Morgunblaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.02.2005, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com Reykjavík 11. janúar 2005 Stjórn Össurar hf. 1. Venjuleg a›alfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samflykktum félagsins. 2. Tillaga um a› heimila stjórn a› kaupa eigin bréf félagsins. 3. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt sk‡rslu endursko›enda, mun vera hluthöfum til s‡nis á skrifstofu félagsins a› Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir a›alfund. Reikningar og önnur gögn ver›a einnig birt á heimasí›u félagsins sem er www.ossur.is og www.ossur.com. A›göngumi›ar, atkvæ›ase›lar og önnur fundargögn ver›a afhent á fundarsta› frá kl. 8:30. Hluthafar eru hvattir til a› mæta tímanlega til a› taka vi› fundargögnum. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 9:00. A›alfundur Össurar hf. ver›ur haldinn í fundarsal á 1.hæ› á Grand Hótel, Sigtúni 38, Reykjavík, föstudaginn 25.febrúar 2005 og hefst hann kl.9 árdegis. Vi› hjálpum fólki a› njóta sín til fulls A›alfundur Össurar hf. Á dagskrá fundarins ver›a: ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● BÍLALEIGAN Budget hefur samið við Iceland Express um þjónustu við farþega félagsins. Í fréttatilkynningu segir að Budget muni bjóða við- skiptavinum Iceland Express bestu fáanlegu kjör á bílaleigubílum á öll- um áfangastöðum félagsins, þ.e. í Reykjavík, Kaupmannahöfn, London Stansted og Frankfurt Hahn. Budget semur við Iceland Express ● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu 8,9 milljörðum króna. Við- skipti með hlutabréf námu 3,6 millj- örðum. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,4% og er 3.875 stig. Af félögum í úrvalsvísitölunni hækkuðu bréf Medcare Flögu mest, um 4,0%. Bréf Samherja lækkuðu mest, um 1,7%. Mest hækkun á bréf- um Medcare Flögu ● ENGLANDSBANKI hefur tilkynnt að stýrivextir verði óbreyttir, 4,75%, og er þetta sjötti mánuðurinn í röð sem slík tilkynning er gefin út. Væntingar á markaði eru þó þær að vextir muni taka að hækka síðar á árinu sam- kvæmt frétt Financial Times. Stýrivextir á Bretlandi óbreyttir VALGERÐUR Sverr- isdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, hefur sent stærstu fyrirtækj- um landsins bréf þar sem farið er fram á að forsvarsmenn fyrir- tækjanna beiti sér fyrir því að konur fái aukið tækifæri til setu í stjórnum viðkomandi fyrirtækja. „Þátttaka íslenskra kvenna í stjórn skráðra fyrirtækja hérlendis er minni en í nær öllum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Einungis tvær konur voru í stjórn skráðra félaga hérlendis á árinu 2004. Það er engin sérstök ástæða fyrir því hvers vegna íslenskar konur hafa ekki tekið sæti í stjórnum líkt og kon- ur í nágrannalöndum okkar,“ segir í bréfinu. Jafnframt segir að nú sé tækifæri til að gera betur þar sem að- alfundir séu í vændum. „Ég vil beita mér fyrir því að ís- lensk fyrirtæki skoði möguleg tæki- færi fyrir konur í stjórn þeirra og taki upp betri hætti. Þannig er hægt að benda á að í stað lagasetningar um þátttöku kvenna í stjórnum geti fyrirtæk- in sjálf tekið sig á í þess- um efnum“ segir Val- gerður í bréfi sínu. Ekki hótun um lagasetningu Í samtali við Morg- unblaðið í gær sagði Valgerður að bréfið hefði ekki einungis ver- ið sent fyrirtækjum skráðum á hlutabréfa- markaði heldur hefði bréfið verið sent u.þ.b. 80–90 af stærstu fé- lögum landsins, þar sem úrbóta þykir þörf. Um væri að ræða vinsamleg tilmæli af sinni hálfu en alls ekki hótun um lagasetningu. „Ég vil með þessu hvetja til upp- byggilegrar umræðu um málið því eins og alkunna er stöndum viðokkur ekki vel í þessum efnum,“ sagði hún og tiltók þá skoðun sína að ekki væri æskilegt að þurfa atbeina löggjafans þegar hún var innt eftir hvort í bréfi hennar fælist hótun um kynjakvóta. Valgerður vildi ekki segja til um hvort brugðist yrði við með aðgerðum ef tilmælum hennar yrði ekki hlýtt. Valgerður skor- ar á fyrirtækin Valgerður Sverrisdóttir Viðskiptaráðherra mælist til þess að íslensk fyrirtæki skoði tækifæri fyrir konur í stjórnum þeirra Morgunblaðið/Jim Smart KB banki fékk Íslensku þekk- ingarverðlaunin Sigurður Einarsson, stjórnarformað- ur KB banka, hagfræðingur ársins KB BANKI hlaut í gær Íslensku þekkingarverðlaunin sem Félag viðskiptafræðinga og hagfræð- inga, FVH, veitti í fimmta sinn. Jafnframt hlaut Sigurður Ein- arsson, starfandi stjórnarformað- ur bankans, viðurkenningu félags- ins sem hagfræðingur ársins 2004. Á ráðstefnunni Íslenski þekk- ingardagurinn sem FVH stóð fyr- ir í gær undir yfirskriftinni „Leið- toginn – býr leiðtogi í þér?“ kom fram að við val á þekkingarfyr- irtæki ársins væri tekið mið af leiðtoganum. Að sögn Gylfa Dal- manns Aðalsteinssonar, formanns dómnefndar í vali á þekkingarfyr- irtæki ársins, var valið fyrirtæki þar sem leiðtoginn hefur sýnt af sér ótvíræða forystuhæfileika í markvissri virkjun mannauðs samhliða afburða árangri í rekstri. Sagði hann dómnefndina hafa skoðað ýmsa þætti hjá til- nefndum fyrirtækjum og nið- urstaða nefndarinnar hefði verið að KB banki skyldi hljóta verð- launin. Önnur félög sem voru til- nefnd voru Baugur Group og Öss- ur. Ragnar Þórir Guðgeirsson, for- maður dómnefndar við val á við- skiptafræðingi/hagfræðingi árs- ins, sagði að það hefði verið mat sinnar dómnefndar að Sigurður Einarsson, starfandi stjórn- arformaður KB banka, hefði skar- að fram úr við val á viðskipta- eða hagfræðingi ársins en Sig- urður er fyrsti hagfræðingurinn sem verður fyrir valinu. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, tók við viðurkenningunni fyrir hönd Sigurðar. Hann tók einnig við verðlaunagripnum Þekkingarbrunni fyrir hönd KB banka. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verð- launin og sagði hann KB banka og mörg önnur fyrirtæki sem væru að ná árangri á heimsmark- aði sýna það að hægt sé að hafa rætur á Íslandi en vera samt í hópi sigurvegara á heimsmarkaði. Afhendingin Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir Hreiðari Má Sigurðssyni Íslensku þekkingarverðlaunin.                              !!"      # $% &$'"      ● Í FRÉTT á viðskiptasíðu Morg- unblaðsins á miðvikudag var MP Fjárfestingarbanki ranglega nefndur MP Verðbréf. Leiðrétt- ist það hér með og biðst Morg- unblaðið velvirðingar á mistök- unum. Leiðrétt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.