Morgunblaðið - 06.12.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.12.2004, Blaðsíða 9
Bæjarhraun - Hafnarfjörður. 108,9 fm skrifstofuhúsnæðið á 3. hæð. Húsnæðið skiptist í móttöku, baðherbergi stórt opið rými og fundar- herbergi. Möguleiki á hagstæðri fjármögnun. Til afhendingar nú þegar. V. 9,0 m. 4591 Bolholt Vel staðsett og ný innréttað gistiheimili á fjórðu hæð með 13 rúmgóðum herbergjum, þvottahúsi og sal. Húsnæðið er miðsvæðis í Reykjavík, lyfta er í húsinu og glæsilegt útsýni. V. 65 m. 5011 Hyrjarhöfði 588,5 fm gott atvinnu- iðnaðar- húsnæði með góðri lofthæð og innkeyrsluhurð- um. Allt mjög snyrtilegt og í góðu viðhaldi. Stór girt og malbikað bílaplan. V. 55 m. 4919 Hvaleyrarbraut 187,5 fm atvinnuhúsnæði (fyrrum fiskvinnsla) á jarðhæð með innkeyrslu- dyrum. Húsnæðið skiptist í stórt opið rými með mikillri lofthæð, skrifstofu og snyrtingu. Malbikað bílaplan að framan. Möguleiki á hagstæðri fjár- mögnun. V. 13,5 m. 4678 Stórhöfði 580 fm gott húsnæði með sérinn- gangi, í húsnæðinu eru innréttuð u.þ.b. 25 herb. ásamt móttöku. Mögleiki á góðum greiðslukjör- um. V. 49,0 m. 3915 Smiðjuvegur Gott atvinnuhúsnæði á efri hæð með innkeyrsludyrum, húsnæðið sem er innréttað og nýtt hefur verið fyrir kjötvinnslu skiptist í þrjár skrifstofur, tvö búningsherbergi, eldhús, vinnslusali, frysti-og kæligeymslur. V. 39 m. 5165 Verslunar og/eða lagerhús 3.600 fm heil húseign vel staðsett miðsvæðis. Húsið hentar mjög vel bæði fyrir verslun og sem lagerhús. Lofthæð u.þ.b 10 m, fjöldi innkeyrsluhurða og góður glerfrontur. Stór lóð með malbikuðum bíla- stæðum. 5177 Faxafen 586,5 fm húsnæði í kjallara sem í dag er nýtt sem heilsurækt. Malbikað bílaplan að framan. Möguleiki á hagstæðri fjármögnun. V. 43,0 m. 4686 Vesturvör 164 fm endabil á 1. hæð í góðu iðn- aðarhúsi. Möguleiki á hagstæðri fjármögnun. 4679 Krókháls - Góð greiðslukjör. 508 fm vel staðsett skrifstofuhæð á efstu hæð auk millilofts í góðu lyftuhúsi. Glæsilegt útsýni, fjöldi bíla- stæða, laus til afhendingar stax. Góð greiðslu- kjör. V. 40,0 m. 3422 Suðurlandsbraut - Skeifan 791,3 fm glæsilegt og vel staðsett verslunar-og lagerhús- næði á einum besta og fjölfarnasta verslunarstað borgarinnar. Eignin býður uppá margskonar nýtingarmögu- leika. V. 95 m. 4807 Stórhöfði 248,5 fm skrifstofurými á 3. hæð (2. hæð frá götu). Rýmið skiptist í hol, skrifstofu, fundarherbergi, stórt opið rými, geymslu, snyrt- ingu og risloft með eldhúsi. Glæsilegt útsýni. Skipti koma til greina. V. 22,5 m. 4766 Hlíðasmári 181 fm gott verslunarhúsnæði á jarðhæð í nýlegu húsi. Húsnæðið er mjög vel staðsett á horni og vel innréttað. V. 32.0 m. 4523 Laugavegur - Til leiga Jarðhæðin í þessu glæsilega húsnæði er til leigu. Eignin getur leigst í einu eða tvennu lagi. Einstakt tækifæri. Nánari upplýsingar gefur Þorlákur á skrifstofu Miðborgar eða í síma 820-2399 4819 Völuteigur - Mosfellsbær 1.408,3 fm nýl. og vandað húsnæði með mikla lofthæð. Góð að- koma, fjöldi bílastæða á frágenginni lóð. Áhv. hagstætt langtímalán. Eignaskipti mögul. V. 130 m. 4166 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2004 F 9 BÆRINN Klambrar stóð þar sem nú er Miklatún. Þar voru aldrei „mik- il“ tún og alveg ástæðulaust að breyta nafninu þó að