Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 17 ERLENT Munið Mastercard ferðaávísunina Ótrúlegt tilboð til Algarve þann 20. júlí. Nú getur þú notið fegursta tíma ársins á þessum vinsæla áfangastað Íslendinga í sólinni og búið við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna og tryggir þér flug og gistingu og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú býrð. Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Stökktu til Portúgals 20. júlí frá kr. 39.990 Verð kr. 49.990 í viku 59.990 í 2 vikur M.v. 2 í stúdíó/íbúð. Flug, gisting, skattar. Netverð. Verð kr. 39.990 í viku 49.990 í 2 vikur M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Flug, gisting, skattar. Netverð. Skoðið myndir frá Essómótinu og Pollamótinu á Akureyri um síðustu helgi. Myndasala Morgunblaðsins TALIÐ er að gufustrókar, sem sjást hér (neðst á myndinni) á hafinu í grennd við smáeyna Iwo Jima í Jap- an, hafi stafað af eldsumbrotum á sjávarbotni, að sögn japönsku strandgæslunnar um helgina. Iwo Jima er þekkt í sögunni vegna blóð- ugra átaka í seinni heimsstyrjöld. Eyjan er nú óbyggð en hún er um 1.250 km sunnan við Tókýó, höfuð- borg Japans. Gufustrókarnir voru sagðir hafa verið um einn kílómetri að hæð og sáust fyrst á laugardags- kvöld. Var þyrla send á vettvang og sagði áhöfnin að rauðir blossar hefðu sést inni í gufunni. Ekki sáust þó nein merki um jarðhræringar á mælum vísindamanna. Sænska dagblaðið Expressen segir í vefútgáfu sinni að ekki sé útilokað að ný ey í líkingu við Surtsey verði til á svæðinu. Blaðið ræddi við Reyni Böðvarsson sem er jarðskjálftafræðingur við Uppsala- háskóla. „Þetta getur verið upphaf- ið að eldgosi á sjávarbotni,“ er haft eftir Reyni í Expressen. Síðasta dæmið um að ný ey hafi myndast á jörðinni vegna eldgoss á hafsbotni var 1963 þegar Surtsey varð til. Reuters Ný eyja að fæðast í Japan? GEIMFAR frá bandarísku geim- ferðastofnuninni, NASA, lenti í vel undirbúnum árekstri við halastjörnu klukkan 5.52 í gærmorgun. Atburð- urinn varð í 134 milljóna kílómetra fjarlægð frá jörðu, eða í svipaðri fjar- lægð og frá sólu. Miða þurfti geim- farinu á afar nákvæman hátt en nokkrir Íslendingar, sem taka þátt í verkefninu, hafa brugðið upp þeirri líkingu að skot geimfarsins frá jörðu og árekstur sérstaks árekstrarfars við halastjörnuna Tempel 1, hafi ver- ið álíka og að skjóta pílu úr Hafnar- firði og hitta með henni melónu í Kringlunni. Markmið þessa verkefnis var að varpa ljósi á innviði halastjörnu, en ef hugmyndir vísindamanna reynast réttar gæti efnið sem þeyttist út frá halastjörnunni verið sams konar og agnirnar sem mynduðu sólkerfið fyr- ir um 4,6 milljörðum ára. Þannig verður til mun meiri þekking á upp- runa sólkerfisins ef allt gengur að óskum. Hópur Íslendinga fylgdist með skotinu á eyjunni Maui Hraðinn milli árekstrarfarsins og halastjörnunnar var um 10,2 kíló- metrar á sekúndu en það er meira en tífaldur hraði byssukúlu. Sjálft árekstrarfarið vó aðeins 370 kíló og var á stærð við hægindastól, en móðurfarið líkt Volkswagen-bjöllu að stærð. Þrátt fyrir þetta leystust gífur- legir kraftar úr læðingi við árekst- urinn en því var spáð að gígurinn sem myndaðist við sprenginguna yrði á stærð við Laugardalsvöll. Hópur