Eintak

Tölublað

Eintak - 25.08.1994, Blaðsíða 8

Eintak - 25.08.1994, Blaðsíða 8
Allir eru að tala um sjónvarpspredikarann Benny Hinn og samkomu hans í Kaplakrika á sunnudaginn. Hinn breytti ekki vatni í vín og gekk ekki á vatni en vakti engu að síður mikla athygli. Loftur Auj Eiríksson talaði við, galdrakarl og prest, trúaða og vantrúaða, og þá sem urðu fyrir kraftaverkunum. Hér reifa þeir skoðanir sínar og reynslu af honum. Sjónvarpspredikarinn Benny Hinn er floginn heim til Texas en þjóðin situr eftir í forundran yfír samkomunni sem hann hélt í Kaplakrika á sunnudagskvöldið. Fólk skiptist í tvo hópa í afstöðu sinni til predikarans. Annar þeirra segir hann boðbera Drottins og vitnar um kraftaverk sem hann hafi meðal annars framkvæmt hér á landi en efasemdarmenn um ágæti hans eru þó sennilega fleiri. Andmælendur Benny Hinn segja að samkoma hans hafi einkennst af múgsefjun á hæsta stigi og telja hann af svipuðu sauðahúsi og sjón- varpspredikararnir Jim Bakker og Jimmy Swaggart sem báðir féllu af stalli sínum fyrir að fara að baki lögum. EINTAK leitaði til nokkurra kraftaverkasérfræðinga og einstak- linga sem segjast hafa upplifað kraftaverk á samkomunni og lækn- ast af ýmsum kvillum. Flestir eru þó með þann fyrirvara að þeir hafa ekki fengið þau staðfest af læknum enda einungis nokkrir dagar frá því samkoman var haldin. Eftir um það bil mánuð má vænta að sýnt verði frá samkomunni á Omega en Benny Hinn er þar fastur dagskrár- fiður kl. 20.30 á kvöldin. Guðmundur Jónsson frelsaðist fyrir nokkrum árum og fylgist reglulega með Benny Hinn í sjón- varpinu. Hann segir að áhrifanna frá krafti hans gæti ekki síður heima í stofu. „Við hjónin vorum að horfa á samkomu með Benny Hinn á Om- ega fyrir viku síðan eins og við ger- um oft,“ segir hann. „I einni lof- gjörðinni fylltumst við krafti Guðs og konan mín segir: „Það vildi ég að Solla systurdóttir mín væri hér eða kæmi á samkomuna því ég veit að hún myndi læknast." Soila er 15 ára gömul og hún hefur verið með mígreni og mikla verki í baki um árabil. Konan mín þekkir þetta því hún læknaðist sjálf af svipuðum mígreniköstum í Veginum sem er kristilegt samfélag í Kópavogi. Ég fer í símann og hringi í Sollu á Raufarhöfn og býð henni suður. Við förum á samkomuna hjá Benny Hinn og um leið og hann segir að það sé manneskja hægra megin í salnum að læknast af mí- greni fýlltist hún krafti Guðs, mikill skjálfti fór um hana og hún er læknuð. Solla var búin að leita lækninga að ráðum móður sinnar hjá hómópötum og fleirum og þeir hafa náð að nudda eitthvað bakið á henni nema einn ákveðinn blett í bakinu. Mígrenið og bakverkirnir hurfu sem sagt á samkomunni. Við hjónin vorum búin að fá orð frá Guði og vissum að þetta myndi gerast." Halldór Gröndal prestur „Það er visst tregðulögmál í gömlu kirkjunum. Ekki bara lút- ersku kirkjunni á íslandi heldur öllum gömlum kirkjum. Það sem fyrir er fer alltaf í varnar- stöðu þegar eitthvað nýtt og róttækt skýtur upp kollinum. “ Systurnar læknuðust „Ég fékk líka þekkingarorð til Grétu Maríu Víkingsdóttur sem er með okkur í bænahópi,“ segir Guðmundur. „Þetta gerðist þegar hópurinn kom saman fyrir stuttu. Þá opnaðist eitthvað fyrir eyrað á henni og hún fékk suð og svona. Á ■samkomu Benny Hinns varð hún síðan alheil.“ Sólveig Haraldsdóttir, Solla, staðfesti vitnisburð Guðmundar og var himinlifandi yfir breyttu heilsu- fari sínu. Gréta María var hins veg- ar ekki tilbúin til að fullyrða að hún hafi upplifað kraftaverk og vildi bíða eftir úrskurði lækna varðandi heilsufar sitt. Gréta þjáist af eyrna- bólgu en engir verkir eru henni samfara og því erfitt að vitna um beina lækningu. Engu að síður sagði hún að líðan sín væri betri en fyrir samkomuna. „Mér fannst ég léttast heilmikið inn i eyrunum eða þannig,“ segir hún. Yngri systir Grétu Maríu sem ekki vill láta nafns síns getið varð líka fyrir einhvers konar áhrifum á samkomunni. „Ég hef verið með bakverki frá því ég var átta ára og oft leitað lækninga við þeim hjá Iæknum en þeir hafa ekkert getað gert fyrir mig því þeir sjá ekki hvað er að,“ segir hún. „Þótt ég sé trúuð var ég á báð- um áttum þegar ég fór inn í salinn og átti alls ekki von á þessu. Þegar Benny Hinn kallaði þá niður sem vildu frelsast fór ég með hópnum og var skíthrædd án þess að vita af hverju. Ég fann fyrir verknum á samkomunni því við stóðum með hendurnar upp í loftið en þegar ég gekk þaðan út var hann farinn og hef ekki fundið fyrir verknum síð- an. Það var ekkert sérstakt sem gaf mér til kynna að verkurinn væri horfinn. Hann bara