Listamannaskálinn væri færður þangað. Hann hafði áður staðið við Kirkjustræti; óvandað hús sem tjaldað var til einnar nætur. Þar voru samt sem áður haldnar merkar sýningar á þeim tíma þegar mál- verkið blómstraði, en líklega sló Kjarvalssýningin á stríðsárunum þær allar út. Þá var þjóðin nýrík, áfjáð í list og má segja að tímabil hins almenna áhuga, sem þá hófst, hafi staðið í rúmlega fjóra áratugi. Með nýju listhúsi á Klambratúni átti að slá tvær flugur í einu höggi: Reisa Kjarval hús til að geta sýnt að staðaldri hluta af lífsverki meistarans og í annan stað átti að endurreisa Listamannaskálann. Þá voru mynd- listarmenn búnir að safna peningum sem verja skyldi til sýningarhúss. Má segja að þeir fjármunir hafi gufað upp á Kjarvalsstöðum og listamenn- irnir misstu sjálfir þau tök sem þeir höfðu haft í Listamannaskálanum. Þetta og fleira var ég að hugleiða á rölti með augun opin á Klambratúni. Kjarvalsstaðir eru ekki eitt af þeim húsum í borginni sem nefnd eru til dæmis um það sem hæst ber í bygg- ingarlist okkar frá nýliðinni öld. Raunar bar byggingu hússins upp á fremur dapurlegt tímabil í arkitekt- úr; ekki bara hérlendis heldur víðast hvar í hinum vestræna heimi. Þar fyrir utan mistókst lýsingin, sem er grundvallaratriði í sýningarhúsi, og varð deiluefni. Þegar til stóð að bæta úr rákust þær fyrirætlanir á höfund- arrétt arkitektsins. Allt var það ein raunasaga. Sú skipan var lengi viðhöfð að lista- menn gátu sótt um að sýna á Kjar- valsstöðum, oftast annaðhvort í Aust- ursal eða Vestursal, sem er stærri. Frá áttunda og níunda áratugnum man ég eftir sýningum sem fengu gríðarlega aðsókn og menn seldu eft- ir því. Það var eftirtektarvert að fylgjast með þeim almenna áhuga sem birtist við opnanir hjá vinsælum málurum eins og Baltasar, Eiríki Smith, Einari Hákonarsyni og fleir- um. Jafnvel ég, sem var einn af minni spámönnunum, fékk svo góða aðsókn á Kjarvalsstaðasýningu 1982 og 1986 að inngangseyrir á sunnudagssíðdegi dugði fyrir leigunni fyrir salinn allan tímann. Sýningin 1982 var temasýn- ing; myndefnið fengið úr íslenzkum ljóðum. Sú sýning seldist upp og ég gat byggt mér vinnustofu fyrir af- raksturinn. Mér er sem ég sæi eittthvað álíka gerast núna, en hitt er líklegra og raunar alveg víst, að hvorki mundi ég, Eiríkur, Baltasar né Einar Há- konarson þykja nógu fínir pappírar til að vera boðið að sýna og við fengj- um raunar ekki inni þótt við sæktum um. Nú hafa listfræðingar völdin; þeir eru að „skrifa listasöguna“ eins og það heitir og vilja ráða því einir hverjir komast upp á dekk. Ugglaust telja einhverjir þá skipan til framfara og benda á að svona sé það hjá stóru þjóðunum. Það er samt að einu leyti dimmt yfir Klambratúni; hinn al- menni áhugi á fyrri árum er greini- lega ekki lengur fyrir hendi. Ótal oft heyri ég fólk segja að það sé alveg hætt að sækja sýningar, sem voru þó fastur punktur í tilverunni hjá mörg- um fram eftir síðustu öld. Með kons- eptlist eða hugmyndalist í bland við naumhyggju er einfaldlega búið að halda of margar leiðinlegar eða lítt áhugaverðar sýningar sem hafa fælt fólk frá. Þetta er orðin löng og dimm lægð og hún er ekki bara yfir Klambratúni. Ég man samt eftir mörgum ljósum punktum eða sólskinsblettum á Kjar- valsstöðum