koma heim og keppa að því
að komast þangað. Það yrði erfitt
að hafna því að taka þátt í slíku æv-
intýri,“ sagði María.
Hún hefur leikið þrjá landsleiki í
ár, vináttuleik gegn Skotum og svo
kom hún inná fyrir Þóru B. Helga-
dóttur í báðum leikjunum í Banda-
ríkjunum í september. María var
varamarkvörður landsliðsins í
leikjunum í Evrópukeppninni.
„Það var erfitt fyrir mig að koma
í leikina gegn Noregi, bæði vegna
prófa og vegna þess að ég missti
mikið úr vegna leikjanna í sept-
ember.“
Óvíst með
framhaldið
hjá Maríu
Já, ég hef ekki verið sammálahonum í sumar, og hef reyndar
ekki verið einn leikmanna um það.
Jukka er indælis
maður en æfingarn-
ar hjá honum hafa
verið hálfgerður
brandari, gæðin
engin, og þar sem ég er einn af
reynslumestu mönnunum í okkar
leikmannahópi fannst mér að ég
gæti ekki látið það yfir okkur ganga.
Það fór hinsvegar í taugarnar á
þjálfaranum að ég skyldi gagnrýna
hann og afleiðingarnar eru þær að
ég datt út úr byrjunarliðinu í síðustu
leikjunum í deildakeppninni og var
síðan ekki valinn í hópinn fyrir þenn-
an leik gegn Assyriska. Mér finnst
það hart, ég er markahæsti miðju-
maður liðsins í sumar og hef átt
flestar stoðsendingar. Reyndar var
ég fenginn hingað sem sóknarmaður
en hef aðallega leikið á vinstri kant-
inum, í miklu varnarhlutverki, og
sjaldan komist í námunda við mark
andstæðinganna, þar sem ég kann
best við mig,“ sagði Tryggvi.
Gengi liðsins er hlægilegt
Örgryte hafnaði í þriðja neðsta
sæti úrvalsdeildarinanr og þurfti því
að fara í þessa aukaleiki gegn Assyr-
iska, sem varð í þriðja sæti 1. deild-
ar.
„Gengi liðsins í ár er hlægilegt,
það endaði í fjórða sætinu í fyrra og
er ekki með síðri mannskap í ár. En
eins og tímabilið hefur verið, eigum
við satt best að segja ekki meira
skilið en að vera í þessari stöðu. Ég
á sömu sök á því og aðrir og er alls
ekki sáttur við mína frammistöðu á
tímabilinu. En ég vona hinsvegar að
ég fái tækifæri á ný í þessum mik-
ilvæga leik gegn Assyriska á sunnu-
daginn, þar sem úrvalsdeildarsætið
er í húfi. Við þurfum að skora mörk,
og ég gæti hjálpað til í þeim efnum.“
Tryggvi samdi við Örgryte til
þriggja ára í febrúar en sagði að
staða sín hjá félaginu væri óráðin.
„Ég sé ekki fyrir mér að við verðum
hérna báðir á næsta tímabili, ég og
þjálfarinn. Ég er hinsvegar ekki sú
manngerð sem gefst upp og hættir
og ég vona að eftir leikinn á sunnu-
dag, hvernig sem hann fer, verði
hægt að setjast niður og fara yfir
málin af skynsemi,“ sagði Tryggvi
Guðmundsson.
Jóhann B. Guðmundsson leikur
ekki með Örgryte á morgun. Hann
missti af þremur síðustu leikjum
liðsins í deildinni vegna meiðsla, sem
og leiknum á miðvikudaginn.
Tryggvi settur út vegna
gagnrýni þjálfara Örgryte
TRYGGVI Guðmundsson, knattspyrnumaður hjá Örgryte í Svíþjóð,
er úti í kuldanum hjá þjálfara liðsins, Jukka Ikäläinen. Hann var ekki
í leikmannahópnum þegar Örgryte tapaði fyrir Assyriska, 2:1, í fyrri
leik liðanna um sæti í sænsku úrvalsdeildinni, á miðvikudaginn og
sagði við Morgunblaðið að það væri vegna gagnrýni sinnar á æfing-
ar finnska þjálfarans.
Eftir
Víði
Sigurðsson
Morgunblaðið/Kristján
Páll Gíslason, leikmaður Þórs, í baráttu við KA-manninn Hörð Fannar Sigþórsson á línunni. Þórsarar höfðu betur í nágrannaslagnum.