Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 21 MEÐAL hátíða í Rússlandi hefur Sigurdagurinn 9. maí alveg sérstakan sess. Ein minning frá árum seinni heimsstyrjald- arinnar sem ber rússneska heitið Stóra föðurlandstríðið fær hjart- að í hverjum íbúa Rússlands til að slá hraðar. Jafnvel nú að 60 árum liðnum finnur maður varla fjölskyldu í landinu sem ekki hef- ur verið snortin af logum stríðs- ins. Stríðsárin færðu þjóðum Sovétríkjanna þungar byrðar, en þær sýndu dæmi hetjuskapar, per- sónulegs kjarks og sannrar föðurlands- ástar. Þess vegna hefur Stóra föð- urlandsstríðið feng- ið alveg sérstakt pláss í sögunni. Fyrir marga, þ. á m. þátttakendur þess er þetta mjög persónuleg hátíð, en hetjurnar eru því miður að yfirgefa okkur. Megi minning þeirra lengi lifa sem börðust á landi, á sjó og í lofti til að verja föðurlandið gegn pest 20. aldar svo og þeirra sem voru kvaldir til bana, hengdir, skotnir, brenndir lifandi í fasískum út- rýmingarbúðum, dóu í þræla- vinnu eða úr kulda og hungri í umsátrum. Einn er sá lærdómur sem al- þjóðasamfélagið getur dregið af atburðunum sem eru 50-60 ára gamlir en samt full ástæða til að halda á lofti. Að undanförnu hafa farið fram heitar umræður um þá í mörgum löndum. Ekki eru það endilega deilur um túlkun á ýms- um atburðum stríðsins heldur siðferðislegir dómar um upphaf þess, framvindu og niðurstöður sem tengjast beint evrópskum og heimsstjórnmálum nútímans. Enda er sagan pólitík sem bein- ist að fortíðinni. Síðari heimsstyrjöldin var tímamótaviðburður. Í fyrsta sinn í sögu mannkynsins var líf heilu þjóðanna í húfi. Gasklefar útrým- ingarbúða í Buchenwald, Ausch- wiz, Salaspils og fleiri hafa sýnt hvað fasismi bar með sér og hvaða framtíð svo kölluð „nýskip- an“ var að færa heiminum. Og þeir sem í sumum löndum draga í efa bæði þýðingu Sigursins og hlutverk þjóðar okkar gleyma því að án Sigursins gæti lönd þeirra vantað á heimskortið í dag. Bakgrunnur tilraunanna til að rangfæra stríðssöguna felst í því að eigna sigursheiðurinn Vest- urlöndunum og smækka hlutverk Sovétríkjanna og jafnhliða því að kenna þeim síðarnefndu ábyrgð á því að Hitler kom styrjöldinni af stað. En ef við skoðum sögu fyr- irstríðsáranna þá má ekki gleyma þeirri stefnu Vesturland- anna að friða fasista í Þýskalandi með það fyrir augum að bægja frá sér árásarstríði og færa það í austurátt gegn Sovétríkjunum. Hápunktur þessarar stefnu varð München-samsærið árið 1938. Friðunin skilaði sér árið eftir í byrjun síðari heimsstyrjald- arinnar þegar fasistar hertóku mörg Evrópulönd. Staðhæfingar um „ýkt innlegg Sovétríkjanna í Sigurinn“ stand- ast enga gagnrýni. Árið 1944 var sovésk-þýsk víglína 4 sinnum lengri en heildarvíglína banda- manna Sovétríkjanna. Á sama tíma barðist að hámarki 201 her- deild nasista á austurvígstöðvum en bandarísk-breskar hersveitir tókust á við 2 til 21 herdeild. Jafnvel eftir að Vesturlöndin höfðu opnað vesturvíglínuna höfðu bandamennirnir 1,5 millj- ónir hermanna á móti 560 þús- undum Þjóðverja. En fyrir aust- an á sovésk-þýsku víglinunni tókust á 4,5 milljónir þýskra her- manna við 6,5 milljónir Sov- étmanna. Nasískar hersveitir biðu mest tjón í bardögum gegn sovéska Rauða hernum sem kost- uðu þá 70% hermanna og 75% hergagna. Stríðið kostaði líf 27 milljóna sovéskra ríkisborgara (þ.e. 1/8 alls íbúafjölda) á tíma- bilinu 1941-45, þ.