Tíminn - 07.03.1970, Blaðsíða 13

Tíminn - 07.03.1970, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 7. marz 1970. ÍÞRÓTTiR TIMINN 13 íftANCf "T •• • ' ' ÍSLAND í 11. SÆTI ísland sigraði Frakkland í gærkvöldi með 19 mörkum gegn 17. Frá Kjartawi L. Pálssyni, frétta- ritara Tímans á HM. fsland hafnaði í 11. sæti HM eftir 19:17 sigur gegn Frökkum. Leikurinn við Frakka var hörku- spennandi, en íslenzka liðið vann sanngjarnan sigur, þrátt fyrir lé- lega byrjun. Það er atliyglisvert, að í þessum leik reyndi íslenzka liðið aðeins eina leikaðferð, en æfði 8—10 leikaðferðir heima. Hvílík tímasóun. Og aukaköstin, sem liðið hafði æft sig á, sáust aidrei í HM-keppninni. En nóg um það. Kannski áttum við ekki möguleika á að komast lengra í keppninni, en einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni, að röð smámistaka í undirbúningi liðsins — bæði fyrir og í keppn- Indónesíumaður leikur með KR! Annar kvöld fsunnudagskv.), leika KR og ÍR seinni leik sinn í íslandsmótinu í köriuiknatt- leik. Verður þetta án efa mjög spennandi leikur og er ótnögu- legt að spá nokkrtu um úrslit- in. Sigmar Karlson leikur _nú aftur með ÍR-liðinu og er ÍR- ingum án efa mjög mikill Styrk ur í þvi. En KR fær mjög óvæntan iiðstyrk, sem er fyrrverandi landsliíðsmaður £rá Indónesíu, en eins og kunnugt er, standa Indónesar nokkuð framarlega í körfuknattleik. Heitir hann Davis Janis, og er við störf hér á landi. Verður fróðlegt að sjá þennan Asíu-búa leika með KR-liðinu annað kvöld. Auk leiks KR og ÍR, leika í 2. deild IJMSK og Tindastóll. Einnig 'leiika í 1. deild KFR og Þór. Keppni hefst kl. 7. inni — liafi valdi því, að við komumst ekki lengrat Ég var ánægður með línuspil íslenzika liðsins í þessum leik, það t'ófcst með ágætum. En það, sem gerði samt fyrst og fremst út um leikinn, var sú staðreynd, að ís- land átti betri skyttur en Frakk- ar. Geir Haillsteinsson átti ágætan leifc. Viðar átti sinn bezta leik í förinni og mataði línumennina óspart. SLgurbergur og Ólafur voru góðir í vörninni, svo og Sig- urður E. Þorsteinn Björnsson byrj aði illa, en lék afbragðsvel í síð- ari hálfleik, einkum undir lokin. Mörk íslands skoruðu: Geir og Jón 4 hvor, Viðar og Sigurður E. 3 hvor, Ingólfur, Sigurbergur, B'jarni, Auðunn og Ólafur 1 mark hver. Þess má geta, að íslendingar fengu 7 víti í þessum leik, en skoruðu einungis úr 3 þeirra. Mis- tókst Jóni og Geir báðum tvívegis. Léleg nýting það. Yfir 2 þúsund áhorfendur voru á leiknum og hvöttu þeir heima- menn óspart. En allt kom fyrir ekki. fsland var sterkari aðilinn og kemur heim sem 11. bezta handknattleikslið heims. Eims og ég sagði, var byrjunin ákaflega léleg hjá ísl. liðinu. Frakkarndr komust í 3:1 og varði Þorsteinn ekkert á fyrstu mínút- unum. A 15. mínútu tókst ísl. Geir skoraði 4 mörk í gær, en ails skoraSi hann 19 mörk í HM-keppn- inni. liðimu að jafna, 4:4. Hélzt leikur inn nokfeuð jafn, þar til undir lok hálfleiksins, að ísland náði yfir- höndinni. Var Siguður Einarsson sérstaklega góður og skoraði 3 mörk. Staðan í hálfleik var 12:10. í byrjun síðari hálflei'ks tókst Frökkum að jafna, 12:12, en Viið- ar náði forustu aftur, 13:12. Enn jafna Frakkar, en eftix það var um íslenzka forustu að ræða. Um tiima skildu fjögur mörk á milli, 18: 14, en Frakkar sóttu sig heldur undir lokin og urðu loikatölur leiks ins 19:17. Mörgum leikjum frestað Mikil snjókoma hefur verið ájfresta. Leik Tottenham og Manch. Englandi undanfarna daga og Utd., sem leika átti í gær var einn mörgum leikjum hefur orðið að I ig frestað, en upphaflega átti sá Meistaramót í frjáls- íþróttum hefst í dag Alf—Reykjavík. — Um _ þessa helgi fer fram meistaramót fslands í frjálsí •ótt.um innanhúss, en mót- ið verður háð í Laugardalshöllinni. Þátttaka er mjög góð, en þátttak- endur eru 80 frá 10 félögum og héraðssamiböndum víðs vegar á landinu. Keppnin í dag faefst kl. 3, en á morgun, sunnudag, hefst hún kl. 1.30 á stangarstökki. Ágæt aðstaða er í Laugardalshödlnni til að fylgj ast með kepp..inni. leikur að fara fram í dag, en vegna Wembley-ileiksins var hann