24 stundir - 22.07.2008, Blaðsíða 21

24 stundir - 22.07.2008, Blaðsíða 21
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚLÍ 2008 21 Steinseljan leynir á sér og er á mörkum þess að vera kryddjurt eða matjurt. Og hún er svo holl – að því að talið er – að enginn dag- ur ársins ætti að líða án þess að menn gæði sér á svo sem einu steinseljublaði. Steinseljan inni- heldur heilt apótek af næringar- efnum og það í svo ríkum mæli að varla er nokkur máltíð fullkomin án hennar! Orkugildi hverra 100 gramma af steinselju er samt að- eins 175 kílójúl. En sama magn gefur vel yfir dagsþörfina af A-, C- og K-vítamínum. Einnig mikið B2-vítamín, fólínsýru, E-vítamín, kalk, járn, fosfór o.s.frv. Listinn er eiginlega endalaus! Hið upprunalega útbreiðslu- svæði steinseljunnar nær frá há- lendi Balkanskagans og austur í Himalajafjöll. Hún mun vera ein elsta matjurt sem þekkt er í Evr- asíu og þar hafa menn ræktað hana lengur en minni nær. Hlutverk steinseljunnar í matarmenningu hinna fornu Grikkja og Rómverja var mikið. Þar var hún talin allra meina bót. Steinseljukransar um höfuðið að morgni læknuðu timb- urmenn! Tyggi menn steinselju heldur það aftur af hvítlaukslykt! Volgir steinseljubakstrar mýkja bólgur, lina liðverki og höfuðverk! Ræktun auðveld Ræktun á steinselju er fremur auðveld. Henni er sáð í vel unna og frjóa mold snemma á vorin. Gjarna íblandaðri drjúgum skammti af gömlum búfjáráburði, moltu eða þurrkuðu hænsnadriti. Best er að útbúa beðin haustið áð- ur og sá svo um leið og snjóa leysir. Jafnvel má sá henni á haustin ef garðurinn er í góðu vari, þá spíra fræin fyrr að vori. Plássþörf 15×15cm. Steinseljan er í eðli sínu tvíær fjallajurt og í heimkynnum sínum velur hún sér vaxtastaði sem líkjast kjörlendi ætihvannar- innar okkar. Þ.e. frjóa, djúpa og raka mold, gjarna í dálitlum skugga. Til eru ótal afbrigði af steinselju. Þau sem hafa hrokkin blöð eru vinsælust hjá okkur. En sunnan Þýskalands eru sléttblaða afbrigði vinsælli. Þau eru bragð- sterkari. Einnig eru til afbrigði sem ræktuð eru vegna rótanna, stein- seljurót, og eru vinsæl í súpur og pottrétti. Það má líka rífa stein- seljurótina í hrásalöt eða ofan á brauð. Með öllum matréttum Steinselja passar með öllum matréttum. Hún er sjálfkjörin í hrásalöt og hver einasta smur- brauðsjómfrú leggur stolt sitt í að hafa steinseljukvist á brauðinu! Mörgum finnst steinseljan hrjúf í gómi. Því er best að saxa hana smátt áður en hún er notuð í mat og hún er alltaf sett yfir matinn þegar hann er fulleldaður og tilbú- inn á borðið. Steinselju er mjög auðvelt að frysta í heilu lagi sem saxaða. Fryst er hún notuð eins og ný. Enginn dagur án steinselju Hafsteinn Hafliðason skrifar um steinselju GARÐASPJALL Góður garður býður upp á marga möguleika fyrir alla fjöl- skylduna til að eiga saman notaleg- ar og skemmtilegar stundir. Garð- eigendur geta fengið ýmis tæki og búnað til afþreyingar og þæginda í garðinum. Trampólín Trampólín eru vinsæl leiktæki í görðum á sumrin. Trampólíninu skal komið fyrir á auðu og öruggu svæði þar sem ekki er slysahætta. Best er þó að nota öryggisnet til að koma í veg fyrir að fólk detti út af. Ekki á að grafa trampólínið niður eins og sumir gera enda skapast slysahætta af því. Önnur leiktæki Barnafólk getur fengið ýmis önnur leiktæki svo sem sandkassa og rólur í garðinn, yngstu kyn- slóðinni til gleði og ánægju. Leik- tæki slitna með tímanum vegna álags og veðurs og því borgar sig að yfirfara tækin reglulega. Sér- staklega þarf að huga að álagsflöt- um og öðrum hlutum sem hætt er við að gefi sig. Hengirúm Hengirúm eru frábær þegar vel viðrar á sumrin. Þar er hægt að liggja og slaka á, lesa góða bók eða hlusta á fuglasönginn. Rúmið má strengja milli tveggja staura, veggja, trjábola eða annarra hluta sem þola vel álag- ið. Sumum hengirúmum fylgja jafn- vel stangir sem halda því uppi. Heitur pottur Að loknum strembnum vinnu- degi eða erfiðri líkamsrækt getur verið gott að skella sér í heitan pott í garðinum. Maður slakar á og endurnærist á líkama og sál. Gashitarar Gashitarar koma í góðar þarfir síðsumars þegar kvöldin verða dimm og köld á ný. Það er óþarfi að flýja inn þó að svalt sé í veðri heldur getur maður setið úti á palli fram á kvöld, notið matar, spjallað eða gert hvað sem maður vill. Góðar hugmyndir fyrir garðinn Þægindi og skemmtun Þriðjudaginn 29. júlí fylgir sérblað með 24 stundum þar sem fjallað verður um hinar ýmsu skemmtanir og hátíðir sem fram fara á landinu um verslunar- mannahelgina. Einnig fylgja með góð ráð til ferðamanna. Ferðalög sérblað Hafðu samband og fáðu gott pláss fyrir auglýsinguna þína Upplýsingar gefur: Kolbrún s 510 3722 kolla@24stundir.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.