Vísir í vikulokin - 20.06.1970, Blaðsíða 1
VISIR ÍVIRULORIN
Söngvatn eða sultardropi
Kokkteilar eru að öllum líkindum
amerísk uppfinning, og þar eru kokk-
teilveizlur snar þóttur í félagslífinu.
Þessi tegund félagslífs hefur víða nóð
að skjóta rótum, og hér ó landi kann-
ast margir við þennan sið.
Sé rétt farið að öllu, færð þú kort,
þar sem þér er hótíðlega boðið í síð-
degisboð einhvern tiltekinn dag kl. 17
—19. Og þó veiztu, að þér er ætlað
að koma í sómasamlegum klæðum ó
þennan tiltekna stað, þar sem þú svo
stendur upp ó endann í tvo tíma með
vínglas í höndum, sígarettu eða vind-
il, e. t. v. handtösku og jafnvel brauð-
sneið eða pylsubita og ótt þó samt sem
óður að hafa lausa hönd til að heilsa
með og umfram allt heilsu til að tala
við hvern, sem þú kemst í færi við.
Þetta er mikil kúnst, eins og nærri
mó geta, og hefur orðið tilefni ýmissa
gamanmóla, eins og sögunnar um
manninn, sem fann upp kokkteilhækj-
una, sem var útbúin hillu undir vín-
glas, annarri undir öskubakka og
þeirri þriðju undir brauðsneiðina, auk
þess að vera þreyttum manni til stuðn-
ings. Fræg eru einnig ummæli sendi-
herrafrúar einnar, sem taldi mikilvæg-
ast fyrir konu í sinni stöðu að vera
sterk í fótum. — íslendingar eru nú
alitaf samir við sig og hafa tekið upp
ó þeim ósköpum að fó sér sæti í
kokkteilveizlum, sem gerir þó vitan-
lega þolnari en góðu hófi gegnir í
slíkum samkvæmum.
Enda þótt við gerum okkur tíðrætt
um kokkteilveizlur, er það einungis
nafnsins vegna, því að í slíkum veizl-
um eru sjaldan bornir fram eiginlegir
kokkteilar, eins og þeir, sem við nú
kynnum okkur í móli og myndum. Þeir
eru hins vegar prýðilegir lystaukar fyr-
ir mat, en slíka drykki kallaði einhver
górunginn eitt sinn sultardropa. Lík-
lega hefur hann verið skyldur honum
maðurinn, sem fann upp ó því að kalla
sterk vín einu nafni söngvatn, og það
er nú einmitt söngvatnið, sem ríkjum
ræður í íslenzkum kokkteilveizlum.
Vandalítið er að blanda þessa
skemmtilegu drykki. ís getið þið mulið
með því að setja hann innan í klút og
lemja með hamri. Setjið ísinn alltaf
fyrst í hristarann eða glasið, sem þið
blandið í, setjið síðan smæstu ein-
ingarnar fyrst í og þær stærstu síðast,
eins og röðin í uppskriftunum sýnir.
Á mynd hér að ofan sjóum við fró
vinstri: Sidecar, Martini dry kokkteil,
Bloody Mary, Vodka Gibson og
White Lady. Myndin að neðan sýnir
okkur fró vinstri: Eliot, Screwdriver,
Campari-kokkteil, Manhattan og
Golden Daisy.
k
Sidecar
Hristið 1 hl. af sítrónu-
safa, 1 hl. Cointreau og
2 hl. af koníaki með
muldum ís og hellið í
glösin gegnum sigti.
Martini dry kokkteill
Hrærið saman mulinn
ís, 1 hl. Martini og 3 hl.
gin. Setjið olívur í glös-
in, hellið kokkteilnum
yfir í gegnum sigti,
kreistið nokkra sítrónu-
dropa út í.
Bloody Mary
Hristið rækilega sam-
an mulinn ís, pipar og
salt (eftir smekk), 4
dropa af Worcestersósu,
y3 hl. sítrónusafa, 1 hl.
vodka og 2 hl. gin.
Vodka Gibson
Hrærið saman mulinn
ís, 1 hl. sérrí og 2 hl.
vodka. Þræðið kokk-
teillauka upp ó pinna og
leggið í glösin, hellið
kokkteilnum yfir.
White Lady
Hristið saman mulinn
ís, 1 hl. sítrónusafa, 2 hl.
Cointreau og 2 hl. gin.
Eliot
Hristið rækilega sam-
an mulinn ís, 2 tsk. af
sykri, 1 eggjahvítu, 1 hl.
sítrónusafa, 1 hl. portvín
og 3 hl. viskí.
Screwdriver
Blandið saman 1 hl.
af appelsínusafa ó móti
2 hl. af vodka og berið
fram með ísmola.
Campari-kokkteill
Hristið saman mulinn
ís, 2 hl. Campari og 2
hl. gin.
Manhattan
Hristið saman mulinn
ís, 2 dropa Angostura, 1
hl. sætan vermút og 3
hl. viskí. Leggið kirsiber í
glösin og hellið kokk-
teilnum yfir í gegnum
sigti.
Golden Daisy
Hristið saman mulinn
ís, 2 tsk. sykur, 1 hl.
sítrónusafa, 1 hl. Coin-
treau og 3 hl. viskí.