Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						28 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ

MINNINGAR

?

Sigurður Ragnar

Arnbjörnsson

fæddist í Keflavík 4.

maí 1987. Hann lést í

bílslysi í Öxnadal 17.

júní síðastliðinn. For-

eldrar hans eru Erla

Björk Sigurðardóttir,

f. 15.2. 1956, og Arn-

björn Rúnar Eiríks-

son, f. 26.7. 1950.

Systkini Sigurðar eru

Hafþór Raul Brown,

f. 25. júní 1997, Krist-

mundur Arnbjörns-

son, f. 11.4. 1973, Ísar

Arnbjörnsson, f. 9.8. 1977, Hlíf

Arnbjörnsdóttir, f. 20.3. 1979, Elín

Arnbjörnsdóttir, f.

15.12. 1981, Aron

Arnbjörnsson, f. 7.2.

1984, og Þórunn

Anna Arnbjörnsdótt-

ir, f. 28.12. 1993.

Sigurður var bú-

settur hjá móður

sinni í Keflavík og

lauk grunnskólanámi

frá Myllubakkaskóla.

Hann stundaði einnig

nám við Fjölbrauta-

skóla Suðurnesja um

tíma.

Sigurður verður

jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í

dag og hefst athöfnin klukkan 14.

Hinn 17. júní síðastliðinn vaknaði

ég við símhringingu, þar sem mér var

sagt frá því að hann Siggi væri dáinn.

Hræðilegt bílslys hafði átt sér stað,

þar sem Siggi og vinur hans höfðu

látist og annar vinur hans lá þungt

haldinn á sjúkrahúsi.

Enn á ný erum við minnt á það

hversu hverfult þetta jarðneska líf er

og það að við vitum aldrei hvenær við

kveðjumst hinsta sinni.

Það virðist svo stutt síðan ég að-

stoði hana Erlu mína við að koma þér

í heiminn, Siggi minn. Ég man hve

það var stolt móðir sem hélt á þér í

fanginu og dáðist að fallega drengn-

um sínum og hvað ég var hamingju-

söm að fá að upplifa þessa stóru

stund með ykkur.

Þú varst alltaf glaðlegur og stutt í

brosið hjá þér þegar þú varst lítill

snáði. Það kom fljótt í ljós hvað þú

varst góður í þér og máttir ekkert

aumt sjá, þá vildir þú rétta hjálpar-

hönd. Náttúran heillaði þig mikið og

á yngri árum elskaðir þú útilegur og

ferðalög. Þú varst mikill afastrákur

og það voru ófáar stundirnar sem þið

Siggi afi áttuð saman. Hann reyndist

þér svo vel og var alltaf til staðar fyr-

ir þig.

Níu ára fluttir þú til Spánar og

dvaldir þar í tvö ár. Þar var talað um

þig sem víkinginn frá Íslandi því að

þú þóttir einstaklega harður af þér

við að stunda sjóböðin þegar Spán-

verjarnir litu ekki við því. Þú áttir

góð ár á Spáni og naust þess að upp-

lifa nýjan stað og ný ævintýri í fjar-

lægu landi. Þar eignaðist þú litla

bróður þinn, hann Haffa, sem þú

varst svo stoltur af.

Unglingsárin voru þér stundum

erfið eins og margir unglingar upp-

lifa, en þá kom tölvutæknin að góðum

notum og þú myndaðir sambönd út

um allt land og eignaðist netvini sem

þú tjáðir þig við. Þú áttir svo gott

með að tjá þig í skrifum, eða eins og

einn kennarinn þinn orðaði það:

?Hann Siggi er einn af mínum bestu

pennum.?

Undanfarin ár hafa bílar og tónlist

verið þín helstu áhugamál og hafðir

þú mjög ákveðinn smekk í þeim efn-

um. Rafmagnsgítarinn heillaði þig og

þú hófst nám í gítarspili. Það fór svo

að þú notaðir tíma þinn talsvert í að

hlusta á gott gítarspil, s.s. Metallica

og að æfa þig að spila. Þessar stundir

veittu þér mikla ánægju.

Elsku Erla, Haffi, Siggi afi, Bjössi

og aðrir ástvinir allir. Ég bið góðan

Guð að styrkja ykkur í sorginni. Megi

minningin um góðan dreng umvefja

ykkur um ókomin ár. 

