Mánudagsblaðið - 29.03.1954, Blaðsíða 8
OREINU I ANNAÐ
Til bæjaryfirvalda — Ölgerðin L.J. — Listaverk til
Danmerkur — Leikhúshornið — Afgreiðsla Lands
bankans — Sjálfstæðishúsið — Matbarinn, Lækjargötu
l
k
i
'U
í«
iysr
V
y.
i
Furðulegt má heita, að viðkomandi aðilar skuli
ekki hafa látið malbika eða steypa veginn í Öskju
hlíðlhni, sem tengir saman Hafnarfjarðarveg og Mikla-
torg. Spotti þessi hefur orðið alveg útundan, og er
jafnframt nær ófær bifreiðum þegar votviðri eni.
Svona smávægilegar yfirsjónir eiga ekki að henda
bæjaryfirvöldin; þessi vegur er einna fjölfarnastur
allra, jafnframt því, sem honum er haldið mjög illa við.
Væntanlega verður þetta til athugunar í sumar.
Bjórunnendur (sbr. Listunnendur, lysthafendur
etc). setja nú alla von sína á undirskriftir bæjannanna,
enda ganga nú áskriftarlistar ljósum logum.
Flestir forustmnenn okkar í bjórbaráttunni eru
ákaflega bjartsýnir og í hrifningu sinni yfir væntan-
legum bjór vilja þeir endilega kalla hina nýju ölgerð
Ölgerðin Lárus Jóhannesson — og þakka þannig ötula
baráttu.
★
Maður kom að máli við oss í sambandi við sendingu
listaverka á sýningu í Danmörku og taldi óráð að senda
slíka dýrgripi á þann vettvang.
Telm- hann ekki með öllu víst að Danir vilji skila
listaverkimum, að lokinni sýningunni, og má vera að
hann hafi nokkuð til síns máls.
Villiöndin hans Ibsens er nú æfð af fullu kappi í
Þjóðleikhúsinu. Stór hlutverk í leikritinu hafa Katrín
Thors, Jón Aðils' Gestur Pálsson og Indriði, Valur
Regína, Arftdís og Lárus Pálsson.........Leikfélag
Kéykjavxkttf æfir nú Frænku Charleys, hinn kunna
skopleik, og leikur Árni Tryggvason aðalhlutverkið.
Einar Pálsson verður leikstjóri. Þetta er úrslitatilraun
L.R. til þess að bæta fyrir tapið sem það beið er Alfreð
Andrésson veiktist í vetur og hætta varð sýningum
á Skóla fyrir skattgreiðendur, þegar þær voru í full-
um gangi.
★
Það er undarlegt, að Landsbankinn skuli ekki haf a
hinn daglega afgreiðslutíma lengri en raun er á. Þessi
banki, sem einna mestu þarf að anna, hefur stytztan af-
greiðslutíma, mestan fjölda starfsfólks, en þó er af-
greiðsla þar engu betri en í öðrum bönkum, nema
síður sé.
★
Skyldu forráðamenn Sjálfstæðishússins gera sér
ljóst hversu mjög þeir tapa á því, að hafa ekki opið
reglulega á kaffitímum daglega og láta undir höfuð
leggjast að tilkynna þegar lokað er.
Forstöðumaðurinn sem er umbrotamaður í veit-
ingahúsmálum, ætti að brjótast í að halda fyrirtækinu
opnu eða tilkynna þegar lokað er.
Féiag einsöngvara
Það er elíki ný bóla, að menn
stofni með sér félagsskap.
Nýjast af nálinni er svo-
nefnt Félag einsöngvara, sem
einsöngvarar, konur og ltarl-
ar, undirbúa nú stofnun að.
Tilgangur?
Jú, að vernda hagsmuni ein-
söngvara, styðja að viður-
kenningu þeirra; standa sam-
an gegn óvinum og illindis-
mönnum (t. d. dægurlaga
söngvurum, sem fá ekki að
vera með) sem á félagsmenn
kunna að leita.
Aðalhvatamaður og forkólf
ur stofnunarinnar er Bjarni
Bjarnason læknir, en áhugi er
mikill meðal allra einsöngvara
um að koma þessu nauðsyn-
lega félagi á laggirnar sem
fyrst.
MÁNVJDAGSBLAUIÐ
Fóstbræður utan i sept.
Kvöldvökur og happdrœtfi,
- sumarhús og skekta -
úfikonsertar i sumar
Þeir Hreinn Pálsson og Ágúst Bjamason, atkvæðamenn
í karlakómum Fóstbræður, ræddu við blaðamenn í s.l. viku
um væntanlega söngför kórsins til meginlandsins og Bret-
lands.
TIL 6 LANDA
í ráði er, að fara söngför að
hausti komanda til Þýzkalands,
Hollands, Belgíu, Frakklands,
London, Glasgow og Edinborgar
Mánudagsblaðið — Blað fyrir alla — vill að sjálfsögðu, flytja
eithvað efni fyrir yngri kynslóðina, og byrjar því í þessu tölublaði,
að flytja smáfrétir frá kvikmyndaleikurum. Blaðið flutti þennan
þátt um skeið, en hætti við hann sökum — að oss var þá fortalið —
áhugaleysis.