íslenskra nemenda fylgdist með atburðinum frá eyjunni Maui á Hawaii, meðal þeirra Sævar Helgi Bragason og Sverrir Guðmundsson. Þeir notuðu Faulkes-sjónaukann á fjallinu til að taka myndir af hala- stjörnunni Tempel 1 og sáu hvernig hún varð 10 sinnum bjartari eftir áreksturinn. Vel heppnaður árekstur við Tempel 1 Reuters Geimflaug NASA, Deep Impact, skellur á halastjörnunni Tempel 1 í gær- morgun. Myndin er tekin um sextán sekúndum eftir áreksturinn. Hala- stjarnan sjálf er á stærð við hálft Manhattan-hverfið í New York. TENGLAR .............................................. www.stjornuskodun.is Jafn erfitt og að skjóta pílu úr Hafnarfirði og hitta með henni melónu í Kringlunni Damaskus. AFP. | Sýrlenskir her- menn handtóku tvo meinta hryðju- verkamenn og sýrlenskur öryggis- vörður féll í gær í átökum við öfgamenn og voru fyrrverandi líf- verðir Saddams Husseins, áður for- seta Íraks, meðal öfgamannanna, að sögn ríkisfjölmiðla í landinu. Átökin urðu á Qassioun-fjalli sem er í grennd við höfuðborgina Damaskus. Er þetta í annað skipti á nokkr- um dögum sem slík átök verða en Bandaríkjamenn hafa gagnrýnt sýr- lensk stjórnvöld hart og sakað þau um að leyfa hryðjuverkamönnum að fara um landið til að gera árásir í Írak. Öryggisforinginn sem féll hét Ahmad Hijazi. Sýrlenska fréttastof- an SANA hafði eftir embættismanni í innanríkisráðuneytinu að hin handteknu væru Jórdaninn Sharif Aied Saif Smadi, sem var á flótta vegna ásakana um þátttöku í hryðjuverkum, og eiginkona bróður hans, Mohammeds. Leitin að fólk- inu hafði staðið yfir dögum saman, að sögn SANA. Mennirnir voru báðir eftirlýstir í Jórdaníu vegna ýmissa afbrota. Þeir voru handteknir í fyrra í heimalandinu en tókst að flýja úr fangelsi. Barist við lífverði Saddams Sýrlendingar klófesta hryðju- verkamenn Kabúl. AFP. | Bandaríkjaher viður- kenndi í gær að óbreyttir borgarar hefðu týnt lífi í loftárás í austurhluta Afganistans í liðinni viku. Afganskur embættismaður kvað 17 íbúa í þorpi einu hafa farist í árásinni og hefðu konur og börn verið á meðal þeirra. Árásin var gerð seint á föstudag þegar ráðist var gegn því sem sagt var vera fylgsni skæruliða talibana í Kunar-héraði. Árásin var gerð þegar leitað var fjögurra bandarískra sér- sveitarmanna. Tveir þeirra hafa fundist en breska útvarpið, BBC, kvaðst í gærkvöldi hafa fyrir því traustar heimildir að félagar þeirra tveir hefðu fundist látnir. Mannanna hefur verið saknað frá 28. fyrra mánaðar þegar þyrla sem send var af stað til að leita þeirra var skotin niður. Með þyrlunni fórust 16 bandarískir hermenn. Í yfirlýsingu Bandaríkjahers sem birt var í gær sagði að óbreyttir borg- arar hefðu týnt lífi í aðgerð þessari. Var mannfallið harmað og sagt að allt yrði gert til að tryggja að viðlíka gerðist ekki aftur. Þess var ekki getið hversu margir hefðu farist í árásinni. Assadullah Wafa, héraðsstjóri í Kunar, sagði í samtali við AFP- fréttastofuna að 17 óbreyttir borgar- ar hefðu týnt lífi í árás Bandaríkja- hers á þorpið Chichal. Sagði hann konur og börn á meðal hinna föllnu en gat ekki veitt nánari upplýsingar. Óbreyttir borgarar drepnir í Afganistan Sérsveitarmenn finnast látnir ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.