á m. 9 milljóna hermanna og liðsforingja. 11 milljónir biðu bana í útrýming- arbúðum fasista. Rúmlega 1700 borgir og næstum 100.000 þorp voru lögð í rúst. En stríðið þjapp- aði sovésku þjóðinni saman og verk- smiðjur héldu áfram að vinna. Eftir stríðslokin var efna- hagur landsins end- urreistur innan 4ra ára án aðstoðar að utan sem ber vitni um sálarstyrk sig- ursællar þjóðar. Churchill, for- sætisráðherra Bret- lands skrifaði: „Það er nefnilega rúss- neski herinn sem réð niðurlögum þýsku stríðsvél- arinnar.“ George Bush Banda- ríkjaforseti tekur undir það, en hann lét eftirfarandi orð falla á hátíðarhöldum vegna 60 ára af- mælis landgöngu bandamann- anna í Normandí: „Án Rússlands hefði þetta ekki verið mögulegt.“ Enginn hefur rétt á að lækka það verð sem þjóð okkar og land greiddu í stríðinu né að minnka umfang glæpa nasista og hvað þá að hetjutigna þá. En við skiptum ekki Sigrinum í prósentur árið 1945 né gerum það nú. Ásamt bandamönnum okkar fögnuðum við 60 ára af- mæli opnunar vesturvíglínunnar og saman höldum við upp á stór- afmæli Sigursins í Moskvu. Stríðið var unnið af öllum banda- mönnunum í andnasísku sam- steypunni. Þetta er okkar sam- eiginlegi sigur. Við gleymum aldrei hetjulegu framlagi litlu íslensku þjóð- arinnar á Norður-Atlantshafinu. Um Ísland lá stysta leiðin fyrir birgðaflutninga fyrir Rauða her- inn í hafnirnar Múrmansk, Ark- angelsk, Molotovsk (Severod- vínsk) og fl. Það var 41 skipalest (797 skip) sem flutti 4 milljónir tonn af ýmsum varningi. Nas- istar sendu á vettvang um 100 kafbáta auk margra herskipa og orrustuflugvéla. Þeim tókst að sökkva 83 lestarskipum og 15 varðskipum. Samanlagt eyði- lögðu bresk, bandarísk og sovésk skip og flugvélar 27 kafbáta, 2 línuskip og 3 tundurspilla óvin- arins. Íslenskir sjómenn ásamt starfsbræðrum sínum frá öðrum löndum settu líf sitt í hættu með því að sigla á skipum undir fána Bandaríkjanna, Bretlands, Nor- egs, Hollands og Panama við að færa Sovétmönnum matvæli, vopn, skotfæri. Þjóð okkar hefur ekki gleymt og mun aldrei gleyma þessum ómetanlega stuðningi á erfiðustu þrautaár- unum. Meginniðurstaða stríðsins er ekki aðeins sigur annars þjóða- bandalags á hinu. Þetta er í rauninni Sigur skapandi afla og siðmenningar á öflum eyðilegg- ingar og siðleysis. Sigur lífs á dauða. Heimsstyrjöldin varð að stærsta harmleik fyrir þjóðir Evrópu og heimsins alls. Skylda sagnfræðinga er að segja sann- leikann um harmleikinn en þetta má ekki nota í pólitísku braski. Í dómum vegna stríðsins má ekki færa til siðferðisstoðir. Í ræðu sem Vladimir Pútín forseti Rúss- lands flutti 27. janúar sl. í Aus- weiz kallaði hann algjörlega sið- lausar allar tilraunir að endurrita sögu stríðsins, jafna réttindi fórnarlamba og böðla, frelsara og hernámsliða. Reynsla af alþjóðlegu bræðra- lagi frá stríðsárunum eignast sérstaka þýðingu þegar enn er verið að bjóða mannkyninu birg- inn, í þetta skipti frá alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi sem hefur þegar drepið þúsundir óbreyttra manna. Hægt er að ráða við þessa ógnun eingöngu á grund- velli samheldni og gagnkvæms