Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.12.2004, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Það kann að sýnast vottur umþráhyggju að sitja við sinnkeip og stagast á sama efnitímunum saman. Ég verð þó að biðja Morgunblaðið að birta framhald af pistli sem ég ritaði og birtist í blaðinu á sunnudaginn var. Hann var um langvarandi og minn- isstæð tengsl Valdemars prins við Ís- lendinga og góðvild hans í garð þeirra. Ásgeir Guðmundsson sagnfræð- ingur kom til mín færandi hendi um helgina. Hann notfærði sér nýja tækni sem nú er völ á. Með töfratækj- um nútímans er unnt að leita gamalla greina í Morgunblaðinu og prenta út áratugagreinar. Ljósrit af greinum í Morgunblaðinu síðan í apríl árið 1929 og nóvember 1930 sönnuðu ótvírætt að vinátta Valdemars prins og góðvild var ekki dægurfluga heldur stóð djúpum rótum. Í Morgunblaðsgrein- um þeim sem Ásgeir sagnfræðingur færði mér kemur fram að þótt 54 ár væru liðin frá heimsókn Valdemars á þjóðhátíðina 1874 mundi hann enn tengsl sín við Ísland. Franz Håkans- son, veitingamaður og eigandi Iðnó, samkomuhússins, var umboðsmaður Valdemars prins. Á skírdag árið 1929 efndi hann til samkomu í Iðnó. Nú er best að birta frásögn Morgunblaðs- ins. Morgunblaðið 12. mars 1929: „Í fyrra gerðist Fr. Håkansson veitingamaður í Iðnó, umboðsmaður hjer í Reykjavík fyrir „Prins Valde- mar og Prinsesse Marie Fond“. Er það sjóður, sem veitir dönskum uppgjafasjómönnum styrk og ellistoð. Hefir sjóðurinn komið upp elliheimili fyrir sjómenn í Höfn og hressingar- hæli úti á landi. En fyrir hver jól er leitað samskota meðal danskra manna um allan heim og gömlum sjó- mönnum gerð einhver jólaglaðning. Håkanson hefir þegar safnað 40 gjaldendum hjer (öllum dönskum) og í Ísafirði hefir Skúli Eiríksson safnað nokkrum. Håkanson fór fram á það við stjórn sjóðsins, hvort hún mundi ekki vilja veita íslenskum uppgjafa- sjómönnum styrk, ef hann safnaði ís- lenskum meðlimum, og á stjórnar- fundi, sem haldinn var í vetur, var það samþykkt, og sendi stjórnin hingað 100 danskar krónur, sem eiga að skiftast milli 12 manna, sem jóla- glaðning, þótt hún komi nú svo seint, en þá verður það bara páskaglaðning í staðinn. Er svo fyrir mælt, að út- hluta skuli 30 kr. af þessu í Ísafirði og hinu hjer í Reykjavík. Og ákveðið er enn fremur að senda hingað fje árlega til þess að gleðja gamla sjómenn um jólin.“ Morgunblaðið 5. apríl 1929: „Í Danmörku er sjóður, sem nefn- ist „Prins Valdemar og Prinsesse Maries Fond“: Var hann stofnaður 8. okt. 1871 og er hlutverk hans það að útvega gömlum uppgjafasjómönnum og sjómannsekkjum ókeypis hús- næði. Sjóður þessi á nú tvö hús í Kaupmannahöfn, þar sem þetta gamla fólk fær ókeypis bústað, og ennfremur á hann hressingarheimili í Lilleröd. Á hverju ári safnar sjóðstjórnin peningum og öðrum gjöfum meðal meðlima fjelagsskaparins og vel unnara hans, og er því varið til að gleðja gamla sjómenn og sjómanna- ekkjur á jólunum, bæði með því að halda þeim samkomur og gefa þeim jólagjafir, en sumum eru gefnir pen- ingar. Íslenskir sjómenn hafa nú í fyrsta skifti fengið