Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 4
BANDARÍSKAkörfuknatt- leikskonan Reshea Bristol er á förum frá meistaraliði Keflavíkur. Bristol leikur sinn síðasta leik með Kefla- víkurliðinu í kvöld gegn Haukum en hún heldur af landi brott á miðvikudag. Ástæða brottfarar Bristols eru þær að foreldrar hennar lentu í bílslysi fyrir skömmu og er hennar þörf heima að því er fram kemur á heima- síðu Keflvíkinga. Bristol hefur leikið sérlega vel með Keflavíkurliðinu í vetur sem trónar á toppi 1. deildar með fullt hús stiga eftir 11 umferðir. Hún hefur skorað að jafnaði 21,3 stig í leik og þá hefur hún látið mikið til síns taka í varn- arleiknum. Hennar skarð verður vandfyllt en Keflvík- ingar eru á höttunum eftir nýjum erlendum leikmanni. Bristol á förum frá Keflavík FÓLK  JÓHANN Þórhallsson skoraði 5 mörk fyrir KA þegar lið hans vann yfirburðasigur á Hvöt frá Blönduósi, 14:1, í fyrstu umferð Norðurlands- mótsins í knattspyrnu í Boganum á Akureyri á sunnudaginn. Hreinn Hringsson og Pálmi Rafn Pálmason gerðu sín þrjú mörkin hvor í leikn- um.  VILMAR Freyr Sævarsson skor- aði öll þrjú mörk Þórs sem sigraði Leiftur/Dalvík, 3:0, á sunnudaginn.  GYLFI Þór Sigurðsson, 15 ára knattspyrnumaður úr Breiðabliki, hefur fengið boð um að fara með unglingaliði enska 1. deildarfélags- ins Preston á Dallas Cup í Banda- ríkjunum í mars. Gylfi æfði með Preston í haust og var ennfremur við æfingar hjá Reading í Englandi í desember. Samkvæmt vef Breiða- bliks hefur honum verið boðið þang- að aftur.  ALEXANDER Shamkuts, fyrr- verandi leikmaður Hauka, skoraði þrjú mörk þegar lið hans, Stralsund- er HV, vann Fredenbeck, 32:26, í norðurhluta þýsku 2. deildarinnar í handknattleik á sunnudaginn. Stral- sunder HV er í efsta sæti deildarinn- ar nú þegar hlé hefur verið gert á keppni í deildinni fram undir miðjan febrúar vegna heimsmeistaramóts- ins í handknattleik.  HRAFNHILDUR Skúladóttir skoraði 3 mörk fyrir danska liðið År- hus SK þegar liðið sigraði austur- ríska liðið Wiener Neustadt á úti- velli, 29:24, í 16-liða úrslitum í Evrópukeppni bikarhafa í hand- knattleik í fyrrakvöld.  GUÐLAUGUR Eyjólfsson leikur ekki meira með Grindavík í úrvals- deildinni í körfuknattleik í vetur vegna meiðsla. Guðlaugur hefur misst talsvert úr og aðeins spilað sjö leiki með liðinu í deildinni og skorað 8,3 stig að meðaltali.  GARY Megson var í gær ráðinn knattspyrnustjóri enska 1. deildar- félagsins Nottingham Forest. Meg- son var sagt upp störfum hjá úrvals- deildarliðinu WBA í október en hann hafði þá stýrt því í hálft fimmta ár. Nottingham Forest, sem varð tví- vegis Evrópumeistari í lok áttunda áratugar síðustu aldar, er næstneðst í 1. deild. Joe Kinnear var sagt upp störfum fyrir jólin og Mick Harford hefur stjórnað liðinu í undanförnum sex leikjum. Mótið markar upphaf nýs keppn-istímabils á PGA-mótaröðinni og á þessu móti fá aðeins þeir að leika sem sigruðu á PGA-móti á síðasta ári. Aðeins Phil Mickelson lét sig vanta að þessu sinni. Appley var í næstsíðasta sæti að loknum fyrsta keppnisdegi en á næstu 54 holum gerði hann engin mistök og fékk aðeins par eða fugl í kjölfarið. Á öðrum og þriðja keppn- isdegi lék Ástralinn á 9 og 7 höggum undir pari og lagði grunninn að sigr- inum, en hann er fyrsti kylfingurinn sem ver titilinn á þessu móti í 23 ár. Í raun er árangur Appleby á síðustu 54 holunum ótrúlegur því hann lék þær á samtals 22 höggum undir pari, sem er býsna gott, ef ekki einsdæmi. Fyrir sigurinn fékk Appleby rúm- lega 60 millj. kr. en hann var tvístíg- andi fyrir mótið hvort hann gæti tek- ið þátt þar sem eiginkona hans á von á þeirra fyrsta barni