einhver sem rétt sé að umgangast með óttablandinni virðingu; líklegra en ekki er að þar sé sjálfur Clint Eastwood á ferð, kominn til að refsa einhverju illþýði fyrir misgjörðir þess gegn guði og mönnum. En stígvél bera líka vott um sundurgerð (og náttúrlega töffaraskap) sem þeim sem aldrei nota stígvél hættir til að tortryggja. Sómakærir foreldrar hneykslast til dæmis gjarnan á fótabúnaði barna sinna sem ganga í stígvélum, að minnsta kosti er þeim örugglega sjaldnast skemmt. Kannski er önnur ástæða háskinn sem slíkur skófatnaður gefur til kynna; sá sem gengur í stígvélum virðist einhvem veginn vera til alls vís, á meðan sá sem hefur sandala (sem eru hin fullkomna andstæða stígvéla) á fótum eins og danskur bamakennari er mjúkur í gegn og meðfærilegur. Stígvélin eru líkt og vopn, en sandalarnir skilyrðislaus uppgjöf. Það er engin hending að í tveimur starfsgreinum sem reiða sig hvað mest á að örva og ögra kynferðislega eru stígvél líkt og einkennistákn, nefnilega í rokki og vændi. Enginn sem gengur að staðaldri um í stígvélum hefur heldur enn verið kosinn á Alþingi IH c o Islendinga. Og ef þið ætlið að m m to sækja um vinnu hjá einhverju CD X ' 'Ö) i LU '¦P X 0) 1-'c penu fyrirtæki er vissara að taka fram fótlagaskóna, en geyma stígvélin heima. ¦pp m cz O QQ Island er að verða meira ¦ útland, það fer skánandi að ¦ c >. E mörgu leyti. Það eru ekki mörg ár m 1 síðan þeir íslendingar sem vildu uff^^ft ^^1 'c ganga um í almennilegum c leðurstígvélum urðu að fara til 1 m. 1 O) c útlanda að kaupa þau. Nú er M -o komin betri tíð. Stígvél fást í M ¦o búðum við Laugaveginn og í i ¦ , > Kringlunni. Þau freista manns í ^^^r ^^^^^ (fí búðargluggum. Það eru framfarir.