Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.01.2005, Blaðsíða 15
sé að hugsa sér. „En ég hef lært að lifa með þessu og veit að óvissan er alltaf fyrir hendi. Á meðan maðurinn gengur laus þarf maður að vera við öllu búinn, hvenær sem er. Það er ómögulegt að vita hvenær hann byrjar aftur að áreita okkur. Það er mikilvægt að hafa í huga að þankagangur fórnarlamba og þeirra sem leita á náðir ríkisvaldsins til að fá aðstoð í alvarlegum persónulegum málum er oft á tíðum vonbrigði og neikvæðni. Þeim finnst ríkið ekki gera nóg til að hjálpa sér og því er auðvelt að falla í þá gryfju að áfellast þá starfsmenn sem maður talar við. Maður hefur jú ekki heimild til að svara fyrir sig sjálfur í aðstæðum sem þessum. Því er mjög mikilvægt að átta sig á því að lífið heldur áfram. Ef maður lætur óttann ná algerum tökum á sér, eins og tilfellið varð með mig, þá hefur maður gengist undir stjórn þess sem er að áreita mann. Hann hefur áhrif á allt dag- legt líf manns og það er ekki hægt að ganga úti á götu án þess að fyllast kvíða við minnsta tilefni. Þegar ég var sem hræddastur, í nóvember 2003, þegar ég kom að bílnum mínum með sundurskorin dekk og foreldrar mínir höfðu lent í því sama, ákvað ég að leita mér hjálpar og brjótast út úr þessu. Á þeim tímapunkti var ég búinn að leggja fram kærur hjá lögreglu fyrir hótanir og fleira en lítið þokaðist í rannsókninni fyrr en hann var kærð- ur til lögreglunnar fyrir að ráðast á mig á gamlárskvöld 2003. Hjólin fóru að snúast þegar líkamsárásar- kæra bættist í safnið. En eins og ég gat um áðan er það ekki nein var- anleg lausn að setja manninn í fang- elsi í nokkra mánuði.“ Styrktist mikið með því að reyna að hafa áhrif Helgi ákvað að tala við alla þá sem honum datt í hug, lækna, félagsþjón- ustuna, þingmenn, ráðuneyti, land- lækni, sálfræðing, vini og ættingja. „Þótt ég vissi að þetta myndi kannski ekki skila árangri, þá fann ég að þetta gerði mér persónulega mikið gagn því ég fann að ég styrkt- ist mikið með því að reyna að hafa áhrif. Það var t.d. mikil hjálp í því að tala við Geðhjálp og smám saman hætti ég að upplifa mig sem fórn- arlamb, heldur virkan þátttakanda sem væri að fást við erfitt úrlausn- arefni. Þetta reynir á mann því það eru engar varanlegar lausnir til. Það sem hjálpaði mér líka mikið var að konan mín var ólétt að barni okkar og ég gat engan veginn sætt mig við að barnið okkar ælist upp við þessar aðstæður án þess að nokkur hreyfði litlafingur. Fórnarlambahugsunin leiðir nefnilega til aðgerðaleysis sem getur verið undirstaða meðvirkni með þeim sjúka. Aðalatriðið er fyrir fólk í svona aðstöðu að líta ekki á sig sem fórnarlamb heldur vera virkur í að reyna að finna lausnir. Það hjálp- ar manni. Það skiptir engu máli hvort þessi viðleitni skilar áþreifan- legum árangri. Maður verður samt að reyna að hafa áhrif á þá sem vinna að þessum málum.“ Eftir að hafa borið sig upp við fjölda fagaðila, sem Helgi leggur áherslu á að hafi sýnt skilning og samúð, komst hann að því að í raun var ekkert hægt að gera. En meðan á þessu stóð losnaði hann út úr hlut- verki fórnarlambsins sem hann segir ómetanlegt. „Eina leiðin sem var tæk að lögum var meðferð lögreglu- yfirvalda. Aðrar lausnir komu ekki til álita,“ segir hann. „Mér fannst það þó óskynsamlegt að láta svona mann í fangelsi, því hann þyrfti að fá aðstoð.“ Almannahagsmunir teknir fram yfir einstaklingshagsmuni Helgi segist hafa dregið ákveðnar ályktanir út frá atburðarásinni hvað meðferð dómskerfisins á manninum áhrærir. „Refsivörslukerfið gengur aðallega út á að verja almannahags- muni en ekki hagsmuni einstaklinga. Einstaklingur og jafnvel fjölskylda sem verður fyrir því að brotið sé á þeim með refsiverðum hætti njóta ekki jafn ríkrar verndar í fram- kvæmd og almannahagsmunir. Þetta á ekki síst við um brot sem eiga sér stað innan veggja heimilis eða eru á milli tengdra aðila, svo sem fyrrverandi sambýlisfólks. Þetta hefur meðal annars í för með sér að refsing vegna brota sem varða slíka hagsmuni er mun vægari en t.d. þeg- ar opinber starfsmaður dregur sér fé. Annað