24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 14.06.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 2008 24stundir Eftirspurn eftir lánum til hús- næðiskaupa frá lífeyrissjóðum hef- ur haldist stöðug síðustu mánuði. „Hún hefur ekki minnkað í takt við samdrátt á fasteignamörkuðum, sem bendir til þess að hlutdeild líf- eyrissjóða í heildarfasteignaútlán- um landsmanna sé eitthvað að aukast,“ segir Haukur Hafsteins- son, framkvæmdastjóri LSR. Lánin eru til allt að fjörutíu ára og lána- kjör að mörgu leyti áþekk því sem Íbúðalánasjóður býður. „Við lítum svo á að lánveitingar til sjóðfélaga séu góð ávöxtun fyrir Lífeyrissjóð- ina og góð þjónusta við okkar sjóð- félaga. Lánakjörin hafa yfirleitt ver- ið góð miðað við aðra kosti og eru í dag talsvert hagstæðari en lán bankanna,“ segir Haukur. beva@24stundir.is Lífeyrissjóðir lána áfram til íbúðakaupa Stöðug spurn eftir lánum lífeyrissjóða „Hólmsheiði er ekki sá staður- inn sem er verið að skoða núna fyr- ir nýtt fangelsi en það hafa engar endanlegar ákvarðanir verið teknar um þetta ennþá. Áhersla verður lögð á frekari uppbyggingu á Litla- Hrauni,“ segir Þórir Hrafnsson, aðstoðarmaður Björns Bjarnason- ar, dóms- og kirkjumálaráðherra, um stöðu fangelsismála. Í Morgunblaðinu í gær var frá því greint að fátt benti til annars en að ekki væri lengur stefnt að upp- byggingu fangelsis á Hólmsheiði eins og hefur verið til skoðunar. Þórir staðfesti að þetta væri rétt og sagði stefnt að uppbyggingu gæslu- varðhaldsfangelsis við nýjar höfuð- stöðvar. „Þeim [höfuðstöðvunum] hefur ekki enn verið fundinn stað- ur,“ sagði Þórir. Meðal þeirra staða sem til greina koma fyrir nýtt fang- elsi er reiturinn við hlið Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg en fleiri staðir eru einnig til athugunar. Páll Winkel fangelsismálastjóri sagði vinnu við athugun á stöðum fyrir nýtt gæsluvarðhaldsfangelsi fara fram meðfram vinnu við stað- arval höfuðstöðvanna. Reglulega hefur það gerst á und- anförnum árum að öll rými í fang- elsum landsins hafi verið upptekin en lögregla og fangelsisyfirvöld hafa leyst hvert mál fyrir sig með bráðabirgðaúrræðum. Stefnt er að því að fangelsi við nýjar höfuðstöðvar verði með um 30 klefa. Á Litla-Hrauni er stefnt að því að bæta við um þrjátíu klefum sömuleiðis. magnush@24stundir.is Unnið er að því að meta staði fyrir nýtt gæsluvarðhaldsfangelsi Áherslan lögð á Litla-Hraun Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis24stundir.is „Það er í mörg horn að líta fyrir við- burð af þessari stærðargráðu,“ segir Haukur sem einnig rekur verslun ásamt syni sínum. 08.00„Ég vaknaði snemmatil að sinna dagvinn- unni, en ég rek verslunina Sportex, sem selur vespur, fjórhjól og alls kyns hluti fyrir mótorhjól og slíkt. Þegar dauður tími gafst þá reyndi ég að sinna Bíladögunum eitthvað. 12.30 Það var mikið hringt ímig og verið að spyrja um skráningar fyrir spyrnu- mótið og annað slíkt sem maður reyndi að sinna eftir bestu getu. Þá þurfti ég að brasa aðeins í ljósabún- aðinum sem sér um ræsingu og nið- urröðun keppenda, en þessi bún- aður er afar flókinn og hafa margar vinnustundirnar farið í ýmsar still- ingar á honum. Náin samvinna við lögreglu, slökkvilið og yfirvöld er nauðsynleg á slíkum viðburði og mörg símtölin fóru í slíkt. Yfirvöld hafa í mörg horn að líta enda er einnig þessa sömu helgi AIM-tón- listarfestival og Enduro-keppni. 17.00 Einnig þarf að girðaaf götuna þar sem spyrnukeppnin fer fram. Þá fengum við gáma frá bæði Eimskip og Sam- skipum sem við notum sem áhorf- endastúkur. Þá fengum við lánaða veggi úr einingahúsum til að leggja á Akureyrarvöll þar sem Burnout- keppnin fer fram. 20.00 Milli þess sem égsinnti Bíladögum og búðinni, þá vorum við sonur minn að setja upp nítró-kerfi í bíl sem hann er með í spyrnunni um helgina. Þetta er BMW Z3 bíll og er fyrir um 321 hestafl, en nítróið ætti að auka þau um 75-100 í viðbót. Þá ætti hann ekki að vera mikið lengur en 4,5 sekúndur í hundraðið!