Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2005 B 3 UMF. Einherji knattspyrnudeild auglýsir eftir spilandi þjálfara fyrir mfl. karla á komandi keppnistímabili eða sumarið 2005. Félagið hefur tekið þátt í Íslandsmóti KSÍ síðastliðin 2 ár og spilað í 3. deild Austfjarðariðils. Einnig vantar okkur strax þjálfara fyrir yngri flokka félagsins. Áhugasamir hafi samband við Björn Heiðar í síma 899 5748 (bjornheidar@simnet.is) eða Einar Björn í síma 898 7944 (ebkr@simnet.is). „VIÐ ætlum okkur annað af tveimur efstu sætunum í riðlinum. Með því komumst við áfram og við erum auð- vitað í þessu til þess að ná árangri,“ sagði Erlendur Ís- feld, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik, en einn riðill í Áskorendakeppni Evrópu verður leikinn í Ásgarði í Garðabæ um helgina og hefst reyndar í kvöld. Fjögur lið eru í riðlinum, Spono Nottwill Handball frá Sviss, Eskisehir Osmangazi frá Tyrklandi og APS Makedonikos frá Saloniki í Grikklandi auk Stjörnunn- ar. Garðbæingar hefja leikinn í dag klukkan 19.30 gegn svissneska liðinu. „Við fengum myndbandsspólu með leik svissneksa liðsins og höfum kynnt okkur leik þess eins og kostur er. En um leik hinna liðanna vitum við minna. Við sjáum þau þó mætast í fyrstu umferðinni þannig að við ættum að vita nokkuð að hverju við göngum þegar við leikum við þau,“ sagði Erlendur Ísfeld, en Stjarnan mætir tyrkneska liðinu á laugardaginn klukkan 16.30 og því gríska klukkan 16.15 á sunnudaginn. Öll liðin þrjú sem koma hingað til lands voru með í keppninni í fyrra og þá mættust meðal annars tyrk- neska liðið og það svissneska og hafði svissneska liði betur. „Svona fyrirfram þá á ég von á að við og Sviss- lendingar berjumst um efsta sætið, en annars veit mað- ur auðvitað aldrei. Tyrkneska liðið gæti verið nokkuð sterkt því það er atvinnumannalið og í því leika tvær stúlkur sem eru í landsliðinu auk þess sem þar eru ein- hverjar austantjaldskonur. Ég á því frekar von á að þar fari nokkuð sterkt lið,“ sagði Erlendur Ísfeld. Stjörnukonur hafa æft vel að undanförnu, tvisvar á dag yfir allar hátíðirnar og eru vel undirbúnar. „Loks- ins er ég með fullskipað lið og allar heilar nema Rakel Dögg Bragadóttir, sem sleit krossband í haust. Við höf- um verið með nokkrar stúlkur meiddar í vetur en nú eru allar heilar og við höfum æft mjög vel og teljum það því þokkalega raunhæft markmið að komast áfram í keppninni. Það þýðir altént ekkert annað en setja markið á það enda erum við í keppninni til að ná ár- angri,“ sagði Erlendur Ísfeld. Stjörnuliðið í handknattleik ætlar sér áfram í Áskorendakeppni Evrópu jólafrí og réðu gangi leiksins framan af, Keflvíkingar voru á hælunum og virtust ekki vera í neinum takt við þennan leik. Tindastólsmenn spiluðu góða vörn og voru mjög skipulagðir í sókninni. Það var ekki fyrr en í byrjun annars leikhluta sem Keflvíkingar tóku við sér skoruðu þeir á fyrstu þremur mín- útunum 14 stig gegn aðeins þremur og voru komnir með forystu, 33:22. Á þessum tímapunkti fóru Tindastóls- menn að leika hraðari sóknarleik ásamt því að spila slaka svæðisvörn og virtist þetta allt henta Keflvíkingum betur og gengu þeir til leikhlés með tíu stiga forystu, 43:33. Í seinni hálfleik byrjuðu Tindastóls- menn betur og minnkuðu þeir muninn í sex stig, 57:51, og virtist allt stefna í hörkuleik. Brugðu Keflvíkingar á það ráð að taka leikhlé og skipuleggja sig betur, eftir þetta leikhlé tóku Keflvík- ingar heldur betur við sér og voru fljótlega komnir með 18 stiga forskot. „Það er alltaf erfitt að koma hingað í „sláturhúsið“ í Keflavík. Leikurinn byrjaði ágætlega hjá okkur en þegar á leikinn leið sá maður að okkur vantaði stóran mann gegn þeim og þeir nýttu sér það