slíka glaðningu og fá hana framvegis árlega. Var úthlutað gjöfum til 13 uppgjafasjómanna hjer og jafnmikla upphæð fjekk Skúli Ei- ríksson í Ísafirði til útbýtingar þar. Úthlutunin hjer í Reykjavík fór fram á skírdag í Iðnó. Hafði Håkan- son veitingamaður þar boð inni fyrir sjómennina og var þar alls um 40 manns. Samkoman hófst með því að sunginn var sálmurinn „Á hendur fel þú honum“. Svo var drukkið kaffi og því næst hjelt síra Bjarni Jónsson hjartnæma ræðu um líf sjómanna, hættur og afrek þeirra, og um „Prins Valdemar og Pr. Maries Fond“, sem nú hefir fært verksvið sitt til Íslands. Á eftir var sunginn sálmurinn „Þín miskunn, ó guð“ og síðan voru sungin nokkur ættjarðarljóð og klykt út með því að sungnir voru þjóðsöngvarnir „Det er et yndigt Land“ og „Ó, guð vors lands“. Síðan var ekið með gömlu sjómennina í bíl hvern til síns heima. Samkoman fór ágætlega fram og var það mikið að þakka síra Bj. Jóns- syni og þeim Þórarni Guðmundssyni og Jóni Ívars, sem skemtu gestunum með hljóðfæraslætti. Á myndinni hjer að ofan sjást gömlu mennirnir, sem gjafirnar hlutu og ennfremur liðsforingi af „Fylla“ og Håkanson veitingamaður. Í efri röð (talið frá vinstri) eru: 1. Páll Pálsson, Pálsbæ, 80 ára; 2. Tómas Klogh Páls- son, 74 ára; 4. Jón Jónsson Sölvhól, 81 árs; 6. Kristján Jóhannsson, 77 ára; 7. Jón Sigurðsson frá Móakoti 67 ára. Í neðri röð: 1. Sigurður Jónsson, Bygð- arenda, 81 árs; 2. Símon Jónsson, 76 ára; 3. Sveinbjörn Björnsson skáld, 74 ára; 4. Þorlákur Teitsson, 72 ára; 5. Benedikt Daníelsson, 66 ára; 6. Sveinn Árnason og 7. Magnús Ein- arsson, Kleppi, 72 ára. Einn af þeim, sem boðnir voru, Jón Austmann á Seljalandi, gat ekki kom- ið vegna þess, að hann er blindur, en gjöfin var send heim til hans.“ Til viðbótar frásögn Morgunblaðs- ins má segja frá því að greinarhöf- undur minnist vel Símonar í Birtinga- holti. Hann var faðir Jóns bakara á Bræðraborgarstígnum. Sjálfur var Símon gjöfull og rausnarlegur. Bald- ur vallarvörður minntist þess er Sím- on gekk til nágranna á Bráðræðis- holtinu og færði þeim saltkjöt til búdrýginda. Skemmtileg saga er um Sigurð á Byggðarenda. Hann var tal- inn búa við erfið kjör en bar sig mannalega. Sagði t.d.: Það er svo mikill vetrarforði á Byggðarenda að ég kem ekki lyklinum í skráargatið! Árið eftir hefur Håkansson selt al- þýðufélögunum Iðnó. Þá býður hann öldruðum sjómönnum heim til sín. Morgunblaðið segir svo frá: „Heiðursgjafir handa gömlum sjó- mönnum. „Prins Valdemars og Prinsesse Maries Fond“ hefir enn í ár sent pen- ingagjöf hingað – heiðursgjöf handa gömlum sjómönnum. Á sjóður þessi miklum vinsældum að fagna í Dan- mörku og hjer á landi hafa nokkrir menn orðið til þess að styrkja hann með árlegum fjárframlögum. Er F. Håkanson fyrrverandi veitingamaður umboðsmaður sjóðsins hjer á landi, og honum var sent fjeð til úthlutunar og skiftist það á milli 12 gamalla sjó- manna. Bauð Håkanson þeim heim til sín á sunnudaginn og afhenti þeim heiðursgjafirnar. Mennirnir voru þessir: Sigurður Jónsson frá Bygðar- enda (83 ára), Ólafur Jónsson, Lind- argötu 18 (81 árs), Guðmundur