“ Er mjög mikið í símanum 24stundir með Hauki Sveinssyni, fjölmiðlafulltrúa Bíladaga á Akureyri ➤ Bíladagarnir byrjuðu í gærmeð hóprúnti um bæinn. ➤ Götuspyrnan hefst í dagklukkan 17 við Olís-stöðina í Tryggvabraut. ➤ Drift-keppnin hefst klukkan15.00 þann 15. júní. ➤ Burnout-keppnin hefst klukk-an 20.30 þann 16. júní á Ak- ureyrarvelli. ➤ Bíladögum lýkur 17. júní meðþjóðhátíðarbílasýningu í Boganum frá 10 til 18. BÍLADAGAR Á AKUREYRI Reddarinn Haukur Sveinsson hefur haft í nógu að snúast undanfarna daga og vikur og fær eflaust háan símreikning. Í dag hefjast hinir árlegu Bíladagar á Akureyri þar sem búist er við hátt í 10.000 gestum til þessa höfuðstaðar Norður- lands. Gríðarleg vinna og undirbúningur er að baki slíkri hátíð og það veit Haukur Sveinsson manna best, en hann er titlaður fjölmiðlafulltrúi Bíla- daga, en er í raun ein- hverskonar yfir-reddari hátíðarinnar. Stjórn Blátt áfram, sem berst gegn kynferðisof- beldi gegn börnum, sendi í gær frá sér áskorun þar sem hvatt er til þess að umræður um kynferð- islegt ofbeldi verði op- inberar og augljósar og að réttarvernd barna verði aukin. „Þögnin er versti óvinurinn, verndum börnin!“ er yfirskrift áskorunarinnar. Bent er á það í áskoruninni að umræða um kynferðis- ofbeldi hafi aukist til muna á árinu 2007, og það sé til góðs. Betur megi þó gera, segir í áskoruninni. „Lögin í landinu segja að hagur barns skuli ávallt hafður í fyrirrúmi en á þeim tíma sem Blátt áfram hefur starfað hefur það ekki verið reyndin.“ Hvatt er til þess að samfélagið og „stofnanir“ nýti sér betur þekkingu sem fyrir hendi er. mh Þögnin versti óvinurinn Karlmaður var í gær dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á lögreglumann og hótanir. Atvikið átti sér stað á skemmti- staðnum Sjallanum á Akureyri. Maðurinn sparkaði í bak og fætur lögreglumanns en til átaka kom í anddyri staðarins. Lögreglumenn þurftu að hafa mikið fyrir því að ná tökum á aðstæðum og róa manninn. Á leið á lögreglustöð hrækti maðurinn í andlit lög- reglumanns og hótaði honum lík- amsmeiðingum og lífláti. Dóm- urinn virti manninum það til refsilækkunar að hann játaði brot sitt, iðraðist gjörða sinna og hafði ekki brotið af sér áður. Fyrir dómi sagðist maðurinn hafa ver- ið mjög ölvaður og að honum hafi ekki verið alvara með hót- unum sínum. mh Dæmdur fyrir hótanir og árás Karlmaður var á fimmtudaginn dæmdur í fjögurra mánaða skil- orðsbundið fangelsi í Héraðs- dómi Norðurlands eystra fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu sinni á heimili sínu. Maðurinn var fundinn sekur um að slá kon- una ítrekað í andlit og líkama. Manninum var gert að greiða konunni 600 þúsund krónur í bætur. mh Skilorð fyrir heimilisofbeldi Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, hefur krafið ríkisstjórn- ina um öll gögn er varða samn- ingaviðræður Íslands og Evrópu- sambandsins vegna matvælafrumvarpsins. Gagnrýnir hann að engar upplýsingar hafi borist frá ríkisstjórninni um hvers vegna fallið var frá und- anþágu sem Ísland hafði á inn- flutningi á hráu kjöti. hos Krefst gagna um hráa kjötið Tillögur um aðgerðir í miðborg Reykjavíkur, sem átti að leggja fyrir borgarráð fyrir apríllok, hafa enn ekki verið lagðar fram. Fundi borg- arráðs sem átti að fara fram á fimmtudag var frestað vegna fjar- veru fjölda borgarfulltrúa. Að sögn Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, aðstoðarmanns borgarstjóra, eru tillögurnar tilbúnar og hefðu verið lagðar fram í liðinni viku ef fundinum hefði ekki verið frestað. Þess í stað verður fundað með þriggja manna hópi, sem í sitja borg- arstjóri, Dagur B. Eggertsson og Jórunn Frímannsdóttir og á að fara yfir málið, á mánudag og málið lagt fyrir á næsta borgarráðsfundi. þsj Miðborgartillögur ekki lagðar fram
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.