1967 Appelsínustríðið með stofnun matvörudeildar í kjöl- farið. Lilja Sigurlína Pálmadóttir fædd 10. desember. 1969 Pálmi stofnar Loðskinn hf. á Sauðárkróki og á tæpa 3/4 hlutabréfa. 1970 Miklatorgsverslunín flyst í Skeifuna 15. 1973 Pálmi tekur þátt í endurskipulagningu Kaupfélags- ins Hafnar á Selfossi, sem verður Höfn hf., síðar Höfn-Þrihyrningur hf. 1974 Helmingur jarðhæðar Kjörgarðs tekinn á leigu. Sykurstríðíð. Fullur sigur. 1976 Allsherjar endurskipulagning hefst undir handleiðslu Stanley Carter. Rekstur hefst á kjúklingabúi að Skeggjastöðum í Mosfellssveit, lýkur 1978. 1980 Stórmarkaður opnaður á Akureyri. Hagkaup breytt um sumarið úr einkafyrirtæki Pálma í hlutafélag. 1981 Ikea-deildín opnuð ÍSkeifunni 15. Bóksölustríðið í desember. Hálfur sigur 1983 Jógurtstríðið hefst í maí. Sigur í júní. Samvinna um sumarið við franskt flugfélag um leiguflug milli Reykjavíkur og Parísar. Stríðið um opnunartíma hefst í október. Sigur 17. nóvember. Stórmarkaður opnaður í Njarðvík í júlí. 1984 Gleraugnastríðið hefst um vorið. Lagalegur ósígur, en nýsett lög óvirk. Kartöflustríðið hefst um sumarið. Fullur sigur. Bygging Kringlunnar hefst. 1985 Miklatorg sf. stofnað í kringum rekstur Ikea. 1986 Ikea-búðin í Húsi verslunarinnar opnuð í ágúst. Jari sf. stofnað af Hagkaup, Vífilfelli og Skúla Por- valdssyni á Holtinu. 1987 Opnun Kringlunnar í ágúst. 1988 Hagkaup kaupir í janúar spildu í Smárahvamms- landi ásamt Byko. 1989 Þróun og ráðgjöf hf., síðar Por hf., stofnað í júní af Hagkaup ásamf Hagvirki og Ragnarí Atla Guð- mundssyni. 1990 Þórsbrunnur hf. stofnað í desember af Hagkaup, Vífilfelli og Vatnsveitu Reykjavíkur. 1991 Eignarhaldsfélagið Hof sf. stofnað í nóvember og er alfarið í eigu fjölskyldunnar. Þyrping hf. stofnað í desember af Hagkaupsfjöl- skyldunni sem eignarhalds- og fasteignafélag. Pélmi Jónsson deyr. 1992 Jörðin Skeggjastaðir seld. ÍÁIfheimar hf. stofnað í júlí utan um verslunina Kosta Boda. Hof kaupir óvænt helminginn í Bónus í ágúst. 1993 Þarfaþing hf. stofnað í janúar utan um viðhalds- þjónustu og aðra verktakastarfsemi. Futura hf. stofnað í janúar utan um Dómínós-pizzur. Hagkaup á þriðjung á móti Skúla Þorvaldssyni og Sígurjóni Sighvatssyni. Baugur sf. stofnað í mars utan um innkaup og dreifingu Hagkaups og Bónus Hagkaup/Hof leigir húsnæði Miklagarðs JÓN ASBERGSSON Frændinn sem hætti og réð sig til Útflutings- ráðs. lögðum hrúgum, en nú var farið að raða þeim skipulega í hillur, um leið og vöruúrval jókst og þjónustan batnaði. Á næstu árum var meðal annars gerð tilraun með rekstur kjúklingabús að Skeggjastöðum í Mosfellssveit, en það entist aðeins í þrjú ár. Árið 1980 gerist það að stofnað var sérstakt hlutafélag fjölskyldunnar utan um fyrirtækið, sem fram að þeim tíma var einkafyrirtæki Pálma. Um leið hætti Pálmi að vera skattakóngur Reykjavíkur, en það hafði hann verið nokkur ár á undan. Sama ár opnaði Hagkaup svo stórmarkað á Akureyri og þar með nýja víglínu í samkeppn- inni við SÍS-risann. Hið nýja hlutafélag hélt áfram að bæta við sig og 1981 hófst innflutningur og sala á Ikea- húsgögnum, sem strax varð mikil- vægur hlekkur í keðjunni. 