Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Blaðsíða 1
Laugardagur 5.2. | 2005 [ ]Minniskompa janúar | Ég kom til Íslands til að fá tilfinningu fyrir landslaginu | 4–5Hvað ef? | Hvernig hefði farið ef bandaríska byltingin hefði ekki orðið? | 8–9Heyrt að handan | Howard Hughes og Alexander mikli eiga tal saman hinum megin | 12 LesbókMorgunblaðsins 80ára19252005 Þ etta er í fjórða sinn sem Þórður Ben vekur athygli á sérstæðum hugmyndum sínum um skipulag Vatns- mýrarinnar, en 1982 lagði hann allan vestursal Kjar- valsstaða undir áætlun sína um nýja miðborg með óvenjulegum húsum úr hlöðnum steini og gleri, og ylstrætum, sem tryggja áttu borg- arbúum jafnaðarveðráttu á við þá sem oftast nær ríkir sunnar í álfunni. Eitt af því merki- legasta við þá skipulagssýningu, í raunhæfum skilningi, var sú uppástunga hans að hafa brú yfir Skerjafjörðinn og tengja þannig Naut- hólsvíkina við Kársnesið svo hægt væri að mynda eðlilega hringrás um kjarna höfuð- borgarsvæðisins. Þannig gekk hann í berhögg við þá nauðhyggju sem dæmdi Reykjavík til að vaxa einvörðungu frá vestri til austurs eins og langan orm, aðþrengdan og skilyrtan af flug- vellinum. Garðhús og ylstræti Fæstir muna að Þórður var enn á ferðinni á Kjarvalsstöðum, tveim árum síðar, á þeirri ágætu sýningu Listahátíðar, 1984, sem nefnd- ist 10 gestir, og var helguð tug íslenskra lista- manna sem bjuggu erlendis. Þar sýndi hann stórar teikningar af garðhúsum þeim og yl- strætum, frá 1980, sem verið höfðu uppistaðan í fyrstu sýningunni en jafnframt hafði hann bætt við nokkrum nýrri verkum. Garðhúsin sá hann fyrir sér sem tvílyft fjölbýlishús sem kæmu í stað blokka og væru fyllilega sam- keppnisfær við þær. Enginn kjallari var fyr- irhugaður í þessum húsum Þórðar, enginn stigagangur og engar lyftur, sem dró úr grunnkostnaði þeirra. Húsgrindin sjálf átti að vera stöðluð en ytra byrðið klætt sérkennum landsins, hlöðnu náttúrugrjóti og pressuðum, brenndum steini með sytrandi vatni niður veggi. Þannig voru garðhúsin nær viðhaldsfrí því ekki þarf að mála þau. Í stað græna svæðisins umhverfis blokk- irnar, með sínu takmarkaða nýtingargildi, sá Þórður fyrir sér fagran skrúðgarð umhverfis húsin og glerhvolf í stað þaks, undir hverju væri innigarður. Hann fullyrti að þau hefðu sem raðhús sama þéttleik og blokkarhverfi upp á þrjár til fjórar hæðir. Þó var hann ekki alls kostar afhuga blokkum því ylstrætin væru götur með blokkum hvoru megin, tengdum með hálftunnulöguðu glerhvolfi. Þar sem blokkirnar voru skáhallandi eins og hálfgerðir pýramíðar mátti hafa garða víðsvegar í aflíð- andi stöllum þeirra. Stígar, garðflatir, gos- brunnar og trjágróður áttu að umvefja versl- anir, verkstæði, fyrirtæki og stofnanir en íbúðir áttu að vera á efri hæðum. Á mótum yl- strætanna áttu að vera torg, ýmist einföld og björt, eða prýdd vatnslækjum eða klettum. Auðvelt átti að vera að komast undir ylstrætin til að gera við lagnir. Til höfuðs hagnýtisstefnunni Tveim árum síðar var Þórður enn á ferðinni, á Listahátíð 1986, með framhaldssýningu í Hlaðvarpanum. Frá upphafi var ljóst að stíll- inn sem einkenndi byggingar hans var all- flúraður; eins konar nýstíll; Jugend eða Art Nouveau; sem einkenndi alþjóðlegan arkitekt- úr áratugina fyrir og eftir aldamótin 1900. Það er þetta einkenni sem gagnrýnendur Þórðar staldra við þegar þeir draga raunhæfni skipu- lagshugmynda hans í efa. Þeim finnst orka tví- mælis að hægt sé að endurvekja liðna stílteg- und. Í fyrstu sór Þórður af sér þörfina fyrir afturhvarf til eldri stíltegunda, en núna, nær tuttugu árum síðar, hefur hann sagt hagnýt- isstefnunni – fúnksjónalismanum – stríð á hendur fyrir að hún skuli hafa gengið af hefð- inni dauðri með afgerandi hætti, ekki einasta evrópskri hefð heldur hefð allra annarra menningarsvæða. Á Netinu birtir hann yfir tuttugu blaðsíðna yfirlýsingu sem fylgiskjal með Borg náttúrunnar. Þórði Ben er greinilega mikið niðri fyrir og ástæðan er einkum sú að hann telur Reykjavík vera komna allnærri óafturkræfu skipulags- slysi. Þar er hann ekki að fjalla um eitt eða tvö atriði í lagfæringu helstu umferðaræða heldur alla umgjörðina eins og hún leggur sig. Hann telur reyndar að heimsbyggðin öll verði að sporna við stöðugri útþenslu borga og umferð- ar, en einhliða áherslu hagnýtisstefnunnar á nauðsyn bílsins telur Þórður vera draum mód- ernismans um að yfirvinna náttúruna í krafti tækni og vísinda, í staðinn fyrir að laga sig að henni. Hann telur manninn vera að súpa seyð- ið af endalausum tilraunum sínum til að hefja sig upp yfir náttúruna. Hvað sem segja má um einstök útfærslu- atriði í skipulagshugmyndum hans þá lætur Þórður brýnt málefni til sín taka með eft- irminnilegum hætti. Hann bendir okkur á and- varaleysið sem einkennir almenna um- ræðu um okkar nánasta umhverfi með þeim afleiðingum að æ erfiðara reynist  3 Er borginni við bjargandi? Fram til loka febrúar verður hægt að sjá sýningu Þórðar Ben Sveinssonar, Borg náttúrunnar, í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þar setur hann fram hugmyndir sínar um nýstárlegan miðborgarkjarna í Vatnsmýrinni, þar sem Reykjavíkurflugvöllur breiðir nú úr sér og skilur milli Skerjafjarðar og núverandi miðborgar Reykjavíkur. Sunnudaginn 6. febrúar verður svo haldið málþing eftir hádegi í Hafnarhúsinu undir heitinu Borgin – Minnisvarði menningar. Þar verður fjallað um borgina og skipulag hennar út frá menningarlegu sjónarmiði og stendur Reykjavíkurakademían að þinginu ásamt safninu. Eftir Halldór Björn Runólfsson | hbr@simnet.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.