hvarf." Guðmundur segist ekki skilja hugsanagang þeirra sem halda því fram að Benny Hinn sé falsspámað- ur því það hafi kostað hann millj- ónir að koma til Islands. „í sambandi við lækningarnar má segja að Benny Hinn gæti nuddað skallann á fjölda fólks án þess að nokkuð gerðist í hans eigin mætti,“ segir Guðmundur. „Fólkið úti í sal læknast undir predikun fyr- ir mátt Guðs. Það fer upp á sviðið til að vitna um þessa lækningu. Ef það hefur ekki fundið kraftinn þýð- ir kannski lítið fýrir það að koma upp á sviðið. I Mogganum var sagt að fólk sem ekki fékk lækningu hafi verið laumað niður af sviðinu. Fólk sem er frelsað veit að það þýðir lítið að koma upp ef Guð hefur ekki snert við því undir predikuninni. Sjáðu hvað hann gerði við eina konu sem sat úti í sal. Hún hafði ekki burði í sér til að koma upp en hún er trúuð. Guð gaf Benny Hinn þau skilaboð að fara til hennar og hann tók af henni stafinn og hjálp- aði henni að byrja að ganga í trú. Þessi kona sem er nálægt áttræðu var búin að vera sjúklingur frá átta ára aldri. Svo geta aðrir komið upp í göngugrindum eða með hækjur og Benny horfir á þetta fólk en fær engin skilaboð um að þetta fólk sé að læknast. Hann sagði réttilega að við skiljum ekki alltaf út af hverju sumir læknast og aðrir ekki og ætl- aði að spyrja Guð að þessu þegar hann kæmi heim. Fólki var ekki laumað niður af sviðinu. Við þekkjum hvernig Benny Hinn starfar og hann er kominn með aðra smurningu og farinn að sækja fólk úti í sal. Og ég er viss um að margir hafi læknast í salnum án þess að koma upp á sviðið.“ Falskristur og falsspámenn Kraftaverkalækningar hafa að mestu verið orðaðar við sértrúar- söfnuði en þeir eru ekki allir jafn ásáttir um ágæti Benny Hinn. Guð- mundur H. Guðmundsson for- stöðumaður Islandsdeildar votta Jehóva efast um að hann gangi á Guðs vegum. „Við teljum þetta ekki byggt á trúarlegum grunni heldur með æsi- aðferðum og oftast er peninga- plokk með í spilinu,“ segir hann. „Síðan koma „kraftaverkin" og ef þau mistakast er útskýringin sú að menn hafi ekki nógu sterka trú. Þessar lækningar sem eiga að hafa átt sér stað, og við teljum ekki vera neinar lækningar, eru oft eitthvað sem gerist í hrifningu og eru ekki varanlegt. Það er til þekkt dæmi um tvo menn sem voru að lækna sjón- lausa og þeir sögðu fólkinu að kasta gleraugum sínum upp á sviðið og leyfa þeim að traðka og brjóta þau. Það var múgur rnanns sem gerði þetta og fékk náttúrlega enga bót.“ Guðmundur segist ekki eiga von á að það fólk sem telur sig hafa hlotið lækningu sé að ljúga. „Yfir- leitt eru þetta verkir sem hverfa. Það byggist oft á tilfinningu og fólk heldur að því líði eitthvað betur,“ segir hann. Guðmundur vill ekki fullyrða neitt beint um Benny Hinn en segir að þau „kraftaverk“ sjónvarpspred- ikara sem gengið hafi verið eftir og rannsökuð, standist yfirleitt ekki og vitnar í Biblíuna til útskýringar. „I Matteusarguðspjalli 24:24 segir: „Þá munu rísa upp falskristur og fals- spámenn og þeir rnunu gera stór tákn og undur til að leiða menn í villu, jafnvel ef verða mætti út- valda. Sjá ég hef sagt yður það fyr- ir.“ Guðmundur er viss um „að menn sem hafa verið uppvísir að alls kyns svikum og braski, eins og margir þessara sjónvarpspredikara, séu ekki talsmenn Guðs,“ eins og hann orðar það. „Þetta peninga- kerfi sem er í kringum þessa menn tengist heldur örugglega ekki trúnni á alvaldan kærleiksríkan Guð,“ bætir hann við. „Við teljum að raunveruleg kraftaverk sem ger- ast, og þau eru mörg, gerist ekki á svona hópsamkomum,“ segir Guð- mundur. „Kraftaverk Guðs eru ekki gerð með lúðrablæstri, auglýs- ingum, íjárplokki og öðru slíku." Hallgrímur Magnússon læknir „Fólk á tímum Krists sem trúði og snerti klæði hans fékk það sem kallað er lífsorka, eða næga orku til að lækna eigin líkama. Ef ég tek gróft dæmi þá erþetta nákvæmlega sama og gerist þegar maður borðar lyf til að hafa áhrif á sjúkdóma. “ Kristján Gissurarson finnst of fljótt að fullyrða nokkuð um eigin heilbrigði eða tengdamóður sinnar, en þau voru bæði gestir samkom- unnar, og vill bíða eftir vottorði lækna þar að lútandi. „Ég finn samt mikinn mun á mér,“ segir hann. „Ég er hættur á hjartalyfjum sem ég var á vegna of hás kolesterols. Mér líður miklu betur en bíð eftir hvað læknarnir segja. Tengdamóðir mín fór með mér á samkomuna og sagðist hún aldrei hafa upplifað annað eins. Hún er með asma og eftir samkom- una labbaði hún upp þrjár hæðir eins og ekkert væri en áður átti hún í mestu erfiðleikum með að komast 8 FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.