vel og uppskáru góðan sigur hér í kvöld,“ sagði Kári Marisson, þjálfari Tindastóls, en tveir erlendir leikmenn fóru fyrir áramót og er eftir að fylla í skörð þeirra. Byrd í fyrsta sinn og hann skilaði sínu undir körfunni. Reyndar er nokkuð þungt í honum pundið en hins vegar virðist hann kunna góð skil á körfu- knattleiknum og fellur ágætlega inn í leik liðsins. Ragnar Steinsson var bestur hjá Skallagrími og Jovan Zdravevski var einnig drjúgur. Heimamenn voru einhverra hluta vegna heillum horfnir í síðari hálfleik eftir ágætan fyrri hálfleik. Lykilmenn eins og Dixon og Eiríkur Önundarson höfðu þá frekar hægt um sig og kannski var það meginástæðan. Góður andi er hins vegar hjá ÍR-ingum og barátta ungu leikmannanna er til fyr- irmyndar. Þeir eru líklegir til þess að láta til sín taka er á líður. Vængbrotið lið Tindastóls Keflvíkingar halda sínu striki eftirsigur gegn Tindastól og var sigur heimamanna mjög sannfærandi og örugg- ur, lokatölur 97:81 en Keflavík var yfir í hálf- leik, 43:33. Leikmenn Tindastóls mættu ferskir til leiks eftir Morgunblaðið/Þorkell son frá Ósi í baráttunni við Jovan Zdravevski og George Byrd. igla hjá llagrími urorð af ÍR, 89:69, er liðin mættust í sportdeildinni, í Seljaskóla í gær- óðu róli í deildinni með 16 stig en æti, sæti neðar en Skallagrímur. Ís- erfiðleikum með vængbrotið lið :81. Davíð Páll Viðarsson skrifar  PETER Reid var í gær leystur frá ströfum knattspyrnustjóra hjá enska 1. deildarliðinu Coventry eftir fjóra tapleiki í röð. Coventry er nú í 20. sæti af 24 liðum í deildinni.  BIRMINGHAM hefur sagt upp leigusamningi sínum við finnska sóknarmanninn Mikael Forssell. Hefur hann að nýju haldið í herbúðir Chelsea þar sem hann verður í end- urhæfingu vegna meiðsla í hné. Ljóst er að Forssell leikur ekki meira á þessari leiktíð og því sagði Brimingham upp samningnum.  DMITRI Bulykin, sóknarmaður hjá Dinamo Moskvu, á í viðræðum við Crystal Palace um að ganga til liðs við félagið á næstunni. Bulykin fór ekki með samherjum sínum í æf- ingaferð til Tyrklands vegna þessa. Bulykin hefur verið undir smásjánni hjá Bolton um tíma en einnig var hann í hálfan mánuð við æfingar hjá Everton í byrjun síðasta árs án þess að samningar næðust.  JOHN Hartson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Celtic, en núverandi samningur hans við félagið rennur út í sumar. Hart- son stóð einnig til boða að fara til enskra úrvalsdeildarliða og Herthu Berlín en ákvað að vera áfram í Skotlandi hvar honum hefur líkað vel vistin síðustu þrjú ár allt frá því hann var seldur frá Coventry.  IGOR Biscan hefur greint stjórn- endum Liverpool frá að hann vilji vera áfram hjá félaginu og aðstoða það nú þegar mikið er um meiðsli í herbúðum þess. Biscan hefur þrá- faldlega verið orðaður við önnur lið í ensku úrvalsdeildinni, þar á meðal Southampton.  MICHAELA Dorfmeister, frá Austurríki, vann brun kvenna í heimsbikarkeppninni á skíðum í gær þegar keppendur reyndu með sér í Santa Caterina Valfurva á Ítalíu. Nærri tvö ár eru liðin síðan hún hrósaði sigri síðast í brunkeppni heimsbikarsins. Dorfmeister var 1.41,66 mínútur af fara niður hina tæplega 2,6 km löngu braut. Önnur varð Lindsey Kildow, frá Bandaríkj- unum og þriðja sætið kom í hlut Hilde Gerg, Þýskalandi. FÓLK Heimamenn voru örlítið betri tilað byrja með og sigu framúr, þar sem Jón Ólafur Jónsson skoraði 9 af fyrstu 14 stigum KR á tæpum 7 mín- útum en nældi sér líka í 3 villur og sett- ist á bekkinn. Þegar gestirnir virtust vera að taka við sér gaf nýr leikmaður KR, Aaron Harp- er, háa sendingu upp fyrir körfu gestanna þar sem Cameron Echols tók boltann og tróð með tilþrifum. Það dugði að kveikja neistann á ný en samt ekki til að hrista