NATTI Stefán Jón Hafsteín NewYork, NewYork Stefán Jón Hafstein fellur í nákvæmlega sömu gryfju og í fyrri bók sinni sem hét Eru guðirnir geggjaðir? Hann er fórnarlamb sjálfs sín, sinnar eigin flæðandi mælsku sem hefur gert hann að frábærum útvarpsmanni, en ekki nema miðlungi góðum rithöfundi. Það vantar svosem ekki að söguefnið er nógu gott; skringilegur, en um leið drenglyndur og indæll íslendingur sem hefur valið sér það hlutskipti að búa meðal spássíufólks í Harlem. Vandinn er bara sá að Stefán Jón er alls staðar að þvælast fyrir með oflát- ungslegum stíl og málskrúði sem hefði betur orðið eftir á skurðarborði útgefandans. Hann ber söguefnið, Islendinginn með skrítnusöguna, ofurliði. 2450 krónur. Edward Radzinsky The Last Tsar Radzinsky þessi hefur áratugum sarman haft á heilanum eina mestu ráðgátu tuttugustu aldarinnar, örlög rússnesku keisarafjölskyldunnar. Hann er svosem ekki fyrsti maðurinn sem pælir í þessu efni; litteratúrinn um morðin í Erkaterinen- burg fjúll 1918 gæti fyllt heilt bókasafn. En Radzinsky nýtur þess að skjalasöfn eystra eru að opnast upp á gátt og að losnað hefur um máibeinið á fólki sem býr yfir vitneskju um leyndarmál kommúnista- stjórnarinnar. Þetta nýtir hann sér með slíkum ágætum að varla verður séð að mikil þörf sé á að skrifa fleiri bækur um efnið; hann telur sig hafa fundið nákvæm- lega út hver skaut kúlunni sem drap keisarann (um þann heiður deildu meðlimir morðsveitarinnar), og óneitanlega eru röksemdafærslur hans sannfærandi. En þótt Radzinsky dvelji nokkuð við smáatriði er af og frá að hann láti þau gleypa sig; hann lýsir af innlifun hroka sigurvegaranna sem höfðu keisarann fanginn, hlut Leníns sem fyrirskipaði morðin í þeirri trú að tilgangurinn helgaði öll meðul og ráðvilltri keisarafjölskyldunni sem virðist hafa ekki botnað grand í því hvað yfir hana gekk, allt þar til brunnin lík keisara, keisaraynju, prins og prinsessa fundust í gamalli námu austur undir Úralfjöllum. 1590 krónur. The Penguin Book of Speeches Hér eru vondir kallar í bland við góða kalla, frægustu ræður tuttugustu aldar- innar, áhrifamiklar en ekki allar uppbyggi- legar. Lenín talar á Finnlandsstöðinni, Trotskí talar við stofnun Rauða hersins, Hitler í Berlín 1938 og segist ekki hafa meiri þolinmæði. Öllu félegri er ræða Churchills um blóðið, svitann og tárin og ræða Kennedys við Berlínarmúrinn þegar hann sagði: lch bin ein Berliner." Svo má líka finna fleyg orð kóngafólks: Útvarps- ávarp Játvarðs VIII þegar hann sagði af sér konungdómi og ræðu Elísabetar drottningar þegar hún lýsti sínu ,,annus horribilis". Svona bók les kannski enginn í striklotu í gegn, en það má hafa af þessu nokkurn lærdóm og þá ekki bara morfísliðið og fólk sem hefur atvinnu af því að tala úr púlti. 1 795 krónur. Þorgeir Þorgeirsson Tiríræður Islendingar eru hænsn. Einhvern veginn svona komst Þorgeir Þorgeirsson að orði í ritgerðasafni sem hann gaf út fyrir nokkrum árum. Svo komst mannréttinda- dómstóll Evrópu í málið og úrskurðaði að þarna hefði Þorgeir einmitt hitt naglann á höfuðið - íslendingar væru hænsn. Og Þorgeir, sem allt embættismannakerfið og fjölmiðlarnir, höfðu stimplað sem kverúlant, birtist þjóðinni allt í einu eins og maður sem fór í krossferð og hafði sigur. Á þessa litlu bók hefur Þorgeir sett sex ræður sem hann hefur flutt við ýmis tækifæri, meðal annars fyrir mann- réttindadómstólnum. Hann kann að vera ögn sérvitur, en honum er líka lagið að svífa frjáls, laus undan ofurþunga klisjanna sem íslendingar nota til að tala saman.1672 krónur. ^y mann sem e V / eroa ag Lítið spjall við llluga Jökulsson sem er að gefa út nýja skáldsögu Hverslags bók er þetta? Ég kann í raun ósköp lítið frá því að segja." Þér hefur tekist bærilega að segja frá bókum annarra? Þetta er skáldsaga." Segir Illugi Jökulsson um nýja bók eftir sig sem kemur á út hjá Almenna bókafélaginu. Eins og flestir vita er lllugi þjóðkunnur útvarpsmaður, pistlahöfundur og blaðamaður, en hann hefur líka skrifað barnabækur og eina skáldsögu sem kom út í hitteðfyrra. Um hvað fjallar hún? Hún segir frá ferðalagi frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal. Og frá manni sem er að reyna að fá skýringu á því af hverju séu til vondir menn." Það hlýtur eitthvað að gerast á leiðinni? Hann verður vitni að vondum atburði. Annars er þetta ferðasaga." Ferðasaga? Ferðasaga í mjóg venjulegum skilningi, frá Reykjavík til Víkur. Kannski lendir maðurinn í ýmsu sem ekki er venjulegt á þeirri leið. Það má líklega segja að hann hitti fyrir útlönd á Islandi." Einhver sagði að það dyndu yfir hörmungar? Sumt af því sem kemur fyrir eru menn kannski vanari að herma upp á útlönd en ísland." Er þetta þá framtíðarsaga? Nei, nei. Bara saga um mann" Ádeilusaga? Nei, það finnst mér ekki. Það er spurning hvort maðurinn bregst við atburðum eða hversu mikið hann bregst við þeim. Þeir sem hafa lesið bókina eru ekki á eitt sáttir um það." Þarf ekki stóra bók undir svona ferðalag? Hún er stutt og lítil. Svona 120 til 140 síður." Hvað á hún að heita? Barnið mitt barnið. Með engri kommu." 112 EINTAK NÖVEM E R