síðustu áratugina, ann- aðhvort væri nú. Sem betur fer birt- ast stundum snjallir listamenn en hreinræktað málverk sést sjaldnar en áður. Alltaf er unun að sjá vel mál- aða mynd, en mér er þó í rauninni al- veg sama hvers konar tækni lista- menn tileinka sér, hvort það heitir skúlptúr eða málverk eða sín ögnin af hvoru. Á rölti um Klambratúnið leit ég inn á Kjarvalsstöðum þar sem yfir stend- ur afmælissýning Textílfélagsins. Þess er minnst að 30 ár eru liðin frá stofnun félagsins. Sýningin er sum- part áhugaverð en varla framúrskar- andi; ég hvet samt listunnendur til að láta hana ekki framhjá sér fara. Hún er áhugaverð vegna þess að hún leiðir vel í ljós breytingu sem er að verða í listum almennt, þar sem landamæri eru að verða óljós og ein listgrein flæðir inn í aðra. Þegar félag er kennt við textíl sér maður fyrir sér þræði, spuna, vefnað og annað álíka. Þannig var það líka framan af að textíllistamenn unnu að vefmyndum og veggteppum og þessi list byggðist á handverki og gjarna á gerð nytjahluta. Þetta er liðin tíð. Nútíma textíllistamaður notar margskonar efni, gervihár, hrosshár, ljósmyndatækni, jafnvel gler og stundum er ekki auðvelt að átta sig á efniviðnum. Ekki skiptir það máli að minni hyggju. Hér er á ferðinni sjálf- stæð listsköpun með blandaðri tækni og það er í rauninni úrelt að kenna þetta við textíl. Þessa sýningu, líkt og margar aðrar, einkennir samt viss tómleiki sem er tízkufyrirbæri og skilgetið afkvæmi naumhyggjunnar. Stundum verður þetta beinlínis hall- ærislegt; mætti ég biðja um ofurlítið meira kjöt á beinin. Ég hef séð mér til ánægju að loks- ins er ljósmyndin að hljóta sess sem fullgildur listmiðill. Það vill svo til að einn albezti myndlistarmaður þjóð- arinnar, Ragnar Axelsson, Rax á Morgunblaðinu, notar þennan miðil og nýja bókin hans er listviðburður sem ég óska honum til hamingju með. Ég vona líka að ég eigi oft eftir að rölta um sali á Kjarvalsstöðum með augun opin. Þá er mér hjartanlega sama í hvers konar blandaðri tækni listamenn vinna og hvort þeir kalla það textíl eða eitthvað annað. En ég vona að til verði myndlist, sem aftur geti dregið áhugafólk að Kjarvals- stöðum, þá ekki sízt yngri kynslóðina, og að sú myndlist verði sprottin úr okkar íslenzka jarðvegi, en ekki ein- berar eftirhermur. Á rölti með augun opin Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Á textílsýningu á Kjarvalsstöðum. Verk eftir Hrafnhildi Arnardóttur. Verkið heitir Vinstra og hægra heilahvel, 2004. Efn- ið er gervihár. Hér kemur vel í ljós hversu illa lýsingin í loftinu er hönnuð en hún er víst óumbreytanleg. Skin og skúrir á Klambratúni Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Margir hugsa sér textíl sem efnivið í veggteppi eða einhvern vefnað sem getur legið á borði eða gólfi. En því fer fjarri að nútíma textíllistamenn hugsi þannig. Sést til dæmis hér að textílverk eftir bandaríska listakonu, Sarah Wolf New- lands, er í rauninni fullgildur skúlptúr. Textílsýning á Kjarvalsstöðum. Flétta, verk eftir Hlyn Helgason. Áletraðir borð- ar eru strengdir á misvíxl og hvort þetta er textílverk eða skúlptúr skiptir ekki öllu máli. Eftir Gísla Sigurðsson rithöfund og blaðamann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.