leikmenn Hamars/Selfoss af sér og þegar 6 mínútur voru liðnar af öðrum leik- hluta munaði einu stigi, 33:32. Í þriðja leikhluta gekk KR allt í hag- inn en allt á afturfótunum hjá leik- mönnum Hamars/Selfoss, sem skor- uðu 3 stig á 5 mínútna kafla og fylgdust áhugalitlir með KR ná 60:47 forystu. Þá vaknaði upp gamall draugur þegar KR-ingar töldu stigin í höfn og biðu eftir að leiknum lyki. Af því varð ekki og þess í stað brettu gestirnir upp ermarnar, hófu að saxa á forskotið þar til þeir jafna 82:82 þegar 1,45 mínúta var eftir. Þjálfari KR tók þá leikhlé en allt kom fyrir ekki, enn var jafnt 85:85 en síðustu stigin voru KR-inga. „Við höfum átt það til að hiksta eftir að ná tíu stiga forskoti, hefur þá vantað kjarkinn og ekki haft „dráps- eðli“ til að gera út um leikinn. Von- andi er það komið núna,“ sagði KR- ingurinn Jón Ólafur eftir leikinn. „Þetta var kærkominn sigur því við vorum mjög svekktir með frammi- stöðu okkar fyrir áramót og ætlum að byrja uppá nýtt, þetta var góð byrjun.“ Jón Ólafur skoraði úr 5 af 8 skotum, tveimur af þremur þriggja, öllum fjórum vítaskotum sínum og tók 5 fráköst. Cameron Echols var samt atkvæðamestur með 17 fráköst og 29 stig en Harper skoraði úr 4 af 11 skotum í teignum, 4 af 7 þriggja stiga, tók tvö fráköst en gaf 5 stoð- sendingar á 35 mínútum. „Við gáfumst aldrei upp en KR- ingar áttu góðan leik, tóku erfið skot í lokin og unnu leikinn,“ sagði Pétur Ingvarsson leikmaður og þjálfari Hamars/Selfoss. „Það er lítið hægt að gera við því, þetta er þeirra heimavöllur en við sýndum styrk með því að komast inn í leikinn og vonandi höldum við áfram að berjast á fullu því þá eigum við ágæta mögu- leika á að bjarga okkur frá falli.“ Mest bar á Chris Woods með 8 frá- köst og Damon Bailey með níu. Ekkert stöðvar Snæfell Snæfell lagði Grindavík í Stykk-ishólmi í gærkvöldi, 94:78. Það var ekki að sjá leikmönnum í upphafi leiks að jólasteikin stæði í þeim, mikill hraði og góð hittni einkenndi fyrstu mínúturnar í leikn- um. Bæði lið tefldu fram nýjum er- lendum leikmönnum, Grindavík bak- verðinum Taron Barker og Snæfell Mike Ames bakverði og Calvin Clemmons miðherja. Var að sjá eftir þennan leik að Snæfell hafi verið ágætlega heppið í skiptum á erlendu leikmönnunum í þetta sinn. Snæfelli skilaði nokkuð öruggum sigri í höfn. Snæfell er enn ósigrað á heimavelli á þessu leiktímabili og nokkuð ljóst að það verður erfitt fyr- ir önnur lið deildarinnar að koma í Hólminn og sækja stig í vetur. Í liði Snæfells lék heildin mjög vel, nýju erlendu leikmennirnir lofuðu góðu fyrir framhaldið og virðast falla vel inn í leikmannahópinn. Sigurður Á. Þorvaldsson lék einna best, mjög ógnandi í sókninni bæði með þriggja stiga skotum og einnig undir körf- unni. Mike Ames er góð skytta og mjög duglegur varnarmaður. Pálmi Freyr Sigurgeirsson var að leika einn sinn besta leik fyrir Snæfell í vetur. Calvin Clemmons hinn nýi er- lendi leikmaður er mjög öflugur lík- amlega, stór og sterkur, en vantar greinilega að komast í betri leikæf- ingu. Hjá Grindavík var Darrel Lew- is mjög góður og virðist njóta sín mjög vel með nýja leikmanninum Taron Barker, því nú þarf hann ekki að bera eins mikla ábyrgð á því að koma upp með boltann. KR sýndi styrk sinn MEÐ viðbragði á síðustu mínútu tókst KR-ingum að tryggja sér sigur á Hamri/Selfossi þegar liðin mættust í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Intersportdeildinni, í gærkvöldi. Þeir héldu góðri forystu lengi vel, en flutu sofandi að feigðarósi síðustu mín- úturnar þar til þeir rönkuðu við sér, skoruðu fjögur síðustu stigin og unnu 89:85. Stefán Stefánsson skrifar Ríkharður Hrafnkelsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.