í næstu viku. „Satt besta að segja hélt ég að mögu- leikar mínir væru úr sögunni eftir fyrsta hringinn. Það gæti kannski dugað að leika slíkt golf á Opna bandaríska meistaramótinu en það voru gríðarleg vonbrigði að vera átta höggum á eftir efsta manni, Vijay Singh,“ sagði Appleby en hann var lengi að ákveða sig hvort hann myndi taka þátt. „Það var góð ákvörðun að koma til Hawaii en ég fór ekki af stað fyrr en ég hafði rætt við eiginkonu mína enda benti allt til þess að frum- burður okkar myndi ekki koma fyrir áætlaðan tíma í heiminn,“ sagði Appleby en hann hefur tileinkað sér einfalda hluti er kemur að því að und- irbúa sig fyrir golfmót. „Golfið er í eðli sínu mjög einföld íþrótt og ég reyni að nálgast golfið með þeim hætti. Mér líður vel á vellinum og reyni að einbeita mér að fáum hlutum í stuttann tíma í einu,“ sagði Appleby. Fyrir lokadaginn var Appleby fjór- um höggum á eftir Singh og lék Ástr- alinn best allra á lokasprettinum eða á sex höggum undir pari. En þess má geta að hann hitti 50 af 54 flötum í til- ætluðum höggafjölda síðustu þrjá keppnisdagana. Veðrið á síðasta keppnisdeginum var afleitt og þurfti að flýta rástímum til þess að ná að ljúka leik áður en veðrið yrði enn verra. En gríðarleg rigning var á síðasta keppnisdegin- um og fór svo að fresta þurfti leik í allt að fimm tíma á meðan úrhellið gekk yfir eyjuna enda fylgdi því mik- ið þrumuveður. Bandaríkjamaðurinn Jonathan Kaye endaði í öðru sæti en hann var einn af fimm nýliðum á PGA sem sigraði á móti á síðasta ári og var Ka- ye að leika í fyrsta sinn á þessu móti. Kaye átti ágæta möguleika á að jafna við Appleby en átti slæmt vipp á 18. holu og skildi eftir langt pútt sem fór ekki ofaní. Ernie Els frá Suður-Afríku endaði í þriðja sæti ásamt Tiger Woods en Els klúðraði upphafshögginu á 18. braut og lék hana á skolla og endaði 2 höggum á eftir Appleby. Tiger Woods þokaði sér upp um fjögur sæti á síðasta keppnisdeginum og endaði á 19 undir pari. Woods sagði eftir mótið að hann myndi taka þátt í Buick mótinu sem hefst eftir tvær vikur en síðan ætlar hann að taka sér frí í fjórar vikur til þess að geta eytt tíma með eiginkonu sinni, Elin Nord- green. „Ég hef ekki haft tíma til þess að taka frí en nú gefst ágætt tækifæri til þess og það ætlum við að nýta okk- ur,“ sagði Woods eftir mótið á Hawaii. Vijay Singh sem er efstur á heims- listanum í golfi virtist vera með fyrsta sætið í hendi sér eftir frábæra þrjá hringi þar sem hann fékk aðeins par, fugl eða örn. En á lokadeginum fataðist Singh flugið og endaði á 18 höggum undir pari eftir 74 högg á lokadeginum. Stuart Appleby er 33 ára gamall og hefur sigrað á 6 atvinnumannamót- um á sínum ferli á PGA mótaröðinni. AP Stuart Appleby frá Ástralíu sýndi mikla keppnishörku á lokahringnum á Mercedes-meistaramótinu á Hawaii. Vijay Singh fataðist flugið en Stuart Appleby gerði engin mistök Appleby lék frá- bærlega AP Vijay Singh gaf eftir. ÞAÐ benti fátt til þess að Ástr- alinn Stuart Appleby myndi verja titilinn á Mercedes golf- mótinu eftir fyrsta keppnisdag á Hawaii þar sem Appleby lék á einu höggi yfir pari, 74 höggum. Og var Ástralinn langt á eftir Vijay Singh sem lék best fyrstu þrjá keppnisdagana á Plant- ekruvellinum í Kapalua á Haw- aii. En Appleby lék best allra þegar mest á reyndi á lokadeg- inum en aðrir keppendur náðu sér ekki á strik. Appleby endaði á 21 höggi undir en annar varð Bandaríkjamaðurinn Jonathan Kaye sem var samtals á 20 und- ir pari. En Vijay Singh varð að láta sér lynda fimmta sætið eftir að hafa verið í efsta sæti fyrstu þrjá keppnisdagana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.