PÁLMI JÓNSSON Hann breyttí Hagkaup úr lltilll póstverslun I eitt af stærstu fyrírtækjum landsins og varð hetja I augum almennings - öfugt við marga íslenska efnamenn. ur reglulega komið hingað til lands skoskur ráð- gjafi, lan McDougal að nafni, sem sá um að út- færa breytingarnar. Þessum breytingum öllum líkir Sigurður Gísli við eins konar einkavæðingu fyrirtækisins, eins og fram kemur í viðtali við hann hér í blaðinu. Nú hillir í að endurskipulagningunni ljúki og um leið hefur það gerst að skipt hefur verið um forystusveit í fyrirtækinu. Frændinn Jón Ás- bergsson, náinn samstarfsmaður Pálma til margra ára, hefur tekið við starfi forstjóra Ot- flutningsráðs. Ákveðið var að ráða Óskar Magn- ússon, lögfræðing og fyrrum stjórnarformann OIís, sem forstjóra frá og með 1. nóvember. Mun Þorsteinn Pálsson hafa átt erfitt með að kyngja þeirri ákvörðun og hefur nú hafið störf á öðrum vettvangi, sem forstjóri Örtölvutækni- Tæknival hf. Sigurður Gísli verður eftir sem áður starfandi stjórnarformaður, en ætlar Óskari það hlutverk að vera andlit fyrirtækisins. UMSVIFIN FIMMFÖLDUÐUSTÁ12ÁRUM Aukningin á umsvifum Hagkaups í gegnum tíðina er í raun með ólikindum. Þegar verslanir hafa sprottið upp á síðustu árum með látum og umsvifasprengingum hefur það yfirleitt endað með ósköpum, eins og hjá Kjötmiðstöðinni, Víði, Grundakjöri, Miklagarði og fleirum. En Hagkaup hefur á rúmum þremur áratugum stöðugt verið að auka og bæta umsvif sín; í stórum skrefum en ekki íslandsmetum í langstökki. Á sjöunda og áttunda áratugunum var aukn- ingin tiltölulega hógvær. 1979 var fyrirtækið kom- ið með að meðaltali 200 starfsmenn og velta árs- ins var að núvirði um 2,5 milljarðar króna. Stærstu stökkin í veltuaukningu komu á tímabil- inu 1985 til 1988, þegar IKEA-verslunin varð sjálf- stæð og Kringlan var í uppbyggingu og komst í notkun. 1992 var svo komið að Hagkaup/Ikea, með að meðaltali 733 starfsmenn, velti að núvirði 12,5 milljörðum króna. Til samans var Hag- kaup/Ikea orðið að sjöunda veltumesta fyrirtæki landsins og aðallega stór ríkisapparöt og útflutn- ingssambönd þar fyrir ofan. Það var engin tilvilj- un að menn veltu því fyrir sér hvort Hagkaups- veldið yrði arftaki Sambandsins á toppi listans yf- ir stærstu fyrirtæki landsins. Ekki er hér ætlunin að rekja hér sögu Hag- kaups í smáatriðum. Eftir að hafa reynt fyrir sér á ýmsum sviðum, til dæmis í ísgerð, stofnaði Pálmi Hagkaup árið 1959 ásamt Reyni Þorgrímssyni. Fyrsta verslunin var við Miklatorg, í gömlu gripa- húsi í eigu Geirs Gunnlaugssonar bónda. Vöruverðið var frá upphafi lágt miðað við aðra og sala mikil. 1964 hófst rekstur á saumastofu í Bolholti, þar sem einnig var birgðageymsla og póstverslun. Þarna voru hinir kunnu Hagkaups- sloppar saumaðir. Sama ár opnaði Pálmi aðra verslun, í Lækjar- götu 4, og 1966 var hann orðinn skatthæsti ein- staklingurinn í Reykjavík, var þá gert að greiða rúmar 8 milljónir að núvirði. I tengslum við appelsínustríðið svokallaða, sem sagt er frá annars staðar í umfjölluninni, ákvað Pálmi að stofna sérstaka matvörudeild hjá sér haustið 1967. Þrátt fyrir góða sölu voru næstu þrjú árin fyrirtækinu erfið. Það var kreppa í þjóð- félaginu vegna aflabrests, tvennar stórar gengis- fellingar gengu yfir og miklar hækkanir á inn- fluttri vöru. A þessu tímabili dró Reynir Þor- grímsson sig út úr samstarfinu. BYGGING KRINGLUNNAR NÆSTUM BANABITINN En öll erfiðleikatímabil taka enda og um haustið 1970 urðu þau merkilegu tímamót í sögu Hagkaups að verslunin flutti í Skeifuna 15, leigu- húsnæði í eigu Sveins Valfells. Þetta varð fyrsti eiginlegi stórmarkaður landsins. Fyrst var eink- um seld vefnaðarvara, en 1972 bættust við mjólk og kjöt. 1974 jók Pálmi enn við sig húsnæði með því að taka hálfa jarðhæðina í Kjörgarði á leigu og bæta við sig miklu rými í Skeifunni. Hinn öri vöxtur hafði í för með sér vaxtaverki og árið 1976 fékk Pálmi til samstarfs við sig Bret- ann Stanley Carter, sem áður hafði unnið hjá verslunarkeðjunni C&A. Hann hrinti í fram- kvæmd allsherjar uppstokkun á öllum sviðum fyrirtækisins og í raun gerbreytti hann verslun- inni til nútíma vinnubragða. Segir það sína sögu að fyrir þennan tíma voru vörur nánast í óskipu- ANNALL HAGKAUPS 1923 Fæddur Pálmi Jónsson að Hofi á Höfðaströnd, 3. júní. 1942 Pálmi lýkur stúdGntsprófi frá MR. 1951 Lagapróf Pálma frá HÍ. 1954 Siguröur Gisli fæddur 13. ágúst. 1956 Opnar fyrsta skyndibitastaðinn, ísborg í Austur- strætí. 1959 Jón Pálmason fæddur 3. ágúst. Pálmi kvænist Jónínu Sigríði Gísladóttur. Póstverslun opnuð við Eskihlíð um haustið. 1961 Ingibjörg Stefanía Pélmadóttir fædd 12. apríl. 1964 Saumastofa opnuð í Bolholti, síðar Höfða- bakka.Starfsemi hætt 1988-89. Verslun númer tvö opnuð að Lækjargötu 4. NÓVEMBER EINTAK 37