1983 var opnaður stór- markaður í Njarðvík og um sama leyti var að hefjast fyrir alvöru undirbúningurinn undir stærsta stökkið af mörgum stórum; byggingu Kringlunnar. Kringlan er sá biti sem komst næst því að standa í Hagkaupsmönnum og sveimuðu gróu- sögur um allan bæ þess efnis að byggingin yrði um leið minnismerki um rangar fjárfestingar og Iegsteinn yflr moldum fyrirtækisins. En eftír að Albert Guðmundsson, þáverandi fjármálaráð- herra, gaf grænt ljós á opnun áfengisútsölu ÁTVR og Birkir Baldvinsson, flugrekandi í Luxemborg, fjárfesti í einingum í húsinu fór boltinn að rúlla. Eða eins og einn af forystu- mönnum Hagkaups orðaði það: Peningamenn- irnir í bænum vildu ekki sýnast minni menn en Birkir." SAMNINGAÞREF UM KAUP Á HOLTAGÖRÐUM Áður en byggingunni lauk var sameignarfé- lagið Miklatorg stofnað utan um Ikea-umboðið og verslun opnuð í Kringlunni 7. Það er einnig til marks um útþenslustefnu þessara ára að í janúar 1988 keypti Hagkaup ásamt Byko 11,7 hektara af landi Smárahvamms í Kópavogi, en SÍS hafði haft augastað á sama landi. Ekkert hefur þó orðið af uppbyggingu á því svæði, þótt afborganir kaupverðsins, um 77 milljónir að núvirði, hafi verið greiddar. Ætlunin var að reisa þar húsnæði undir Ikea-verslunina, en nýlega var gengið frá samningum milli Landsbanka og Hofs um leigu á Holtagörðum, sem áður hýstu Miklagarð. Kaup á húsnæðinu komu til tals, en mikið bar á milli. OSKAR MAGNÚSSON Honum er ætlað að vera andlít Hagkaups á sama hátt og Jón. Samkvæmt heimildum höfunda mun bank- inn hafa viljað fá sem næst því verði sem hann greiddi þrotabúinu fyrir, um 60 þúsund krónur á fermetra, en Hagkaupsmenn töldu það verð ríf- lega tvöfalt of hátt. Nú mun vera farið að gæta talsverðrar óþolin- mæði hjá stjórnendum Kópavogskaupstaðar vegna tafa á framkvæmdum á Smárahvamms- landi, og hafa Kópavogsmenn haft á orði að tími sé kominn til að grípa til ráðstafana. Spurning er hins vegar hvort Kópavogskaupstaður hefur fjár- hagslegt bolmagn til að kaupa landið aftur. Næsta stóra ákvörðunin innan herbúða Hag- kaups var að taka þátt í stofnun Þórsbrunns með Vífdfelli og Vatnsveitu Reykjavíkur árið 1990. Það fyrirtæki hefur síðan reynt að hasla sér völl í Bandaríkjunum. Eftir tveggja ára tap er það nú rekið réttu megin við núllið og er í þeirri aðstöðu að geta staðið undir 50 milljóna króna auglýs- ingaherferð vestra. Pálmi Jónsson dó 1991 og síðan hefur staðið yfir hin mikla uppstokkun fyrirtækisins sem minnst var á í upphafi greinarinnar. KEPPINAUTARNIR TÝNA TÖLUNNI Fyrir utan þá uppstokkun hefur einkum tvennt gerst sem hefur gerbreytt stöðu Hag- kaups. Annars vegar keypti fjárfestingafélag Hag- kaups, Þor, helmingshlut í skæðasta keppinautn- um, Bónusi, fyrirtæki sem á örskömmum tíma var komið með veltu upp á 3 milljarða. Þessi kaup voru og eru mjög umdeild og komu fram miklar efasemdir um réttmæti þeirra út frá sam- keppnissjónarmiðum. Dalaði Hagkaup nokkuð á listanum yfir vinsælustu fyrirtæki landsins í kjöl- farið. Ekki munaði minna um þegar Mikligarður fór á hausinn síðastliðið sumar og hvarf þá af yf- irborði jarðar stærsti keppinauturinn - og enn dró úr samkeppninni. Teh'a menn að markaðs- hlutdeild samsteypunnar í matvöru á höfuðborg- arsvæðinu sé núorðið hið minnsta tæplega 40 prósent, en ýmsir viðmælendur nefndu tölu upp á um eða yfir helming. Rétt er síðan að bæta við stofnun innkaupa- og dreifingarfyrirtækisins Baugs í Garðabæ, sem þjónar bæði Hagkaupi og Bónus, og stofnun Fut- ura hf. (Dómínós-pizza) ásamt Skúla Þorvalds- syni á Holtinu og Sigurjóni Sighvatssyni, sem markar innreið Hagkaups inn á skyndibitamark- aðinn. 38 EINTAK NÓVEMBER