Kæri Siggi, ég og fjölskylda mín

þökkum þér fyrir góðar samveru-

stundir á liðnum árum. Einnig vilja

Rafnkell, Sævar,Áslaug og dætur

þakka þér fyrir samfylgdina. Við vit-

um að þú ert í góðum höndum þar

sem þú ert núna og erum viss um að

þar bíða þín verðug verkefni. Megir

þú ávallt hvíla í kærleikanum og ljós-

inu. Guð blessi þig, kæri frændi. 

Guðrún B. Hauksdóttir (Dúna).

Þó að endi æviþráður

andinn starfar glaður, frjáls,

tengdur ykkur eins og áður

okkur þó sé varnað máls.

Ennþá saman liggja leiðir

lokið þó sé hérvist manns,

allir eru gangar greiðir

á geislavængi kærleikans.

(R.G.)

Elsku Siggi bróðir minn, ég sakna

þín svo mikið. Ég vildi að þú værir

hjá mér að leika við mig. En Guð vildi

fá þig til þín. Ég vona að þér líði vel

þar sem þú ert núna. Ég gleymi þér

aldrei.

Þinn bróðir, 

Hafþór R. Brown (Haffi).

Elsku Siggi minn. Þetta er það erf-

iðasta sem ég hef þurft að ganga í

gegnum. Að missa bróður minn sem

er aðeins 18 ára og rétt byrjaður að

lifa lífinu.

Það er svo erfitt að finna réttu orð-

in, þau eru í hjarta mínu en eiga erfitt

með að komast út. Þetta er svo sárt.

En ég veit að þú átt eftir að spjara

þig þar sem þú ert núna.

Ég trúi þessu bara ekki. Er þetta

ekki bara vondur draumur? Ég reyni

og reyni að vakna en ekkert gerist,

ég vakna ekki. Martröðin heldur

bara áfram.

Eiga börnin mín ekki eftir að fá að

kynnast þér betur? Þarf hann Haffi

litli að alast upp án bróður síns? Við

systkinin höfum hvert annað en Haffi

er einn. 

Elsku Siggi minn, ég er svo fegin

að þú komst í afmælið hans Loga í

byrjun mánaðarins, það var svo gott

að fá þig. Eins er svo gott að ég fékk

að sjá þig aðeins tveimur dögum fyrir

slysið. Þá varstu í vinnunni og ég

kallaði á þig. Þú þekktir mig ekki,

enda var ég komin með nýja hár-

greiðslu, en svo áttaðir þú þig og kall-

aðir hæ. Því miður var ég á hraðferð

og gaf mér ekki tíma til að tala við

þig. Ég bjóst ekki við því að ég ætti

ekki eftir að sjá þig aftur.

Ég verð bara að halda í þær minn-

ingar sem ég á um þig. Eins og t.d.

þegar þú hentir jólapakkanum þínum

frá okkur í gólfið og stappaðir á hon-

um af því að hann var mjúkur. Ég

brosi alltaf þegar ég hugsa um þetta.

Svo var ég alltaf að stríða þér á því að

þú þyrftir að fara að læra að girða þig

og þú brostir alltaf í hvert skipti og er

það bros sem stimplað í kollinn á

mér. Eins er mér svo minnisstætt

hvað var gaman hjá þér á ættar-

mótinu síðasta sumar. Þið Berglind

frænka smulluð svona svakalega

saman, það var eins og þið hefðuð

verið vinir í háa herrans tíð. Þið vor-

uð gjörsamlega límd saman. Við

pabbi töluðum mikið um það hvað við

værum fegin, af því að þú varst svo

hlédrægur og feiminn.

Æ, elsku litli bróðir, það er svo sárt

að þurfa að kveðja, ég vil ekki þurfa

að kveðja en ég get víst engu um það

ráðið. 

Hvíldu í friði, Siggi minn, ég mun

hugsa til þín.

Þín systir,

Elín.

Elsku Siggi minn. Með mikilli sorg

og mörgum tárum kveð ég þig, elsku

bróðir. Minningarnar um þig

streyma í hugann og mun ég varð-

veita þær eins og gull í hjarta mínu.

Ég sakna þín svo sárt nú þegar og

trúi varla að ég eigi ekki eftir að sjá

þig aftur.