Nú berast oss þœr fréttir, að þessa þáttar hafi verið meira
saknað en haldið var, og teljum því sjálfsagt að halda honum
áfram a. m. k. fyrst um sinn.
MT
Matbarinn við Lækjargötu telur sjálfsagt að not-
færa sér það að ekki er hámarksverð á vöru þeirri sem
þar er seld, enda maturinn mjög dýr. Óskandi væri,
að forstöðumenn barsins eyddu einhverju af gróðanum
í að siða afgreiðsludömur sínar.
Mvað á að gera í kvöld?
KVIKM YNDAHÚ S:
Gamla bíó: Teresa. Pier
Augeli. Kl. 5, 7 og 9.
Nýja bíó: Heimt úr helju.
Claudette Colbert. Kl. 5, 7 og
9.
Tjamarbíó: Unaðsómar. Kl.
7 og 9. Flughetjurnar. Kl. 5.
Austurbæjarbíó: Hans og
Pétur í kvennahljómsveitinni.
Kl. 5, 7 og 9.
Hafnarbíó: Kvenholli skip-
stjórinn. Kl. 5, 7 og 9.
Stjömubíó: Heitt brenna
æskuástir. Kl. 5, 7 og 9.
Tripolibíó: Völundarhúsið.
Richard Carlson. Kl. 5, 7 og 9.
LEEKHÚS:
Þjóðleikhúsið: Sasterkasti.
Haraldur Bjömsson. Kl. 20.
Sjálfstæðishúsið: Kvöld-
vaka Fóstbræðra.
Ava Gardner og Ftank Sinátfa
virðast nú sammála um að „neist-
inn“ sé horfinn úr hjónabandi
þeirra, enda þótt þau séu ennþá
gift .... Það ku vera útilokað,
að Gene Tierney verði nokkurn-
tíma prinsessan hans Aly Kahns,
eins og Rita Hayworth varð á sin-
um tíma. Aga gamli, faðir Alys
er sagður hundleiður á leikkon-
um í ættinni, auk þess, sem hann
má ekki sjá Tierney án þess að
komast í illt skap. Hjónaband er
því útilokað meðan Aga gamli
lifir, en í millitíðinni rignir gull-
djásnum og veðreiðahestum yfir
Gene frá Aly. Ansi þægilegt með-
an biðtíminn varir...... June
Haver, sem hlaut frægð fyrir
dansmyndir og gekk í klaustur
til að friða sál sína, er nú komin
út aftur og farin að taka þátt í
hinu erfiða samkvæmislífi. Hún
kynntist Fred Mac Murray í
June Haver.
partíi, og síðan hafa þau dinglað
saman eins og ástfangnir skóla
krakkar. Ást og væntanlegt hjóna
band segja sérfræðingar Holly-
woodborgar ..... Clark Gable
Framhald á 7. síðu
og halda þar konserta og syngja
í útvarp. í ferðinni Verða um 40
söngmenn; einsöngvari Kristinn
Halisson, undirleikari Carl
Billich, en söngstjórinn er Jón
Þórarinsson. Þá er og gert ráð
fyrir að eitthvað af konum kór-
manna fari með.
Ágúst Bjarnason fór utan í vor
og undirbjó þá að mestu væntan-
lega ferð.
KVÖLDVÖKUR í
SJÁLFSTÆÐISHÚSINU
Til þess að hafa eitthvað upp í
væntanleg útgjöld hefur kórinn
efnt til kvöldvöku í Sjálfstæðis-
húsinu í kvöld (sunnud.) og vænt
anlega nokkur fleiri kvöld í vik-
unni. Hefur vel verið vandað til
kvöldvökunnar, söngur og
Framhald á 2. síðu.
Gerður Hjöreifsdóttir í myndinni Nýtt hlutverk. £
n
Nýtt Uutverk" eftir VSV
írmumsýnd í apríl
Leikst}óri: Ævar Kvaran
Kvikmyndun: Óskar Gislason
ÓSKAR GlSLASON frumsýnir í næsta mánuði nýja
kvikmynd sem nefnist Nýtt hlutverk og er byggð á sam-
nefndri smásögu VILHJÁLMS S. VILHJÁLMSSON, sem
f jallar um alþýðufólk. Unnið hefur verið við kvikmynd þessa
í vetur og er tökunni um það bil að Ijúka.
Þeir VSV og ÞORLEIFUR ÞORLEIFSSON hafa unnið
saman að kvikmyndahandritinu og gert smávægilegar breyt-
ingar á frumritinu í sambandi við kröfu myndarinnar.
Miklir erfiðleikar
Ævar Kvaran, sem er leik-
stjórinn, ræddi við blaðamenn
ásamt þeim Óskari og V. S. V.
í s.l. viku. Taldi hann miklum
örðugleikum búið að taka
slíkar myndir hér, engir kvik-
myndatökusalir fyrir hendi,
veðrátta stopul, auk þess
Framhald á 7. síðu.