trausts eins og fyrir 60 árum. „Tvöfeldni“ í tilviki hryðjuverka- manna er eins ófyrirgefanleg og tilraunir til að endurreisa æru samverkamanna fasista. Að veita hryðjuverkamönnum ræðustól til að boða mannhaturshugmyndir sínar er eins siðlaust og ónátt- úrulegt og að leyfa skrúðgöngur fyrrum nasískra SS-liða í löndum sem gera tilkall til hollustu við lýðræðisleg gildi. Skylda okkar við þá sem borg- uðu með blóði sínu til að verja mannkynið gegn nasisma felst fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir umburðarleysi, kyn- þáttar-, þjóðernis- og trúarhroka, sem hylja tilkall til heimsyfirráða og eru jarðvegur fyrir nýjar ógn- ir. Samheldni landa and- hryðjuverkabandalagsins, sam- stillt þróun samskipta milli mismunandi þjóða og trúar- bragða, umburðarlyndi og gagn- kvæmt traust, varðveisla menn- ingarfjölbreytni, opin og uppbyggileg samverkan menn- ingarheima eru aðalskilyrði sig- urs á hatri, aðskilnaðar- og öfga- stefnu. 60 ára afmæli Sigurs á ekki að verða að átyllu til árekstra og uppgjörs gamalla reikninga. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst 8. og 9. maí sem Dögum minningar og sátta. Í þeim anda fara fram hátíðarhöld í Moskvu sem for- ystumenn meira en 50 ríkja og forsvarsmenn helstu alþjóðlegra samtaka taka þátt í. Sig- ursafmæli er einnig fagnað á Ís- landi. 18. apríl voru íslenskum hetjum afhentar rússneskar heið- ursorður, mönnum sem sigldu í skipalestum, þeim Pétri H. Ólafs- syni og Guðbirni Guðjónssyni. Félag menningartengsla Íslands og Rússlands, „MÍR“ efndi til sýningar stríðsplakata og sýndi kvikmyndir um síðari heims- styrjöldina. Í Reykjavík, á Ak- ureyri, Neskaupstað og í Reyð- arfirði fara fram sýningar sovéskra stríðsljósmynda. Fyrir nokkrum dögum voru færðar hamingjuóskir Vladimirs Pútíns forseta Rússlands til þátttakenda stríðsins. Í dag, á Sigurdeginum, verður afhjúpaður minnisvarði undir titlinum „Nadezhda“ („Von“), gerður af einum fræg- asta myndhöggvara Rússlands, Vladimir Súrovtsev, og verður hann settur upp í Fossvogs- kirkjugarði í Reykjavík til minn- ingar um fallna þátttakendur í siglingum skipalesta á stríðs- árunum. Svipaðar athafnir eru skipulagðar í mörgum löndum heimsins. Mikilvægt er að yf- irstandandi hátíð stuðli að sam- einingu allra landa og þjóða og efli samheldni okkar í baráttu gegn helstu ógnunum 21. aldar. Okkar sameiginlegi sigur og lærdómur hans Eftir Alexander Rannikh ’Meginniðurstaðastríðsins er ekki að- eins sigur annars þjóðabandalags á hinu. Þetta er í raun- inni Sigur skapandi afla og siðmenningar á öflum eyðileggingar og siðleysis. Sigur lífs á dauða.‘ Höfundur er sendiherra Rússlands á Íslandi. Alexander Rannikh irspurnir berist frá Íslendingum og útlendingum, bæði búsettum innan lands og utan. Um sé að ræða fólk sem ýmist hefur lokið doktorsnámi eða er að ljúka því. „Það eru ekki mjög mörg tækifæri fyrir þá sem vilja fara í rannsóknir í tækni- og verkfræði. Það er langt á milli þess að stöður losni og flókin ráðn- ingaferli. Nú eru ýmsir úti í atvinnu- lífinu en hafa haft áhuga á að starfa í háskólageiranum án þess að hafa fengið tækifæri til þess.