Tíminn - 09.05.1970, Blaðsíða 1
102. tbl. — Laugardagur 9. maí 1970. — 54. árg.
HiimilISTIEKI
Þetta er
eiginlegt
Heklugos
EJ—Reykjavik, föstudag.
Litlar breytingar ha'fa orðið á
gosinu á Heklusvæðinu. Enn sem
fyrr eru syðstu gosstöðvarnar virk
astar og enn rennur hraun í stríð
um straiimum. Rannsóknir á sýnis
! hornum hafa nú sannað, að hér
er um eiginlegt Heklugos að ræða
og því ekki ástæða til að kalla
það öðru nafni.
Slæmt skyggni hefur verið við
Heklu í dag og því ekki sézt mik
ið til gossins, en hins vegar bera
þær fréttir, sem þó hafa borizt
' með sér, að iítil breytinig hafi á
orðið. Þó mun nokkuð hafa dreg
ið úr gosinu á syðstá svæðinu í
nótt, en aftur aukizt í morgun.
Vísindamenn segja, að venju
lega standi gos í Heklu í 6—12
mánuði, en að öðru leyti sé erfitt
að spá um lengd þessa goss.
Framan af hafa vísindamenn
verið í nokkrum vafa um, hvort
kalla ætti þetta eiginlegt Heklu
gos — eða gos á Heklusvæðinu,
eins og þeir hafa gert til þessa.
Sýnishorn voru tekin af gossvæð
unum og send til rannsókna í
Reykjavík, og iiggja nú niðurstöð
ur fyrir að mestu leyti.
Efnagreining sumra þeirra efna,
sem í sýnishornunum eru, hefur
sýnt, að efnasamsetningin er svip
uð og í eiginlegu Heklugosi, og í
samræmi við þann tíma sem lið
inn er frá síðasta Heklugosi..
Þar af leiðandi er ljóst, að um
eigin'legt Heklugos er að ræða,
ekki sízt þar sem efnasamsetning
in er ólík því sem átti sér stað,
þegar sprungugosið varð til hlið
ar við Heklu — en hingað til j
hafa sumir viljað telja núverandi |
gos svipað.
Vísindamenn hafa skipt að j
nokkru með sér verkum við rann
sókn á Heklugosinu.
Næstu fslendinga-
þættir Tímans í júní
AK, 8. maí. — Vegna anna í
prentsmiðju í þessum mánuði geta
íslendingaþættir því miður ekki
komið út fyrr en upp úr næstu
mánaðamótum. Allmikið efni bíð-
ur þegar birtingar, en vonandi
geta íslendingaþætir komið út
örar í júnímánuði.
Frá átökunum í Kent í Ohio á mánudag, þegar Þjóðvarðliðar grfpu skyndi lega ti! vopna og myrtu fjóra stúdenta. Þessi atburður hefur mjög aukið á
þær mótmælaaðgerðir, sem hafnar voru gegn innrásinni í Kambódíu. (UPl)
MIKIL MöTMÆLI VIÐ
HVlTA HÚSIÐ I DAG
Richard Nixon og Melvin Laird, varnarmálaráðherra, ræða við fréttamenn,
eftir að stúdentar og ýmsir aðrir í Bandaríkjunum hafa gert uppreisn
gegn stefnu forsetans. (UPI)
NTB—Washington, föstudag.
Bandarískir stúdentar munu efna til mikillar mótmælagöngu að
Hvíta húsinu á morgun, laugardag, til þ"s að mótmæla stefnu Richard
Nixons, Bandaríkjaforseta, í málefnum Suðaustur-Asíu, og ©ins til að
mótmæla aðgerðum bandarískra þjóðvarðliða gegn mótmælendum í
Kent, Ohio, þar sem fjórir stúdentar voru skotnir til bana fyrir fáein-
um dögum. Streyma stúdentar hvaðanæva að úr Bandaríkjunum tíi
Washington Ui þess að taka þátt í mótmælaaðgerðunum.
Hefur hingað til komið til mót
mælaaðgerða í um 250 mennta
stofnunum í Bandaríkjunum, og
á nokkrum stöðum hefir komið til
mannvíga.