færður fram um einn dag. í gær var tilkynnt um nokkra leiki sem fresta þurfiti, leiik Newcastle og Coventry á St. James‘ Park, leik Woives og Crystal Palace í Moli- neux, einnig nokkrir 2. deildar leikir: Aston Villa o:g Sheff. Utd., Bolton og Norwich, Millwall og Birmingham og Oxford gegn Blackpool. Vera má að fleiri leikj! um verði frestað. en einn leikur! verður öru'gglega leikinn, það er úrslitalei'kur deildarbikarsins miHi Manch. City og West Brom wich. Oity mun sakna fyrirliða eíns Tony Book, sem meiddist gegn Academica í Evrópubikar- keppninni á miðvikudag. George Heslop mun leika í hans stað. West Brom. mun leika með einn nýliða, Len Kentello, sem er aðeins 18 ára gamall og yngsti leifcmaður sem leikið hefur úr- slitaleik á Wemhley. Hann var áð ur æstur áhangandi Manch. City. John Osborne, markvörður W.B. A., sem var geymdur í leiknum gegn Wolves sl. laugardag, ledfcur með ásamt þeim Jeff Astle og Ray Wilison, sem hafa átt við meiðsli að stríða. Annar stórleikur fer einnig fram í dag. Það er leifc ur Liverpool og Leeds á An- field. Peter Thompson mun nú aftur Framhald á bls. 14. Landsliðið í knattspyrnu leikur í Keflavík Alf — Reykjavík. — Eftir mán- aðarhlé er landsliðið í knattspyrnu að fara aftur á stúfana. f dag fer fram æfingaleikur í Keflavík milli landsliðsins og 1. deildarliðs Kefla víkur og hefst leikurinn kL 2. Völl urinn í Keflavík er í ágætu ásig- komulagi miðað við árstíma. Landsliðið verður þannig skipað: Þorbergur Atlason, Fram. Jóhannes Atlason, Fram. Þorsteinn Friðþjófsson, VaL Einar Gunnarsson, Keflavík. Guðni Kjartansson, Keflavík. Gunnar Gunnarsson, Víking. Matthías HaHgrímsson, Akranesi. Ásgeir Elíasson, Fram. Guðmundur Þórðarson, Breiðabl. Eyleifur Hafsteinsson, AkranesL Guðjón Guðmundsson, Akranesi. Að sögn Hafstein Guðmundsson- ar, landsliðseinvalds, verða 10 aef- ingaleikir hjá landsliðinu á næst- KR-mótið Alf — Reykjavík. — Eins og sagt hefur verið frá, efnir KR til innanhússfcnattspyrnumóts á sunnu dagskvköld. Þátttökulið eru frá Reykjavífc, Akrasnesi, Kópavogi, Keflavík og Hafnarfirði. Leifctími er 2x7 mínútur. f fyrstu umferð leika þessi lið samaœ Breiðablik — Valur. Ármann—Fram. KRa — Þróttur. FH — Víkingur. Keflavík — KRb. Akranes — Haufcar. Nú verður í fyrsta sinn Iceppt simkvæmt nýju innanhúsreglunum. SSpymuhorðin verða notuð, en leifc ið verður án markvarða. Keppnin annað krvöild hefst M. 8. Argentína vann Brazilíu Argentina sigraði Brazilíu í landsleik í knattspyrnu Sem fram fór á fimmtudags'kvöld í Brazilíu. Argentínumenn skoruðu tvö mörk en Brazilía ekkert. Eins og kunn- ugt er þá komst Argentína ebki í 16-liða úrslitakeppnina í Mexíco þar sem Brazilía er talið líkleg- ast til sigurs. — K.B. Bæði KR og Akranes í Borgakeppni Evrópu? Alf—Reykjavík. — f fyrsta sinn hefur það nú gerzt, að tvö íslenzk knatts yrnulið hafa sótt um að taka þátt í sömu Evrópu- bikarkeppninni, en bæði KR og Akranes hafa sótt um að fá að taka þátt í Evrcpubikarkeppni borgarliða, ::ömu keppni og Val ur tók þátt í á síðasta árL KR sækir um þátttöku sem Reykjavíkurmeistari 1969, en Aki anes sem lið númer 2 í síð- asta íslandsmóti. Hugsanlegt er, að fram- kvæmdanefnd keppninna.- heim- ili báðum liðum þátttöku, en rétt til þátttöku eiga sýninga- borgir í Evrópu. Vetrar- hátíðin á Akureyri Frá fréttai'itara Tímans á vetrar- hátíðinni á Akm-eyi’i, Snjólaugu Bragadóttur. Vetrarhátíðinni á Akureyri var haldið áfram í dag (föstudag), og var skínandi gott veður framan af degi, en þegar keppnin í sbór- svigi hófst, fór að sfcafa. Úrslit í stórsviginu: 1. Árni Óðinsson, A'k 104,35 2. 01 a Lindhrack, Svíþj. 106,17 3. ívar Sigmundisson, Ak. 106,80 Kvennaflokkur: 1. Ingunn Sundvall, Noregi 80,60 2. Barhara Geirsd., Ak. 87,37 3. Áslaug Sigurðard., Rvík 91,22 1 norrænni tvíkeppni urðu loka úrslit þessi: 1. David Jansvall, Noregi 540,63 st. 2. Hpo Nuolkiv, Fnnl. 526,81 st. 3. Bj'örn Þ. Ólafsson, Ólf. 380,73 B’t. Keppninni verður haldið áfram á laugardag (í dag) og keppt í svigi karla og kvenna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.