Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 3

Mánudagsblaðið - 11.01.1982, Blaðsíða 3
GLÆSISÝNING Mánudagur 11. janúar 1982 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 3 Sigrún Waage og Guðbergur Garðarsson fóru með aðalhlutverk í nemendasýningu Jazzballettskóla Báru í Alþýðuleikhúsinu í apríl 1981, en efni þeirrar sýningar var kvcikjan að því verki, sem nú er verið að móta og setja upp. Myndin t.v.: Birgir Gunnlaugsson Litlir strákar Hvernig er að fá íslenska karlmenn til þátttöku? -Ja, ballettskólar um allan heim eru fullir af litlum stelpum, en ekki litlum strákum, segir Bára. Það er alveg eins hér. Þetta höfðar meira til kvenkynsins, en íslensku strákarnir eru áreiðanlega ekki síðri öðrum, þegar þeir hafa sig af stað og fá áhugann. Þegar á að fara að færa eitthvað upp og halda sýningar, þá vantar ekki karlmennina. Þá koma þeir askvaðandi og gerast atkvæða- miklir. Enda sérðu það, að þar eru karlmenn, sem stjóma öllum show- business um allan heiminn. Að lokum: Eru sólarlampar hættulegir, eða öllu heldur sólböð í slíkum tækjum? -Við erum með hér í líkamsrækt- Sólaríum svokölluð hafa notið vinsælda, einkum fyrir að gera fólk brúnt. En þau hafa lika hollustugildi, segja Bára og Birgir, ekki siður en þau höfðu í gamla daga, þegar mörgum var ráðið til að stunda ljósaböð enda þótt brúni liturinn fylgdi ekki með í þá daga af tæknileg- um ástæðum. inni mjögfullkomnaljósalampa, eða sólaríum, eins og það er nú gjarnan kallað. Fólk fær sér líka sérstaka tíma í þessum lömpum án þess að taka þátt í heilsuræktarleikfiminni. Hvort þetta er hættulegt? Því var nýlega svarað hér hjá okkur á opinberum vettvangi á mjög skýran hátt, nefnilega eitthvað á þá leið, að flestallt sem gert er í óhófi getur verið hættulegt. Þannig getur verið stórhættulegt að drekka allt of mikla mjólk o.s.frv. Of mikil sól er stór- hættuleg. Ljósalamparnir eru hins vegar taldir hættuminni en sjálf sólin, því að brunageislinn sem veldur hættunni við sólina, ef legið er lengi í sólbaði, er ekki til staðar í Ijósunum. Fleira gott -Og það er fleira en brúni hörundsliturinn sem hægt er að fá út úr ljósunum, þó hann skipti auðvit- að miklu máli. Það er tiltölulega nýkomið að fólk skuli geta orðið brúnt í ljósunum. Aður voru ljósin notuð eingöngu í heilsubótarskyni, og sama heilsubótin er að þeim ennþá, til dæmis fyrir þá sem þjást af gigt eða vöðvabólgu. Og líkaminn nær sömu efnum út úr þessum lömpum og sólinni. En auðvitað að því tilskyldu, að tækin séu góð og viðhald þeirra mjög nákvæmt, svo sem skipt um perur reglulega. Er hægt að komast að í sólbað? -Það er vissara að panta í tíma. Það er mjög rnikið að gera hjá okkur segja Bára og Birgir í lokin. við fjöllum um og inn í það fléttast ýmislegt úr daglegu lífi í þjóðfélagi okkar í dag. Þetta er eiginlega hálfgerð framtíðarspá. Danshópur- inn í líki ára eða púka birtist hér og þar í draumi unga parsins, stundum sem verðbólga eða skuldir eða okur- karlar. Samt eru þetta skemmtilegir árar og fjörugir - þetta er nefnilega enginn sorgarleikur, heldur vonandi léttur og fjörugur. Glæsisýning -Og sviðsmyndin verður glæsileg, einkum í síðari hluta verksins. Það verður sannkölluð glæsisýning, segir Birgir. Er ekki dýrt spaug fyrir einstakl- inga að setja slíkt í gang? -Jú, biddu fyrir þér. Við verðum örugglega komin nálægt fjórum hundruðum þúsunda áður en við frumsýnum. Það er Birgir, sem svarar þessu, enda sér hann um fjármál þessa fyrirtækis, og reyndar líka hjá Jazzballettskóla Báru yfirhöfuð. En fara svona áætlanir ekki alltaf framúr sjálfum sér? Birgir: -Jú. Bára: (ákveðið) -Nei. Og hvað á svo barnið að heita? -Við ætlum að kalla sýninguna Jazz-inn eða Jazzbúlluna, og af þeirri tegund, sem nafnið bendir til verður músikkin - og dansarnir líka. Þeir semja músikkina strákarnir i Friðryk, þeir Pálmi Gunnarsson, Erik Hubner og Siggi Karls og þeir fá liðsauka í Arna Scheving, Guðmundi Ingólfssyni og Helga Kristjánssyni. Við höfum ekki enn fundið textahöfund, en þó nokkur hluti tónlistarinnar er tilbúinn. Dansana semur svo Bára, eins og fyrr segir. En snúum okkur svo að Jazz- ballettskóla Báru. Hvað er títt um það fyrirtæki? -Skólinn hjá okkur er tvískiptur. Ballettskólinn er líklega orðinn 17 ára gamall um þessar mundir. Það er Bára, sem svarar, og hún heldur áfram: -Líkamsræktin er hins vegar önnur deild skólans, og hún á merkisafmæli um þessar mundir, er fimmtán ára. I líkamsræktinni eru þátttakendur eingöngu konur, sem stunda leikfimiæfmgar og fara í sólarlampa, en í jazzballett taka bæði kynin þátt að sjálfsögðu. Á vegum Jazzballettsköla Báru er unnlð að samnlngu og æfingum á alíslensku dans- og söngverki, sem frumsýnt verður I Gamla bíöi - íslenzku öperunni - innan tíðar

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.