Ef ég gæti nú bara spólað tímanum

örlítið til baka hefði ég knúsað þig að-

eins meira þegar við hittumst síðast,

nokkrum dögum fyrir hina örlaga-

ríku nótt er þú kvaddir þennan heim.

Þú varst alltaf svolítið feiminn og

inni í þér en við áttum okkar stundir

og bestar voru þær sem við deildum

bara tvö saman. Siggi, þú varst ein-

stakur, hjálpsamur og með hjartað á

réttum stað ef á þurfti að halda.

Er sárasta sorg okkur mætir

og söknuður huga vorn grætir

þá líður sem leiftur af skýjum

ljósgeisli af minningum hlýjum.

(H.I.H.)

Guð geymi þig, litli bróðir,

Þín systir,

Hlíf.

Elsku bróðir minn og vinur, ég

kveð þig með söknuði of fljótt á lífs-

leiðinni. Það er sárt að missa þig úr

þessu lífi sem ég átti með þér. Ég

man þegar við vorum litlir, við vorum

ásamt systkinum okkar á gangi í

Garðinum, það var snjór og þú misst-

ir húfuna þína og fórst að gráta og ég

hljóp á eftir henni og náði í hana fyrir

þig. Þú varst svo ánægður að ég man

ennþá eftir brosinu, hvað það var

yndislegt.

Vissirðu hvað þú varst mér góður bróðir? 

Vissirðu hvað mér þótti vænt um þig?

Vissirðu hvað mig langaði að hjálpa þér mikið? 

Vissirðu að þú varst besti vinur minn?

Þú munt alltaf vera það, allt mitt

líf, þó þú sért ekki hérna hjá mér.

Ég mun alltaf hafa þig í hjarta

mínu,

Þinn bróðir,

Aron.

Elsku Siggi minn. Mér finnst erfitt

að kveðja þig. Ég þarf að kveðja

bróður og vin. Ég sakna þín. 

Ég man þegar við fórum saman á

hestbak og þegar ég var komin á bak,

lyftir þú fætinum og hesturinn hljóp

af stað, og svo datt ég af baki, beint í

hestaskít. Svo man ég eftir því þegar

við fórum á KFC og við vorum að

sprengja tómatsósu. Það var rosa-

lega gaman og svo kenndum við

hvoru öðru um. 

Bless, stóri bróðir.

Þín systir,

Þórunn Anna.

Elsku Siggi. Ég mun aldrei gleyma

þeirri stund er mamma vakti mig á

17. júní til að segja mér að einn besti

vinur minn og frændi hefði yfirgefið

þennan heim. Ég er enn svo dofin, við

sem byrjuðum að telja niður dagana í

maí þar til við myndum hittast; en af

því varð aldrei. Ég vil þakka þér,

elsku Siggi minn, fyrir allar þær frá-

bæru stundir sem við áttum saman.

Þó svo að við höfum búið í sitthvorum

landshlutanum þá stóðstu mér nær

en flestir aðrir. Við töluðum saman á

hverjum degi um allt milli himins og

jarðar; ég gat alltaf treyst á þig. Ef

fennt hafði á sálargluggann hjá mér

þá varst þú alltaf til staðar og tilbúinn

að gera hvað sem var fyrir mig.

Oft undra ég mig á því hversu

heimurinn er lítill. Við vorum systk-

inabörn og við hittumst þegar við

vorum krakkar. Árin liðu og við

kynntumst aftur í gegnum netið fyrir

tæpum tveimur árum. Svo var það á

17. júní fyrir ári síðan að við hittumst

eftir að hafa kynnst svo náið. Það

vildi þannig til að við vorum bæði

stödd á burn-out keppninni. Allt í

einu kom drengur til mín og spurði

hvort ég héti ekki Berglind. Ég varð

hálfaulaleg og svaraði því játandi og

þá komst þú að mér og knúsaðir mig

og sagðir: ?Blessuð, Berglind

frænka.? Stuttu eftir þessa endur-

fundi fórum við á ættarmót og þar

var gert grín að okkur fyrir hversu

límd við vorum saman. Þetta var og

mun verða það skemmtilegasta ætt-

armót sem ég hef farið á. 

