Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.01.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2005 39 MINNINGAR Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR TRYGGVASON fyrrv. bóndi og organisti á Ytra-Hvarfi, varð bráðkvaddur á heimili sínu, Dalbæ, fimmtudaginn 6. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ GuðmundurHelgi Sigurðsson fæddist á Kirkjubóli í Fífustaðardal í Ketil- dalahreppi 24. maí 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Patreks- fjarðar 1. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Halldór Jónsson, f. 24.9. 1880, d. 1.5. 1947, og Jóna Mar- grét Jónsdóttir, f. 5.4. 1879, d. 17.11. 1917. Systkini hans voru Guðrún Árný, f. 21.6. 1908, Jónfríður Sumarlína Guðrún Enesa, f. 29.9. 1910, Guð- munda Ingveldur, f. 21.6. 1912, Sigríður Jóna Sabína, f. 4. 12. 1913, og Jón Marías, f. 3. 11. 1917. Þau eru öll látin. Hinn 14. nóvember 1939 kvænt- ist Guðmundur Ólafíu Sigurrós Einarsdóttur, f. 29. ágúst 1919, d. 29.7. 1997. Foreldrar hennar voru Einar Ebenezersson, f. 13.5. 1879, d. 1.7. 1952, og Guðríður Ásgeirs- dóttir, f. 20.1. 1883, d. 24.2. 1961. Guðmundur og Ólafía eignuðust sjö börn, þau eru: Sverrir, f. 13.5. 1939, d. 15.11. 1977, kvæntur El- ínu Magnúsdóttur, f. 29.9. 1941, Gretar Jón, f. 23.4. 1941, kvæntur Önnu Jónu Árna- dóttur, f. 31.1. 1947, Brynhildur Nanna, f. 29.6. 1944, gift Jóni Erni Gissurarsyni, f. 29.9. 1939, Guðríður, f. 11.9. 1946, gift Hrafni Guðmunds- syni, f. 28.5. 1946, Sigfríður María, f. 6.8. 1949, gift Birgi Ingólfssyni, f. 10.3. 1942, Bjarghildur Fanney, f. 23.1. 1955, og Arney Huld, f. 16.6. 1961, gift Jóhannesi Kon- ráði Jóhannessyni, f. 6.4. 1948. Barna- og barnabörnin nálgast nú sjötta tuginn. Guðmundur ólst upp í Ketildöl- um til 12 ára aldurs en fluttist þá með föður sínum að Innri-Litlu- hlíð á Barðaströnd. Þar hófu þau Ólafía sinn búskap 1939. Þau fluttust að Brekkuvöllum á Barða- strönd 1952. Þar bjuggu þau hjón- in til 1979 er þau hættu búskap og fluttust til Patreksfjarðar. Á Pat- reksfirði starfaði Guðmundur lengst af hjá Fiskverkuninni Odda. Útför Guðmundar fer fram frá Patreksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þakka þér, pabbi, fyrir að ganga stíginn með mér – vara mig við hol- um og hálum blettum. Þakka þér fyrir að sjá þegar ég gat útkljáð hlutina upp á eigin spýtur – og fyrir að leyfa mér að halda því áfram. En þó aldrei alveg á eigin fótum. Ég vissi að þú varst nálægur – við hinn endann á símanum. Á stað sem ég gat alltaf fundið þig. (Pam Brown.) Með þökk fyrir allt, Arney Huld og Jóhannes Konráð. Elsku afi. Með þér leið mín lá um liljum skrýdda grund. Hjá þér muna má ég marga glaða stund; þú ert horfin heim, ég hvorki græt né styn, en aldrei hef ég átt né eignast betri vin. (Káinn.) Þín Sædís Hrönn og Hafliði Þorkell. „Lágvaxinn, kímleitur maður í gamalli úlpu með húfu á höfði, vinn- ur við móttöku á Patreksfirði. Hann kemur um borð og er spaugsamur, á hógværan hátt. Þetta reyndist vera Guðmundur Sigurðsson, fyrrum bóndi á Barðaströnd.