KjaraseðiH DV en kraftmikill sparnaður Kjaraseðlar DV er ný, kraftmikil sparnaðarleið fyrir alla lesendur DV. Kjaraseðlarnir munu birtast þriðjudaga, miðviku- daga, fimmtudaga og föstudaga og gilda sem raunverulegur afsláttur af þeirri vöru eða þjónustu sem tilgreind er á hverjum seðli. Þú klippir kjaraseðlana út úr blaðinu og framvísar í viðkomandi verslun þegar þú kaupir þá vöru sem tilgreind er á seðlinum. Einfaldara gæti þaó varla verið. Reyndu kraftmikinn sparnað í raun og nýttu þér kjaraseðla DV.