LclKrHJw Nemendaleíkhúsið Draumur á Jónsmessunótt Gíó Pedersen stendur í nánu ástar- sambandi víð William Shakespeare. Og þótt honum takist ekki alltaf aö láta leikarana sína fara fullkomlega með texta skáldsins - það er helsti veikleiki Shakespeare-uppfærsla Gíós - verður því ekki neitað að honum lánast að blása lífi í verkin. Og það gerir hann af ágætri hugkvæmni. Hann hikar ekki við að skera textann niður við trog og nota ýmsar brellur til að gera leikinn hraðari, stinnari. Út- koman er í hæsta máta lífleg og fjör- ug. Og svo, alveg burtséð frá Gíó og ágætum útskriftarhópi leiklistar- skólans - þetta er fjári skemmtilegt leikrit. Þjóðleíkhúsíð Þrettánda krossferðin Sýning sem er á einhvern hátt einkennilega útblásin og uppþelgd. Öllu er ofgert; það er of mikið af orðaflaumi, of mikið af leikmunum, of mikið af leikurum sem flækjast um. Yfirskinið yfir þessu öllu er að hér sé að finna djúpar heimspekilegar vangaveltur um vegferð mannsins; það er þvælst um milli landa og tímaskeiða í einhverju andlegu alls- leysi sem á líklega að skírskota til meintrar tómhyggju nútímans. Þegar á reynir verður þetta þó allt hálfkjána- legt og vandræðalegt og maður getur ekki varist þeirri tilhugsun að hið djúpa heimspekilega ívaf sé ekki ann- að en fimmauralífspeki, kornfleiks- pakkaheimspeki. Hin ytri umgjörð er svosem nógu glæsileg og einnverjum þykir hún sjálfsagt gott leikhús. En verkið rís ekki undir henni; hún er aðallega órækt vitni um peningana sem var eytt í uppfærsluna. Frú Emilía Afturgöngur Nú flæða yfir leikrit sem á einn eða annan hátt fjalla um alnæmi eða tengjast því. Og hvað er umfjöllunar- efni Afturganga Ibsens nema alnæmi, þótt leikritið sé skrifað löngu áður en sá sjúkdómur fór að grassera og hinn ógurlegi leyndardómur leikritsins sé sá að aðalþersónan er sýkt af sýfilis. Verkið skírskotar semsagt til nútímans, eins og sagt er. En er það nóg? Nei. Einhverja vitsmunalega leið þarf að finna til að setja verkið á svið, og þá líklega annað hvort að setja það upp á ógn hefðbundinn hátt og sýna hvílík völundarsmíð leikritið er eða að freista þess að endurskapa það með einhverju móti. Hér hefur verið farinn einhver millivegur sem leiðir út í ógöngur. yrtibudciu r / / and Það er þraut að pakka niður. Og það er kúnst að gera það vel. Og mikil raun ef eitthvað gleymist. Ef einhver heldur að það sé léttara eftir því sem taskan er minni ætti viðkomandi að hugsa til snyrtibuddunnar. Mikilvægi hennar liggur ekki í stærðinni. Innihaldið þarí að yera jafnútspekúlerað og innihald stóru töskunnar. í hana má ekkert vanta og það sem í henni er þarf að duga á áfangastaðnum. Sólarstrandar-snyrtidót ístór- borg er álíka vondur kostur og bermúdabuxur á Ráðhústorginu. Og ef sólarvarnarkremið gleymist í Kanaríferðinni er álíka illa komið fyrir konu og Hreggviði Jónssyni skíðalausum á vetrarólympíu- leikunum. En til að gera flókið mál einfalt eru hér dæmi um þrjár haganlegar snyrtibuddur, hverri á leið í sína utanlandsferð. Helgarferð til Hamborgar 1 andlitssápa Guerlain 2 augnhreinsir 3 andlitsvatn 4 augnkrem (dag- og næturkrem) 5 varalitur rosé íntense 6 svartur maskari 7 blautur augnblýantur 8 púðurmeik 9 Terracotta Dore sólarpúður 10 augnskuggi 11 augnabrúnablýantur (svartur og blár) og varablýantur chataigne 12 Terr- acotta varalitur no 8 13 Samsara ilmvatn. Helgarferð fil Amsterdam 1 naglalakk no 5 2 varalitur no 18 3 vatnsheldur maskari 4 augn skuggi no 4 5 augnhreinsir 6 varablýantur no 4 7 varalitur no 11 8 hreinsigel fyrir andlit 9 brúnn augabrúnablýantur 10 dagkrem 11 mattur andlitsfarði no 1 12 púður no 5 13 púðurkvasti. © Sólarferð tíl Kanarí 1 kölnarvatn frá Clarins 2 líkamssprey 3 dag- krem fyrír allar húðtýpur í túpu eða dós (vörn gegn sól fyrir viðkvæm svæði) 4 sólarvarnar- krem (vörn 6 til 8 gefur fallega brúnku) 5 rakakrem (eftir sólböð) 6 gullkrem (gefur bronsblæ ofan á sólarvarnarkrem). 1 14 ^--Vg. EINTAK NÖVE-MBER