Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Eintak

Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 1. Tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Eintak

						/Z7   Z77

Edda Björgvinsdóttir leíkkona og Súsanna Svavars-

dóttir gagnrýnandi hata báðar verið giftar alkðhólístum, Þær hafa soðíð

leikrít upp úr bók Súsönnu, Gúmmíendur synda ekki, og eigin reynslu

og ætla að fá fólk til að hlæja að alkóhólístanum og aðstandendum hans

Og líka hugsa, Gunnar Smári Egilsson ræðir við þær,

Súsanna Svavarsdóttir og Edda Björgvins-

dóttir voru hetjur og gáfust upp á því. Þær átt-

uðu sig á að hetjuskapurinn var ekki aðdáunar-

verður og enn síður eftirsóknarverður, heldur

sjúklegur og bráðdrepandi. Ef þær hefðu verið

hetjur miklu lengur hefðu þær liklega tapað gló-

runni og orðið handónýtar manneskjur.

Súsanna og Edda voru giftar fyllibyttum, alkó-

hólistum. Og hetjuskapur þeirra var fyrst og

fremst sá að líta svo miklu betur út en eigin-

mennirnir. Þær skandalíseruðu ekki eins og þeir,

gengu ekki jafnoft á bak orða sinna, stóðu betur

sína plikt. Þær voru bæði betur greiddar og

skeindar en eiginmennirnir. Og þær hreinsuðu

líka upp óreiðuna og vitleysuna eftir eiginmenn-

ina. Héldu saman fjölskyldunni. Héldu andlitinu

út á við. Og héldu sér saman um pínlegheitin

heima. Og þar sem eiginmennirnir gátu ekki

staðið á eigin fótum leyfðu þær þeim að standa á

sínum. Þess vegna var svo helvíti gott fyrir þá að

halda áfram að drekka.

Hetjunafngift þeirra Súsönnu og Eddu er að

fmna í alkafræðum og er ein gerð af kóara (að-

standanda alkóhólista sem óafvitandi aðstoðar

alkann við að halda drykkjunni áfram). Báðar

losnuðu þær við hetjuskapinn í Alanon, samtök-

um aðstandenda alóhólista. Og nú hafa þær skrif-

að leikrit upp úr bók Súsönnu, Gúmmíendur

synda ekki. Þær gera út frá Borgarleikhúsinu, en

ætla að sýna á vinnustöðum og í skólum. Leikrit-

ið er í kaffitíma- og löngufrímínútalengd - 25

mínútur. Og fjallar að sjálfsögðu um alkóhólisma

og hversu grátt hann leikur alkann og alla í kring-

um hann.

Hvers vegna?

EB: Við skulum bara tala hreint út. Við erum að

bjarga heiminum. Fólk talar um alla mögulega

og ómögulega sjúkdóma. En alkóhólisminn, sem

ég geng út frá að sé sjúkdómur, er felusjúkdóm-

ur. Það er dálítið pínlegt að hafa alkóhólista í

fjölskyldunni og fólk skammast sín fyrir þennan

sjúkdóm. Við vonumst til að þeir sem sjá leikrit-

ið geti velt þessum sjúkdómi fyrir sér. Ég held

nefnilega að öll umræða um áfengi og alkóhól-

isma sé á rangri braut. Það þykir ekkert mál þótt

fólk fái sér einn og einn bjór og kúltúrdrykkja á

að vera svo sjálfsögð. Það er bara spurning hve-

nær hæfilegt er að unglingarnir byrji að æfa sig.

Viltu þurrka upp heiminn?

EB: Já, oft.

