Morgunblaðið - 01.03.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.03.2005, Blaðsíða 16
Akureyri | Það var líf og fjör í Boganum um helgina en þar fór fram Goðamót Þórs í knatt- spyrnu. Það voru stúlkur í 4. og 5. flokki sem léku fótbolta af mikilli leikni en félög hvarvetna að af landinu sendu lið til þátt- töku á mótinu sem haldið var í þriðja sinn. Þátttakendur voru um 1.400 talsins, en gera má ráð fyrir að á þriðja þúsund gestir hafi streymt í bæinn af þessu til- efni. Alls voru skoruð 484 mörk í 121 leik á mótinu. Um aðra helgi, 11. til 13. mars, er svo von á drengjum í 5. og 6. flokki og þriðja og síðasta Goðamótið í ár verður svo haldið í byrjun apríl. Morgunblaðið/Kristján Glaðbeittar með Goðapylsu Fótboltastelpur Akureyri | Austurland | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Bændabýli seljast nú á verði sem aldrei fyrr, en í vikunni keypti fyrirtækið Lífsval ehf. úr Reykjavík jörðina Skóga II í Reykja- hverfi. Fyrirtækið hefur þá eignast tvö sam- liggjandi býli í sveitinni en á síðasta ári eign- aðist það jörðina Einarsstaði og á því umtalsvert land til umráða. Bændur velta því fyrir sér hvað það er sem vakir fyrir hinum nýju eigendum og á hvern hátt þeir ætli að láta fjárfestinguna borga sig. Er það einkum vegna þess að fyrsta verk þeirra hefur verið að leggja niður búskap á nokkrum jörðum sem þeir hafa eignast. Sé horft á þetta út frá byggðalegu sjón- armiði þá finnst mönnum að enn sem komið er hafi þetta ekki orðið sveitunum til fram- dráttar. Mörgum finnst að þegar menn kaupa jarðir að þá verði að fylgja því ein- hverjar skyldur rétt eins og er gert víða í Noregi til þess að efla undirstöður dreifbýlis- ins. Samgöngumannvirki í Suður-Þingeyjar- sýslu muna sum hver sinn fífil fegri en nú hefur Aðaldalsflugvöllur verið í eyði í nokkur ár. Dapurlegt hefur verið að horfa heim að flugstöðinni mannlausri og þessari góðu flug- braut sem var héraðinu til mikils framdrátt- ar í áratugi. Með vaxandi ferðamanna- straumi til Húsavíkur spyrja menn sig að því hvort ekki sé grundvöllur fyrir áframhald- andi flugi, t.d. yfir sumartímann, en yfir tutt- ugu þúsund manns kemur í hvalaferðir auk tugþúsunda manna sem heimsækja merka staði í héraðinu og dvelja sumir marga daga. Aðflug að flugvellinum er talið mjög gott og stutt til allra áfangastaða sem ferðamenn hljóta að meta mikils ef þeir ættu þess kost. Veðrið hefur verið sveitamönnum í Þing- eyjarsýslu hagstætt að undanförnu en eftir margra vikna mikinn vetur brá svo við að sól fór að skína og snjór bráðnaði. Svell hafa minnkað í góðu tíðinni nema á einstaka bæj- um og eru menn bjartsýnir á að kal verði með minna móti. Girðingar fóru hins vegar illa í snjónum því hann var mikill og sligaði víra í stórum stíl. Það verða því mörg handtök að gera við alla þá strengi sem koma slitnir und- an farginu í vor og á mörgum stöðum hafa staurar brotnað. En öllu fylgir nokkur gleði því harða hjarnið sem kom varð til þess að fólk hefur víða getað ekið og farið á bílum um heiðar og upp á fjöll og séð sig um á stöðum sem ekki eru í alfaraleið. Þá hefur bændafólk sést úti við, jafnvel við vorverk. Úr sveitinni LAXAMÝRI EFTIR ATLA VIGFÚSSON FRÉTTARITARA       Út er komið hjá Routledge-bókaútgáfunni þriggja binda alfræðirit um norðurslóðir, En- cyclopedia of the Arctic, í ritstjórn Mark Nuttall. Ritið inniheldur fjölmarg- ar greinar um norð- urslóðir, svo sem um- hverfi, dýralíf, veðurfar, sögu, landkönnun, auð- lindir, efnahagsmál, stjórnmál, menningu