Ég kveð þig með söknuði í hjarta

og mun varðveita minningu þína um

ókomna tíð.

Ég sendi hugheilar samúðarkveðj-

ur til Bjössa, Erlu og fjölskyldna

þeirra. Megi góður Guð styrkja ykk-

ur í sorginni.

Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,

? hvert andartak er tafðir þú hjá mér

var sólskinsstund og sæludraumur hár,

minn sáttmáli við guð um þúsund ár.

(Halldór Laxness.)

Berglind Eiðsdóttir.

Elsku frændi. Þú sem áttir lífið allt

fram undan. Aðeins átján ára. Mér

finnst það svo ósköp ungt. Þú varst

glæsilegt ungmenni, hár, myndarleg-

ur, frekar feiminn. Vantaði einhvern

svona fyrir handan?

Siggi frændi minn. Við áttum ekki

langar stundir saman en sterka taug

sem ekki slitnaði. Við og krakkarnir

mínir hittum þig alltaf í jólaboðunum

hjá ömmu þinni Jónu. Og síðar æ oft-

ar heima í Nýlendu hjá pabba þínum.

Þar dvaldir þú mjög mikið á seinni

árum. Ekki varstu margmáll, frændi,

en afar kurteis.

Elsku frændi, þín er sárt saknað

og það er þyngra en tárum taki eftir

að hafa fylgst með þér frá fæðingu að

þurfa að fylgja þér til grafar svo ung-

um. Guð hjálpi og styrki mömmu

þína og pabba, systkinahópinn,

ömmu þína Jónu og afa þinn og nafna

Sigurð Ragnar. Einnig allt frænd-

fólkið og aðra aðstandendur. Guð

veri með ykkur í sorginni.

Allt eins og blómstrið eina

upp vex á sléttri grund, 

fagurt með frjóvgun hreina

fyrst um dags morgunstund,

á snöggu augabragði 

af skorið verður fljótt,

lit og blöð niður lagði,

líf mannlegt endar skjótt.

(Hallgr. Pét.)

Sigurbjörg Eiríksdóttir

og fjölskylda.

SIGURÐUR RAGNAR

ARNBJÖRNSSON

Elskuleg eiginkona mín og  móðir okkar,

systir, dóttir og dótturdóttir,

ALDA JÓHANNA STANGELAND,

Barðavogi 3,

Reykjavík.

lést á heimili sínu að morgni laugardagsins

25. júní.

Hún verður jarðsungin frá Langholtskirkju á

morgun, fimmtudaginn 30. júní, kl. 13.00.

Fyrir hönd aðstandenda,

Jón Vigfús Stangeland Guðjónsson,

Harpa Þ. Stangeland,

Daníel E. Stangeland,

Grétar Þór Stangeland.

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og

langamma,

SIGURVEIG BJÖRGVINSDÓTTIR,

Hamrahlíð 40,

Vopnafirði,

lést á Hjúkrunarheimilinu Sundabúð, Vopna-

firði, föstudaginn 24. júní.

Jarðarförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju

fimmtudaginn 30. júní kl. 13.00.

Guðrún K. Ármannsdóttir,

Sigurbjörn Á. Ármannsson,

Hreinn Ármannsson,

Rósa Ármannsdóttir, Hannes Haraldsson,

Sigurvin Ármannsson, Sonja Þorsteinsdóttir,

Guðbjörg Ármannsdóttir, Skæringur Sigurjónsson,

    barnabörn og barnabarnabörn.

Sonur minn og bróðir okkar,

RÚNAR GUNNARSSON,

Kleppsvegi 106, 

Reykjavík,

lést þriðjudaginn 21. júní síðastliðinn.

Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík

fimmtudaginn 30. júní kl. 15.00.

Fyrir hönd systkina og annarra ættingja,

Gunnar R. Pétursson.

Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.

Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is

(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni ? þá birtist valkosturinn ?Senda

inn minningar/afmæli? ásamt frekari upplýsingum).

Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir

hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju-

degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests

er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur

birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út.

Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í

Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör-

stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð-

ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja við-

hengi við síðuna.

Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda

inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fædd-

ist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks

hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta

komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargrein-

unum.

Undirskrift Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en

ekki stuttnefni undir greinunum.

Myndir Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning-

argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana

á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita.

Minningargreinar

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48