SS: Við erum ósammála þarna. Ég tel að heimin-

um sé ekki viðbjargandi. Umræðan um alkóhól-

isma er á röngu plani. Við höfum ofstækisfulla

umræðu sem gengur út á að allir séu alkohólist-

ar. Sú umræða getur aldrei orðið heiðarleg. Það

þorir ekki nokkur maður að svara af einlægni

hversu mikið hann drekkur af ótta við að vera

stimplaður alkóhólisti. Það hefur aldrei verið

gerður greinarmunur á alkóhólisma og of-

drykkju. Mér er alveg sama þótt fólk fyrtist við,

en alkóhólismi er sjúkdómur. Þegar tilfinningalíf

þitt er orðið svo brenglað að þú getur ekki verið

heiðarlegur, getur ekki sagt satt, afneitar stað-

reyndum, blekkir sjálfan sig og aðra, svíkur - þá

ertu tilfinningalega veikur.

Þetta getur átt við fleiri en alka. Maður hefur

rekist á fólk sem er fyrirmunað að vera heiðar-

legt, án þess að það drekki endilega svo mikið.

SS: Það er fullt af fólki sem hefur þessa eiginleika,

en drekkur ekki. Síðan er fullt af fólki sem drekk-

ur, en hefur þá ekki. Þetta fólk hefur þróað með

sér ofdrykkju. Það er auðveldara að stöðva þetta

fólk. Það hefur verndað heiðarleikann sinn og

þess vegna er hægt að benda því á að þetta sé ekki

sniðug þróun. Þeir sem drekka sig drukkna þurfa

ekki endilega að vera alkóhólistar. Þeir geta verið

harðir neytendur.

Mér hefur fundist það vera afstaða SÁÁ að rétt-

ast sé að þurrka þetta fóDx samt. Betra sé að

þurrka tíu sem þurftu þess ekki með en að einn

alki gangi laus.

SS: Jú,jú. Það hentar þeim fjárhagslega að líta

þannig á málið. Þá geta þeir búið til alveg yfir-

þyrmandi vandamál og krafist meiri peninga frá

ríkinu. En ekkert af þessum peningum fer í for-

varnarstarf. Og það er einfaldlega of dýrt að

halda uppi þessu kerfi og safna alltaf nýjum og

nýjum árgöngum inn í það...

EB: ...í staðinn fyrir að fræða börnin nógu

snemma. Þeim mun fyrr sem byrjað er að fræða

börnin, þeim mun líklegra er að þau geti unnið

úr því seinna á ævinni ef þau kynnast alkóhól-

isma. Það er nefnilega ótrúlegt hvað fræðslumol-

arnir eru fáir. Það vita allir að reykingar drepa

fólk, en fáir virðast átta sig á að áfengi er hæg-

drepandi lyf.

En fólk reykir samt.

SS: Við munufn aldrei uppræta útsjónarsemi

mannsins við að útræsa sjálfseyðingarhvötina.

Maðurinn fínnur sér alltaf nýjar leiðir til þess.

Þið ætlið samt að reyna?

SS: Ég hef skrifað um þessi mál vegna þess að ég

kann ekki að skammast mín fyrir að hafa þessa

reynslu. Það er nafnleynd í Alanon. Fólk tekur

því þannig að það sé í samtökum og verði að ríg-

halda sér saman um sína eigin reynslu. Ég hef

ekki kunnað að þegja um reynslu mína og að-

stæður aðstandandans. Þess vegna hringir fólk

mikið í mig og spyr hvert það geti leitað og hvar

það geti fræðst um þessi mál. Það er til ein bók

um maka alkóhólista á Islandi og ein bók um

börn alkóhólista. Önnur kom út á þessu ári og

hin í fyrra. Miðað við hversu stór hópur fólks

vinnur að málefnum alkóhólista á íslandi er stór-

furðulegt að ekki sé búið að koma upp neinum

forvörnum. Mér finnst peningunum betur varið

með þeim hætti en að vera sífellt að byrgja

brunninn eftir að barnið er dottið ofan í hann.

Það er endalaust verið að henda nýjum og nýjum

árgöngum ofan í þennan brunn.