Hafa stúdentarnir bæði mót-
mælt stefnu Bandaríkjaforseta í
málefnum Suð-austur-Asíu og eins
afstöðu hans og annarra ráða-
manna til mótmælaaðgerða. Sú
afstaða forsetans hefur m. a. orð
ið til þess, að æskuiýðsmálafull
trúi Bandaríkjastjórnar hefur
sagt af sér.
Herma fréttir að Nixon hafi nú
fyrirskipað ráðamönnum og tals
mönnum stjórnvalda, áð láta sér
ekki um munn fara harðorða for
dæmingu á aðgerðum stúdenta.
Jafnframt hefur hann sent út yfir
lýsingu til stúdenta, þar sem hann
segir að áhyggjur þeirra vegna
styrjaldarinnar í Suðaustur-Asíu
séu skiljanlegar, en hins vegar sé
valdbeiting ekki leiðin til að fá,
málunum breytt.
í dag sendi Landssamiband
bandarískra stúdenta, sem hefur
félagsmenn í samtals um 1100
menntastofnunu-m í Bandaríkjun
um út yfiriýsingu, þar sem þess
er krafizt að dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, John Mitohell,
segi þegar af sér embætti. Er
afstaða Mitchell, sem er talinn
íhaldssamur, mjög gagnrýnd.
Stúdentar settust í dag að í
hluta af aðalstöðvum bandarísku
friðarsveitanna, sem eru skammt
frá Hvíta húsinu í Washington.
Voru þeir enn í byggingunni er
síðast fréttist. Stúdentarnir báru
með sér borða og spjöld með slag
Framhald á bls. 14
Brennisteinseitrun eða flúoreitrun í
kindum eftir Heklugos:
D0ÐII KINDUM A 30 BÆJUM
SB—Reykjavík, föstudag.
Vart hefur orðið veikinda í
sauðfé á mörgum bæjum, þar sem
askan frá Heklugosinu féll í fyrri
nótt og gær. Á Hólum á Rangár-
völlum drapst ein kind í nótt, en
dýralæknirinn á Hellu, Karl Korts
son, sagði í dag í viðtali við Tím
ann, að kindurnar væru nú óðum
að hressast, eftir að þær fengu
kalkupplausn í dag. A Kaldbak
veiktust fimm kindur og þær eru
nú að hjarna.
Karl var að koma frá Ilólurn,
þegar við náðum tali af honum.
— Þarna voru 15 kindur með
slen og máttleysi, sagðl hann, en
ég gaf þeim vítamín og kalk og
þegar ég fór, voru þær farnar að
hressast áberandi Ein kind drapst
þar í nótt og verður hræið sent
að Keldum til frekari rannsóknar.
Ég heyrði í dag, að von væri á
mönnum frá Keldum að Hólum
til að athuga aðstæðurnar þarna
og orsakir veikindanna í fénu.
Menn virðast ekki sammála um
hvort um sé að ræða flúoreitrun
eða brennisteinseitrun, en hetta
lýsir sér eins og doði.
Talsverð aska er enn í túninu a
Hólum og þar er engin skepna
úti við. Karl kvaðst ráðleggja1
bændum, að hafa fé sitt inni og
gefa því gott hey, en \andamálið
er, að víða er heylítið, eða hey-
laust. Gerðar hafa verið ráðstaf
anir til að útvega hey á þá bæi,
sem verst eru staddir.
Ásgeii Gestsson, bóndi á Kald-
bak, sagði, að þar hefðu 3 kind
ur veikzt í gærkvöldi, þegar hann
hofði komið að þeim, hefðu þær
1 ekki getað staðið. — En þær
réttu við, þegar ég gaf ,-þeitn
kalk, sagði hann. í dag eru svo
tvær, sem ekki taka fóður. Ég
var að finna aðra beirra núna fyr-
ir stuttu.
Ásgeir sagði, að á kyrrum
pollum væri eins og olíubrák og
hann taldi líklegt, að kindurnar
hefðu drukkið eitthvað af þessu.
Allt fé á Kaldbak er komið í hús
Frambald á bls. 14 ;