Þor- kelsson, Pálshúsum (80 ára), Gunnlaugur Pjetursson, Framnesveg 1 (79 ára), Pjetur Illugason, Elliheim- ilinu Grund (78 ára), Þórður Pjeturs- son, Framnesveg 4 (77 ára), Einar Snorrason, Seljalandi (75 ára), Sveinn Árnason, Seljalandi (74 ára), Jón Austmann, Bjarnaborg (72 ára), Guð- mundur Símonarson, Grund (72 ára), Hannes Hansson, Skúlagötu 7 (72 ára) og Gunnar Guðnason, Laugaveg 53 B (61 árs). Håkonson ljet sækja alla gömlu mennina í bíl og hjelt þeim veislu. Auk heiðursgestanna voru þeir þarna síra Árni Sigurðsson og Þórarinn Guð- Vinátta Valdemars prins við Ísland Lárus Blöndal skipstjóri færði Dön- um íslenskan fána á afmæli sjóðsins. eftir Pétur Pétursson 5. apríl 1929 birtist mynd af sjómönnunum, sem fyrstir þáðu gjafir úr sjóði Valdemars og Maríu, í Morgunblaðinu.E kkert er blaðamanni eins hvimleitt og að fara rangt með og einna verst þegar nöfn brenglast; manna eða staða. Um daginn henti það mig að fara rangt með nafn á helli, þar sem ljósmyndari Morgunblaðsins, Rax, efndi til ljósmyndasýningar til heiðurs Guðjóni Þorsteinssyni í Litlu- Hólum. Tilefnið var útkoma ljós- myndabókarinnar; Andlit norður- sins, þar sem mynd af Guðjóni prýðir kápuna. Upphaflega ætlaði Raxi að hafa sýninguna undir Dyrhólaey, þar sem hann tók myndina frægu af Guðjóni, en veðurguð- irnir vildu það ekki. Var þá leitað til Reynisfjalls, sem skaut skjólshúsi yfir sýninguna, þótt ekki stæði hún lengi vegna aðfalls- ins. Sýningin var í helli syðst í Reynisfjalli og í frásögn minni í Morgunblaðinu sagði ég hann heita Reynishelli, sem er fjarri öllu lagi, því hann heitir Hálsa- nefshellir. Biðst ég hér með afsök- unar á þessu afglapi mínu. Einar Kjartansson í Vík segir mér, að þrjú séu nefin í Reynis- fjalli; Hálsanef efra og neðra og efst heitir Grindanef. Einar minntist þess að þarna hefði hann á sínum tíma farið um og veitt lunda og fýl. Það voru veiðisetur í öllum nefjunum þremur. Hálsa- nefshellir segir Einar fara stækk- andi, þar sem stöðugt brýtur úr stuðlaberginu, sem hellirinn er myndaður í. Þegar ekið er til Hálsanefshellis liggur leiðin suður með Reynis- fjalli vestanverðu og gegnum Reynishverfi. Upphaflega mun Reynishverfið hafa verið ein jörð og þá miklu víð- lendari en nú. Landnámsmaður- inn Reyni-Björn bjó á Reyni og kirkjustaðurinn Reynir er sögu- svið þjóðsögunnar um kirkjusmið- inn á Reyn. Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er sagan um kirkjusmiðinn í þremur útgáfum, en kjarni hennar er sá, að bóndinn á staðnum hafði viðað að sér til kirkju, en enginn smiður var á lausu. Birtist þá allt í einu maður og býðst til að smíða kirkj- una gegn því að bóndi geti sagt honum nafn hans, sem hann segir vera algengt mannsnafn íslenzkt. Geti bóndi ekki upp á nafninu skal hann láta af hendi við kirkjusmið- inn son sinn barnungan. Þetta binda þeir fastmælum og smíðar sá ókunni og smíðar með- an bóndi leggur höfuð sitt og ná- grannanna í bleyti til að hafa uppi á öllum hugsanlegum nöfnum. En rétta nafnið finnst ekki. Eitt sinn verður bónda gengið framhjá hól í landareigninni og heyrir þá kveðið í