og tungu frumbyggja og fleira. Þetta alfræðirit er hið eina sinnar tegundar sem á svo yfirgripsmikinn hátt lýsir þessum víð- áttumikla, flókna og breytilega hluta jarð- arinnar. Ritið mun koma sér vel fyrir þá sem stunda kennslu og rann- sóknir sem tengjast norð- urslóðum, íbúa svæðisins og alla þá sem áhuga hafa á umhverfismálum, sjálf- bærri þróun, vísindum og sambandi mannsins við umhverfi sitt. Norðurslóðir Góð þátttaka var ínámskeiðiFræðslunets Suð- urlands sem fram fór í Leikskálum, en yfir sjötíu manns tóku þátt í nám- skeiðinu og gerðu góðan róm að fyrirlestrum sem í boði voru að því er fram kemur á vefsíðu Mýrdals- hrepps. Sérfræðingar á ýmsum sviðum fræddu þátttak- endur um margvísleg efni; landnám, jarðfræði, at- vinnuhætti, sögu og menn- ingu, en allir gjörþekkja sveitina og sögu hennar. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Þórir Kjartansson með framsöguerindi á átthaga- námskeiði í Vík í Mýrdal, því fjölmennasta sem haldið hefur verið á Suðurlandi. Átthaganámskeið Friðrik Stein-grímsson í Mý-vatnssveit fylgdist af athygli með setningu landsþings Framsókn- arflokksins: Í upphafinu gól með glans gaura kórinn stóri, mér fannst þessi maga dans miklu betri en Dóri. Davíð Hjálmar Haralds- son yrkir af þessu sama tilefni: Erfitt þingið oftast tel, eigum marga rimmu stranga en náum okkur nokkuð vel ef naflaskoðun höfum langa. Hreiðar Karlsson er með „litla pólitíska ábend- ingu“: Flestöll mál er hægt að toga og teygja til að láta á sér bera á fundum. Sumir hefðu þurft að læra að þegja þó að ekki væri nema stundum. Af þingi Framsóknar pebl@mbl.is Selfoss | Skrifstofuhótel tók til starfa á Selfossi síðastliðinn fimmtudag. Skrif- stofuhótelið er samvinnuverkefni þriggja sveitarfélaga, Árborgar, Hveragerðis og Ölfuss undir heitinu Sunnan3 – rafrænt samfélag, í samstarfi við Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og radíóþjónustu Suðurlands (TRS). Skrifstofuhótelið verð- ur staðsett í húsnæði Verkfræðistofu Suð- urlands á annarri hæð í „Kjarnanum“ Austurvegi 3–5 á Selfossi . Við opnunina kom fram að markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu eða utan Ár- borgarsvæðisins, en vilja vinna 2–3 daga í viku í heimabyggð. Um er að ræða full- komna skrifstofuaðstöðu með öflugu há- hraðasambandi og hvetjandi vinnuum- hverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð, en hér er einnig um að ræða hagræðingu fyrir vinnuveit- endur í lægri skrifstofukostnaði. Að auki getur skrifstofuhótel haft samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð, mengun og slysahættu. Árni Magnússon félagsmálaráðherra sem opnaði Skrifstofuhótelið með formleg- um hætti sagði ýmsa möguleika fylgja starfsemi sem þessari og nefndi að vel mætti kanna möguleika þess að starfsfólk ráðuneyta nýtti slíka aðstöðu. Íbúar sem vinna fjarri heimili fá vinnuaðstöðu Fyrsta skrifstofuhót- elið opnað á Selfossi Drangsnes | Olíufélagið hf hefur opnað nýja sjálfsafgreiðslustöð fyrir bensín og ol- íu á Drangsnesi. Nýju dælurnar taka öll kort. Þar með er endi bundinn á algjört vandræðaástand frá því síðasta vor þegar Skeljungur lokaði bensínafgreiðslu sinni á Drangsnesi segir á vefnum strandir.is og ennfremur að nú geta ekki bara Drangs- nesingar sem eiga sérstök viðskiptakort dælt á bílana sína, heldur líka allir þeir sem leið eiga um og vantar eldsneyti. Ný bensínstöð á Drangsnesi ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.