“ Svo lýsti rit- stjóri Sjómannablaðsins Víkings vini mínum Guðmundi í grein sem skrif- uð var í janúar 1983. Í dag, rúmum 20 árum síðar, er minn kæri vinur lagður til hinstu hvílu. Nokkuð er síðan hann hóf biðina eftir hvíldinni en Ólafíu konu sína missti hann 1997. Þegar ég kveð vin minn flæða minningar liðinna ára um vinskap sem átti sér djúpar rætur. Hvað dró okkur saman var í valdi æðri mátt- arvalda sem ákváðu stað og stund. Ég man þegar ég, sem leiðsögumað- ur á norsku leiguskipi, kom að bryggju á Patreksfirði í kringum 1980 og hitti þennan lágvaxna mann sem hafði þá hafið störf á skipaaf- greiðslu kaupfélagsins á staðnum. Það leið ekki á löngu þar til með okk- ur tókst samband og vinskapur sem átti eftir að breyta mér og lífsskoð- unum mínum til frambúðar. Guð- mundur var jafnaldri föður míns en afmælisdagar okkar lágu því sem næst saman en aðeins tvo daga skildi þar á milli. Eftir símtal frá Bjarghildi dóttur Guðmundar á annan dag í nýju ári þar sem hún sagði mér frá andláti föður síns reikaði hugur minn til lið- inna ára. Minningarnar streymdu fram og leiddu hugann til okkar kynna, okkar samtala um andleg og veraldleg málefni og síðast en ekki síst þær fjölmörgu vísur sem hann orti og gaf mér. Þær hef ég varðveitt sem sjáaldur augna minna og voru þær þegar teknar fram úr fylgsnum sínum. Það er erfitt að útskýra þau sterku tengsl og vináttu sem við bundumst en fólk að handan kom þeim á. Hverjir það voru vissum við ekki þá en nú mun vinur minn fá vitneskjuna en ákveðnar grunsemd- ir voru þó uppi hjá okkur. Guðmund- ur sá það sem aðrir sáu ekki og miðl- aði boðum. Þannig átti hann eftir að veita mér mikla hjálp, leiðbeina og kenna. Þrátt fyrir það vildi Guð- mundur hafa sem fæst orð þar um og var ávallt lítillátur á þann styrk sem hann veitti mér. Þótt ég hafi siglt um Vestfjarðahafnir, sem og aðrar hafnir landsins, um áratuga skeið sigldi Guðmundur aldrei með mér í þeim skilningi. Það gerðist þó einn daginn að hann hringdi í mig og lýsti fyrir mér draumi sem hann hafði dreymt þá um nóttina. Hans lýsing á „draumnum“ var nákvæm lýsing á upplifun og sýn minni í því versta veðri sem ég hef lent í til sjós. Hann hafði þá ekki haft vitneskju um þann atburð. Það varð mér ljóst að við fórum saman í þessa siglingu en hann sá hana einnig með öðrum hætti eða hversu hætt skipi og áhöfn var komið í þessu veðri. Í seinni tíð fækkaði þeim stundum að fundum okkar bar saman en sím- tölin og jólakortin voru þó áfram okkar tenging. Guðmundur sagði reyndar við mig einn daginn að við ættum ekki eftir að hittast framar en því neitaði ég Guðmundi um. Við áttum þó aðeins eftir að hittast einu sinni eftir það. Dætrum Guðmundar vil ég þakka fyrir þær mörgu hring- ingar sem ég fékk frá þeim þar sem þær létu mig vita af föður sínum og leiddi ein þeirra meðal annars til okkar síðasta fundar. Síðustu stund- ir okkar saman áttum við í stofunni heima hjá Arney dóttur Guðmundar, í Reykjavík, þar sem við sátum og ræddum saman og héldumst í hend- ur. Við vissum þá báðir að langt yrði þar til við hittumst á ný. Nú veit ég þó að minn vinur mun gjóa augum til mín öðru hvoru og heimsækja mig í draumum eftir að hann hefur heilsað upp á alla þá sem að handan bíða hans. Í byrjun vitnaði ég í grein rit- stjóra Sjómannablaðsins Víkings. Í áframhaldi var skrifað: „Hann skýt- ur vísu að Hilmari sem hann orti eft- ir að þeir töluðu saman í síma fyrr um morguninn.