hólnum; Þegi þú og þegi þú drengur minn eða Vertu góður drengur minn Senn kemur hann Finnur faðir þinn frá Reyn með þinn litla leiksvein. Bóndi hraðaði sér heim og náði til kirkju í þann mund sem smið- urinn festi síðustu brík yfir kór- dyrum. Senn ertu búinn Finnur minn, sagði bóndi og hvarf þá smiðurinn eins og jörðin hefði gleypt hann og varð hans ekki vart eftir það. Í eftirmála við örnefnaskrá Magnúsar Finnbogasonar í Reyn- isdal hefur Þórður Tómasson það eftir Guðbjörgu Ólafsdóttur frá Lækjarbakka, að í Litla-Seta, þar sem huldumaðurinn Finnur bjó, hafi verið smárof sem þau börnin töldu glugga á bæ huldufólksins. „Við vorum alltaf hrædd, þegar við fórum þar hjá í rökkri,“ sagði Guðbjörg. Hún sagði einnig frá því, að faðir hennar hefði átt skák í Holtsenda. „Þar var fallegur brekkublettur, sem ekki mátti slá. Pabbi sló einu sinni í hann. Þá brotnaði ljárinn og orfið hjá hon- um í einni svipan og hann heyrði rödd úr brekkunni sem sagði eitt- hvað á þessa leið: „Hafðu þetta fyrir.““ Víðar eru slíkir staðir, enda sögur af mörgum íbúum í Reyn- isfjalli og nágrenni þess, m.a. talar Magnús Finnbogason í örnefna- skrá sinni um fjölbýlishús fyrir huldufólk. Syðst er bærinn Garðar; syðsti bær á Íslandi. Austan við bæinn er hæð, sem Hjallar nefnist, og má þar ekkert hreyfa sökum forn- eskju, sem á staðnum hvílir. Skammt vestur af Görðum er eyðibýlið Hellur. Hellur eru fyrir marga hluti merkilegur staður, segir Magnús Finnbogason. Þar í túni eru margir hellar og skútar og sumir manngerðir. Tveir hellar voru notaðir; annar fyrir heyhlöðu og hinn fyrir sjóbúð. Sr. Jón Steingrímsson bjó þar fyrsta vet- ur sinn í Mýrdalnum í Baðstofu- helli. Skammt sunnan Garða, í suð- vestanverðu Reynisfjalli, eru hellisskútar og fallegar stuðla- bergsmyndanir. Þar í er Hálsa- nefshellir. Þar skammt undan eru Reynis- drangar. Vestast er Skessudrang- ur, þá er Landdrangur en utast er Langhamar. Til er saga af tveim- ur tröllum, sem þarna hafi verið að draga þrísiglt skip að landi, en dögun náð þeim og gert að steini. Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir af því, að skip hafi leitað til viðgerðar í Þórshöfn austan undir Reynisfjalli. Kom þá skessa til skips og falaði far að viðgerð lok- inni. Þegar viðgerð lauk héldu skipverjar af stað vestur með Reynisfjalli og sá þá skessan til ferða þeirra og bað þá bíða. Þeir neituðu og sigldu áfram. Skessan óð þá á eftir skipinu, en þegar hún sá að hún myndi ekki ná því kall- aði hún um borð að hún legði á skip og menn að verða að steini. Konungssonur var þar um borð og lagði það sama á kerlingu á móti. Það fylgir ekki þessari þjóðsögu hver er í þriðja dranginum; kannski tröllkarl, sem vildi hjálpa skessunni að ná til skips, eða að tröllskessan hafi ætlað að hlaup- ast frá bónda sínum og í skip, en hann haft veður af þeim áformum og verið kominn á hæla henni, þegar álögin dundu yfir! Senn kem- ur hann Finnur … Með þessu Viðhorfi vill höfundurinn gera yfirbót fyrir að fara rangt með nafn Hálsanefshellis í Reynisfjalli. VIÐHORF Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.