Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 30.03.1959, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 30.03.1959, Blaðsíða 8
 OR EINU I ANNAÐ - í - ■ c' Sýning Sigfúsar - Bondinn og frakforinn - Bak við járnfjaldið 'Sigfús Halldórsson, hinn vinsæli listamaður, hefur páskavikuna haldið málverkasýningu í Vestmanna- eyjum. Myndirnar eru allar frá Vestmannaeyjum og hefur verið mikil aðsókn og myndirnar flestar selst. □---------------------- Skáldið Cristopher Isherwood, sem ferðast hefur í hált ár um Suður-Ameríku, hefur gefið út bók um ferðalag sitt. | I bókinni er margs getið um háttu S- Ameríku- mannaog meðal annars eftirfarandi: Isherwood var á ferð í einu smáríki Suður- Amer- íku og dvaldist þar í þorpi einu. þetta var um pásk- ana — og voru mikil hátíðahöld hjá íbúunum. Fremst í skrúðgöngunni var mikið líkneski af Jesú Kristi, en þeir innfæddu höfðu fundið upp á því að setja á hann skáta hatt, en á eftir líkneskinu gekk hljómsveit þorpsins og lék hið alkunna „I can’t gíve you anything but love, baby.“ Margir kannast við auglýsingar hér í blöðunum 'frá einmana mönnum eða stúlkum, sem vilja kynn- ast með giftingu fyrir augum. I blaðinu Magna í Utha, Bandaríkjunum stóð eftirfarandi auglýsing: „Bóndi, 38 ára, óskar eftir að kynnast stúlku um þrítugt, sem á traktor. Gjörið svo vel og sendið mynd af traktornum í box 7, „Magna". □---------------------- Maður einn kom með ungum syni sínum í stræt- isvagn. Strákurinn var óstýrilátur og vildi alltaf standa uppi í sætinu þrátt fyrir bann föðurins. Loks brast föðurinn þolinmæðina og sagði: „Geturðu aldr- ei hlýtt mér, strákur?" Þá gall í kauða:,, Aldrei hlýðir þú mömmu, þegar hún bannar þér að pissa í vaskinn." Lítinn rnann og heldur óframfærinn var verið að rannsaka vegna lífsábyrgðar. „Þú drabbar ekki, eða hvað?,“ spurði læknirinn. „Þú nýtur ekki lífsins of ört, drekkur ekki of mikið, eða neitt af því taginu?“ Litli maðurinn hikaði augnablik, en svaraði síðan skjálfandi röddu: „ Ja, hér, ég tygg stundum svolítið gúmmí.“ Þetta skeði á kaffistofu í Varsjá: „Ó, það var öðruvísi í gamla daga“, hvíslaði gam- all prófessor, og leit varlega í kring um sig. „Þá gátum við logið alveg eins og okkur sýndist. Núna er okkur sagt hverju við eigum að Ijúga." HvaS á a<5 gera i kvöld? Kvikmyndshús: Gamla bíó: Riddarar hringborðsins —- Robert Taylor, Ava Gardner. Nýja bíó: Kóngurinn og ég. —■ Yul Brynner, Deborah Kerr. Austurbæjarbíó: Ungfrú Pigalle. —• Birgitte Bardot. Stjörnubíó: Systir min, Eileen. — Jack Lemmon, Janet Leigh. Tripoli; Sumar og sól íTýról. — Gerhard Rieimann. Hafnarbíó: Gotti getur allt. — June Allyson, David Niven, Tjarnarbíó: St. Louis Biues. — Nat „King“ Cole. Ella Eitzgerald. teikhús: Þjóðleikhúsið: Fjárhættuspilarar og Kvöldverður kardínálanna. Iðnó: Deleriuni búbónis. (Birt án ábyrgðar)'. Félagsbréf ÁB 11. liefti. Út er komið 11. hefti Félags- bréfa Almenna bókafélagsins. Efni þess er að þessu sinni sem hér segir: Viðtal við Loft Guðmundsson um síðustu skáldsögu