sér meðal annars um að koma gjaldþrota- búum ! sölu. Halldór er ógiftur og barn- laus. SigurðurLoftsson er bóndi á Steinsholti í Gnúpverjahreppi. Hann ólst upp í þeirri sveit og þegar aldur leyfði fór hann í Bændaskólann. Hann rekur kúabú á Steinsholti, en það telur tuttugu kýr. Sigurður sagðist lengi hafa verið laus og liðugur, en gifti sig fyrir tæpum tveimur árum og á tvö ung börn með konu sinni. Sigurður minnist þess að í æsku hafi foreldrar hans gantast með nafn hans, sagt að líklega hefðu þau betur nefnt hann Surt. Surts-brandarinn virðist hafa notið nokkurra vinsælda í fjölskyldum þeirra drengja sem fæddust þennan dag, því svipaða sögu segir Eggert Bjarni lyfsali og Vilhjálmur Örn Gunnarsson segir að systkini sín hafi oft og einatt í stríðni kallað sig Surt. Vilhjálmur Öm Gunnarsson lauk grunnskólaprófi í Reykjavík, en fór síðan að vinna almenna verkamanna- vinnu. Hann býr nú á Hellissandi, er sjómaður og þriggja barna faðir, auk þess á hann eitt stjúpbarn. Þórarirm Guðmundur Hlöðversson fæddist á Sauðárkróki rétt í þann mund er Surtsey gaus. Þórarinn ólst upp á Akranesi, en þegar hann var þrettán ára fluttist fjölskylda hans aftur á Krókinn. Þar lauk Þórarinn grunnskólanámi. Sextán ára fór hann til sjós og hefur stundað sjómennsku síðan. Þórarinn er giftur og á þrjár dætur með konu sinni og einn fósturson. Ásgerður Jónsdóttur átti að fæðast í Grindavík, en foreldrar hennar voru einmitt að flytja búferlum frá Norðfirði til Grindavíkur skömmu áður en von var á Ásgerði í heiminn. Hjónin höfðu viðdvöl á Egilsstöðum og þar fæddist Ásgerður nokkru fyrir tímann. Ásgerður ólst upp í Grindavík, en hélt síðan til Reykjavíkur og lauk stúdentsprófí frá Fjölbrautarskólanum í Ármúla. Hún útskrifaðist síðan sem hjúkrunarfræðingur árið 1989. Frá þeim tíma hefur hún starfað á Borgarspítalan- um og vinnur nú á hjartadeild. Ásgerður hefur verið í sambúð frá sautján ára aldri og á eitt barn með sambýlismanni sínum. Trausti Hólmar Gunnarsson segist aldrei hafa yfirgefið heimahaga sína svo nokkru nemi, hans staður er Hólmavík og þar hefur hann búið frá fæðingu. Eftir grunnskóla- nám vann Trausti ýmsa verkamannavinnu á Hólmavík og hefur starfað hjá Vélsmiðjunni Vík síðustu sjö ár. Hann er giftur og á tvö börn, sex og tveggja ára. Inga Randversdóttir fæddist í húsi foreldra sinna á Akureyri. Eftir grunnskólanám vann hún í frystihúsinu á Akureyri, en síðustu sjö árin hefur hún starfað í Borgarbíói þar í bæ. Inga hóf sambúð 19 ára gömul, en upp úr henni slitnaði fyrir þremur ár- um. Inga býr í foreldrahúsum ásamt sjö ára syni sínum. Hernjöm Sjgriiarsson Mun hafa alist upp í Reykjavík, en af honum fengust fáar fréttir. Síðast fréttist af honum á Café Óperu þar sem hann vann sem þjónn. Herbjörn lét þó nýlega af því starfi og er sagður vera á leið til Spánar. Jón Þór Gunnarsson býr einnig á Akureyri. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri, en hélt síðan til Bandaríkjanna og lauk BS prófi í iðnaðarverkfræði við University of Alabama. Dvöl hans var þó ekki lokið því hann tók síðan mastergráðu í viðskiptafræði frá sama skóla. Hann kom heim 1987 og hóf störf sem framleiðslustjóri hjá Islenskum skinnaiðnaði á Akureyri. Hann er nú forstöðumaður sjávarútvegssviðs KEA. Jón Hún gekk í Breiðholtsskóla og síðan Kvennaskólann. Hún lauk stúdentsprófí írá Menntaskólanum í Reykjavík og síðan lá leíðín tíl Bandaríkjanna þar sem lærði flugrekstrarfræðí í fjögur ár. Eftir heimkomuna vann hún í tvö ár hjá flug- málastjórn en starfar nú sem flugfreyja. Hún býr í Reykjavík ásamt eigínmanni sínum sem er sjávarverkfræðíngur og eiga þau eitt barn. Þór hefur verið giftur í níu ár og á tvo drengi með konu sinni. EINTAK NÓVEM E R