“ Mikil þörf fyrir þessa menntun En er mikil þörf fyrir fólk með þá menntun sem tækni- og verk- fræðideild HR ætlar að bjóða upp á? „Já, við teljum vera mikla þörf fyrir það. Kannanir Samtaka iðn- aðarins og fleiri sýna beina þörf fyrir fólk með þessa menntun. Við segjum einnig að það sé ekki hægt að hafa of marga með þessa menntun, því þetta er fólkið sem skapar tækifærin. Það er mikið talað um þekkingarsam- félagið. Við leggjum mikla áherslu á að huga að grunni þess. Tökum sem dæmi orkuframkvæmdir fyrir aust- an þar sem erlendir aðilar hafa þekkinguna að stórum hluta og fara svo með hana úr landi þegar fram- kvæmdum er lokið. Eins má nefna fjármálaheiminn. Það er mikilvægt að hafa traustan grunn, svo að þekk- ingin verði til staðar í landinu. Þetta eru allt að verða hátæknigreinar. Framleiðslan flyst þangað sem hún er ódýrust, en forskot Vesturlanda hefur legið í nýsköpun og þekkingu, sem byggist algjörlega á menntun. Nýlegar tölur sýna að við Íslend- ingar erum á eftir nágrannaþjóðum hvað varðar fjármögnun háskóla. Þótt við færumst í rétta átt eigum við talsvert í land með að standa jafnfætis nágrönnum okkar. Hér er um sameiginlegt verkefni að ræða. Hlutföll nemenda í háskólanámi hér sýna að það eru hlutfallslega fáir í verk- og tækninámi hér á landi, samanborið við nágrannalönd.“ Samstarf við aðra skóla Bjarki nefnir að nýlega hafi komið hingað gestur frá háskóla í Finn- landi sem sagði að þar væru um 50 þúsund nemendur í tækni- og verk- fræðinámi, sem jafngilti 1% af finnsku þjóðinni. Samsvarandi tala fyrir Ísland væri því um um 3.000 nemendur. „Hvort sem þessar tölur eru rétt- ar eða ekki þurfum við ekkert að sjá ofsjónum yfir að hér séu tvær há- skóladeildir, hvor með um 1.000 nemendur í tækni- og verk- fræðigreinum,“ segir Bjarki. „Ég hef ekki áhyggjur af því að það stefni í offramleiðslu á verkfræði- og tæknimenntuðu fólki. Einn banki eða fyrirtæki á borð við Össur og Marel eru með hundruð starfs- manna. Ef á að vera hægt að stofna fleiri slík fyrirtæki í framtíðinni þarf að fjölga því fólki sem getur gripið boltann og hlaupið með hann áfram.“ Bjarki segist sjá fyrir sér sam- starf við verkfræðideild HÍ í fram- tíðinni. Hann segist vera opinn fyrir því en eftir sé að útfæra slíkt sam- starf nánar. „Tækni- og verk- fræðideild HR var ásamt verk- fræðideild HÍ að stofna rannsóknasetur í fræðilegri tölv- unarfræði 29. apríl síðastliðinn. Við teljum okkur geta unnið bæði með verkfræðideild HÍ og eins raunvís- indadeild eða læknadeild HÍ. Mér finnst vel koma til greina að t.d. upp- götvanir sem eðlisfræðingar vinna að komi síðan til okkar og við vinnum að þróun þeirra til hagnýt- ingar. Eins gætum við átt gott sam- starf við læknadeild um verkefni á sviði heilbrigðisverkfræði. Okkur þykir það sjálfsagt og eðlilegt. Markmið okkar er ekki að stækka deildina endalaust, heldur að hún sé góð og hafi sterkt námsframboð. Einnig er nauðsynlegt að auka rann- sóknavirkni í þessum greinum hér á landi. Það er sjónarmið út af fyrir sig að það eigi vera ein öflug há- skóladeild hér á landi á sviði tækni- og verkfræði í stað tveggja. En við teljum að víxlverkun milli tveggja framsækinna deilda vegi þyngra en að vera með eina stóra. Við höfum þá eitthvað til að bera okkur saman við hér innanlands.