Hvað óttastu mest af öllu SlGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON fréttamaöur oq fiskur X ífinu? Eg óttast mest að missa börnin mín. Ég á fullt af börnum - fjögur. Ef ég missti þau gæti ég einfaldlega ekki lifað lengur." TÓMAS Á. TÓMASSON veitingamaður og hrútur Roosevelt sagði: Það er ekkert að óttast nema óttann sjálfan." JÓHANNES NORDAL fyrrverandi bankastjóri Seðlabankans og m Ég hef ekki velt því fyrir mér hvað ég óttast mest. Það er margt þarfara og merkilegra að gera en að velta sér upp úr því." ElNAR KÁRASON our oq boq Knattspyrnuþjálfara." GUÐRÚN HELGADÓTTIR þingkona og meyja Ég óttast mest að eitthvað komi fyrir fjölskyldu mína, að einhver minna nánustu verði fyrir slysi. Annars er ég að mestu óhrædd. Styrjaldir og ofbeldi af öllu tagi skelfa mig þó og einnig heilsumissir. Síðan er ég hræðilega lofthrædd. Þannig að líkast til er ég frekar huglaus kona." SlGURÐUR SlGURJÓNSSON leikari og krabbi Ég óttast mest að missa heilsuna. Og ég óttast líka að styrjaldarátök í heiminum eigi eftir að breiðast út. Ég kæri mig ekki um þriðju heimstyrjöldina. Ef mannskepnan tekur sig ekki á fer allt í hund og kött." Helgi Pétursson kynningarfulltrúi og tvíburi Ég óttast mest að íslendingar missi áhugann á að vera íslendingar." Margeir Pétursson skákmaður og vatnsberi Að eitthvað illt hendi mína nánustu." Davíð Scheving Thorsteinsson iðnjöfur og steingeit Ég óttast mest að eitthvað vont hendi fjölskyldu mína, slys eða eitthvað ámóta." Jón Ólafsson og Ijón Gunnar Smára Egilsson." Einar Örn Benediktsson tónlistarmaður oq sporðdreki Eg óttast mest að ég byrji að hugsa af skynsemi einn daginn." Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafræóingur og vog Það er tvennt sem ég óttast mest af öllu. Annars vegar að missa einhvern úr fjölskyldunni. Hins vegar óttast ég beinþynningu. Ég varð nefnilega fimmtug um daginn. Beinþynning er skelfing kvenna á fullorðinsárunum. Beinin verða stökk og brotna auðveldlega. Þetta ku vera sérstaklega algengt meðal íslenskra kvenna. Við íslenskar konur hugsum ekki nóg um að borða kalkríka fæðu. Þess vegna eru íslenskar konur alltaf að brotna; fótbrotna, bakbrotna, fingurbrotna. Það er því raunhæft að óttast beinþynningu. Við verðum að vera duglegar að drekka mjólk!"