EB: Við íslendingar erum ekki mikið fyrir að

byggja upp fagurt mannlíf. En við erum tilbúnir

að taka að okkur aumingjana: Komdu með allt

sem er að hjá þér og ég skal vera vinur þinn. En

ef allt er í lagi skaltu í guðsbænum halda þér í

burtu. Ég íyllist öfund og leiðindum og kæri mig

ekkert um að heyra um þína lukku. Þetta er ís-

lenskt. Okkur þykir væmið að opna kjaftinn til

að segja hvað við erum hamingjusöm. Það gerir

enginn. En komdu með raunir þínar, komdu ef

þú ert skilin, búin að missa karlinn eða eitthvað,

og ég skal faðma þig.

SS: Við nærumst á harmleikjum.

Eins og tímaritaviðtölunum. Þangað fá öngvir

að koma nema einhentir hommar með eyðni

sem prjóna samt.

SS: Já, við nærumst á harmleikjum og því meiri

harmur, því áhugasamari erum við. Og það

furðulega er að við skynjum ekki harminn nema

þegar við lesum um hann í blöðunum. Ef við

heyrum um harminn utan að okkur, þá er það

ekki harmur. Þá er það kjaftasaga og fólk nýtur

þess tala hlakkandi um sársaukafull mannleg ör-

lög. Það er óskaplegur harmur þegar vel gert og

vel gefið fólk verður alkóhólisma að bráð. En

samt hlakkar í fólki. Skilnaður er mikill harmur.

En það er smjattað á honum eins og hann sé

konfekt. Hvers konar viðhorf eru í þessu samfé-

lagi? Ég skil þetta ekki.

Fólk smjattar á skilnaði, en tekst þvi þá ekki að

fagna brúðhjónum?

SS: Nei. Það segir: „Hvað skyldi þetta nú endast

lengi." Það er viðkvæðið.

Aftur að brennivíninu. Edda, þú drekkur ekki?

EB: Maðurinn minn er alki og þegar hann hætti

að drekka ákvað ég að gera það líka. Mér fannst

það bara snyrtilegra. Það skiptir mig ekki neinu

máli hvort ég drekk eða ekki, svo mér fannst

betra að sleppa því. Mér finnst líka agalega hall-

ærislegt að sitja fyrir framan börnin og segja: „I

guðs almáttugs bænum ekki drekka, nema þá lít-

ið eins og ég. Vertu bara hófdrykkjumanneskja."

Hvað veit ég um hvenær ég eða þau fara yfir

strikið? Þess í stað segi ég: „Slepptu þessu bara,

eins og ég."

76

EINTAK      NÓVEMBER

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88
Blašsķša 89
Blašsķša 89
Blašsķša 90
Blašsķša 90
Blašsķša 91
Blašsķša 91
Blašsķša 92
Blašsķša 92
Blašsķša 93
Blašsķša 93
Blašsķša 94
Blašsķša 94
Blašsķša 95
Blašsķša 95
Blašsķša 96
Blašsķša 96
Blašsķša 97
Blašsķša 97
Blašsķša 98
Blašsķša 98
Blašsķša 99
Blašsķša 99
Blašsķša 100
Blašsķša 100
Blašsķša 101
Blašsķša 101
Blašsķša 102
Blašsķša 102
Blašsķša 103
Blašsķša 103
Blašsķša 104
Blašsķša 104
Blašsķša 105
Blašsķša 105
Blašsķša 106
Blašsķša 106
Blašsķša 107
Blašsķša 107
Blašsķša 108
Blašsķša 108
Blašsķša 109
Blašsķša 109
Blašsķša 110
Blašsķša 110
Blašsķša 111
Blašsķša 111
Blašsķša 112
Blašsķša 112
Blašsķša 113
Blašsķša 113
Blašsķša 114
Blašsķša 114
Blašsķša 115
Blašsķša 115
Blašsķša 116
Blašsķša 116
Blašsķša 117
Blašsķša 117
Blašsķša 118
Blašsķša 118
Blašsķša 119
Blašsķša 119
Blašsķša 120
Blašsķša 120
Blašsķša 121
Blašsķša 121
Blašsķša 122
Blašsķša 122
Blašsķša 123
Blašsķša 123
Blašsķša 124
Blašsķša 124