Líka a Italiu r IU V i ^ ^Sm JH > X Alls staðar er Björk. Hún er alveg ábyggilega orðin heimsfrægasti Islendingur fyrr og síðar. Heimsfrægari en Halldór Laxness og Leifur Eiríksson. Og af því við íslendingar erum svo útbelgdir af menningararfi okkar og bókmenntum er það svolítið fyndið að það skuli vera svona skemmtileg stelpa sem getur sér heimsfrægðina sem þjóðina hefur alla tíð dreymt um. Maður hefur varla tölu lengur á öllum stórblöðunum sem hafa birt viðtöl Björk og myndir af henni, en síðast rákumst við á hana í nýjasta hefti Italíuútgáfu tímaritsins Vogue. Þar situr hún fyrir á tískuljósmyndum hjá hinum víðfræga ljósmyndara Ellen von Unwerth. Þarna sýnir Björk fatnað frá tískuhúsum frægra hönnuða á borð við Yves Saint Laurent, Jean Paul Gaultier, Karl Lagerfeld og Martine Sitbon. Við sjáum ekki að Björk gefi helstu tískufyrirsætum heimsins neitt eftir, enda er stúlkan náttúrlega gædd einstæðum yndisþokka. Það finnst líka Itölunum sem segja að hún sé boðberi nýs glæsileika og kalla hana hina myrku Venus ljóssins. Og þótt hún sitji fyrir hjá svona virðulegu tískublaði sjáum við ekki betur en að hún hafi fyllilega gætt þess að halda sínum eigin stíl í fatavali. viorræga iiosmynaara fciien von unwerth. Parna symr Jijork ryllilega gætt þess að halda sínum eigin stíl í fatavali. Þú kemst ekki í gegnum veturinn án þess að hafa þyrluflugmannshjálm á hausnum Þegar herir hinna föllnu kommúnistaríkja austan járntjalds leystust upp af hugsjónaleysi og hungri hrúguðust upp birgðir af hermannafötum; frökkum, skóm, jökkum og húfum. Og einn ferðalangur að vestan keypti sér flík og fór með heim. Og síðan annar. Og annar. Loks flæddu hermannafötin vestur yfir, séðir karlar skipulögðu flóðið og bjuggu til úr því allsherjartískubylgju. Líkast til hagkvæmustu tísku seinni ára. Vesturlandabúar dúðuðu sig í óþörfan og verðlausan tindátaklæðnað að austan. Eins og öll tíska hefur þessi líka hug- læga merkingu. Kapítalistabörnin að vestan skreyta sig með táknum hinna sigruðu barna byltingarinnar að austan - eins og indjánar með höfuðleður um mittið. Aum örlög hins stolta Rauða hers. Húfumar hér að neðan fást í Arm- asútra á Hverfisgötunni. NÓVEMBER EINTAK ^5 1 1 1