hans, Gang rimlahjólið, o. fl. Bjarni Bene- diktsson, ritstjóri, og dr. Alex- ander Jóhannesson, prófessor, rita um Einar Benediktsson, Lárus Sigurbjörnsson á þarna grein, er hann nefnir Þjóðleik- hús í deiglu, en um bækur rita þeir Affalgeir Kristjánsson, Þórff- ur Einarsson, Njörffur P. Njarff vík og Baldur Jónsson Þá flytur ritið allmikið af skáldskap. Njörffur P. Njarðvík á þarna smásögu, er hann nefnir Spor, en ljóð eru eftir Björn Daníelsson, Indriffa G. Þorsteins- son, Ingimar Erlend Sigurðsson og Sigurff A. Magnússon. Þau Guffrún Árnadóttir frá Oddsstöð- um og Jóhann Garðar Jóhanns son eiga stökur í ritinu. Einnig flytur heftið tilkynn- ingu um tvær næstu mánaðar- bækur bókafélagsins, apríl-bók og maí-bók. Nefnist apríl-bókin Maðurinn og máttarvöldin og er eftir norska skáldið Olav Duun, þýðandi er Guðmundur G. Haga- lín, en maí-bókin er úrval úr smásögum Gunnars Gunnarsson- ar valið af þeim Guðmundi G. Hagalin ‘og Tómasi Guðmunds- syni. * I --------------------------! Ásgríms Páskamessa Framhald af 4. síðu. ræð lagaskylda til að endur- heimta listaverk landsins úr stjórnarskrfstofunum og gera safnið sanna mynd af íslenzkri listþróun. Þar næst ber mennta- málaráði að hrista af sér for- heimskandi áhrif fákunnandi og lítt megandi klessukarla, sem þar hafa vaðið uppi í borg og byggð landi og lýð til vanvirðu. Það verður að hætta að gefa eftirlegu kindum listþroskans tækifæri til að útiloka Ríkarð Jónsson, Gunn- laug Blöndal og nálega 20 aðra snilldarmenn frá skiptum við landið. Listasafn íslands verður að vera sönn og ófölsuð mynd af þróun málara og og höggmynda listar frá byrjun yfirstandandi alda, en á því eru nú mikil mis- smíði. Atómlýðurinn má vel vita að ekki hafa þeir dregið björg í bú íslenzka listasafnsins og mun tæplega leyft öllu lengur að gera listamál landsins að athlægi innan lands og utan. Páskamessa Ásgríms, stórhug- ur hans, snilld, þjóðrækni og frábær fórnarlund í málefnum íslenzkrra listar eru vel fallin til að marka tímamót í listasögú landsins. Fordæmi hans verður lengi leiðarstjarna í íslenzkri list. Auglýssð Mánudagsblaðinu Mánudagur 30. marz 1959 Páskamynd Trípolibíós heitir Sumar og sól í Tyrol, þýzk söngva- og gamanmynd, sem tekin er í tyrólsku Ölpunum. Myndin f jallar um unga elskendur, bráðskemmtileg „vand- ræði“, árekstra og æfintýri, unz allt fellur í ljúfa löð. Gam- anatriðin eru mörg og góð, söngur og kátína ríkja. Aðal- lilutverk leikh Gerhard Rierdmann og Doris Kirchner. Mjög skemmtileg og létt mynd. Páskamynd Gamla bíós er að þessu sinni Riddarar hring- ÍK)rðsins, byggð á skáldsögu Sir Thomas Malory, Dauði Arthurs konungs. Mynd þessi hefur allt það til að bera, sem nauðsynlegt er slíkum riddaramyndum, ástir, bard&ga, burtreiðar og auðvitað úrslitaátökin. Myndin er litrík og ýmsir kaflar ákaflega spennandi. Aðalhlutverk leilta Robert Taylor, Ava Gardner og Mel Ferrer, en auk þeirra ýmsir ágætir m'enn í smærri hlutverkum. Æska ogr fegurð.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.