Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 19

MINNSTAÐUR

Reykjavík | Fimm þjónustumiðstöðvar í hverf-

um Reykjavíkur tóku til starfa í vikunni sem

leið þegar skrifað var undir þjónustusamninga

vegna þeirra verkefna sem flytjast frá svið-

unum til þjónustumiðstöðvanna. Þar er um að

ræða velferðarþjónustu, frístundaráðgjöf og

verkefni á sviði menntamála.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri

segir þjónustu ekki eingöngu snúast um þau

efnislegu gæði sem verið er að útdeila, heldur

ekki síður um aðgengi að þjónustunni og hvern-

ig hún sé veitt. Sú krafa verður líka sífellt há-

værari að fagfólk stilli saman strengi í við-

L50098 Vesturgarður, þjónustumiðstöð fyrir íbúa

Vesturbæjar, er að Hjarðarhaga 45?47.

L50098 Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Miðborgar og

Hlíða er að Skúlagötu 21.

L50098 Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Laugardals og

Háaleitis er að Síðumúla 39.

L50098 Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Breiðholts er í

Álfabakka 12.

L50098 Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Grafarvogs og

Kjalarness er Miðgarður í Langarima 21 í

Grafarvogi.

L50098 Útibú fyrir íbúa Árbæjar og Grafarholts er í

Bæjarhálsi 1.

félags- og þjónustumiðstöðvar, þjónustuíbúða-

kjarna og dagdeildir fyrir aldraða og unglinga-

smiðjur. 

Markmiðið með stofnun þjónustumiðstöðv-

anna er að bæta þjónustu borgarinnar með því

að gera hana aðgengilegri fyrir íbúa og með því

að auka samstarf sérfræðinga í málefnum barna

og fjölskyldna. Jafnframt munu þjónustu-

miðstöðvarnar leggja mikla áherslu á að efla

hvers kyns hverfastarf í samstarfi við íbúa, fé-

lagasamtök og aðra þá sem vilja láta til sín taka.

Þjónustumiðstöðvarnar fyrir hverfin eru á

eftirfarandi stöðum í borginni:

kvæmum og flóknum fjölskyldumálum þannig

að foreldrar þurfi ekki að ganga manna á milli í

leit að aðstoð fyrir börn sín. 

Á þjónustumiðstöðvunum er alhliða upplýs-

ingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Á þeim er

hægt er að sækja um ýmiss konar þjónustu svo

sem leikskólapláss, fjárhagsaðstoð, húsa-

leigubætur og heimaþjónustu. Á þeim er veitt

félagsleg ráðgjöf, sálfræði- og kennsluráðgjöf

vegna leikskóla- og skólabarna, ýmiss konar frí-

tímaþjónusta og fleira. Þjónustumiðstöðvunum

tilheyra ýmsar þjónustustofnanir sem áður

heyrðu undir Félagsþjónustuna. Má þar nefna

Fimm þjónustumiðstöðvar borgarinnar teknar til starfa

Þjónustan verði aðgengilegri fyrir íbúa

HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ

SKIPULAGS- og byggingarráð

Hafnarfjarðar samþykkti einróma á

fundi sínum í gærmorgun að veita

kvikmyndafyrirtækjunum True-

north og Malpasso leyfi til kvik-

myndatöku á og við Arnarfell í sum-

ar en þar á að taka atriði fyrir Clint

Eastwood-myndina Flags of our 

fathers. Eins og greint var frá í

Morgunblaðinu í gær hafa hinar

fyrirhuguðu tökur mætt mikilli and-

stöðu en bent hefur verið á að þetta

séu of umfangsmiklar fram-

kvæmdir á þessu viðkvæma svæði.

Þá hafa umsagnir umhverfis-

nefndar Hafnarfjarðar og stjórnar

Reykjanesfólkvangs verið neikvæð-

ar. Ellý Erlingsdóttir, formaður

skipulags- og byggingarráðs Hafn-

arfjarðar, segir að mikil áhersla sé

lögð á að gengið verði vel um svæð-

ið og það hljóti einnig að vera

kappsmál fyrir viðkomandi fyr-

irtæki.

?Svæðinu á að skila í sama

ástandi og helst betra. Allar lands-

lagsmyndir eiga að halda sér og allt

jarðrask verður lagfært en sam-

kvæmt samningi við umsóknaraðila

mun Landgræðslan fá tíu milljónir

til þess að græða upp landið þar

sem tökur fara fram,? segir Ellý en

óvíst er hvenær uppgræðslu svæð-

isins verður lokið. 

Kvikmyndataka í stað kinda

Tökur munu fara fram innan

beitarhólfs fyrir sauðfé á svæðinu

en að sögn Ellýjar hefur ágangur

búfjár verið til vandræða í Krýsuvík

í gegnum árin. ?Kindurnar verða

færðar annað á meðan en þetta er

kapphlaup bæði við náttúruöflin og

ferfætlingana að halda landinu

góðu. Þannig er ekki einungis þörf

á uppgræðslu vegna kvikmynda-

gerðarinnar og þetta er því jafnvel

til bóta og getur að auki skilað

miklu fyrir þetta litla samfélag.?

Ellý segist ánægð með að sátt

hafi verið um ákvörðunina innan

ráðsins og að hún hafi verið byggð á

jákvæðum umsögnum þeirra op-

inberu stofnana sem fjalla um þessi

mál. Fulltrúar Fornleifaverndar

ríkisins, Umhverfisstofnunar og

Landgræðslu ríkisins kynntu um-

sagnir viðkomandi stofnana á sér-

stökum kynningarfundi á mánudag-

inn og reyndust þær jákvæðar

gagnvart verkefninu. 

Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar

veitir leyfi til kvikmyndatöku í Krýsuvík

Meðal fornleifa sem hafa fundist á og við Arnarfell við Krýsuvík er varða

sem að stofni til er talin vera frá um 1700, bæjarrúst, túngarðar og stekkir.

Áhersla lögð á

góða umgengni

Eftir Þóri Júlíusson

thorirj@mbl.is

Hafnarfjörður | Leikjanámskeiðin í

Hafnarfirði standa fyrir dorg-

veiðikeppni við Flensborgarbryggju

í dag kl. 13.30. Keppnin er opin öll-

um börnum á aldrinum 6 til 12 ára.

Síðastliðin sumur hefur Hafnar-

fjarðarbær haldið dorgveiðikeppni

og í fyrra voru þátttakendur rúm-

lega 300 börn. Þessi keppni hefur að

sögn þótt takast vel og verið ungum

keppendum til mikils sóma. Þeir

sem ekki eiga veiðarfæri geta fengið

lánuð færi á keppnisstað. Einnig

verður hægt að fá beitu og leiðbein-

ingar hjá starfsmönnum. Verðlaun

eru veitt fyrir stærsta fiskinn og þau

sem veiða flestu fiskana fá einnig

verðlaun. Styrktaraðili að keppninni

er Veiðibúðin við Lækinn, sem gefur

verðlaun, veiðarfæri og góð ráð. 

Leiðbeinendur íþrótta- og leikja-

námskeiðanna verða með gæslu auk

þess sem Siglingaklúbburinn Þytur

verður með björgunarbát á svæðinu.

Keppnin hefst, eins og áður segir,

um kl. 13.30 og lýkur um kl. 15. 

Keppt í dorgveiði

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48