Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 00 4 0 1/ 20 05 *Innifalið: Flug, flugvallarskattar og eldsneytisgjald Verð frá 36.900kr.* Netsmellur til USA Bandaríkjaferðir á frábæru verði Bókaðu á www.icelandair.is TVEIR menn slösuðust við meðferð flugelda í fyrrakvöld í aðskildum til- vikum, og misstu þeir báðir fingur. Maður á miðjum aldri slasaðist mik- ið af völdum sprengingar í einhvers konar flugeldi við þrettándabrennu á Ásvöllum í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu missti maðurinn fingur, heyrn skaddaðist verulega og hann meiddist á báðum augum. Lögregla og sjúkrabíll voru kölluð á vettvang rétt fyrir kl. 20, og var maðurinn fluttur á bráðamóttöku Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Tildrög óhappsins eru til rannsóknar hjá lögreglu. Maður milli þrítugs og fertugs slasaðist einnig alvarlega á hendi þegar hann var að meðhöndla flug- elda í Borgarfirði Eystri, og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Hann var svo fluttur með flugi til Reykja- víkur í gær, en ekki tókst að bjarga einum af fingrum hans og þurfti að nema hluta hans af. Tveir misstu fing- ur vegna flugelda HREINN Benedikts- son, prófessor í mál- fræði, lést á hjúkrun- arheimilinu Skógarbæ í Reykja- vík aðfaranótt 7. jan- úar síðastliðinn, 76 ára að aldri. Hreinn fæddist í Stöð í Stöðv- arfirði í Suður-Múla- sýslu, sonur hjónanna Fríðu Hallgrímsdótt- ur Austmann hús- móður og Benedikts Guttormssonar bankafulltrúa. Hreinn eignaðist einn son með Sigríði Kristjánsdóttur, Egil Benedikt prófessor. Hreinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1946, og MA prófi í samanburðarmál- fræði frá Óslóarháskóla 1954. Hann lauk doktorsprófi í málvísindum frá Harvard-háskóla árið 1958 og stund- aði frekara nám og námskeið í háskól- um í Þýskalandi og í Bandaríkjunum á starfsferlinum. Hreinn var stundakennari við Menntaskólann á Akureyri á árunum 1946–47, og lektor í íslensku við Björgvinjar- og Óslóarhá- skóla 1954–55. Hann var prófessor í íslenskri mál- fræði við Háskóla Íslands frá 1958, og var á ferli sín- um gistiprófessor í há- skólum í Bandaríkjunum og Þýskalandi. Hann var ritstjóri Ís- lenskrar tungu 1–6 á ár- unum 1959–65, og hefur verið í ritnefnd ýmissa er- lendra fræðirita. Hreinn var forseti heimspeki- deildar HÍ 1963–65, og gekkst fyrir fyrstu al- þjóðaráðstefnunni um norræn og almenn málvísindi sem haldin var hér á landi, og hafa slíkar ráðstefnur verið haldnar reglulega síðan. Hreinn sat í stjórnarnefnd Hand- ritastofnunar Íslands 1962–70, í stjórn Orðabókar háskólans 1966–83, og stjórn hugvísindadeildar Vísinda- sjóðs 1966–70 og aftur 1982–86. Hann var forstöðumaður Rannsóknarstofn- unar í norrænum málvísindum 1972– 74, og var einn af stofnendum Nor- ræna málfræðingafélagsins 1976 og varaforseti félagsins frá 1976–81. Andlát HREINN BENEDIKTSSON HÆTTA vegna snjóflóða er liðin hjá í bili í Bolungarvík og tók al- mannavarnanefnd staðarins ákvörðun um að aflétta hættu- ástandi um hádegi í gær. Einar Pétursson, varaformaður almannavarnanefndar Bolung- arvíkur, segir að snjór í fjallinu Traðarhyrnu ofan við bæinn sé far- inn að bindast. Því sé ekki talin hætta á snjóflóðum úr fjallinu í bili. Hættuástandi hefur verið aflétt FARÞEGAFLUGVÉL frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways á leið til lendingar á Reykjavíkurflugvelli var snúið við til Færeyja í gær vegna vandamála sem upp komu í stýr- isbúnaði. Vélin lenti giftusamlega í Færeyjum rétt fyrir kl. 18 í gær. Að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa flugmála- stjórnar, var talið að vandamálið í stýrisbúnaðinum hefði stafað af frosti og ákveðið hefði verið að snúa vélinni við, enda var hún nær Fær- eyjum en Íslandi. Vandamálin virt- ust komin í lag við lendingu , en ef svo hefði ekki verið hefði vélinni verið snúið til Aberdeen í Skotlandi þar sem aðstæður eru betri til lend- ingar. Flugvél snúið við vegna bilunar Einn mannanna þriggja er grunað- ur um að standa að skipulagðri starf- semi til að aðstoða útlendinga við að koma ólöglega til landsins eða til ann- ars ríkis. Hann kærði fyrri varðhalds- úrskurð til Hæstaréttar en tapaði. Maðurinn og tveir einstaklingar sem voru honum samferða kváðust vera sænskir ríkisborgarar á leið til Baltimore er þeir komu til landsins 29. desember sl. Við skoðun á vega- bréfum þeirra kom í ljós að vegabréf ÞRÍR einstaklingar sem komu til landsins á sænskum vegabréfum milli jóla og nýárs voru að kröfu sýslu- mannsins á Keflavíkurflugvelli úr- skurðaðir í áframhaldandi gæsluvarð- hald í gær til kl. 16 föstudaginn 14. janúar. Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður Héraðsdóms Reykjaness rann út í gær klukkan 16 en í þágu rannsóknar málsins féllst dómurinn á að fram- lengja varðhaldið um viku. eins þeirra var falsað og vegabréf annars var vegabréf annars manns. Vegabréf ætlaðs forsprakka virtist ófalsað. Ljósmyndir í farangrinum Í ljósi þess og að vegabréf hinna tveggja reyndust ekki í lagi og þeir voru samferða manninum sem grun- aður er um smygl á fólki var ákveðið að taka þremenningana til frekari skoðunar á landamærunum. Við þá skoðun fann lögregla ljósmyndir í far- angri ætlaðs forsprakka af réttum handhöfum vegabréfa samferða- manna hans. Upplýsingar úr bókunarkerfi Flug- leiða leiddu og í ljós að fólkið var bók- að af sama aðila og fyrir ferðir þeirra greitt með einu og sama kreditkort- inu. Þá kom einnig fram í bókunar- kerfum Flugleiða að forsprakkinn hefur áður ferðast í gegnum Ísland til Baltimore við annan mann, sem ekki skilaði sér til baka frá Bandaríkjun- um. Þá staðfesta upplýsingar frá landa- mæralögreglu í Svíþjóð að maðurinn hefur á sl. fimm mánuðum fengið út- gefin að minnsta kosti þrjú vegabréf og að hinn 27. júlí sl. var manni er bar vegabréf hans vísað frá Þýskalandi. Gæsluvarðhald fólks sem ferðaðist á sænskum vegabréfum framlengt Einn mannanna er grunaður um ólöglegt smygl á fólki milli landa „ÞAÐ er okkur hjá KB banka sér- stök ánægja að leggja Leikfélagi Reykjavíkur lið við uppsetningu þessarar metnaðarfullu sýningar,“ sagði Hreiðar Már Sigurðsson for- stjóri KB banka er hann og Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Borgarleik- hússins, undirrituðu í gær sam- starfssamning vegna leiksýning- arinnar Híbýli vindanna sem frumsýnd var í gærkvöldi. Guðjón sagði samninginn nýmæli og heið- ur fyrir leikhúsið sem hann líkti við orkustöð Reykjavíkur. Í ræðu sem Hreiðar Már hélt í tilefni undirskriftarinnar sem fram fór við hátíðlega athöfn rétt fyrir frumsýninguna í gær, sagði hann að með góðum vilja mætti kalla vesturferðirnar tískuhugtakinu „ís- lensk útrás“ í líkingu við þá sem að undanförnu hefur veri áberandi í viðskiptalífinu. „Útrás íslenskra fyrirtækja og fjármálastofnana er nefnilega á vissan hátt svar við ákveðinni stöðnun og kreppu sem einkennt hafði viðskiptalíf okkar um árabil. Munurinn er hins vegar sá að í út- rás nútímans verður vart sagt að menn leggi beinlínis líf sitt undir.“ Lífrænt samspil íslenskrar menningar og athafnalífs Hreiðar Már sagði þann atgerv- isflótta frá landinu sem vesturferð- irnar voru ekki þurfa að endurtaka sig „ef við stöndum saman um það sem íslenskt samfélag nærist á, en það er lífrænt samspil íslenskrar menningar og íslensk athafnalífs,“ sagði Hreiðar Már. „Einhver mik- ilvægasta lexía okkar síðustu miss- erin – og kannski sérstaklega okk- ar sem teljumst til viðskiptalífsins – er sú að hætta að líta á menningu og listir sem viðhengi á viðskipta- lífinu – styrkþega sem þurfi að gauka einhverju að öðru hverju svo allir séu sáttir. Okkur hefur lærst, ekki síst í samskiptum okkar við aðrar þjóðir, að orðspor okkar, sjálfstraust og dirfska, á allt sitt undir því að vera hluti af menning- arlegri heild. Vera hluti af þjóð sem á sterka listamenn og öflugar menningarstofnanir, sýnir frum- kvæði og hugmyndaauðgi á sem flestum sviðum og þorir að treysta sínu fólki. Það er aðeins með slíkan bakhjarl sem við náum árangri í hinum stóra heimi og höldum jafn- framt í okkar mesta atgervisfólk,“ sagði Hreiðar Már, forstjóri KB banka. KB banki og Leikfélag Reykjavíkur skrifa undir samstarfssamning í tengslum við Híbýli vindanna Vesturferðirnar voru íslensk útrás fyrri tíma Morgunblaðið/Golli Guðjón Pedersen, leikhússtjóri Borgarleikhússins, og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, handsala sam- starfssamning á Litla sviðinu í gærkvöldi. Samningurinn er í tengslum við sýningu leikhússins á Híbýlum vindanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.