Langabar innan um sjóarana, fyllibytturnar og þá sem fannst eins og þeim hefði aldrei almennilega verið boðið að vera með. Og grétu bað ekki. Eflaust hefur bað verið rétt að þetta hafi allt verið jazzinum að kenna. Það er vitlaus maður sem heldur að tónlist breyti ekki fólki. Skemmi það eða bæti - eftir því hvaðan litið er á. Það er ekki hægt að hlusta á jazz og sitja í einfaldri röð og bíða eftir því að einhver bjóði manni upp. Og maður getur heldur ekki keypt það að aðalat- riðið í lífinu sé að sleikja upp verkstjórann til að fá kauphækkun eða vinnu frameftir. Það er því ekki furða þótt jazzinn hafi komið róti á ungt fólk. Ekki bara hér heima. Líka hjá harðnaðri þjóðum. í Ameríku þeyttust bítnikkar á milli austurstrandar og vesturstrandar í dauð- ans ofboði til að missa ekki af neinu, tömdu sér óheflaða fram- komu og reyndu að brjóta allar reglur. Og þar sem þeir voru að 62 EINTAK NÖVEMBER