Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 64
Hafísjakar við Kolbeinsey. Myndin var tekin í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær. HAFÍS er nú fyrir öllu Norðurlandi. Er ísinn kom- inn nokkuð nærri landi og fer að nálgast Grímsey. Siglingaleiðin fyrir Horn er að verða varasöm ef veðurspá næstu daga gengur eftir samkvæmt upp- lýsingum Landhelgisgæslunnar. „Það verða norðan- og norðaustanáttir næstu daga,“ sagði Björn Sævar Einarsson veðurfræð- ingur í gærkvöldi. Spáð er harðnandi frosti fram á mánudag og gera má ráð fyrir áframhaldandi norðaustlægum áttum út næstu viku. Hafísinn rekur í áttina að landi. Flugvél Landhelgisgæsl- unnar, TF-SYN, fór í ískönnunarflug úti fyrir Norðurlandi í gær og lá ísbrúnin næst landi 10 sjó- mílur norður af Kögri, 20 sjómílur norðaustur af Geirólfsnúpi, 20 sjómílur norðvestur af Grímsey. Hafís ógnar siglingum MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. BYRJAÐ er að rífa gamla turninn sem staðið hefur í tæp fjörutíu ár við Slökkvistöðina í Skógarhlíð í Reykjavík. Jón Viðar Matthías- son, slökkviliðsstjóri, segir turninn hafa verið skemmdan og því varasaman. Hann segir mikla eftirsjá að turninum sem glatt hefur borgarbúa fyrir jólin síðustu árin. Steypuskemmdir komu í ljós fyrir nokkr- um árum og er hann talinn hættulegur ná- grenni sínu. Jón segir að þótt menn eigi góð- ar minningar um turninn, sæmi það ekki slökkviliðinu sem öryggisfyrirtæki að láta hann standa. „Turninn er tímasprengja og því var ákveðið að rífa hann í gærmorgun.“ Jón Viðar segir síðustu daga hafa verið þunga hjá starfsmönnum Slökkviliðsins í Reykjavík enda hafi turninn staðið sem klett- ur samhliða starfsferli starfsmanna þess. Turninn var reistur á sama tíma og slökkvi- stöðin árið 1967 og á hann tæp tvö ár í fer- tugsafmælið. Gamli turninn í Skógarhlíðinni gegndi margvíslegu hlutverki. „Fyrstu árin var hann notaður til að þurrka strigaslöngur. Í stað þeirra eru komnar gúmmíslöngur,“ segir Jón Viðar og bætir við að turninn hafi líka verið notaður sem æfingasvæði. „Starfs- menn æfðu sig með því að hlaupa upp og nið- ur tröppur turnsins, sem jafnaðist á við sex hæða hús. Svalirnar voru notaðar til að æfa notkun körfubílsins,“ segir Jón Viðar. Fyrir nokkrum árum hóf fyrrverandi starfsmaður Slökkviliðs Reykjavíkur sem kominn er á eftirlaun að skreyta turninn. „Hann hengdi upplýsta jólasveina á turninn og vöktu þeir athygli borgarbúa um jólin,“ segir Jón Viðar. „Við verðum að leggja haus- inn í bleyti varðandi jólaskrautið í ár.“ Verk- inu miðaði vel í gær og býst Jón við að öll merki turnsins verði horfin seinnipartinn í dag. Turninn við Slökkvistöð- ina rifinn Morgunblaðið/Júlíus SAFNPLATA með end- urgerðum á laginu „Army of Me“ með Björk kemur út í vor. Alls bárust 600 lög á vef Bjarkar og hafa tuttugu þeirra verið valin til út- gáfu. Eitt þessara laga á Íslendingur, Dr. Gunni, sem er hæstánægður með valið. Ágóðinn af sölunni rennur til UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, en stefnt er að því að safna tæpum 30 milljónum króna á fyrstu tíu dögunum í sölu. /57 Búið að velja lögin FRÉTTAMENN á Ríkisútvarpinu hafa lýst yfir vantrausti á Markús Örn Antonsson útvarpsstjóra vegna ráðningar hans á Auðuni Georg Ólafssyni í starf fréttastjóra Útvarpsins. Í yfirlýsingu sem samþykkt var einróma á fundi í Félagi fréttamanna segir að ráðning Auðuns Georgs sé augljóslega á pólitískum forsendum einvörðungu og með henni sé vegið að sjálfstæði og óhlutdrægni fréttastofunnar. Á almennum starfsmannafundi var samþykkt ályktun þar sem skorað var á útvarpsstjóra að end- urskoða ákvörðun sína um ráðninguna. Liðlega 200 manns voru á fundinum og samþykktu 93% þeirra sem greiddu atkvæði ályktunina. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir útvarps- stjóra vera rétta aðilann til að meta hver sé hæf- astur í stöðuna, ljóst sé að bæði hann og útvarpsráð hafi viljað fá utanaðkomandi aðila í starfið. Lýsa vantrausti á útvarpsstjóra  Ráðning fréttastjóra RÚV/10 og 11 GJALDEYRISTEKJUR ferða- þjónustunnar voru rúmlega 39 milljarðar króna á síðasta ári og jukust um 5,4% frá árinu á und- an. Aukningin er að stærstum hluta vegna eyðslu erlendra ferðamanna innanlands, sem var 26 milljarðar kr. Á árinu 2003 voru gjaldeyristekjur vegna út- gjalda erlendra ferðamanna inn- anlands rúmlega 24,5 milljarðar. Hafa meira til ráðstöfunar vegna lægri fargjalda Eyðsla erlendu ferðamann- anna innanlands jókst um 6,31% og fargjaldatekjur um 3,77%, skv. upplýsingum Samtaka ferðaþjónustunnar. Voru far- gjaldatekjur í fyrra alls 13 millj- arðar. Ársæll Harðarson, forstöðu- maður markaðssviðs Ferðamála- ráðs, bendir á að fargjöld hafi lækkað að raungildi. „Sérstak- lega þó frá Evrópu og þar er líka mestur vöxtur. Þetta bendir því til þess að þeir ferðamenn sem hafa verið að koma í auknum mæli frá Evrópu, hafa meira til ráðstöfunar eftir að hingað er komið,“ segir hann. Hann segir einnig að framboð á afþreyingu og vöruvali í ferða- þjónustunni hafi aukist. Hins vegar telur Ársæll ekki að skýr- ingin á auknum gjaldeyris- tekjum sé vegna þess að hækk- anir hafi orðið á þjónustunni hér innanlands. „Ég tel að tölur sýni að það hafi ekki verið um miklar verðhækkanir að ræða, hvorki á veitingum eða á ferðum. Þetta er ánægjulegt. Ferða- menn eru að eyða meira og nýta meira innviði ferðaþjónustunn- ar.“ Alvarleg ógnun Að mati Samtaka ferðaþjón- ustunnar má halda því fram að gjaldeyristekjurnar á seinasta ári hefðu verið röskum tveimur milljörðum meiri ef gengið hefði haldist óbreytt en miklar sveifl- ur í gengi séu fyrirtækjunum mjög erfiðar. Þá hafi gengiskarfa Seðla- bankans lækkað um rösklega 10% síðustu 6 mánuði og ljóst að fyrirtæki sem seldu ferðir til Ís- lands 2005 á föstu verði fyrir 6 mánuðum séu búin að tapa stórum hluta álagningar sinnar. Áframhaldandi hátt og jafnvel hækkandi gengi íslensku krón- unnar sé alvarleg ógnun við af- komu fyrirtækjanna. Vaxandi gjaldeyristekjur af ferðamönnum þrátt fyrir sterka krónu Eyðsla innanlands jókst um 1,5 milljarða króna ♦♦♦ NAFNIÐ Flugleiðir heyrir nú sög- unni til. Fyrirtækið bar sitt gamla nafn við upphaf aðalfundar síns í gær en hét FL Group þegar fundi var slit- ið. Engin átök urðu um nafnbreyt- inguna og var hún samþykkt með stórum hluta atkvæða. Tveir greiddu atkvæði gegn tillögunni og nokkrir sátu hjá. Hannes Smárason, stjórnarformað- ur félagsins, sagði í ræðu sinni að nafnbreytingin væri til marks um tvennt. Í fyrsta lagi bæri hún merki um að félagið væri fjárfestingarfélag sem líti út fyrir flugrekstur í meiri mæli en áður. Í öðru lagi hefði félag- ið „markað sér víðari sjóndeild- arhring og nýtt nafn endurspeglaði sókn og vöxt á alþjóðlegum markaði. Erlendis er Flugleiðanafnið óþjált í munni og þörf fyrir nafn sem hægt er að nota hvarvetna,“ sagði Hannes./18 Flugleiðir ekki lengur til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.