“ áa nem- kfræðigrein- andlega 20– msbraut og era það óran hóp li. Það verð- m sölum, hefðbundið í kólum. Við stustig og spillast fjár- falla úr kaða. Við nnig betra, pil innbyrðis eirra og um. Að rjátíu erkefnum verk- uhættir og öðru sniði en um háskóla- fimm nám- rða fjögur kur sem lýk- eta nemar mur vikum r mjög sam- inbeitt sér ta auðveldar afyrirlesara an lands og ið.“ fi gengið að Við vorum a, tækni- rumgrein- seri byrjum ræðigrein- a kennara gu námsins. gar umsókn- ra mikill sum nýju ð fyr- amboði á ntuðu fólki /Árni Sæberg á sínum tíma átt lengi í viðræðum við mennta- málaráðuneytið varðandi breytingu TÍ í tækniháskóla. SI hafi ekki séð rekstr- arforsendur fyrir því að taka yfir reksturinn á þeim tíma. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafi síðan tekið málið upp í fyrrahaust og því hafi lyktað með sam- einingu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík (HR). „Við fögnuðum því mjög,“ segir Sveinn. „Þá var gengið til viðræðna við þrenn samtök at- vinnulífsins sem nú standa að HR, það er Verslunarráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins. Í því sambandi lögðum við mikið upp úr því að tæknifræði, iðnfræði og frumgreinadeild, sem er aðfaranám iðn- aðarmanna fyrir háskólanám, yrði tryggður sess í hinni nýju tækni- og verkfræðideild HR. Á tímabili vorum við hræddir um að tækni- fræði- og iðnfræðinám væri að leggjast af og á förum úr landi.“ Samtök iðnaðarins hafa gert samning við THÍ um fjarnám í frumgreinadeild sem flyst nú yfir í HR. Sveinn segir að SI vilji styðja áfram við uppbyggingu skólans. kfræði er forsenda þess að hátækniiðn- rinn geti vaxið og dafnað. ú er að verða bylting í atvinnulífi okkar, að i Sveins. Aukin hlutdeild hátæknivara og nustu í verðmætasköpuninni er til vitnis um a. Til að sú þróun geti haldið áfram verði tyrkja ýmsar stoðir atvinnulífs og þjóðlífs, ra á meðal er menntunin. Sveinn telur að ækni- og verkfræðideild Háskólans í kjavík bæti úr brýnni þörf fyrir menntað í þessum geira atvinnulífsins. Gallup gerði fyrir okkur könnun meðal að- rfyrirtækja okkar þar sem könnuð var þörf ra fyrir raungreinamenntað fólk,“ segir inn. „Niðurstöðurnar voru birtar í janúar 4. Þar kom fram að fyrirtækin töldu sig fa að bæta við 800 nýjum starfsmönnum raungreina- og tæknimenntun næstu þrjú . Það er meira en skólakerfið er að skila ur af fólki með þessa menntun.“ gnar sameiningu THÍ og HR veinn segir að SI hafi lengi verið einskonar hjarl gamla Tækniskóla Íslands (TÍ), sem r varð Tækniháskóli Íslands (THÍ). SI hafi nda vaxtar hátækni TÆKNI- og verkfræðideild hefur formlega göngu sína við Háskólann í Reykjavík á kom- andi hausti. Deildin er að stofni til grundvölluð á tækni- deild, heilbrigðisdeild og frumgreinadeild Tæknihá- skólans og tölvunarfræðideild HR. Skólarnir tveir hafa verið sameinaðir undir nafni Há- skólans í Reykjavík. Tækni- og verkfræðideild HR hefur göngu sína með um þúsund nemendur. Það er svipuð stærð og verk- fræðideild HÍ. Um þúsund nemendur hafa verið í Tækniháskólanum og um 400 nemendur í tölvunarfræði HR. Í deildinni verður lögð höf- uðáhersla á verkfræði, tölv- unarfræði og tæknifræði auk frumgreina, sem eru und- irbúningur fyrir háskólanám á þessum sviðum. Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.