eikann Okkur var sagt frá því í sumar hvað amað hefði okkur undanfarín 65 milljón ár. Við vorum að bíða eftir risaeðlunum sem við söknuðum svo mjög. Það urðu reyndar ekkí fagnaðarfundir hjá öllum þegar þær svo loks létu sjá sig, en það var þó huggun harmi gegn að þær átu helst þá verst innrættu og óskemmtilegustu. Nú hafa framleiðendur Cointreau-líkjörsins fundið ráð til stytta biðina eftir næsta skammti frá Steven Spielberg og félögum með því að kynna nýjan kokkteil - risaeðlu- kokkteil. Og þeir segja að við höfum verið að bíða eftir honum undanfarín 65 mílljón ár - án bess að átta okkur á því. Og ef þið viljið vita hvers þið hafið farið á mis skuluð þið taka kokkteilhrist- ara og láta í hann 3 sentilítra af Cointreau, 3 sentilítra af Tequila og 4 sentilítra af ap pelsínusafa, ásamt mikl- um klaka og hrísta dug- lega. Hellið úr hristaranum í hátt glas og látið slettu af grenadine út í. Skreytið með lime. Án efa munu líða 65 milljón ára áður en þíð bragðið annað eíns. N Ó V E M