er nýtt háspil á hendi Ford Mondeo er nýr alheimsbíll frá Ford. Hönnunin sameinar það besta frá Evrópu og Banda- ríkjunum og útkoman er glæsileg: Mondeo er einhver vandaðasti, öflugasti og öruggasti bíllinn sem þú getur fengið í dag. Hann er ótrúlega kraftmikill og með frábæra aksturseiginleika. Mondeo er með hina nýju og öflugu 2,0 1, 16 ventla Z-vél sem svarar nákvæmlega þeim kröfum sem gerðar eru um kraft og snerpu. Öryggisbúnaður Mondeo er einhver sá fullkomnasti sem fáanlegur er og staðalbúnaður er meiri en almennt gerist. I öllum útfærslum Mondeo er loftpúði í stýri - eitt mesta öryggistæki ökumanna sem lil er. Þá er bíllinn búinn tvívirkum öryggisbellum og sérstökum styrktarbilum í hurðum sem vernda ökumann og farþega í hliðarárekstrum. í Mondeo er þjóiavörn sem tengist tvfvirkri samlæsingu og öflugri flautu sem tryggir að enginn óviðkomandi kemst inn í bílinn. Mondeo er með vökva- og veltistýri og rafmagn er í rúðum og hliðarspeglum. í öllum útfærslum eru útvarp og segulband. í Mondeo Ghia eru ABS hemlalæsivörn og spólvörn. Mondeo er með upphitaða framrúðu og hliðarspegla og það eru þægindi sem enginn vill vera án eftir að hafa kynnst þeim. Komdu og reynsluaktu Mondeo - nýja alheimsbílnum frá Ford. Hann gerir meira en þú býst við. Mondeo - sameinar afl og gæði Hefurþú ekið Ford... nýlega? G/obusp heimur gceöal Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55