mikilvægt atriði er sönnun- arvandkvæði. Stanslaust áreiti er mjög erfitt að sanna sem og ofbeldi innan veggja heimilis. Þegar fólk loksins þorir að kæra brot gagnvart sér þá er það tekið misalvarlega hjá lögreglu. Það er mjög stórt skref fyrir hrætt fólk að fara til lögreglu og mér finnst að í svona málum ætti að veita meiri forgang en raunin er. Þegar þetta mál kom svo fyrir dóm var maðurinn sakfelldur fyrir þrett- án hegningarlagabrot en refsingin var aðeins sex mánuðir. Miðað við átta ára refsiramma finnst manni niðurstaðan mjög undarleg, ekki síst þar sem hún er ekki rökstudd nema með almennum orðum.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 15 orsi@mbl.is VALFRELSI Eflum sjálfstæða skóla í Reykjavík Hádegisverðarfundur í Valhöll, Háaleitisbraut 1, þriðjudaginn 1. febrúar kl. 12.00 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, setur fundinn. Framsögumenn: Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi. Margrét Theodórsdóttir, skólastjóri Tjarnarskóla. Sigursveinn Magnússon, skólastjóri Tónskóla Sigursveins. Fundarstjóri: Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, ráðgjafi menntamála- ráðherra. Hádegisverður á kr. 700. Allir velkomnir. Borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna og Vörður, Fulltrúaráðið í Reykjavík. Vegna aðsóknar er búið að bæta við auka morgunnámskeiði! Í átta ár hefur NTV boðið upp á Skrifstofu- og tölvunám. Á þessum árum hefur námskeiðið þróast mikið, áherslur þess breyst í takti við tímann og vinnumarkaðinn. Það er samdóma álit þeirra sem ljúka náminu að það sé krefjandi en umfram allt uppbyggilegt, styrkjandi og skemmtilegt. Námið er 258 stundir og skiptist í fjóra flokka: - Windows stýrikerfið - Word ritvinnsla - Excel töflureiknir - Power Point kynningarefni - Access gagnagrunnur - Internetið & Tölvupóstur Tölvunám - 96 stundir - Verslunarreikningur - Bókhald - Tölvubókhald Navision MBS® Viðskiptagreinar - 108 stundir - Tímastjórnun og markmiðasetning - Sölutækni og þjónusta - Framsögn og framkoma - Mannleg samskipti - Streitustjórnun - Atvinnuumsóknir Sjálfsstyrking - 30 stundir - Auglýsingatækni - Markhópagreining - Gerð birtingaráætlana - Gagnvirk tenging forrita - Flutningur lokaverkefnis Lokaverkefni - 24 stundir „Með náminu öðlaðist ég þekkingu og sjálfstraust til að sækja um spennandi störf. Því þorði ég ekki áður!“ Eftir að hafa sinnt börnum og búskap og unnið við ýmis störf sl. 20 ár ákvað Helga að fara í skóla. Hana langaði til að reyna fyrir sér á öðrum starfsvettvangi. Hún starfar í dag sem innheimtu- fulltrúi hjá Rekstrarvörum. Í tölvuhlutanum er lögð áhersla á þau forrit sem nemandi þarf að kunna á til að öðlast TÖK-skírteini sem er alþjóðleg viðurkenning á tölvukunnáttu hans. NTV er eini skólinn þar sem öll 7 TÖK prófin og alþjóðlegt prófskírteini er innifalið í náminu. Kenndur er sá hluti verslunarreiknings sem mest er notaður á skrifstofunni og tekin fyrir flest þau atriði sem þarf til að færa bókhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. NTV leggur mikið upp úr því að ná fram því besta úr hverjum og einum nemanda. Það er ekki nóg að búa yfir þekkingu og hæfileikum. Nemandinn þarf einnig að þekkja styrk sinn og veikleika, kunna að stýra tíma sínum, setja sér skýr markmið og kunna að selja öðrum hugmyndir sínar og skoðanir. „Skemmtilegasti og erfiðasti hluti námsins“ segja margir. Unnið er í 3-4 manna hópum að markaðssetningu á vöru eða þjónustu. Lokaverkefnisvinnan er skemmtileg, krefjandi og framsett á þann hátt að hún taki á flestum þáttum námskeiðsins. SKRIFSTOFU- & TÖLVUNÁM Næstu námsskeið: Morgunnámskeið 1 Alla virka daga frá kl. 8:30-12:30 Byrjar 7. feb. og lýkur 14. apríl. Morgunnámskeið 2 - Örfá sæti laus Þri, fim. og fös. frá kl. 8:30-12:30 Byrjar 8. feb. og lýkur 28. maí. Kvöldnámskeið 1 Þri. og fim. 18-22 og lau. 8:30 Byrjar 8. feb. og lýkur 28. maí. UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS Helga Sigríður Kristjánsdóttir - Innheimtufulltrúi hjá Rekstrarvörum BIÐLISTI BIÐLISTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.