“ Ætla ég því að lok- um að vísa til kveðskapar sem þú ortir eitt sinn og læddir í vasa minn í einni af minni fjölmörgu viðkomum á Patreksfirði sem hljóðar svo: Biðstu ekki vægðar þótt baráttan harðni og bjóddu ekki heldur grið. Þótt auðvaldsins postular veginn þér varði til velferðar, bjóddu aldrei frið. Fyrr en þinn réttur er traustur og tryggur og takmarki þínu náð. En íslenskt skal allt sem að eftir þig liggur og erlendu stórveldi ei háð. Þín skilaboð voru skýr. Ég mun ekki geta fylgt þér, kæri vinur, síð- asta spölinn þar sem ég verð staddur á erlendri grundu að berjast fyrir ís- lensku takmarki mínu. Fjölskyldu, vinum og öðrum ætt- ingjum votta ég mína innilegustu samúð. Hilmar Snorrason. GUÐMUNDUR HELGI SIGURÐSSON Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. Perlan ERFIDRYKKJUR Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is MOSAIK af legsteinum gegn staðgreiðslu í janúar og febrúar Sendum myndalista 15% afsláttur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÁSTVALDUR STEFÁN STEFÁNSSON málarameistari, Lautasmára 1, Kópavogi, lést fimmtudaginn 6. janúar. Guðrún G. Jónsdóttir, Birna G. Ástvaldsdóttir, Einar Ágústsson, Þuríður Ástvaldsdóttir, Hjörtur Þ. Hauksson, Edda Ástvaldsdóttir, Alexander Ingimarsson, Stefán Örn Ástvaldsson, Guðveig Jóna Hilmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Görðum, Ægisíðu 52, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hring- braut fimmtudaginn 6. janúar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ólafur Rúnar Jónsson, Ólöf Kristín Sigurðardóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INDRIÐI SIGURÐSSON, Holtsgötu 41, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánu- daginn 10. janúar kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Svava Jenný Þorsteinsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, Stefán Haraldsson, Sigurður Indriðason, Sólveig Kristinsdóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON fyrrv. bifreiðaeftirlitsmaður, Austurvegi 31, Selfossi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi fimmtudaginn 6. janúar. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 14. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Vinafélag heimilisfólks á Ljósheimum. Sigríður Guðmundsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Lára Ólafsdóttir, Sigurður Jónsson, Esther Óskarsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Magnús Óskarsson, Gísli Á Jónsson, Emelía Gränz, SigríðurJónsdóttir, Valtýr Pálsson, Kári Jónsson, Kristjana Kjartansdóttir, Gunnar Jónsson, Anna Fríða Bjarnadóttir, Ásmundur Jónsson, Margrét Alice Birgisdóttir og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLI JÓHANNES RAGNARSSON, Gyðufelli 12, Reykjavík, andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi fimmtudaginn 6. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Reynir Ö. Ólason, Jóhanna Stígsdóttir, Þórunn R. Óladóttir, Ernst Berndsen, Anna G. Óladóttir, Gústaf A. Ólafsson, Hörður H. Ólason, Hafdís Y. Ólason, Laufey M. Óladóttir, Sigurjón Gunnarsson, Hólmfríður Óladóttir, Randver Elísson, Helgi S. Ólason, Guðrún R. Valgeirsdóttir, Sölvi S. Ólason, Margrét Pálsdóttir, Linda B. Óladóttir, Bryan Baker og fjölskyldur þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.